Morgunblaðið - 22.09.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
edda.is
Ensku rósirnar eru
fjórar ellefu ára stelpur
og bestu vinkonur.
fiær öfundast hins vegar
út í flá fimmtu, hana
Binnu, sem er bæ›i falleg
og gó› í öllu. Hugljúf og
fyndin saga um öfund,
vináttu og sanngirni.
Silja A›alsteinsdóttir fl‡ddi.
Barnabók Madonnu
1. sæti
Barnabækur
Penninn Eymundsson
17. sept.
ÞRIÐJUNGUR ALDREI FRÁ
Rúmlega þriðjungur vinnuafls á
Íslandi er aldrei frá vinnu vegna
veikinda og um helmingur vinnuafls-
ins er aðeins frá vinnu einn til sjö
daga á ári. Bændur eru sú starfs-
stétt sem minnst er frá vinnu vegna
veikinda en starfsfólk á leikskólum
þarf oftar að taka sér veikindafrí en
24% þess er aldrei frá vinnu vegna
veikinda.
Barist í Breiðholti
Til ryskinga kom milli tveggja
hópa ungmenna í Breiðholti um
helgina. Talið er að ástæða við-
ureignarinnar tengist því að hóp-
arnir eru af ólíkum þjóðernisupp-
runa. Ungur maður var fluttur á
slysadeild eftir að hafa verið stung-
inn með hnífi og barinn með hafna-
boltakylfu við Select-stöðina í Breið-
holti. Lögreglan telur ekki að
vandamálið sé umfangsmikið en
mun grípa inn í og tvístra hópunum
ef framhald verður á árekstrum
þeirra.
Hvassviðri um allt land
Talsvert annríki var hjá björgun-
arsveitum og lögreglu víða um land í
gær þegar mikið hvassviðri gekk yf-
ir landið. Hvergi urðu þó slys á fólki
eða alvarlegt tjón. Færð spilltist á
heiðum og fjallvegum með þeim af-
leiðingum að ökumenn á sumar-
dekkjum lentu í vandræðum.
Stórsigur Stoibers
Þýzki Jafnaðarmannaflokkurinn,
sem lýtur forystu Gerhards Schröd-
ers kanzlara, galt sögulegt afhroð í
kosningum til þings Bæjaralands í
gær; flokkurinn fékk innan við 19%
atkvæða. Edmund Stoiber, sem far-
ið hefur fyrir héraðsstjórninni í 10
ár, og flokkur hans CSU vann stór-
sigur, fékk rétt tæp 62% atkvæða og
fleiri en tvö af hverjum þremur þing-
sætum á héraðsþinginu í München.
Lettar samþykkja ESB-aðild
Lettneskir ráðamenn fögnuðu í
gær úrslitunum úr þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild Lettlands að Evr-
ópusambandinu, en yfirgnæfandi
meirihluti samþykkti hana. Þessi
niðurstaða innsiglar stækkun ESB
til austurs, en Lettland, auk níu ann-
arra ríkja, gengur í sambandið 1.
maí 2004. 67% greiddu aðildinni at-
kvæði sitt en 32,3% á móti.
Fasteignablaðið
mánudagur 22. september 2003 mbl.is
Sparnaður,
öryggi,
þægindi
Sumarhúsalán Búnaðarbankans er nýjung
Lánið getur verið til allt að 15 ára
Lánið er veitt gegn veði í sumarhúsinu
Veðsetning getur verið allt að 50% af markaðsvirði sumarhússins
Kynntu þér málið í næsta útibúi Búnaðarbankans, á www.bi.is eða í síma 525 6000F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
4
4
2
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
// Loftstreymið
Það eru til fleiri leiðir til að fá inn hreint loft
en að taka það inn um gluggann og það er
hægt að stýra því, hve mikið loft streymir
inn eða hvort það er lokað fyrir það. 40
// Sameignin
Sú mikilvæga regla kemur fram í lögunum um
fjöleignarhús, að allir íbúðareigendur hafa
jafn mikinn hagnýtingarrétt á sameigninni,
þótt hlutfallstölur séu misháar. 47
// Bræðraborg
Húsið stendur við Bræðraborgarstíg 14 og
dregur gatan nafn sitt af því, en það er eitt
fyrsta steinhúsið á þessum slóðum. Húsið
hefur verið gert upp af smekkvísi. 52
// Endurómun
Hús rigningarinnar á Spáni dregur nafn sitt
af veðurfarslegum aðstæðum. „Upplifun
byggingarlistarinnar er eins og að hlusta á
tónlist,“ segir hönnuðurinn Baldeweg. 54
FRAMUNDAN er úthlutun á
lóðum í fyrsta áfanga svo-
nefnds Kórahverfis í Kópavogi,
en umsóknarfrestur er til 1.
október nk. Úthlutað verður
lóðum á um 15 hektara svæði
fyrir alls 270 íbúðir í blandaðri
byggð fjölbýlishúsa, einbýlis-
húsa og raðhúsa.
Kórahverfi verður í framhaldi
af Salahverfi. Þarna er mikið
útsýni, en landið stendur hátt
og því hallar til vesturs og suð-
urs. Skilmálar eru frekar opnir,
litlar kvaðir en sveigjanleiki lát-
inn ráða.
Kórahverfi er ætlað mikið
hlutverk í framtíðinni, en auk
tveggja leikskóla verður þar
heildstæður grunnskóli með
góðri tengingu við íþróttasvæði
og íþróttahús. Einnig verður
miðstöð fyrir verzlun og þjón-
ustu og aðstaða fyrir aldraða.
Gatnagerð fer að hefjast en
gert er ráð fyrir, að lóðir í fyrsta
áfanga verði byggingarhæfar
næsta sumar. 30
Lóðir í
Kórahverfi
TÖLUVERÐ hreyfing er nú á fast-
eignamarkaði á Akranesi. Nýbygg-
ingar tóku mikinn kipp í fyrra. Þá
voru fullkláraðar þar yfir 50 íbúðir
en aðeins fimm árið þar á undan.
Ljóst er jafnframt að þessi mikla
uppbygging heldur áfram á þessu
ári.
Það vekur ávallt athygli, þegar
þekktar og áberandi húseignir koma
í sölu. Hjá fasteignasölunni Valhöll
er nú til sölu Hótel Barbró á Akra-
nesi. Alls er um 871 ferm. steinsteypt
húsnæði á bezta stað í hjarta Akra-
nesbæjar að ræða.
Innifalið í sölunni er allur rekstur,
búnaður og húsnæði ásamt allri við-
skiptavild, pizzugerð og tilheyrandi
hlutafélagi um eignina og reksturinn.
Óskað er eftir tilboðum og ýmiss
konar skipti möguleg. „Hótelið og
reksturinn undir sama nafni hafa
verið í eigu og rekstri sömu fjöl-
skyldu frá upphafi eða í alls 20 ár,
þar af tíu ár á núverandi stað á
Kirkjubraut 11,“ segir Ingólfur Giss-
urarson hjá Valhöll.
Húsið skiptist m.a. í móttöku,
koníaksstofu með fullbúnum bar,
samkomusal fyrir um 100 manns í
sæti, setustofu, veitingasal fyrir 50
manns í sæti og fullkomið eldhús
með kæli og frysti.
Gistiaðstaðan er á 2. og 3. hæð og
eru þar alls 13 herbergi, öll með bað-
herbergi nema eitt. Svefnaðstaða er
fyrir 25 manns. Setustofa er á 2. hæð.
„Eigninni hefur alla tíð verið mjög
vel við haldið, bæði að utan sem inn-
an,“ sagði Ingólfur Gissurarson. „Það
fylgja tvær byggingalóðir við húsið,
sem eru nýttar sem bílastæði, ásamt
teikningum af stækkun upp á 44 her-
bergi.
Þarna er um gott tækifæri að ræða
fyrir samhenta einstaklinga eða fjöl-
skyldu til þess að skapa sér gott at-
vinnutækifæri. Hótel Barbro gæti
einnig hentað vel fyrir stærri hótel-
keðjur í Reykjavík til þess að taka af
álagspunkta, þar sem leiðin milli
borgarinnar og Akraness er stutt og
falleg.
Byggðin er að færast saman. Höf-
uðborgarsvæðið teygir sig stöðugt
nær Hvalfjarðargöngunum og eins er
með byggðina á Akranesi. Í framtíð-
inni verður þetta því samfelld byggð
frá Akranesi suður fyrir Hafnar-
fjörð.“
Hótel Barbro er steinsteypt hús, alls um 871 ferm. Óskað er eftir tilboðum.
Innifalið í sölunni er allur rekstur, búnaður og húsnæði, en hótelið er til sölu hjá
Valhöll.
Hótel Barbró við Kirkjubraut
áAkranesi til sölu
!"
#$%&'
( )*'
+*!"
, *- %%'
./0112
*./0112
' 3
./0112
*./0112
4
5
16
44
4
!!!"
.071
.071
.071
.071
8
8
8
4 #
$
!%&
#
#
%
##
' (
1 1 16 ))
)
1.1
))
)
) $
1 1544
1 Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 25
Viðskipti 12 Bréf 26
Erlent 13 Dagbók 28/29
Listir 16 Leikhús 30
Umræðan 17 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Hestar 20 Ljósvakar 34
Minningar 21/25 Veður 35
* * *
HVASSVIÐRIÐ var af völdum
djúprar lægðar sem myndaðist á
Grænlandssundi og færðist austur
fyrir land og dýpkaði um leið hratt, að
sögn Theodórs Hervarssonar, veður-
fræðings á Veðurstofu Íslands.
Lægðin dró til sín kalt loft úr norðri
sem myndaði þannig mikinn strekk-
ing sem gekk yfir landið. Í dag er
reiknað með að vindur snúist yfir í
hlýrri suðvestanátt og veðrið gangi
alveg niður fyrir austan þegar líður á
daginn. Búast má við éljagangi á
Norðausturlandi fram undir hádegi.
Um 70 björgunarsveitarmenn
að störfum víðs vegar um land
Samkvæmt upplýsingum frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg voru alls
um sjötíu björgunarsveitarmenn að
störfum víðs vegar um landið í gær
vegna hvassviðrisins. Björgunarsveit-
in Ársæll í Reykjavík var kölluð út kl.
fimm í gærmorgun þegar þakplötur,
vinnupallar og annað lauslegt tók að
fjúka. Mest gekk á í Vesturbænum og
í nágrenni Laugardals og vann sjö
manna hópur björgunarsveitar-
manna að því að festa niður hluti sem
höfðu fokið.
Bátar slitu festar á Sauðárkróki
og Hvammstanga
Bátar losnuðu í höfnunum á
Hvammstanga og Sauðárkróki, þar
sem Björgunarsveitin Skagfirðingur
var kölluð út kl. átta í gærmorgun eft-
ir að stór rækjubátur sleit festar í
höfninni. Björgunarsveitarmenn
komust um borð í bátinn með því að
nota lyftara til að stökkva um borð.
Síðan gekk illa að festa bátinn og sleit
hann víra og tóg hvað eftir annað og
tókst ekki fyrr en á ellefta tímanum
að festa hann. Bíll björgunarsveitar-
innar varð fyrir skemmdum þegar
hann var notaður til að draga bátinn
að bryggju. Þá losnuðu smábátar og
aðstoðuðu björgunarsveitarmenn við
að festa þá og ausa úr þeim sjó og
jafnframt að festa niður girðingar og
þakplötur í bænum. Þegar mest lét
voru tuttugu björgunarsveitarmenn
að störfum í bænum.
Á Hvammstanga var björgunar-
sveitin Káraborg kölluð út kl. 9.30 í
gærmorgun eftir að bátur losnaði í
höfninni og rak stjórnlaust upp í
brimið við hafnargarðinn. Björgunar-
sveitarmönnum tókst að komast að
bátnum á björgunarbát og draga að
bryggju með aðstoð vörubíls.
Þakplötur fuku og bílar lentu í
vandræðum á heiðum
Í Vestmannaeyjum og Árborg voru
björgunarsveitarmenn að störfum í
gærmorgun við að festa niður fjúk-
andi þakplötur sem höfðu losnað og í
Vestmannaeyjum fuku vinnupallar
við framhaldsskólann.
Um kvöldmatarleytið í gær lentu
þrír bílar utan vegar í flughálku á
stuttum vegarkafla í Bröttubrekku.
Einn bíllinn fór á hliðina og annar valt
heilan hring, að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi, sem stóð í ströngu í gær.
Á Holtavörðuheiði lentu bílar í
vandræðum í hálku og skafrenningi
sem olli því að lítið sást fram á veginn.
Bíll með erlendum ferðamönnum
lenti utan vegar skömmu fyrir hádegi,
en að sögn lögreglunnar í Borgarnesi
virtust erlendu ferðamennirnir ekki
hafa nægar upplýsingar um veður og
færð og voru því illa búnir undir slíkar
aðstæður. Engin meiðsl hlutust af
þessu og seinnipartinn í gær skánaði
færðin á heiðinni þegar veðrið gekk
niður.
Fótboltamark fauk á bíl
en ökumann sakaði ekki
Rafmagnslaust var frá klukkan sjö
í gærmorgun fram til klukkan eitt á
Ísafirði en vonskuveður var á svæð-
inu. Bilun varð í Mjólkárlínu þegar
henni sló út vegna hvassviðris og voru
vararafstöðvar ræstar.
Bíl var ekið út af Skutulsfjarðar-
braut á Ísafirði um kl. 11 í gærmorg-
un í snjó og krapa. Ökumaður var
einn í bílnum ásamt hundi sínum en
þá sakaði ekki. Bíllinn var dreginn
upp á veg og reyndist óskemmdur.
Á Suðureyri við Súgandafjörð fauk
laust fótboltamark á bíl um kl. hálftvö
í gær en bíllinn stóð á bifreiðastæði
við fjölbýlishús. Bíllinn var mannlaus
og engan sakaði en talsverðar
skemmdir urðu á bílnum. Björgunar-
sveitin á Suðureyri kom á vettvang og
festi markið niður.
Þá valt bíll út af veginum um
Langadal um fjögurleytið í gærdag
vegna krapa á veginum. Meiðsl á fólki
reyndust minniháttar en töluverðar
skemmdir urðu á bílnum.
Á Akureyri brotnuðu þrjú tré í
hvassviðrinu í gær en nokkur tré
brotnuðu einnig í bænum í fyrradag.
Færð um Öxnadalsheiði var ágæt og
þurfti lögreglan ekki að aðstoða fólk í
umferðinni.
Hvass vindur og hálka olli vandræðum víða um land
Bátar losnuðu og
bílar lentu utan vegar
Ljósmynd/Daníel Eyþór Gunnlaugsson
Liðsmenn Björgunarsveitarinnar Ársæls í Reykjavík höfðu í ýmsu að snú-
ast þegar lausir hlutir fuku í rokinu.
Víða um land þurftu björgunarsveitarmenn að festa lausar þakplötur á húsum.
Talsvert annríki var hjá björgunarsveitum
og lögreglu víða um land í gær þegar mikið
hvassviðri gekk yfir landið en hvergi urðu
slys á fólki eða alvarlegt tjón. Færð spilltist
á heiðum og fjallvegum með þeim afleið-
ingum að ökumenn lentu í vandræðum á
sumardekkjum vegna hálku.
NOKKUR ungmenni veittust að
32 ára Íslendingi í Karlstad í Sví-
þjóð aðfaranótt laugardags og var
hann stunginn með hnífi í hand-
leggi, bak og andlit. Honum barst
ekki hjálp fyrr en um klukkustund
eftir árásina og missti talsvert
blóð á þeim tíma. Hann var síðan
fluttur á sjúkrahúsið í Karlstad en
er ekki talinn lífshættulega slas-
aður.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Karlstad var maður-
inn á gangi í Kronoparken á öðr-
um tímanum aðfaranótt laugar-
dags þegar nokkur ungmenni
veittust að honum með fyrr-
greindum afleiðingum, að því er
virðist að tilefnislausu en ekki er
vitað um tildrög árásarinnar, að
sögn lögreglunnar í Karlstad.
Tveir árásarmannanna, 17 og 16
ára, eru í haldi lögreglunnar í
Karlstad og verða yfirheyrðir
nánar. Þá voru nokkur ungmenni
að auki færð til yfirheyrslu á laug-
ardagskvöld en var sleppt að því
loknu. Að sögn lögreglunnar er
unnið að frekari rannsókn máls-
ins.
Íslendingur stunginn með hnífi í Svíþjóð
Barst ekki hjálp
fyrr en klukku-
stund eftir árásina