Morgunblaðið - 27.09.2003, Blaðsíða 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 25
! !
" !
# $% &'#
# $% '
()
*& *+* #
&& && *+ & #
Hólmavík | Átta hólmvískar mæður hitt-
ust síðastliðinn fimmtudag með átta
börn sem öll eru fædd á þessu ári. Börn-
in áttu öll lögheimili í hreppnum frá
fæðingu og í vor bættist eitt barn í hóp-
inn. Von er á fjórum börnum til viðbótar
áður en árið er á enda.
Stefnir því í óvenjustóran árgang eða
13 börn á Hólmavík þetta árið. Aðeins
tvær stúlkur eru í hópnum enn sem
komið er.
Stærsti árgangur grunnskólans á
staðnum er einnig 13 börn sem eru fædd
árið 1988 og eru því í 10. bekk. Aðrir
árgangar grunnskólans telja 5 til 11
börn þetta skólaár. Stærsti árgangur
leikskólans er metárgangur með 16 börn
fædd árið 1998, en mörg þeirra hafa
flutt í hreppinn á síðustu árum.
Gárungar hafa bent á áhrifamátt
sveitarstjórans, Ásdísar Leifsdóttur, en
eftir að hún hvatti opinberlega til barn-
eigna á staðnum hafa margar konur sem
starfa hjá hreppnum farið í fæðing-
arorlof.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Blómlegur hópur: Börnin í aldursröð, það yngsta lengst til vinstri: Friðrik Heiðar Vignisson, Díana Jórunn Pálsdóttir, Hilmar Tryggvi Kristjánsson,
Lárus Jóhannsson, Svanur Eðvald Halldórsson, Halldór Víkingur Ásgeirsson, Sigurður Kári Valgeirsson, Guðmundur Ragnar Snorrason.
Barnasprengja á Hólmavík
Nóg að gera: Með mæðrunum, frá vinstri: María Mjöll Guðmundsdóttir með Guðmund Ragnar, Aðalbjörg
Guðbrandsdóttir með Sigurð Kára, Ragnheiður Gunnarsdóttir með Svan Eðvald, Guðrún Smáradóttir með
Halldór Víking, Hlíf Hrólfsdóttir með Díönu Jórunni, Þuríður Friðriksdóttir með Friðrik Heiðar. Sitjandi í
fremri röð: Kolbrún Þorsteinsdóttir með Lárus og Vala Friðriksdóttir með Hilmar Tryggva.
Borgarnesi | Einhverjir Borgnes-
ingar heyra eflaust kunnuglega
rödd í barnaefni sjónvarpsins
þessa dagana. Það er hún Guðrún
Selma Steinarsdóttir, nemandi í
10. bekk, sem les leikraddir í Önnu
í Grænuhlíð. ,,Mamma er að vinna
hjá Lótus – hljóðsetningu og sótti
um fyrir mig í djóki,“ segir Guð-
rún Selma. ,,Svo hringdi Jakob Þór
Einarsson leikstjóri í mig og fékk
mig í prufu,“ en Jakob þekkti Guð-
rúnu eftir að hafa leikstýrt Litlu
Hryllingsbúðinni hjá nemenda-
félagi grunnskólans sl. vor.
Guðrún var ráðin og byrjaði á að
vera rödd Gígju í þáttunum um
Gullu grallara sem sýndir hafa
verið í barnaefni sjónvarpsins.
Þegar því verkefni lauk tók við
lestur á rödd Felicity í Önnu í
Grænuhlíð auk annarra radda.
,,Felicity er leiðinlega stelpan í
þáttunum, en ég er alveg að fíla
hlutverkið,“ segir Guðrún. Að-
spurð segir hún að þetta sé meiri-
háttar skemmtilegt og öðruvísi
reynsla.
,,Ég var mjög stressuð fyrst, titr-
aði og skalf, en það hefur alveg
lagast. Ég hef þurft að öskra,
hósta, ropa og hnerra í hlutverk-
unum og það var frekar óþægilegt
fyrst, því þó að ég sé í hljóðein-
angruðu búri er fullt af fólki sem
horfir á mig.“
Þættina ásamt texta fær hún senda
heim til að æfa sig. Hljóðritun fer
fram í Reykjavík og fór Guðrún
nokkrar ferðir í sumar gagngert
til þeirra verka, og eru nú tilbúnir
rúmlega 20 þættir með rödd henn-
ar. Þættirinir eru sýndir kl. 18.00 á
föstudögum í ríkissjónvarpinu.
Leikur leiðinlegu
stelpuna í sögunni
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Guðrún Selma: Hef þurft að hósta,
ropa og hnerra í hlutverkunum.
Hornafirði | Í næstu viku flytja fyrstu frumkvöðlafyr-
irtækin starfsemi sína inn í Frumkvöðlasetur Austur-
lands í Nýheimum á Höfn. Þá viku standa Impra, Rannís,
Rannsóknarþjónusta Háskólans, Háskólinn í Reykjavík
og Samtök iðnaðarins fyrir Viku nýsköpunar sem ber yf-
irskriftina Nýsköpun, breyttar þarfir fyrirtækja í nýju
umhverfi. Markmiðið er að vekja íslensk fyrirtæki til um-
hugsunar um mikilvægi nýsköpunar og skapa umræðu
um gildi nýsköpunar fyrir íslenskt efnahagslíf.
Opið hús verður í Frumkvöðlasetri Austurlands í vik-
unni og segir Ari Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Frumkvöðasetursins, kjörið tækifæri að draga hug-
myndir og viðskiptaáætlanir upp úr skúffunum og koma
með þær í frumkvöðlasetrið. Einnig stendur frumkvöðla-
setrið fyrir hugmyndasamkeppni um tækifæri sem
tengjast svæðum í sýslunni til atvinnusköpunar.
Ari vill ekki gefa upp hverjir frumkvöðlarnir eru sem
flytja inn í næstu viku. „Það kemur bara í ljós í og engu
ljóstrað upp um það núna“. Þegar hefur Framhaldsskól-
inn í Austur-Skaftafellssýslu, Þróunarstofa Austurlands
og Hafrannsóknastofnun fengið inni í setrinu og þar er
einnig skrifstofa framkvæmdastjórans.
„Nú fer hver að verða síðastur, það er mikil aðsókn í
þetta góða frumkvöðlasetur,“ segir Ari. Hann segir þá
þjónustu sem býðst í setrinu felast í leigu á skrifstofu,
tölvu og síma. Ennig fái frumkvöðlarnir handleiðslu og
aðstoð við að nálgast þá sérfræðiþekkingu sem þeir þurfa
á að halda. Ari segir að ákveðið hafi verið að halda nám-
skeið fyrir frumkvöðla sem vilja sækja um styrki.
„Oft á tíðum eru menn að tala um sína eigin peninga og
sitt eigið líf sem menn ætla að fara að setja í reksturinn
og umsóknirnar eru líklegri til að hljóta styrki ef menn
finna að einstaklingarnir eru að vinna þetta sjálfir af lífi
og sál.“ Ari segir að hann hafi farið yfir hugmyndir með
um tuttugu aðilum eftir að setrið var opnað. „Menn
hræðast svolítið þessi orð; frumkvöðlar og nýsköpun. Það
er ekki verið að leita að neinum „Einsteinum“ Starfsemin
gengur út á að finna hugmyndir og hjálpa til þess að þær
verði að atvinnutækifærum,“ segir Ari Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands.
Ekki að leita að „Einsteinum“
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Ari: Það er mikil aðsókn í þetta góða frumkvöðlasetur.
Akranesi | Það er óhætt að segja að
krakkarnir á leikskólanum Vall-
arseli hafi notið þess að hita upp
fyrir bikarúrslitaleikinn milli ÍA og
FH sem fram fer á Laugardalsvelli í
dag. Í gær var haldinn Skagadagur
á leikskólanum og voru allar deildir
í sameiginlegri sögustund þar sem
Skagakrakkasöngurinn var sung-
inn hástöfum ásamt því að æfa
nokkur góð heróp. Bæði börn og
fullorðnirvoru gulklædd mottó
dagsins var: Við erum stolt af því að
vera Skagamenn.
Stoltir
Skagamenn
Morgunblaðið/Jón Á. Gunnlaugsson
Húsavík | Botns-
vatnshlaup fór
fram nýlega á
vegum Völsungs.
Veðrið þennan
dag var óhag-
stætt og því frek-
ar fámennt.
Keppt var í
tveimur vega-
lengdum, annars
vegar einn
hringur í kring-
um vatnið eða
tveir en hring-
urinn er 5,2 km að lengd. Björn
Halldórsson bóndi á Valþjófsstað I í
Núpasveit lét sig ekki vanta nú
frekar en endranær þegar Botns-
vatnshlaupið er haldið. Hann er
ávallt léttur á fæti og lét sig ekki
muna um að hlaupa hringina tvo og
fór þá á tímanum 43,57 mínútum,
hvorn um sig á nánast sama tíma.
Björn og Sigurður Ingi Pálsson
voru þeir einu sem hlupu tvo
hringi, Björn í flokki 40 ára og eldri
og Sigurður Ingi í flokki 17–39 ára.
Bóndinn sterkur í
Botnsvatnshlaupi