Morgunblaðið - 24.09.2003, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Húsavík| Keppnistímabilið, sem
lauk á dögunum hjá meistaraflokki
Völsungs í knattspyrnu, þykir eitt
það skemmtilegasta í sögu félagsins.
Völsungar, sem voru að spila sitt ann-
að tímabil í 2. deild, komu, sáu og
sigruðu, unnu fimmtán leiki, gerðu
jafntefli í einum og töpuðu tveimur.
Þetta dugði liðinu til sigurs í deild-
inni og Völsungar því meistarar 2.
deildar með sex stiga forskot á Fjöln-
ismenn sem fylgja þeim upp um
deild.
Stuðningsmenn í Beisa
Oftast fer saman áhugi fólks á bolt-
anum og gengi liðsins og í ár jókst að-
sókn að leikjum Völsungs stig af
stigi. En skiptir góður árangur Völs-
ungs máli í bæjarfélagi eins og Húsa-
vík?
„Já, tvímælalaust segir Sigurjón
Sigurðsson, eldheitur stuðnings-
maður félagsins um árabil. „Þetta
skiptir marga íbúa miklu máli en ég
tel það einnig vera mjög mikilvægt
fyrir bæjarfélag eins og Húsavík að
styðja vel við bakið á íþróttum og þá
ekki síst hópíþróttum. Þegar fólk
stendur frammi fyrir því að ætla að
flytja út á land þá skiptir það örugg-
lega miklu máli að á staðnum sé öfl-
ugt og gott knattspyrnulið og góð
íþróttastarfsemi,“ segir Sigurjón.
Hann segir það samt alveg ljóst að
liðið þurfi að fá einhverja menn til liðs
við sig á komandi tímabili því 1. deild-
in sé talsvert stökk upp á við. „Ef við
höldum okkar mönnum og fáum jafn-
vel nokkra brottflutta völlara í bæinn
aftur, því það er öllum ljóst að við eig-
um nokkra lykilmenn í úrvalsdeild-
arliðum, þá þurfum við ekki að kvíða
næsta ári,“ segir Sigurjón.
Hann er félagsmaður í stuðnings-
mannafélaginu Beisa. Hvernig skyldi
starfsemi þess félags vera háttað?
„Við höfum komið saman fyrir leiki
og fengið að sitja töflufundi liðsins,
einnig er orðinn fastur liður að koma
saman eftir leiki og fá sér hressingu
og spá í spilin og kjósa mann leiks-
ins,“ segir þessi mikli stuðnings-
maður Völsungs.
Þrældómurinn skilaði sér
Unnar Þór Garðarsson, einn leik-
manna Völsungs, telur að rekja megi
velgengni liðsins að stórum hluta til
þess að liðið æfði vel í vetur sem leið
og spilaði marga leiki á undirbún-
ingstímabilinu. „Það er óhætt að
segja að þjálfararnir, Ásmundur og
Sigmundur Hreiðarsson aðstoð-
armaður hans, hafi þrælað okkur út
frá því í nóvember og fram í maí, en
það skilaði sér vel í sumar, það er
engin spurning. Þá tel ég hópinn í
sumar mjög sterkan miðað við þessa
deild og liðið slapp að mestu við
meiðsli. Liðið er fyrst og fremst
byggt upp á ungum strákum sem eru
uppaldir hjá félaginu,“ sagði Unnar
Þór.
Höldum Völsungshjartanu
Unnar Þór og Sigurjón eru sam-
mála um þörfina á því að styrkja liðið
fyrir átökin næsta sumar og best
væri ef hægt væri að gera það með
því að fá til baka til liðsins heima-
menn úr öðrum liðum. „Þá höldum
við „Völsungshjartanu“ í liðinu,“ seg-
ir Unnar.
Þeir Sigurjón og Unnar Þór eru
sammála um að stjórn knatt-
spyrnudeildarinnar hafi unnið gott
starf. Sömuleiðis eru þeir þakklátir
þeim fyrirtækjum sem styrktu starf-
semi Völsungs á ýmsan hátt.
Ljósmynd/Skarpur
Komu, sáu og sigruðu: Sigurvegarar í 2. deild í knattspyrnu. Unnar Þór er fjórði frá hægri í öftustu röð.
Morgunblaðið/Hafþór
Sigurjón: Kvíðum ekki næsta ári.
Skemmtilegt ár hjá Völsungi
Mikilvægt fyrir bæjarfélag eins og
Húsavík að styðja vel við íþróttirnar
Blönduós | Þegar hross ber á góma hvort heldur um sölu, smölun eða fjölda
er að ræða kemur nafnið Haukur á Röðli oft upp. Haukur þessi er Pálsson
og býr á bænum Röðli skammt sunnan við Blönduós. Hann er árlegur þátt-
takandi í hrossasmölun á Laxárdal og stóðréttum í Skrapatungu enda mun
hann eiga þar „eitthvað“ af hrossum.
Fyrir nákvæmlega ári kom hann ríðandi til réttar á gráu hrossi með þrjá
gráa til reiðar. En það sem vakti athygli var að með honum í för var kona,
Guðlaug Jónsdóttir, meinatæknir og eigandi Strjúgsstaða í Langadal.
Þetta er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir það að Haukur hef-
ur verið ekkjumaður í mörg ár og þótti því þessi nýbreytni í hegðana-
mynstri Hauks athygliverð. Af þessu tilefni var tekin mynd af þeim Hauki
og Guðlaugu við bæinn Skrapatungu hvar þau sátu gráu hrossin sín og
mun sú mynd hafa farið víða.
Þegar fréttaritari Morgunblaðsins var við myndatökur á laugardaginn
þegar hross voru rekin til Skrapatunguréttar varð þetta ágæta fólk á vegi
hans. Haukur sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði haft orð á því
við Guðlaugu þegar hann sá fréttaritara með myndavélina að nú yrði tekin
önnur mynd og atburðurinn nefndur „á sama tíma að ári“. Allt stóð þetta
sem Haukur sagði Guðlaugu.
Af einskærri forvitni var Haukur spurður að því hvernig þau Guðlaug
hefðu kynnst og svaraði hann því þannig „Til þess að komast í Laxárdal til
smölunar þarf að fara um Strjúgsskarð. Svarar þetta ekki spurningunni að
einhverju leyti,“ en eins og fram hefur komið á Guðlaug Strjúgsstaði í
mynni Strjúgsskarðs.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Á leið til Skrapatunguréttar, Guðlaug og Haukur á Röðli.
Á sama tíma að ári
Stoppuðu stutt | Á fundi í bæj-
arstjórn Austur-Héraðs á miðviku-
dag fyrir viku greindi bæjarstjóri
frá vitneskju sinni um að stjórn
Landsvirkjunar ásamt föruneyti
hefði verið á ferð
um Austurland í lið-
inni viku. Í fund-
argerð bæjarstjórn
segir: „Bæjarstjóra
fannst það miður að
stjórnin hefði ekki
séð ástæðu til að
boða komu sína á Austur-Hérað og
óska eftir fundi með forsvars-
mönnum sveitarfélagsins þrátt fyrir
að hafa gist í sveitarfélaginu. Vakti
hann athygli á þessu í ljósi þess að
fulltrúar og forsvarsmenn fyr-
irtækja eins og Alcoa og Bechtel
hafa talið nauðsynlegt að eiga oftar
en einu sinni formlega fundi með
fulltrúum sveitarfélagsins vegna
þeirra framkvæmda sem nú eru
komnar af stað.“
Hópið opnað | Veitingahúsið Hóp-
ið á Tálknafirði verður formlega
opnað á ný á föstudagskvöld, 26.
september, en þá er nákvæmlega
eitt ár síðan fyrri eigendur hættu
rekstrinum, að því er vefur Bæjarins
besta á Ísafirði segir frá.
Það eru Ingibjörg Þorsteinsdóttir
og Marías Helgason sem hafa keypt
Hópið og Skrúðhamra þar sem þau
hyggjast reka gistiheimili meðfram
veitingarekstrinum.
R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R INánari upplýsingar á www.fujifilm.is
S k i p h o l t i 3 1 , R e y k j a v í k , s : 5 6 8 0 4 5 0 ı K a u p v a n g s s t r æ t i 1 , A k u r e y r i , s : 4 6 1 2 8 5 0
M y n d s m i ð j a n E g i l s s t ö ð u m ı F r a m k ö l l u n a r þ j ó n u s t a n B o r g a r n e s i ı F i l m v e r k S e l f o s s i
Fujifilm stafrænar myndavélar, framúrskarandi myndgæði – frábært verð.
MYNDARLEGT TILBOÐ
3.24 milljón virkir dílar.
Ljósnæmi ISO 100.
6x aðdráttarlinsa (38-228mm).
Hægt að fá víðvinkil (30mm) og enn
meiri aðdrátt (342mm).
Tekur allt að 200 sek kvikm. með hljóði.
Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30
sek á hverja mynd.
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að taka allt að 300 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Allt sem þarf til að byrja fylgir
Verð kr. 59.900,-
S304
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Fjöldi myndatökumöguleika; s/h, króm,
runur osfrv.
Ljósnæmi ISO 200-800.
3x aðdráttarlinsa (38-114mm) auk
stafræns aðdráttar.
Með F hnapp sem auðveldar allar
myndgæða stillingar.
Tekur kvikmyndir 320x240 díla,
10 rammar á sek., upp í 120 sek í einu.
Hægt að tala inn á myndir.
Lithium Ion hleðslurafhlaða og
hleðslutæki fylgir.
Notar nýju X-D minniskortin.
165 g án rafhlöðu.
Verð kr. 49.900,-
F410
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Ljósnæmi ISO 100/200/400/800 (800 í 1M).
3x aðdráttarlinsa (38-114mm).
Hægt að taka allt að 250 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Tekur allt að 120 sek kvikmynd (án hljóðs).
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að fá vöggu.
Allt sem þarf til að byrja fylgir.
155 g án rafhlöðu.
Verð kr. 35.500,-
A310
Ný send
ing
komin
Framkö
llun
á 25 sta
frænum
myndum
fylgir h
verri
seldri m
yndavél
í septem
ber!
Fjallahafnarleið | Á fundi sínum í
fyrri viku fjallaði hreppsnefnd
Kelduneshrepps um hugsanlega
nafngift á brekkuna niður í Keldu-
hverfi. Að því er fram kemur í þing-
eyska vefmiðlinum skarpur.is hefur
Örnefnastofnun komið með þá til-
lögu að brekkan verði látin heita
Fjallahafnarbrekka eða Fjallahafn-
arleið. Aðrar tillögur sem borist hafa
séu: Fjallabrekka, Ósbrekka, Lóns-
brekka, Blöndalsbrekka, Imbu-
brekka, Nesbrekka, Húsahjalla-
brekka. Þá segir að oddviti muni
hafa samband við landeigendur til að
kanna hug þeirra til þessa máls.