Morgunblaðið - 22.09.2003, Blaðsíða 46
46 C MÁNUDAGUR 22. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir
mbl.is/fasteignir/fastis
habil.is/fastis
Opið mán.-fim. kl. 9-18
Opið fös. kl. 9-17
KEILUGRANDI - BÍLSKÝLI
Vorum að fá í einkasölu fallega 3ja herb.
íb. á 3. hæð ásamt stæði í bílskýli í litlu
fjölbýli á þessum vinsæla stað. Stór stofa
með suðursvölum. Flísalagt baðherbergi.
Parket. Áhv. um 4,3 millj. byggsj. og hús-
bréf. BEIN SALA EÐA SKIPTI Á HÆÐ EÐA
RAÐHÚSI Í VESTURBÆNUM. Verð 13,5
millj.
HRÍSMÓAR - BÍLSKÝLI Vorum að
fá í einkasölu góða 2ja-3ja herb. íb. á 2.
hæð í lyftuhúsi ásamt góðu stæði í bílskýli,
miðsvæðis í Garðabæ. Stofa með suður-
svölum. Hús nýl. klætt að utan og sameign
teppalögð og máluð að innan. Stutt í alla
þjónustu. Verð 11,0 millj.
HRÍSRIMI - SKIPTI Á BÍL Vorum
að fá í einkasölu góða og rúmgóða 3ja-4ra
herbergja íbúð á 1. hæð (jarðhæð) í litlu
fjölbýli. Góð verönd. Stofa, 2 svefnherb.
og gluggalaust vinnuherbergi. Stutt í skóla
og þjónustu. ATH. SKIPTI Á SKULDLAUS-
UM BÍL. Verð 12,5 millj.
MIÐBORGIN Vorum að fá í sölu mjög
fallega 3ja herb. íb. á 2. hæð í góðu stein-
húsi í hjarta Rvk. Íbúðin er nær öll end-
urn., m.a. ný eldhúsinnr., nýtt baðh., park-
et. Laus fljótlega. Verð 10,9 millj.
LANDSBYGGÐIN
SELFOSS - EINBÝLI
Vorum að fá í einkasölu fallegt einbýlishús
á einni hæð ásamt stórum tvöföldum bíl-
skúr m. hita, vatni og 3. fasa rafmagni.
Stofa, 5 svefnherbergi með skápum, end-
urnýjað baðherbergi. Hús og þak er nýlega
yfirfarið og málað. Fallegur gróinn garður.
Húsið er vel staðsett í enda á botnlanga-
götu og er stutt í skóla og þjónustu. Laust
fljótlega. Verð 17,9 millj.
AKUREYRI - EINBÝLI Vorum að fá
í sölu 5-7 herbergja einbýli á tveimur hæð-
um með stórum innbyggðum bílskúr. Á
neðri hæð er forstofa, 2 rúmgóð herbergi,
baðherbergi með sturtu, stofu, góðu holi.
Á efri hæðinni er forstofa, hol, borðstofa,
stofa, eldhús, stórt baðherbergi með baði
og sturtu, 2 herb., þvottahús. Verönd.
Friðsælt og fjölskylduvænt umhverfi.
Möguleiki á tveimur íbúðum. Áhv. um 7 m.
húsbréf. Gott verð.
KEFLAVÍK - ÓDÝR Vorum að fá í
sölu 2ja herb. íbúð á 3. hæð í góðu húsi
miðsvæðis. Nýl. parket. Glæsil. útsýni.
Íbúðin er nýl. máluð. Áhv. húsbréf. Ásett
verð 4,5 millj.
2JA HERBERGJA
SAFAMÝRI - LAUS STRAX
Vorum að fá í einkasölu góða ca 70 fm íb. í
kj. á þessum vinsæla stað í austurbænum.
Stór og björt stofa. Svefnherb. með góð-
um skápum. Merbau-parket. Snyrtileg
sameign. Áhv. um 3,8 millj. byggsj. rík.
LAUS STRAX. Ásett verð 9,3 millj.
LAUGAVEGUR Vorum að fá í sölu
fallega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja
íbúð í góðu steinhúsi ofarlega á Laugaveg-
inum. Íb. snýr að mestu frá Laugav. Parket
á gólfum. Bílastæði. Áhv. um 5,5 millj.
langtímalán.
3JA HERBERGJA
ÁLFATÚN Vorum að fá í einkasölu
glæsilega 3ja herb. íb. á 1. hæð í litlu fjöl-
býli í botnlanga á góðum stað við Foss-
vogsdalinn. Stofa m. suðursvölum, sjón-
varpshol, 2 svefnherb. með suðaustursvöl-
um úr hjónaherb., flísal. baðherb., gott
eldhús m. þvottahúsi/búri inn af. Parket og
flísar á gólfum. Mjög góð sameign. Vinsæll
staður. Verð 13,3 millj.
4RA - 6 HERBERGJA
VESTURBERG - HÚS KLÆTT
Vorum að fá í einkasölu rúmgóða um 112
fm, 4ra herb. íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli
sem nýlega er búið að klæða að utan með
litaðri álklæðningu á vandaðan hátt. Yfir-
byggðar flísalagðar vestursvalir. Flísalagt
baðherbergi. Parket á stofu, sjónvarpsholi
og herbergjum. Sameign nýl. máluð að
innan. Stutt í skóla og þjónustu. Áhv. um 8
millj. húsbréf með 5,1% vöxtum. ÁKVEÐIN
SALA.
HÆÐIR
HRAUNBRAUT - BÍLSKÚR
Vorum að fá í einkasölu fallega 6 herbergja
efri sérhæð í góðu tvíbýli ásamt bílskúr á
góðum stað við botnlangagötu í vesturbæ
Kópavogs. Samliggjandi stofa og
borðstofa með stórum suðursvölum, 4
svefnherbergi. Sérinngangur, -hiti og
rafmagn. Hús nýlega tekið í gegn að utan
og málað svo og svalir. Góður gróinn
garður. Innkeyrsla er nýl. hellulögð með
hita. Verð 18,2 millj.
DALSEL - BÍLSKÝLI Vorum að fá í
einkasölu 4ra-5 herbergja íbúð á 2. hæð í
litlu fjölbýli ásamt stæði í bílskýli. Stofa og
4 svefnhebrergi. Hús nýl. tekið í gegn að
utan og viðgert og málað, ásamt gluggum
og þaki. Stutt í þjónustu. Gott stæði í bíl-
skýli. Verð 12,8 millj.
BARÐASTAÐIR - BÍLSKÚR Mjög
góð og vel skipulögð 4ra-5 herbergja íbúð
á 2. hæð í litlu nýlegu fjölbýli ásamt um 28
fm bílskúr. Sjónvarpshol, góð stofa m.
suðvestursvölum, 3 góð herb. Vandaðar
innr. úr hunangseik. Þvottah. í íb. Flísar og
parket á gólfi. Hús er steinað að utan með
marmarasalla. Eign fyrir vandláta.
VESTURBERG Vorum að fá í einka-
sölu góða 4ra herbergja íbúð í litlu fjölbýli.
Vestursvalir úr stofu með fallegu útsýni.
Áhvílandi hagstæð langtímalán um 7,1
millj. (byggsj. og húsbréf). Verð 10,9 millj.
EINB. - PAR - RAÐHÚS
KLAPPARBERG
Vorum að fá í einkasölu fallegt 177 fm ein-
býli á tveimur hæðum ásamt 30 fm bílskúr.
Stofa, borðstofa með hurð út á hellulagða
verönd með heitum potti. 4 svefnherb.
Baðherbergi og gestasnyrting. Þvottahús.
Fallegt útsýni. Húsið stendur innst við
botnlangagötu. BEIN SALA EÐA SKIPTI Á
3-4RA HEBRERGJA ÍBÚÐ. Verð 21,9 millj.
BYGGÐARENDI - EINBÝLI
Glæsilegt einbýlishús á þessum vinsæla
stað, innarlega í botnlangagötu. Húsið
sem er á 2 hæðum er með nýlegri vand-
aðri eldhúsinnréttingu, nýl. endurnýjuðum
baðherbergjum og saunu. Stofur með fal-
legu útsýni og suðursvölum. Gólfefni er
parket og flísar, að mestu nýlegt. Fallegur
garður. VERÐTILBOÐ.
ATVINNUHÚSNÆÐI
SKÚLATÚN - SALA/LEIGA Til
sölu eða leigu 3 skrifstofuhæðir í sama
húsi, 150 fm, 275 fm og 275 fm eða sam-
tals um 700 fm. Laust strax. Nánari uppl.
gefur Haukur Geir.
MIÐHRAUN - GARÐABÆ Vorum
að fá í einkasölu nýlegt um 1160 fm hús-
næði sem er sérhannað fyrir heildsölu.
Húsnæðið er á einni hæð með um 8 metra
lofthæð auk lítils millilofts fyrir skrifstofur.
Góð aðkoma og bílaplan. Nánari uppl.
veitir Haukur Geir.
SUMARBÚSTAÐIR
BORGARFJÖRÐUR Um 40 fm bú-
staður í kjarrivöxnu landi. Stofa og 3
svefnherbergi. Parket. Stór verönd. Verð
4,5 millj.
LESTU ÞETTA !
HJÁ OKKUR ER ÞAÐ LÖGGILTUR
FASTEIGNASALI SEM SKOÐAR OG
VERÐMETUR EIGN ÞÍNA, VEITIR ÞÉR
RÁÐGJÖF OG GENGUR FRÁ ÖLLUM
SKJÖLUM VARÐANDI SÖLUNA.
ÞEKKING, TRAUST OG ÁRATUGA REYNSLA.
Seljendur
Sölusamningur – Áður en fast-
eignasala er heimilt að bjóða eign til
sölu, ber honum að ganga frá sölu-
samningi við eiganda hennar um
þjónustu fasteignasala á þar til gerðu
samningseyðublaði. Eigandi eignar
og fasteignasali staðfesta ákvæði
sölusamningsins með undirritun
sinni. Allar breytingar á sölusamningi
skulu vera skriflegar. Í sölusamningi
skal eftirfarandi koma fram:
Tilhögun sölu – Koma skal fram,
hvort eignin er í einkasölu eða al-
mennri sölu, svo og hver söluþóknun
er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbind-
ur eigandi eignarinnar sig til þess að
bjóða eignina aðeins til sölu hjá ein-
um fasteignasala og á hann rétt til
umsaminnar söluþóknunar úr hendi
seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld
annars staðar. Einkasala á einnig við,
þegar eignin er boðin fram í maka-
skiptum. – Sé eign í almennri sölu má
bjóða hana til sölu hjá fleiri fast-
eignasölum en einum. Söluþóknun
greiðist þeim fasteignasala, sem sel-
ur eignina.
Auglýsingar – Aðilar skulu semja
um, hvort og hvernig eign sé auglýst,
þ. e. á venjulegan hátt í eindálki eða
með sérauglýsingu. Auglýsingakostn-
aður skal síðan greiddur mán-
aðarlega samkv. gjaldskrá dagblaðs.
Öll þjónusta fasteignasala þ. m. t.
auglýsingar er virðisaukaskattskyld.
Gildistími – Sölusamningurinn er
uppsegjanlegur af beggja hálfu með
fyrirvara (hámark 30 dagar) og gera
þarf það skriflega. Ef einkasölusamn-
ingi er breytt í almennan sölusamn-
ing þarf einnig að gera það með skrif-
legum hætti. Sömu reglur gilda þar
um uppsögn.
Öflun gagna/söluyfirlit – Áður en
eignin er boðin til sölu, verður að út-
búa söluyfirlit yfir hana. Seljandi skal
leggja fram upplýsingar um eignina,
en í mörgum tilvikum getur fast-
eignasali veitt aðstoð við útvegun
þeirra skjala sem nauðsynleg eru.
Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fasteignasal-
ans við útvegun skjalanna. Í þessum
tilgangi þarf eftirfarandi skjöl:
Veðbókarvottorð – Þau kosta nú
900 kr. og fást hjá sýslumannsemb-
ættum. Opnunartíminn er yfirleitt
milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbók-
arvottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða þing-
lýstar kvaðir eru á henni.
Greiðslur – Hér er átt við kvittanir
allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem
eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem
á að aflýsa.
Fasteignamat – Hér er um að
ræða matsseðil, sem Fasteignamat
ríkisins sendir öllum fasteignaeig-
endum í upphafi árs og menn nota
m.a. við gerð skattframtals. Fast-
eignamat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími 5155300.
Fasteignagjöld – Sveitarfélög eða
gjaldheimtur senda seðil með álagn-
ingu fasteignagjalda í upphafi árs og
er hann yfirleitt jafnframt greiðslu-
seðill fyrir fyrsta gjalddaga fasteigna-
gjalda ár hvert. Kvittanir þarf vegna
greiðslu fasteignagjaldanna.
Brunabótamatsvottorð – Vott-
orðin fást hjá því tryggingafélagi, sem
eignin er brunatryggð hjá. Vottorðin
eru ókeypis. Einnig þarf kvittanir um
greiðslu brunaiðgjalda. Ef fá þarf nýtt
brunabótamat á fasteign, þarf að
snúa sér til Fasteignamats ríksins og
biðja um nýtt brunabótamat.
Hússjóður – Hér er um að ræða yf-
irlit yfir stöðu hússjóðs og yfirlýsingu
húsfélags um væntanlegar eða yf-
irstandandi framkvæmdir. Formaður
eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að út-
fylla sérstakt eyðublað Félags fast-
eignasala í þessu skyni.
Afsal – Afsal fyrir eign þarf að
liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er
hægt að fá ljósrit af því hjá viðkom-
andi sýslumannsembætti og kostar
það nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn-
legt, því að það er eignarheimildin
fyrir fasteigninni og þar kemur fram
lýsing á henni.
Kaupsamningur – Ef lagt er fram
ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að
leggja fram ljósrit kaupsamnings. Það
er því aðeins nauðsynlegt í þeim til-
vikum, að ekki hafi fengist afsal frá
fyrri eiganda eða því ekki enn verið
þinglýst.
Eignaskiptasamningur – Eigna-
skiptasamningur er nauðsynlegur, því
að í honum eiga að koma fram eign-
arhlutdeild í húsi og lóð og hvernig af-
notum af sameign og lóð er háttað.
Umboð – Ef eigandi annast ekki
sjálfur sölu eignarinnar, þarf umboðs-
maður að leggja fram umboð, þar
sem eigandi veitir honum umboð til
þess fyrir sína hönd að undirrita öll
skjöl vegna sölu eignarinnar.
Yfirlýsingar – Ef sérstakar kvaðir
eru á eigninni s. s. forkaupsréttur,
umferðarréttur, viðbyggingarréttur o.
fl. þarf að leggja fram skjöl þar að lút-
andi. Ljósrit af slíkum skjölum fást yf-
irleitt hjá viðkomandi fógetaembætti.
Teikningar – Leggja þarf fram
samþykktar teikningar af eigninni.
Hér er um að ræða svokallaðar bygg-
ingarnefndarteikningar. Vanti þær má
fá ljósrit af þeim hjá byggingarfull-
trúa.
Kaupendur
Þinglýsing – Nauðsynlegt er að
þinglýsa kaupsamningi strax hjá við-
komandi sýslumannsembætti. Það er
mikilvægt öryggisatriði. Á kaupsamn-
inga v/eigna í Hafnarfirði þarf áritun
bæjaryfirvalda áður en þeim er þing-
lýst.
Greiðslustaður kaupverðs – Al-
gengast er að kaupandi greiði afborg-
anir skv. kaupsamningi inn á banka-
reikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
Greiðslur – Inna skal allar greiðslur
af hendi á gjalddaga. Seljanda er
heimilt að reikna dráttarvexti strax
frá gjalddaga. Hér gildir ekki 15 daga
greiðslufrestur.
Lánayfirtaka – Tilkynna ber lán-
veitendum um yfirtöku lána.
Lántökur– Skynsamlegt er að gefa
sér góðan tíma fyrir lántökur. Það
getur verið tímafrekt að afla tilskil-
inna gagna s. s. veðbókarvottorðs,
brunabótsmats og veðleyfa.
Afsal – Ef skjöl, sem þinglýsa á,
hafa verið undirrituð samkvæmt um-
boði, verður umboðið einnig að fylgja
með til þinglýsingar. Ef eign er háð
ákvæðum laga um byggingarsam-
vinnufélög, þarf áritun bygging-
arsamvinnufélagsins á afsal fyrir
þinglýsingu þess og víða utan Reykja-
víkur þarf áritun bæjar/sveitarfélags
einnig á afsal fyrir þinglýsingu þess.
Samþykki maka – Samþykki maka
þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og
veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan
býr í eigninni.
Gallar – Ef leyndir gallar á eigninni
koma í ljós eftir afhendingu, ber að
tilkynna seljanda slíkt strax. Að öðr-
um kosti getur kaupandi fyrirgert
hugsanlegum bótarétti sakir tómlæt-
is.
Gjaldtaka
Þinglýsing – Þinglýsingargjald
hvers þinglýsts skjals er nú 1.200 kr.
Stimpilgjald– Það greiðir kaupandi
af kaupsamningum og afsölum um
leið og þau eru lögð inn til þinglýs-
Minnisblað