Morgunblaðið - 23.09.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2003 33
fræðsla þar sem þú varst svo mikill
„business“-kall í þér og þig langaði
mest af öllu að verða forstjóri þegar
þú yrðir stór.
Um leið og ég settist hjá ykkur
sýndir þú mér menið sem ég var
nýbúin að kaupa handa þér á Spáni.
Þér þótti svo gaman að slíku og aldrei
sá maður þig öðruvísi en með eitt-
hvert flott hálsmen. Svo að ég vand-
aði val mitt og fann það rétta fyrir
þig. Turques-stein útskorinn sem
höfrungur.
Það var svo gaman að því hvað þú
varst opinn og ófeiminn að tjá þig og
spyrja um hreinlega allt og hæla því
sem þér þótti fallegt. Svo mikill
smekkmaður varst þú.
Ekki gerði ég mér grein fyrir því
þá að þetta mundi vera í síðasta skipt-
ið sem við hittumst.
Maður spyr aftur og aftur, af
hverju ... en það fást engin svör.
Það er svo erfitt að sætta sig við og
skilja það að þú hefur verið tekinn frá
okkur svona ungur, sú tilfinning mun
aldrei fara úr hjarta mér.
Ég sagði einhvern tímann við þig
að þú værir sterkasta sálin í þessari
fjölskyldu, því Árni, þú varst svo dug-
legur og sterkur, þú þurftir að þola
svo mikið í gegnum veikindin þín sem
voru svo löng og átakamikil. Veit ekki
alveg hvernig við hin hefðum getað
tekist á við það.
Elsku Árni, ég mun sakna þín af
öllu mínu hjarta. Þar til við hittumst
næst kveð ég þig að sinni og bið guð
og alla engla að vaka yfir þér og
vernda þig.
Elsku Alfreð, Magnea og Guðný,
megi guð gefa ykkur styrk í þessari
miklu sorg. Hef bara ekki nóg sterk
lýsingarorð til að lýsa hvað ég sam-
hryggist ykkur innilega. Árni sagði
að hann myndi alltaf vera hjá ykkur
og því trúi ég.
Ó, faðir gjör mig styrkan staf
að styðja hvern, sem þarf,
uns allt það pund, er Guð mér gaf
ég gef sem bróðurarf.
(M. Joch.)
Þín frænka,
Elísabet Á.
Elsku Árni minn, það er sárt að
kveðja þig, elsku frændi. Minning-
arnar eru svo ótalmargar alveg frá
því þú fæddist er ég beið fyrir utan
fæðingarstofuna, svo fæddist þú,
prinsinn okkar, strákurinn í okkar
fjölskyldu.
Ég minnist þess hvað ég var stolt
frænka þegar ég fékk að fara með þig
ein á rúntinn, þú varst nokkurra mán-
aða, ég þurfti að sýna þig vinnufélög-
unum mínum og fara svo með þig í
vinnuna til ömmu Betu, fallegi frændi
minn, svo flottur í gallajakka og
adidas-strigaskóm.
Svo fluttuð þið í sömu götu og við
þegar þú varst tveggja ára og Elísa-
bet þá eins árs. Þið voruð svo miklir
vinir og gerðuð svo margt saman,
voruð stundum eins og lítil hjón, allar
bíóferðirnar, í pössun hjá hvort öðru,
saman í leikskólanum Vinaminni, hjá
ömmu Betu og afa Snorra, ferðalögin,
hjá ömmu Níný og afa Árna og nú síð-
ast þegar ég var erlendis í viku þá
gátuð þið verið saman og hún hjálpaði
þér að bera töskuna þína þungu sem
þú þurftir að ferðast með í þínum erf-
iðu veikindum. Þú varst stoltur
frændi þegar Birna fæddist. Þið áttuð
líka ykkar góðu stundir og gátuð leik-
ið ykkur saman. Þótt lengra væri á
milli ykkar, minnist ég þess þegar þið
sátuð saman heima hjá mér fyrir
stuttu og voruð saman í tölvuleik, hún
svo áhugasöm að fylgjast með og
læra af þér, stóri frændi, því enginn
var eins klár og þú í tölvuleikjum og
svo kunnir þú svo vel ensku, já, elsku
frændi, þær litu svo upp til þín. Stolt-
ar voru þær af dugnaði þínum þegar
þær komu í heimsókn á spítalann og
sáu þegar það var verið að taka úr þér
margar blóðprufur, þú varst hetjan
þeirra.
Ég sakna sárt hlátursins og allra
spurninganna sem þú gast spurt um
og faðmlagsins sem þú kunnir svo vel
að gefa. Ég minnist þess þegar ég
kom og bjó heima hjá ykkur í nokkra
daga þegar foreldrar ykkar fóru til
útlanda, þá kvaddir þú mig svo fal-
lega með faðmlagi og sagðir:
„Hrefna, það var gott að hafa þig.“
Elsku frændi, þú varst líka svo
gjafmildur, ég minnist þess þegar þú
spurðir mig hvort þú mættir gefa El-
ísabetu, Birnu og Tönju hamstra. Ég
gat að sjálfsögðu ekki sagt nei og þú
tókst mig á orðinu og fékkst þér
vinnu í bíóinu hjá pabba þínum til
þess að safna fyrir þessu öllu. Já, og
einn daginn varst þú svo kominn til
okkar með þrjá hamstra, búr, mat og
allt sem til þurfti.
Guð og allir vendarenglar leiði þig
og geymi.
Elsku Magnea, Alfreð, Guðný og
fjölskylda, megi guð gefa ykkur styrk
á þessari erfiðu stundu. Ég vona að
guð og hlýtt ljós minninganna lýsi
ykkur leiðina í myrkrinu.
Guð veri með ykkur.
Hrefna, Hlynur, Elísabet,
Birna og Tanja.
Sólargeislinn kom inn í líf okkar í
nóvember.
Þú varst fyrsta barnabarnið í fjöl-
skyldunni okkar og frá fyrsta degi
snerist líf mitt um að vera til taks
þegar þú varst nærri.
Fyrstu mánuðina þyrlaði ég bleium
og púðri um allt heimilið, því ekkert
annað komst að. Skammdegið var
sem bjartur dagur þegar þú varst
nærri. Eftir því sem tognaði úr þér,
kom einstakur persónuleiki þinn í
ljós.
Glettni, stríðni, fyndni og einstakt
minni urðu áberandi. Þú hafðir
skemmtileg tilsvör á reiðum höndum
við öll tækifæri.
Þau voru ófá kvöldin sem þú kúrðir
í mér yfir Fríðu og Dýrinu í sófanum
hjá ömmu Betu og afa Snorra. Næsta
dag lékstu heilu atriðin úr myndinni
fyrir okkur.
Við áttum margar góðar stundir
saman, á heimili þínu, í ferðalögum og
á Glitvanginum hjá ömmu og afa. Það
var unun að hlusta á þig spyrja í þaula
um hin ýmsu mál og var ekkert und-
anskilið. Forvitni þinni varð seint
svalað.
En eitthvað var alltaf að hrjá þig.
Heilsunni hrakaði en þú hélst sá
sami. Það var ekki merkjanlegt að ill-
vígur sjúkdómur herjaði á þig. Bar-
áttan fyrir lífinu var hafin.
Frændi þinn, Viggó Snorri, fædd-
ist í vor. Frá fyrsta degi, var hann
ljósið í þínu lífi, líkt og þú varst ljósið í
mínu lífi. Þú vildir fá að eiga hann all-
an, en sættir þig við að eiga bara
hluta af honum.
Við vitum, elsku Árni minn, að þú
vakir yfir honum, því þú átt í honum
eins og við.
Elsku Magnea, Alfreð og Guðný,
megi hönd Guðs leiða ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Hrönn frænka, Óskar
Torfi, Ísabella María
og Viggó Snorri.
Fleiri minningargreinar
um Árna Ásberg Alfreðsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Bróðir okkar,
SÆMUNDUR EINARSSON
frá Vestmannaeyjum,
Rauðalæk 35,
Reykjavík,
lést mánudaginn 8. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Óskar Einarsson,
Einar Einarsson.
Ástkær móðir okkar, systir og amma,
ESTHER FINNBOGADÓTTIR,
Tjarnargötu 10,
Innri-Njarðvík,
andaðist á heimili sínu að kveldi föstudagsins
19. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gylfi Pálsson,
Guðmundur Kr. Sigurðsson,
Guðfinna Finnbogadóttir
og barnabörn.
Elskulegi drengurinn okkar, bróðir og barna-
barn,
ÁRNI ÁSBERG ALFREÐSSON,
Stuðlabergi 76,
Hafnarfirði,
sem lést sunnudaginn 14. september, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag, þriðjudaginn 23. september, kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á Barnaspítala Hringsins.
Alfreð Ásberg Árnason, Magnea Snorradóttir,
Guðný Ásberg Alfreðsdóttir,
Árni Samúelsson, Guðný Ásberg Björnsdóttir,
Snorri Magnússon, Elísabet Hrefna Jónsdóttir.
Elskuleg móðir mín og hjartkær vinkona,
BRYNHILDUR BALDVINSDÓTTIR,
síðast til heimilis í Krummahólum 6,
sem andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund þriðjudaginn 9. september, verður jarð-
sungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudag-
inn 24. september kl. 15.00.
Alfreð Alfreðsson,
Rósa Guðrún Jóhannsdóttir,
Ólöf Jónsdóttir,
Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRIR LAXDAL SIGURÐSSON
fyrrverandi námsstjóri
og teiknikennari,
lést á Landspítala Landakoti fimmtudaginn
18. september.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn
26. september kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd.
Ágústa Rósa Þórisdóttir, Hjörvar Garðarsson,
Guðfinna Anna Hjálmarsdóttir, Grímur Ingólfsson,
Ingiríður Þórisdóttir, Ingvar Einarsson,
Þóra Björg Þórisdóttir, Ámundi Sigurðsson,
Guðrún Þórisdóttir, Ari Magnússon,
Sigurður Kristján Þórisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér
samúð og vinarhug við andlát og útför ást-
kærrar eiginkonu minnar,
LILJU GUÐBJARNADÓTTUR,
Sæviðarsundi 11,
Reykjavík.
Jón S. Hallgrímsson.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu
minningu elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar og tengdaföður, afa, lang- og langalang-
afa,
SIGURBJARTAR GUÐJÓNSSONAR,
Hávarðarkoti
í Þykkvabæ,
með nærveru sinni við útförina, minningar-
gjöfum og blómum.
Guð blessi ykkur öll og gefi góða daga.
Halldóra G. Magnúsdóttir,
Gíslína Sigurbjartsdóttir, Hafsteinn Einarsson,
Hjördís Sigurbjartsdóttir, Páll Guðbrandsson,
Guðjón Sigurbjartsson, Guðrún Barbara Tryggvadóttir.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður, sonar,
tengdasonar og bróður,
SIGURGEIRS ÞORSTEINSSONAR,
Rauðalæk 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Sigurðar Björnssonar
læknis fyrir alla hjálpina í gegnum árin.
Einnig þökkum við starfsfólki og stjórnendum Keldna fyrir alla þeirra
velvild síðustu mánuði.
Ellen Þórarinsdóttir,
Signý Sigurgeirsdóttir,
Þorsteinn Auðunsson, Oddrún Sigurgeirsdóttir,
Þórarinn S. Öfjörð, Helga S. Helgadóttir,
Vilhelmína Þorsteinsdóttir,
Halldór Pétur Þorsteinsson,
Þorsteinn Þorsteinsson,
Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim, sem
heiðruðu minningu
SIGURBJÖRNS SIGTRYGGSSONAR
fyrrverandi aðstoðarbankastjóra,
Reynimel 28,
Reykjavík,
og auðsýndu okkur samúð og vinarhug vegna
andláts hans.
Ragnheiður Viggósdóttir,
Birna Sigurbjörnsdóttir, Jón Gunnlaugur Jónasson,
Hilmar Sigurbjörnsson,
Marta Jónsdóttir,
Hjalti Jónsson,
Ragnheiður Jónsdóttir,
Davíð Jónsson.