Morgunblaðið - 22.09.2003, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.09.2003, Qupperneq 1
Fasteignablaðið mánudagur 22. september 2003 mbl.is Sparnaður, öryggi, þægindi Sumarhúsalán Búnaðarbankans er nýjung Lánið getur verið til allt að 15 ára Lánið er veitt gegn veði í sumarhúsinu Veðsetning getur verið allt að 50% af markaðsvirði sumarhússins Kynntu þér málið í næsta útibúi Búnaðarbankans, á www.bi.is eða í síma 525 6000F í t o n / S Í A F I 0 0 7 4 4 2 Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu // Loftstreymið Það eru til fleiri leiðir til að fá inn hreint loft en að taka það inn um gluggann og það er hægt að stýra því, hve mikið loft streymir inn eða hvort það er lokað fyrir það.  40 // Sameignin Sú mikilvæga regla kemur fram í lögunum um fjöleignarhús, að allir íbúðareigendur hafa jafn mikinn hagnýtingarrétt á sameigninni, þótt hlutfallstölur séu misháar.  47 // Bræðraborg Húsið stendur við Bræðraborgarstíg 14 og dregur gatan nafn sitt af því, en það er eitt fyrsta steinhúsið á þessum slóðum. Húsið hefur verið gert upp af smekkvísi.  52 // Endurómun Hús rigningarinnar á Spáni dregur nafn sitt af veðurfarslegum aðstæðum. „Upplifun byggingarlistarinnar er eins og að hlusta á tónlist,“ segir hönnuðurinn Baldeweg.  54 FRAMUNDAN er úthlutun á lóðum í fyrsta áfanga svo- nefnds Kórahverfis í Kópavogi, en umsóknarfrestur er til 1. október nk. Úthlutað verður lóðum á um 15 hektara svæði fyrir alls 270 íbúðir í blandaðri byggð fjölbýlishúsa, einbýlis- húsa og raðhúsa. Kórahverfi verður í framhaldi af Salahverfi. Þarna er mikið útsýni, en landið stendur hátt og því hallar til vesturs og suð- urs. Skilmálar eru frekar opnir, litlar kvaðir en sveigjanleiki lát- inn ráða. Kórahverfi er ætlað mikið hlutverk í framtíðinni, en auk tveggja leikskóla verður þar heildstæður grunnskóli með góðri tengingu við íþróttasvæði og íþróttahús. Einnig verður miðstöð fyrir verzlun og þjón- ustu og aðstaða fyrir aldraða. Gatnagerð fer að hefjast en gert er ráð fyrir, að lóðir í fyrsta áfanga verði byggingarhæfar næsta sumar. 30 Lóðir í Kórahverfi TÖLUVERÐ hreyfing er nú á fast- eignamarkaði á Akranesi. Nýbygg- ingar tóku mikinn kipp í fyrra. Þá voru fullkláraðar þar yfir 50 íbúðir en aðeins fimm árið þar á undan. Ljóst er jafnframt að þessi mikla uppbygging heldur áfram á þessu ári. Það vekur ávallt athygli, þegar þekktar og áberandi húseignir koma í sölu. Hjá fasteignasölunni Valhöll er nú til sölu Hótel Barbró á Akra- nesi. Alls er um 871 ferm. steinsteypt húsnæði á bezta stað í hjarta Akra- nesbæjar að ræða. Innifalið í sölunni er allur rekstur, búnaður og húsnæði ásamt allri við- skiptavild, pizzugerð og tilheyrandi hlutafélagi um eignina og reksturinn. Óskað er eftir tilboðum og ýmiss konar skipti möguleg. „Hótelið og reksturinn undir sama nafni hafa verið í eigu og rekstri sömu fjöl- skyldu frá upphafi eða í alls 20 ár, þar af tíu ár á núverandi stað á Kirkjubraut 11,“ segir Ingólfur Giss- urarson hjá Valhöll. Húsið skiptist m.a. í móttöku, koníaksstofu með fullbúnum bar, samkomusal fyrir um 100 manns í sæti, setustofu, veitingasal fyrir 50 manns í sæti og fullkomið eldhús með kæli og frysti. Gistiaðstaðan er á 2. og 3. hæð og eru þar alls 13 herbergi, öll með bað- herbergi nema eitt. Svefnaðstaða er fyrir 25 manns. Setustofa er á 2. hæð. „Eigninni hefur alla tíð verið mjög vel við haldið, bæði að utan sem inn- an,“ sagði Ingólfur Gissurarson. „Það fylgja tvær byggingalóðir við húsið, sem eru nýttar sem bílastæði, ásamt teikningum af stækkun upp á 44 her- bergi. Þarna er um gott tækifæri að ræða fyrir samhenta einstaklinga eða fjöl- skyldu til þess að skapa sér gott at- vinnutækifæri. Hótel Barbro gæti einnig hentað vel fyrir stærri hótel- keðjur í Reykjavík til þess að taka af álagspunkta, þar sem leiðin milli borgarinnar og Akraness er stutt og falleg. Byggðin er að færast saman. Höf- uðborgarsvæðið teygir sig stöðugt nær Hvalfjarðargöngunum og eins er með byggðina á Akranesi. Í framtíð- inni verður þetta því samfelld byggð frá Akranesi suður fyrir Hafnar- fjörð.“ Hótel Barbro er steinsteypt hús, alls um 871 ferm. Óskað er eftir tilboðum. Innifalið í sölunni er allur rekstur, búnaður og húsnæði, en hótelið er til sölu hjá Valhöll. Hótel Barbró við Kirkjubraut áAkranesi til sölu                                 ! " # # $  # % & &                                 $  &! # % " & # #                     '()*  )  *   & +  ,-.   /  *0  1  +  2  3..    4 )5 &  4 )5 ") (  4 )5 &  4 )5    6  7 8 6  66 6            !!!"          9 9 9   6  6  6 # $      !%& # #  % ## '   (                8  ))    )   & )  ))    )    )   $      766 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.