Morgunblaðið - 28.09.2003, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sælkeri á sunnudegi
Steingrímur Sigurgeirsson
Það hafa víða verið aðspretta upp asískir veit-ingastaðir á undanförnumárum. Þeir eru misjafn-lega góðir. Sumir stíla
fyrst og fremst inn á hádegismark-
aðinn og þar getur fólk komið til að
seðja sárasta hungrið með núðlum
og hrísgrjónum án þess að borga
mikið fyrir það.
Síðan kemur það fyrir að maður
dettur inn á staði þar sem maður fær
alveg glettilega góðan mat. Einn
slíkan er að finna í Hlíðarsmára í
Kópavogi. Það fer ekki mikið fyrir
staðnum. Hann heitir Galbi og sér-
hæfir sig í kóreskri matargerð eða
réttara sagt kóreskri grillmatar-
gerð.
Þetta er dæmigerður lítill
fjölskyldustaður, eigandinn Örn seg-
ist hafa starfað fyrir ÍS á Kamtsj-
atka í Rússlandi og þar hafi mat-
argerðin ekki verið upp á marga
fiska. Það hafi því ávallt verið mikill
léttir að komast til Seoul í Suður-
Kóreu í frí og njóta af veitingastöð-
unum þar. Þegar heim var komið lét
hann sig dreyma um að opna veit-
ingastað í kóreskum anda. Það
reyndist hins vegar hægara sagt en
gert.
Á kóreskum grillveitingastöðum
grilla gestirnir réttina sjálfir við
borðið á sjóðandi heitri plötu sem
hituð er með gasloga. Kerfið sem
sett var upp á Galbi er mjög full-
komið og er gas tengt með leiðslum
við hvert borð þannig að þar sé hægt
að tendra logann. Það kostaði víst
nokkra baráttu að fá þetta uppsett,
ekki síst vegna þess að fyrst þurfti
að fá Evrópustimpil á tækið þar sem
það var það fyrsta sinnar tegundar
er var flutt inn á Evrópska efna-
hagssvæðið. En öllum kröfum kerf-
isins var fullnægt að lokum og Galbi
varð að veruleika.
Staðurinn lætur lítið yfir sér, er
svolítið heimilislegur og borðin fá.
Matseðillinn er heldur ekki langur
enda óþarfi að flækja hlutina um of.
Í forrétt er boðið upp á blandað
sashimi (hljómar betur en hrár fisk-
ur) og fengum við disk með krabba,
rækjum og túnfiski auk ýsu sem vaf-
ið hafði verði inn í nori-þang. Þetta
var ágætt, fiskurinn ferskur. Með
þessu kom wasabi og maríneraður
engifer.
Það er hins vegar grillið sem gerir
Galbi að lítilli gersemi. Í fyrsta lagi
er það tilbreyting og félagslega
skemmtilegt að sitja saman við
borðið og skella matnum á grillið líkt
og þeir þekkja eflaust sem heimsótt
hafa kóreska veitingastaði í öðrum
löndum. Og þá eykur það enn á
ánægjuna hvað réttirnir hjá Galbi
eru fjölbreyttir og bragðgóðir.
Sérstakan plús fær staðurinn fyrir
að þora að krydda réttina og láta þá
bragðast í stað þess að laga þá að
einhverri meðalmennsku. Einn og
einn réttur var töluvert heitur! Ekki
spillir fyrir að vita af því að allar
kryddblöndur og allir kryddlegir eru
gerð á staðnum.
Réttirnir koma í litlum skálum
sem láta ekki mikið yfir sér, þegar
upp er staðið er maður hins vegar
orðinn yfir sig saddur án þess að
hafa klárað úr þeim. Þarna er líka
allt: grænmeti, fiskur, kjöt og hrís-
grjón.
Í fyrstu skálinni var eggaldin og
kúrbítur krydduð í legi með kóríand-
er, papriku, púrrulauk og sojasósu.
Næst steinbítur, skemmtilega
myntukryddaður og þá skötuselur í
teriyaki-sósu með flórsykri og hesli-
hnetum.
Svínakjötið vakti mikla lukku
gesta kryddað í legi með stjörnuanís
og ostrusósu. Lambið bar mikinn
keim af hvítlauk úr leginum og með
nautakjötinu var það engifer sem
var ríkjandi. Kjúklingalundir svolítið
„heitar“ með fersku chili og engifer.
Með þessu var margvíslegt salat,
til dæmis hið klassíska kilsí sem er
grænmetisréttur úr kínakáli, púrru
og maríneraður í kryddjurtalegi.
Fínn á grillið.
Þá var gulrótarsalat (sem fór ekki
á grillið) með engifer, myntu og sítr-
ónusafa. Stór jöklasalatblöð voru
með sem hægt var að fylla með hrís-
grjónum, salati og grillgóðgætinu.
Staðurinn er barnvænn og þótt
krakkarnir hafi tekið kóreugrillinu
með varúð var boðið upp á þann kost
að börnin fengju litlar kjúklingakúl-
ur sem þau gátu haft á grillinu með
hinum matnum og verið þannig með.
Galbi er einfaldur staður. And-
rúmsloftið er hins vegar vinalegt og
maturinn, ekki síst grillveislan, vel
þess virði að gera sér ferð í Kópa-
voginn.
Kóresk grillveisla
Morgunblaðið/Jim Smart
Galbi. Hlíðarsmára 8, Kópavogi.
Sími: 544 4448. Heimasíða:
www.galbirestaurant.com.
Andrúmsloft: Íslenskur fjölskyldu-
staður með asísku ívafi í innrétt-
ingum og skrautmunum. Einfaldur,
vinalegur og heimilislegur.
Mælt með: Kóresku grillréttunum.
Takið pakka með sem flestum rétt-
um.
Vín: Það eru ekki mörg vín á listan-
um en á móti kemur að kóresk mat-
argerð er ekki mjög vínvæn. Bjór er
yfirleitt bestur eða þá arómatískt
hvítvín að ekki sé nú minnst á vatn.
Hins vegar til fyrirmyndar að hægt
skuli vera að fá flöskur í kringum
tvö þúsund krónur.
Galbi
Einkunn
Viðunandi
Góður
Mjög góður
Frábær
Afburða veitingastaður
Einkunnagjöf byggist á mati á þjónustu,
húsnæði, vínlista og mat, að teknu tilliti
til verðlags.
ÞAU eru ekki mörg þýsku
vínin sem hafa komið inn á
markaðinn síðustu ár enda
hafa þýsk vín átt frekar erf-
itt uppdráttar á Íslandi. Sem
fyrrverandi íbúi í Móseldaln-
um hlýjar það mér hins veg-
ar um hjartaræturnar að sjá
að ekki er öll nótt úti enn því
nýlega komu þrjú ný Mósel-
vín inn í vínbúðirnar.
Þau eru frá framleiðand-
anum Moselland sem er vín-
samlag bænda á svæðinu
Mosel-Saar-Ruwer.
Moselland er mjög stórt
samlag og lætur nærri að um
helmingur vínbænda á þessu
ræktunarsvæði tengist því.
Greinilegt er að þeir bændur
sjá ástæðu til að breyta til
því umbúðir utan um þessi
vín eru öðruvísi en maður á
að venjast af Móselvínum,
sumar flöskurnar jafnvel blá-
ar og undarlegar í laginu.
Moselland Riesling Spätlese er
hið þokkalegasta Riesling-
vín. Þetta er í dæmigerðum,
léttum Móselstíl, áfeng-
ismagnið einungis 7,5% og
vínið því mjög ávaxtaríkt,
græn epli, perur og þrúgna-
safi. Létt með mildri sætu.
Þægilegt til dæmis sem kald-
ur fordrykkur.
840 krónur. 15/20
Moselland Mahlzeit Riesling er
fyllra vín enda áfengis-
magnið 11,5%. Vínið milt,
þurrt með grænum ávaxta-
og möndlukeim. Þokkaleg-
asta Móselriesling fyrir
verðið.
1.140 krónur. 15/20
Moselland Avantgarde Riesling
Lieblich slær mann strax um-
búðanna vegna. Það er í
skærblárri, þríhyrningslaga
flösku með silfurlituðum
flöskumiða. Innihaldið er
hins vegar ekki eins avant-
garde og flaskan. Léttur,
fremur sætur ávöxtur. Lime,
grænar þrúgur og gul epli.
Uppbygging fremur létt og
sætan ekki of áberandi ef
vínið er kælt.
1.140 krónur. 14/20
Frá Chile koma vínin Oro
frá Casa de Los Toneles sem
einnig hafa nýlega bæst við
flóruna.
Oro Chardonnay 2002 er
milt, fremur hlutlaust. Ávöxt-
urinn er feiminn og mætti
vera meira afgerandi. Hlut-
leysi vínsins gerir hins vegar
að verkum að það ætti engan
að stuða. 1.180 krónur. 13/20
Oro de Chile Cabernet Sauv-
ignon 2002 er ungt og þægi-
legt ávaxtavín. Dæmigerður
og mikill sólberjaávöxtur,
svolítið grænn og einnig má
greina krækiber. Mjúkt og
þægilegt. 1.240 krónur. 15/20
Moselland og Oro
Morgunblaðið/Ásdís
Einkunnagjöf vína
byggist á heild-
stæðu mati á
gæðum, upp-
runaeinkennum og hlutfalli
verðs og gæða. Vín getur
fengið að hámarki 20 stig í
einkunn. Ef um mjög góð
kaup er að ræða er vínið
merkt með buddu.