Morgunblaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 24
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Stuðningsfulltrúar | Bæjarráð Árborgar
samþykkti á fundi sínum 11. september ráðn-
ingu 6 stuðningsfulltrúa við Vallaskóla á Sel-
fossi. Stöðuhlutfall hvers og eins er 66,5 %.
Kostnaðarauka verður mætt við endurskoðun
fjárhagsáætlunar. Bæjarráð felur deildarstjóra
grunnskóla- og menningardeildar ásamt skóla-
stjórum skólanna að vinna greinargerð um þörf
skólanna fyrir sérúrræði og tillögu um aðgerðir
til úrbóta.
Tónlistarskólinn | Bæjarráð Árborgar hefur
samþykkt að nýta 130 fermetra af fyrrverandi
áhaldahúsi bæjarins við Gagnheiði undir starf-
semi Tónlistarskólans. Um er að ræða bráða-
birgðalausn á húsnæðismálum skólans meðan
unnið er að úrlausn til framtíðar. Nauðsynlegur
kostnaður við framkvæmdirnar er um 5 millj-
ónir króna og verður honum mætt við endur-
skoðun fjárhagsáætlunar.
Þorlákshöfn | Undirritaðir hafa
verið samningar milli Ræktunar-
sambands Flóa og Skeiða og Sveit-
arfélagsins Ölfuss um byggingu
hafnarmannvirkja í Þorlákshöfn.
Samningurinn sem er fyrsti af
fimm áföngum í stækkun hafnar-
innar hljóðar upp á 216 milljónir
króna.
Siglingamálastofnum hefur gert
líkan af höfninni og gert ýmsar til-
raunir sem lofa góðu um kyrrð inn-
an hafnarinnar en í dag er talin
vera of mikil ókyrrð þar.
Samkvæmt samgönguáætlun fyr-
ir tímabilið 2003 – 2006 er gert ráð
fyrir miklum endurbótum á höfn-
inni í Þorlákshöfn.
Stefnt er að byggingu nýs hafn-
arsvæðis sem nefnt verður Austur-
höfn og nýjum brimvarnargarði,
Austurgarði. Hafnarbæturnar
byggjast á því að núverandi hafn-
armynni haldist óbreytt, en fela í
sér eftirfarandi breytingar á núver-
andi hafnaraðstöðu til bóta fyrir
höfnina og hafnsækna starfsemi.
1. Stöðvunarvegalengd skipa innan
hafnarinnar verður aukin, sem
m.a. bætir aðstöðu fyrir stærri
skip og báta.
2. Innri hluta hafnarinnar verður
betur skýlt þannig að hún verð-
ur kyrrari en höfnin er í dag.
3. Nýtt hafnarsvæði fyrir fiskibáta
verður byggt norðan við Svarta-
skersgarð og kemur það í stað
hafnaraðstöðu á og innan við nú-
verandi Norðurvararbryggju, en
hún verður rifin samkvæmt
þessum tillögum.
4. Bætt aðstaða og aukið landrými
verður fyrir hafntengda starf-
semi upp af höfninni.
5. Hafnarframkvæmdir munu verja
byggðina betur gegn sandfoki úr
Skötubót.
Tillögur þessar eru byggðar á
líkantilraunum sem unnar voru í
líkanastöð Siglingamálastofnunar
Íslands, veturinn 2002 til 2003.
Fyrirhuguðum hafnarfram-
kvæmdum hefur verið skipt í fimm
áfanga. Fyrsta áfanga á að ljúka í
nóvember 2004. Í fyrsta áfanga
framkvæmdanna verður bygging
Austurgarðs sem afmarkar hið nýja
hafnarsvæði. Austurgarður skiptist
í tvo hluta, annarsvegar 520 metra
langan garð sem afmarkar hafn-
arsvæðið til norðurs og síðan 290
metra langan brimvarnargarð sem
afmarkar til vesturs.
Áætlað er að í garðinn fari alls
um 200.000 rúmmetrar af kjarna og
grjóti og hann verði byggður á ár-
unum 2003 og 2004. Gert er ráð fyr-
ir að grjót og kjarni komi úr námu
á Hafnarbergi fyrir utan um 10.000
rúmmetra af grjóti sem verða end-
urnýttir á staðnum. Grjótnáman á
Hafnarbergi er opin náma á stað-
festu skipulagi og verður hún áfram
merkt sem opin náma til frekari
vinnslu í endurskoðuðu skipulagi.
Náma þessi hefur verið notuð við
hafnargerð og sjóvarnir í Þorláks-
höfn síðan hún var opnuð 1973.
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða með 1. áfanga hafnarframkvæmda í Þorlákshöfn
Tilraunir í lík-
ani lofa góðu
Ljósmynd/Sigurður Jónsson
Líkan af fyrirhugaðri höfn: Innri hlutanum verður betur skýlt þannig að höfnin verður kyrrari en hún er í dag.
Selfossi | „Það liggur alveg
ljóst fyrir að það er þörf fyrir
dvalarheimili á Selfossi til við-
bótar við þá þjónustu við aldr-
aða sem er í sveitarfélaginu,“
segir Alda Árnadóttir, deild-
arstjóri stoðþjónustu í Sveitar-
félaginu Árborg.
Hún tók við starfinu 12. júní
á þessu ári. Undir hennar
starfsvettvang heyrir öll stoð-
þjónusta sveitarfélagsins, fé-
lagsleg heimaþjónusta, þjón-
ustumiðstöð aldraðra við
Grænumörk á Selfossi, öll lið-
veisla við fatlaða, akstur fyrir
fatlaða og aldraða og dagvist
aldraðra. Á stoðþjónustusviði
Árborgar starfa 35 manns í
mismunandi miklu stöðuhlut-
falli. Í félagslegri heimaþjón-
ustu eru 15 störf sem snerta
170 heimili.
Vaxandi þjónustuþörf
Ljóst er að þjónusta við aldr-
aða er vaxandi þáttur og því
liggur beint við að spyrja Öldu
um stefnumörkun í þeim mála-
flokki. „Við erum í vaxandi
sveitarfélagi þar sem mörkuð
hefur verið stefna í málefnum
aldraðra.
Í henni er lögð áhersla á öfl-
uga stoðþjónustu og fólki gert
kleift að búa heima hjá sér eins
lengi og það óskar. Núna erum
við hins vegar að fá fram þjón-
ustuþega sem þurfa á meiri
þjónustu að halda, þar á meðal
dvöl á hjúkrunarrýmum.
Mér finnst við í þessum efn-
um standa á ákveðnum kross-
götum í sveitarfélaginu því það
er hér hópur fólks sem þarf á
dvalarheimili að halda og auk-
inni innlagnarþjónustu á hjúkr-
unardeildir.
Það er ekkert dvalarheimli á
Selfossi en í nágrenninu eru
heimili, á Eyrarbakka og á
Stokkseyri sem og í Hvera-
gerði. Það er hins vegar rík
áhersla hjá eldra fólki og fjöl-
skyldum þess að vera á Sel-
fossi. Fólki finnst það eiga það
inni að dvelja hér á elliárunum.
Núna eru 17 einstaklingar
með vistunarmat fyrir hjúkr-
unarrými, þar af eru 14 sem
ekki hafa fengið úrlausn. Það er
afar hrópandi þegar vist-
unarmat liggur fyrir og ekki er
unnt að koma fólki á hjúkr-
unarheimili. Það kallar á aukna
þjónustu við þessa einstaklinga
með aukinni viðveru inni á
heimilum fólksins,“ segir Alda.
„Ég vil sjá þjónustuna verða
það liðuga að hægt sé að sinna
fólkinu þegar það þarf á því að
halda. Öldrun er þannig að einn
daginn gefst fólk upp á vissan
hátt, við það að halda sér gang-
andi upp á eigin spýtur og þá
vill það fá þjónustuna og þá
þarf að vera hægt að veita hana
og skapa þá öryggiskennd sem
fólkið þarf á að halda. Fólkið
gengur á sína aukaorku þegar
það eldist og þarf á sinningu að
halda.
Ég vil líka sjá þjónustuna við
fatlaða eflast þannig að hægt sé
að sinna skyldum sveitarfé-
lagsins við þá. Félagsleg lið-
veisla hefur verið á hendi sveit-
arfélagsins en erfitt er að
manna þennan þátt.
Fatlaðir eru ekki hávær hóp-
ur en skyldan er hjá sveitarfé-
laginu að sinna þeim og þróunin
er sú að fatlaðir flytjast af sam-
býlum inn á eigin heimili og það
kallar á þjónustu,“ segir Alda.
Stöndum á ákveðnum kross-
götum í sveitarfélaginu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Alda með eldri borgurum í Grænumörk: „Ég vil sjá þjónustuna verða það liðuga að hægt sé að sinna
fólkinu þegar það þarf á því að halda. Öldrun er þannig að einn daginn gefst fólk upp á vissan hátt.“
Vaxandi þörf á
dvalarheimili
og innlögn á
hjúkrunardeildir
Hveragerði | Hinn 20. september s.l. voru 133 ár
liðin frá fæðingu Jónasar Kristjánssonar lækn-
is, brautryðjanda náttúrulækningastefnunnar
hér á landi en það var að hans frumkvæði sem
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, áður Heilsu-
hæli NLFÍ, tók til starfa sumarið 1955. Það var
því vel við hæfi að velja þann dag til að taka í
notkun nýtt baðhús, sem án efa á eftir að
breyta miklu þjónustu Heilsustofnunar.
Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Heilsu-
stofnunar NLFÍ bauð gesti velkomna til þess-
arar hátíðar. Síðan var gengið að nýja baðhús-
inu þar sem Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra klippti á borða, séra Jón
Ragnarsson sóknarprestur, blessaði húsið,
starfsfólkið og starfsemi alla. Að því loknu lék
Jóhann Stefánsson á klarinett.
Aðalverktaki baðhússins er Spöng ehf. og að-
alhönnuðir hússins eru Úti-Inni arkitektar.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Sunddrottning: Helga Haraldsdóttir vígði nýju
laugina í Hveragerði að viðstöddu fjölmenni.
Nýtt baðhús
breytir miklu
Þetta er skemmtilegt starf og það er gott að finna
hvað fólk hefur tekið mér vel frá því ég byrjaði í
sumar,“ segir Alda Árnadóttir, deildarstjóri stoð-
þjónustu hjá Sveitarfélaginu Árborg, um nýja
starfið. „Mér finnst menntun mín sem þroskaþjálfi
nýtast mér vel, það er að segja þekking á þroska-
ferli manneskjunnar frá vöggu til grafar.
Mér finnst það forréttindi að fá að umgangast eldri
borgara þessa lands og það er afar gefandi að
starfa með eldra fólki. Þetta er fólkið sem hefur
komið okkur þangað sem við erum komin í dag.
Mér finnst þessi andi einmitt ríkjandi hjá starfs-
fólkinu í stoðþjónustunni. Árborg vex hratt og hér
er engin stöðnun í gangi. Maður gengur til verka á
hverjum degi og dag hvern gerist margt óvænt og
skemmtilegt.“
Gefandi að starfa með eldra fólki
Aðalskipulag Ölfuss | Á fundi í bæjarstjórn
Sveitarfélagsins Ölfuss á fimmtudag var fjallað
um aðalskipulag til ársins 2014. Lögð var fram
greinargerð að aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið
allt þ.e. bæði þéttbýli og dreifbýli ásamt teikn-
ingum unnið af Landmótun ehf. Gísli Gíslason
landslagsarkitekt fór yfir helstu liði þess og út-
skýrði aðalskipulagið. Tillagan hefur verið kynnt
íbúum sveitarfélagsins svo og öðrum aðilum með
margvíslegum hætti bæði á opinberum og óop-
inberum vettvangi, segir á heimasíðu sveitarfé-
lagsins. Samþykkt var að boða til aukafundar
bæjarstjórnar um aðalskipulagið 8. október nk.