Morgunblaðið - 28.09.2003, Blaðsíða 9
Upplýsandi slóð fyrir ferðalanga á leið til
Svíþjóðar: www.svenskaturistforeningen.se
LIGGI leið til Lundúna á næstunni
og ef ekki á að gista á hefðbundnu
hóteli gæti gistihúsið Victorian
Guesthouse í Hampsted kannski
komið til greina. Viktoríutímabilið er
gert ljóslifandi og herbergin innrétt-
uð í anda tímabils Viktoríu drottn-
ingar með mahóníi, gyllingum og
marmara. Sturtuklefarnir eru úr
viði, á veggjum er veggfóður og vikt-
oríönsk kamína skreytir hvert her-
bergi. Húsgögnin eru í samræmi,
þung og hlaðin skrauti.
Í garði hússins er hægt að fá te að
enskum sið með skonsum og ensku
kexi. Að sögn eigandans státar Vict-
orian Guest House einnig af hús-
draug sem gæti gert vart við sig þeg-
ar marrar í gömlu trégólfinu og
stundum geta gestir tekið þátt í að
leysa morðgátur en þá er sett upp
leikrit á hótelinu sem gestir eru þátt-
takendur í.
Antík og
draugar
Victorian Guesthouse
89 Somerton Road
London NW2 1RU
England
Tel +44-00208-450-8673
Slóðin er http://www.victor-
ian.ws/
FLUGFÉLAGIÐ Singapore Air-
lines skipuleggur nú áætlunar-
flug sem verður lengsta flug
sem flogið hefur verið í beinu
flugi. Áætlunarflugið sem hefst
næsta ár verður frá Singapore
til Los Angeles og tekur flugið
átján klukkustundir en flogið
verður með Airbus-flugvélum af
gerðinni A340-500. Þá er taí-
lenska flugfélagið Thai sysler
með í farvatninu að bjóða flug
milli Bangkok og Chicago.
Lengsta flug-
ferð í heimi
FYRIR þremur árum tóku Ís-
lendingar upp danskt flokkunar-
kerfi fyrir gististaði hér á landi.
Grænlendingar hafa einnig tek-
ið upp danska kerfið. Færeyingar
og Svíar hafa ákveðið að taka
danska kerfið upp um næstu ára-
mót og Norðmenn standa í við-
ræðum við Dani. Finnar hafa enn
sem komið er ekki tekið ákvörðun
um flokkunarkerfi. Nú standa
hins vegar yfir viðræður á Norð-
urlöndum um að þróa þetta
danska kerfi fyrir öll löndin.
Elías B. Gíslason, forstöðumað-
ur upplýsinga- og þróunarsviðs
Ferðamálaráðs Íslands, segir að
Danir hafi á sínum tíma lagt
mikla vinnu í flokkunarkerfið og
það hafi gefið góða raun. Kerfið
hefur fram til þessa alfarið verið
byggt á hlutlægum þáttum.
50 gististaðir
flokkaðir hér á landi
Í Danmörku þurfa gististaðir
sem eru með fleiri en 8 herbergi
að vera flokkaðir til að vera með-
limir í dönsku hótel- og veitinga-
samtökunum. Hér á landi er hót-
eleigendum í sjálfsvald sett hvort
þeir kjósa að láta flokka gisti-
staði sína. Um 50 staðir hér á
landi eru flokkaðir með stjörnu-
gjöf sem Elías segir að séu
dræmari viðbrögð en búist hafi
verið við en á móti komi að þetta
séu stærstu gististaðirnir og því
sé þetta um helmingur gistirúma
í landinu.
Hótel Nordica er sá gististaður
sem síðast var flokkaður hér á
landi en hótelið er 4 stjörnu.
Ekkert hótel með 5 stjörnur
Samkvæmt danska kerfinu eru
gististaðir flokkaðir með 1–5
stjörnum og ekkert hótel hér á
landi telst vera 5 stjörnu. Flokk-
unarkerfinu er ætlað að þróast
með markaðnum og Elías segir
að nú standi til að bæta hug-
lægum þætti við það er að segja
að meta hluti eins og ástand og
útlit innréttinga og húsgögn svo
dæmi séu tekin
Í haust hittast fulltrúar allra
Norðurlandanna og fara yfir það
hvernig hægt verði að samræma
kerfið enn frekar og hvernig
standa eigi að kynningu og mark-
aðssetningu.
Gististaðir á Norðurlöndum
Samræma á stjörnugjöf
Morgunblaðið/Sverrir
Síðasta hótelið sem flokkað var samkvæmt kerfinu hér á landi var Hótel
Nordica sem hlaut 4 stjörnur.
R E Y K J A V Í K & A K U R E Y R INánari upplýsingar á www.fujifilm.is
S k i p h o l t i 3 1 , R e y k j a v í k , s : 5 6 8 0 4 5 0 ı K a u p v a n g s s t r æ t i 1 , A k u r e y r i , s : 4 6 1 2 8 5 0
M y n d s m i ð j a n E g i l s s t ö ð u m ı F r a m k ö l l u n a r þ j ó n u s t a n B o r g a r n e s i ı F i l m v e r k S e l f o s s i
Fujifilm stafrænar myndavélar, framúrskarandi myndgæði – frábært verð.
MYNDARLEGT TILBOÐ
3.24 milljón virkir dílar.
Ljósnæmi ISO 100.
6x aðdráttarlinsa (38-228mm).
Hægt að fá víðvinkil (30mm) og enn
meiri aðdrátt (342mm).
Tekur allt að 200 sek kvikm. með hljóði.
Hægt að tala inn á ljósmyndir allt að 30
sek á hverja mynd.
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að taka allt að 300 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Allt sem þarf til að byrja fylgir
Verð kr. 59.900,-
S304
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Fjöldi myndatökumöguleika; s/h, króm,
runur osfrv.
Ljósnæmi ISO 200-800.
3x aðdráttarlinsa (38-114mm) auk
stafræns aðdráttar.
Með F hnapp sem auðveldar allar
myndgæða stillingar.
Tekur kvikmyndir 320x240 díla,
10 rammar á sek., upp í 120 sek í einu.
Hægt að tala inn á myndir.
Lithium Ion hleðslurafhlaða og
hleðslutæki fylgir.
Notar nýju X-D minniskortin.
165 g án rafhlöðu.
Verð kr. 49.900,-
F410
4 kynslóð af Super CCD HR.
3.1 milljón virkir dílar sem gefa allt að
2816x2120 díla myndir 6.0 milljón díla!
Ljósnæmi ISO 100/200/400/800 (800 í 1M).
3x aðdráttarlinsa (38-114mm).
Hægt að taka allt að 250 skot á
venjulegar AA Alkaline rafhlöður!
Tekur allt að 120 sek kvikmynd (án hljóðs).
Notar nýju x-D minniskortin.
Hægt að fá vöggu.
Allt sem þarf til að byrja fylgir.
155 g án rafhlöðu.
Verð kr. 35.500,-
A310
Ný send
ing
komin
Framkö
llun
á 25 sta
frænum
myndum
fylgir h
verri
seldri m
yndavél
í septem
ber!