Morgunblaðið - 29.09.2003, Side 1
2003 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ENN EINN BIKARINN Í SAFN SKAGAMANNA / B3, B5, B6, B7, B8
RIVALDO, brasilíski knatt-
spyrnumaðurinn sem var leystur
undan samningi sínum við AC Mil-
an í síðustu viku, lýsti því yfir í við-
tali við enska blaðiðið Sunday Her-
ald í gær að hann vildi ganga til liðs
við Chelsea. Verði það raunin,
harðnar enn á dalnum hjá Eiði
Smára Guðjohnsen sem þarf að bít-
ast við Hernan Crespo, Adrian
Mutu og Jimmy Floyd Hasselbaink
um sæti í framlínunni hjá Chelsea.
„Það yrði mjög auðvelt fyrir mig
að falla inn í lið Chelsea, því þar eru
fyrir margir frægir leikmenn og
suma þeirra þekki ég vel. Þetta yrði
kannski besti kosturinn fyrir mig,
því ef ég fæ góða samherja sem
þekkja hvernig ég spila, er nánast
gulltryggt að ég myndi standa mig
vel. Chelsea er því afar áhugaverð-
ur kostur en ég get ekki sagt meira
um það í bili. England er hinsvegar
mjög rökréttur áfangastaður fyrir
mig, ég hef fengið svo mörg tilboð
þaðan að það yrði einfaldast að fara
þangað og ná góðum árangri. Nú
mun ég skoða vel fjögur til fimm af
þeim tólf ákveðnu tilboðum sem ég
hef fengið frá Frakklandi, Eng-
landi, Spáni og Brasilíu og mun
velja það sem ég tel að mér muni
henta best,“ sagði Rivaldo.
Hann upplýsti að Middlesbrough
og Newcastle væru í hópi þeirra
liða sem hefðu haft samband við sig
en hann þyrfti að skoða betur hvort
það væri heppilegt fyrir sig að fara
á þær slóðir.
EGGERT Stefánsson, knatt-
spyrnumaður úr Fram, fer í vik-
unni til enska 1. deildarfélagsins
Stoke City og verður þar til
reynslu um skeið. Að sögn Stefáns
Geirs Þórissonar, stjórnarmanns í
Stoke, hefur félagið fylgst vel
með Eggerti í leikjum með Fram í
alllangan tíma og vill skoða hann
betur með mögulegan samning í
huga. Eggert er 23 ára varnar-
maður og spilaði 15 leiki með
Fram í úrvalsdeildinni í sumar.
Enginn Íslendingur er í röðum
Stoke um þessar mundir, sem eru
mikil viðbrigði því þar hafa jafn-
an verið íslenskir leikmenn und-
anfarin tíu ár. Áhugi er á að bæta
úr því. „Við höfum hug á að fá til
okkar efnilega íslenska stráka og
bjóða þeim góðar aðstæður þar
sem þeir geta samræmt það að
spila með unglingaliðum okkar og
stundað um leið fjarnám við sína
skóla á Íslandi. Þetta er allt á
byrjunarstigi ennþá en við von-
umst til þess að geta fengið
nokkra til okkar á þennan hátt
áður en langt um líður,“ sagði
Stefán Geir Þórisson.
Eggert til reynslu
hjá Stoke City
Ríkharður er jafnframt kominninn í myndina hjá íslensku
landsliðsþjálfurunum á nýjan leik
eftir góða byrjun með Fredrikstad.
Hann hefur skorað þrjú mörk í fjór-
um leikjum eftir að hann gekk til liðs
við félagið fyrr í haust. Ríkharður er
í 22 manna hópi sem tilkynntur hefur
verið til UEFA vegna landsleiks Ís-
lands og Þýskalands 11. október, og í
þeim hópi eru einnig Tryggvi Guð-
mundsson, Bjarni Guðjónsson og
Gylfi Einarsson, sem ekki hafa leikið
með landsliðinu að undanförnu.
„Við tilkynntum 22 menn fyrir
þennan leik til að hafa vaðið fyrir
neðan okkur þar sem nokkrir okkar
lykilmanna eru frá vegna meiðsla og
aðrir tæpir. Endanlegi 18 manna
hópurinn verður ekki valinn fyrr en
rétt áður en við förum til Þýska-
lands. Ríkharður hefur farið vel af
stað með sínu nýja liði og við munum
fylgjast mjög vel með honum. Það er
afar ánægjulegt að hann skuli vera
farinn að spila og skora mörk á ný,
og það eru góðar fréttir fyrir okkur
að hann hafi skorað þessi mörk í
dag,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson,
landsliðsþjálfari, við Morgunblaðið í
gær.
Ríkharður lék síðast með landslið-
inu fyrir rúmu ári, þegar það tapaði,
0:2, fyrir Ungverjum í vináttuleik á
Laugardalsvellinum. Nokkrum dög-
um áður skoraði hann tvívegis í 3:0
sigri Íslands á Andorra og hann er í
2.–3. sæti yfir markahæstu A-lands-
liðsmenn Íslands með 14 mörk.
Hjá Fredrikstad eru menn afar
stoltir yfir því að Ríkharður skuli
jafnvel vera á leið í leik með íslenska
landsliðinu. Félagið hefur ekki átt
A-landsliðsmann í 17 ár, eða frá
árinu 1986 þegar Per Egil Ahlsen,
leikmaður Fredrikstad, lék með
norska landsliðinu.
Fjórtánda mark Haraldar
Ríkharður var ekki einn Íslend-
inga um að skora í norsku 1. deild-
inni í gær. Haraldur Ingólfsson skor-
aði eitt af mörkum Raufoss sem vann
Haugesund, 4:1. Raufoss er í fjórða
sæti með 46 stig og getur enn bland-
að sér í toppbaráttuna. Þetta var 14.
mark Haraldar í ár og hann er þriðji
markahæsti leikmaður deildarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Ríkharður Daðason er kominn inn í myndina hjá íslensku landsliðsþjálfurunum á nýjan leik.
Ríkharður Daðason skoraði tvö mörk
RÍKHARÐUR Daðason skaut Fredrikstad á topp norsku 1. deildar-
innar í knattspyrnu í gær. Ríkharður skoraði tvö mörk þegar Fred-
rikstad sigraði HamKam, 4:1, í uppgjöri tveggja af efstu liðum
deildarinnar og lið hans hefur nú sett beina stefnu á sæti í úrvals-
deildinni eftir að hafa leikið í 2. deild í fyrra. Fredrikstad er með 53
stig, Hönefoss 51 og HamKam 50.
Rivaldo vill til Chelsea
STJÓRN knattspyrnudeildar Víkings hefur
gengið frá samkomulagi við Sigurð Jónsson
um að hann þjálfi liðið næstu þrjú árin. Sig-
urður tók við Víkingum fyrir nýliðið tímabil
og undir hans stjórn unnu þeir sér sæti í úr-
valsdeildinni eftir fjögurra ára fjarveru.
„Það er mikil ánægja í okkar röðum með
störf Sigurðar sem sýndi og sannaði hæfileika
sína sem þjálfari hjá okkur í sumar,“ sagði
Gísli Sváfnisson, formaður knattspyrnudeild-
ar Víkings, við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði að Víkingar hygðust styrkja lið
sitt fyrir slaginn næsta sumar. „Við munum
þó fara rólega í sakirnar og byrjum á að
ganga frá samningum við okkar leikmenn. Ég
á von á því að þeir verði allir áfram, nema
hvað við vitum ekki hvernig verður með láns-
mennina sem við fengum seinnipart sumars,
Jón B. Hermannsson frá Fylki og Jón Skafta-
son frá KR. En við þurfum að fá meiri reynslu
í okkar lið og reyna að koma í veg fyrir að það
sama gerist hjá okkur og Val og Þrótti, sem
ekki styrktu sín lið að ráði og féllu strax aftur
úr deildinni. Við munum vanda okkur og
leggjum áherslu á að fá menn sem passa inn í
okkar lið,“ sagði Gísli Sváfnisson.
Sigurður semur
við Víking til
þriggja ára
Valinn í Þýska-
landshópinn