Morgunblaðið - 29.09.2003, Side 1

Morgunblaðið - 29.09.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 263. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Bikar- meistarar Níundi sigur Skagamanna í tíu úr- slitaleikjum á 25 árum Íþróttir 3 Margrét Gauja Magnúsdóttir stýrir Tótalráðgjöf Daglegt líf 14 Óskalög ráðherrans Halldór valdi lögin við opnun Tonlist.com í New York Fólk 31 RÚSSNESKI stjórnmálamaðurinn Vladímír Zhírínovskí vill sem fyrr að Ísland verði fangaeyja fyrir alla Evr- ópu. Í samtali blaða- manns Morgun- blaðsins við Zhírínovskí kemur fram að hann álítur að erfitt yrði fyrir fangana að flýja héð- an. „Fjöldi fangelsa í Evrópu er gífurleg- ur og það kostar sitt að reka þau,“ segir Zhírínovskí. „Ef við hefðum einfald- lega eitt risastórt fangelsi fyrir alla evrópska glæpamenn kæmi þetta bet- ur út,“ segir hann. Ef landsmenn sam- þykktu hugmyndina myndu þeir fá greitt fyrir að vista fangana og gæta þeirra, bætir hann við. Zhírínovskí stefnir að því að verða forseti Rússlands ekki síðar en árið 2008. Hann viðrar ýmsar hugmyndir í viðtalinu, meðal annars vill hann að Kína verði skipt upp í sex hluta, segir að það myndi draga úr hættu sem hann telur stafa af ríkinu. Hann vill að einvörðungu verði þrír gjaldmiðlar í heiminum, dollari, evra og rúbla og heiminum verði stýrt frá Moskvu, Brussel og Washington. „Ísland yrði gott fangelsi“ Zhírínovskí Vladímír Zhírínovskí  Heiminum/12 GEISLADISKUR, þar sem Finn- ur Bjarnason tenórsöngvari og Örn Magnússon píanóleikari flytja sönglög Jóns Leifs, fær frábæra dóma í tónlistartímariti Breska út- varpsins, BBC Music Magazine. Diskurinn fær fjórar stjörnur, bæði fyrir túlkun og hljómgæði. Gagnrýnandinn, Hilary Finch, hrósar fallegri hönnun disksins sérstaklega og segir svo: „Hjá Jóni Leifs þýðir minna oft meira, og smærri hljóðfæraverk hans og sönglög gefa góða innsýn í skapandi hug hans, þótt oft hafi þau staðið í skugga risavaxinna hljómsveitarverkanna. Þeir sem þekkja Sögusinfóníuna munu njóta nálægðarinnar í þremur söngvum úr henni, þar sem hvert atkvæði stendur teinrétt og sterkt. Söngvarnir ópus 24 eru kraftmikil viðbót við þá fyrrnefndu og gefa orðinu hetjutenór nýja merkingu. Það er Finnur Bjarnason, mennt- aður í Guildhall-skólanum, sem tekst á við söngva Jóns með píanó- leikaranum góða, Erni Magnús- syni. Þeir hafa báðir til að bera næmi og kjark til að miðla þessari tónlist – tónlist sem kann í fyrstu að hljóma torskilin, eins og hún þráist við að hjakka í sama farinu. Þeir sem eru að kynnast tónlist Jóns Leifs í fyrsta sinn eiga í vændum að upplifa ótal undur, eins og Vögguvísuna sem Jón Leifs samdi fyrir látna dóttur sína. Þeir sem þegar eru kunnugir mál- notkun og tónmáli Jóns ættu að fá hér gott tækifæri til að öðlast enn dýpri skilning á hvoru tveggju.“ Morgunblaðið/Einar Falur Finnur Bjarnason og Örn Magnússon við upptöku. Ótal undur í tónlistinni Sönglög Jóns Leifs vekja hrifningu í Englandi RAFMAGNSBILUN á Ítalíu aðfaranótt sunnu- dags olli því að á nokkrum mínútum lamaðist nær allt landið. Eins og sjá má var Róm enn myrkvuð í gærmorgun. Rafmagn komst aftur á í norðurhéruðunum þegar í gærmorgun og nokkru síðar í Róm en í gærkvöldi voru ýmis svæði á sunnanverðri Ítalíu enn rafmagnslaus. Sardinía slapp en tugþúsundir manna í öðrum landshlutum voru strandaglópar í lestum og sums staðar sat fólk fast í lyftum. „Það var skelfing og ringulreið á götunum,“ sagði 17 ára strákur, Tommaso Primavera, sem var á ferð á vélhjóli sínu í Róm. „Ferða- menn trylltust – menn hugsuðu bara um sjálfa sig.“ Bilun varð í Sviss er trjágreinar slógust utan í flutningslínur sem slitnuðu. Tvær aðrar flutningslínur, sem liggja um Frakkland til Ítalíu, hættu þá að virka vegna álagsins. Reuters Myrkur um nær alla Ítalíu VONAST er til þess að liðsmenn Alþjóðakjarnorkumálastofnunar- innar í Vín, IAEA, verði komnir til Íran síðar í vikunni en stofnunin hefur veitt stjórnvöldum í Teheran frest til 31. október til að sanna að eingöngu sé unnið þar að kjarn- orkurannsóknum í friðsamlegum tilgangi. Utanríkisráðherra Írans, Kamal Kharazi, lýsti því yfir í gær að Íranar vildu starfa með IAEA en þeir myndu ekki hætta við áætl- unina. Grunsemdir eru um að þeir eumanna. Leiðtogarnir tveir sögðu eftir fundinn að þeir væru sam- mála um að stöðva yrði slík áform. Rússar hafa selt Íran búnað og tækniþekkingu til að reisa svo- nefnt Bushehr-kjarnorkuver en segjast tryggja að það sé eingöngu til friðsamlegra nota, þar verði framleidd raforka en ekki auðgað úran. Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir Rússa því að verið mun kosta um 800 milljónir dollara, rúma 60 milljarða ísl. króna. sagði að Íranar væru samt reiðu- búnir að undirrita sérstakan samn- ing vegna málsins við IAEA til að draga úr áhyggjum Bandaríkja- manna en með því skilyrði að frið- samlegu tilraunirnar yrðu ekki stöðvaðar. George W. Bush Bandaríkjafor- seti og Vladimír Pútín Rússlands- forseti ræddu á tveggja daga leið- togafundi sínum í Bandaríkjunum um helgina meinta kjarnorku- vopnasmíði Írana og Norður-Kór- vinni að því að framleiða auðgað úran til nota í kjarnorkuvopn. „Við erum að reyna að eiga sam- starf og erum ákveðnir í að gera það,“ sagði Kharazi í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina ABC. „Vandinn er að stjórn Bandaríkj- anna hefur beðið okkur um að hætta að auðga úran. Það gerir hún enda þótt [tilraunirnar] séu löglegar og ekkert sé hægt að finna að þeim meðan þær fara fram und- ir eftirliti IAEA.“ Ráðherrann Íranar verja kjarnorkuáætlun Washington, Teheran. AFP. FÓLKI sem bíður eftir varanlegri vistun utan Landspítala – háskólasjúkrahúss hef- ur fjölgað mjög að undanförnu eða um ná- lægt 50% frá því sem verið hefur á þessum árstíma undanfarin ár. Jóhannes M. Gunn- arsson, framkvæmdastjóri lækninga, segir að ef þetta rými losnaði mætti fjölga að- gerðum svo biðlistum yrði nánast eytt. Á legudeildum spítalans bíða nú 146 ein- staklingar sem lokið hafa meðferð eftir var- anlegri vistun utan hans. Á sama tíma á síð- asta ári voru 119 í sömu stöðu og Jóhannes vekur athygli á að á undanförnum árum hafi gjarnan verið 80 til 110 á biðlistum. Hjúkrunarrýmum fjölgar of hægt Margt af þessu fólki er aldrað og þarf að komast á hjúkrunarheimili en einnig er þar ungt fólk sem lent hefur í alvarlegum slys- um eða veikindum og geðfatlaðir einstak- lingar. Jóhannes segir að hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu fjölgi svo hægt að ekki hafist undan. „Rýmisins vegna gætum við nánast eytt öllum biðlistum eftir aðgerð- um á spítalanum ef við hefðum þessi legu- pláss. Við höfum skurðstofurnar tilbúnar og fasti kostnaðurinn er sá sami þótt við fjölg- um aðgerðum,“ segir Jóhannes. 146 bíða vistunar eftir meðferð  Gætu nánast/6 Ráð undir rifi hverju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.