Morgunblaðið - 02.10.2003, Síða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Bankaútibú í þínu fyrirtæki
Fyrirtækjabanki Landsbankans
Þú stundar öll bankaviðskipti fyrirtækisins á einfaldan og þægilegan
hátt á Netinu – hvenær sem þér hentar.
Í Fyrirtækjabanka Landsbankans býðst þér m.a. að:
• Framkvæma allar almennar bankaaðgerðir (millifæra, sækja yfirlit, greiða reikninga o.s.frv.).
• Safna greiðslum saman í greiðslubunka sem hægt er að greiða strax eða geyma til úrvinnslu síðar.
• Framkvæma greiðslur með því að senda inn greiðsluskrár úr t.d. bókhaldsforritum.
• Stofna og fella niður innheimtukröfur.
• Greiða erlenda reikninga (SWIFT).
Nánari upplýsingar um Fyrirtækjabankann getur þú fengið í næsta útibúi Landsbankans,
í Þjónustuveri bankans í síma 560 6000 eða á vefsetri bankans, www.landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
20
51
08
/2
00
3
ÚRVALSVÍSITALA aðallista
Kauphallar Íslands hækkaði um
21% á þriðja fjórðungi ársins og
heildarvísitala aðallista hækkaði
um 18% á sama tímabili. Frá
áramótum til septemberloka
hækkaði Úrvalsvísitalan um
rúmlega 34% og heildarvísitalan
um 27%.
Af einstökum félögum á að-
allista Kauphallar Íslands hækk-
aði Marel mest á þriðja fjórð-
ungi ársins, eða um 44%, og í
öðru sæti var Pharmaco, sem
hækkaði um 42%. Þegar litið er
á fyrstu níu mánuði ársins í
heild var hækkunin hins vegar
meiri hjá Pharmaco en hjá Mar-
el, 93% á móti 55%, en þessi tvö
félög hækkuðu einnig mest þeg-
ar horft er á fyrstu níu mán-
uðina.
Eins og sjá má í meðfylgjandi
töflu lækkaði ekkert Úrvalsvísi-
tölufélag á þriðja fjórðungi árs-
ins, en Samherji og Össur lækk-
uðu þegar litið er á fyrstu níu
mánuði ársins.
Í Hálffimm fréttum Kaup-
þings Búnaðarbanka segir að
síðari hluti þriðja ársfjórðungs
hafi einkennst af miklum átök-
um á innlendum hlutabréfa-
markaði þar sem barist hafi ver-
ið um ítök í nokkrum af stærstu
hlutafélögunum. Mikil hækkun
hlutabréfa hafi fylgt þessum
átökum, en verðið hafi lítillega
gefið eftir frá því það fór hæst.
Úrvalsvísitalan fór hæst í 1.848
stig um miðjan september, en
lokagildi septembermánaðar og
þar með ársfjórðungsins var
1.824 stig. Úrvalsvísitalan lækk-
aði um 0,2% í gær og endaði í
1.813 stigum.
Hækkun yfir línuna
Allar atvinnugreinavísitölur
Kauphallarinnar hækkuðu á
þriðja fjórðungi ársins, en þegar
litið er á fyrstu níu mánuðina
lækkaði ein þeirra. Það var vísi-
tala sjávarútvegsins, sem lækk-
aði um 7%, en hækkaði um 3% á
þriðja fjórðungnum.
Vísitala lyfjagreinar hækkaði
langmest, hvort sem litið er á
þriðja fjórðung eða allt tímabilið
frá áramótum. Þetta er í sam-
ræmi við það að í vísitölunni eru
aðeins tvö félög og annað þeirra
og það sem vegur mun þyngra
er Pharmaco, sem hefur hækkað
mikið eins og áður er nefnt. Hitt
félagið er Líf, en það lækkaði
bæði á þriðja fjórðungi ársins og
á fyrstu níu mánuðum þess.
Sjóvá hækkaði um 37%
Fjármála- og tryggingafélög
hafa hækkað heldur meira en
Úrvalsvísitalan, en vísitala
þeirra hækkaði um 23% á þriðja
fjórðungi ársins og um 38% frá
áramótum. Öll þessi félög hækk-
uðu talsvert í verði á þriðja
fjórðungi ársins, en Sjóvá-Al-
mennar tryggingar þó mest, eða
um 37%. Landsbankinn hækkaði
um 28%, Tryggingamiðstöðin
um 27% og Íslandsbanki og
Kaupþing Búnaðarbanki um
19%.
Aðrar atvinnugreinavísitölur
en lyfja- og fjármála- og trygg-
ingavísitalan hækkuðu mun
minna, flestar um 10%–15% á
þriðja fjórðungi ársins.
Erlendir markaðir hækka
Flestar erlendar hlutabréfavísi-
tölur hækkuðu á þriðja fjórðungi
ársins líkt og íslensku vísitöl-
urnar, en talsvert minna þó.
Nasdaq-vísitalan í Bandaríkjun-
um hækkaði um 10% á þriðja
fjórðungi ársins en Dow Jones
og S&P 500-vísitölurnar hækk-
uðu minna, eða um 3% og 2%.
Flestir evrópskir markaðir
hækkuðu einnig í fjórðungnum
og markaðir í Asíu hækkuðu
töluvert. Japanska vísitalan Nik-
kei 225 hækkaði til að mynda um
13%.
Mikil hækkun hluta-
bréfa á 3. ársfjórðungi
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 21% á 3. fjórðungi ársins og hefur hækkað
um 34% frá ársbyrjun. Pharmaco hækkaði um 42% á fjórðungnum.
!"#$%&#
'
(
$$$$$$$$$$$$$$
%)
* +$, !
$$$$$$$$$
-
.
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
ALCOA hefur til-
kynnt að G. John Pizzey
muni láta af störfum
sem aðstoðarforstjóri
fyrirtækisins snemma á
næsta ári. Arftaki hans
verður Norðmaðurinn
Bernt Reitan, yfirmaður
áldeildar Alcoa í New
York, sem hefur verið
einna fremstur í flokki við samninga-
viðræður vegna álversins í Reyðarfirði.
Reitan tekur sömuleiðis við af Pizzey sem
stjórnarformaður dótturfyrirtækis Alcoa í
Ástralíu og yfirmaður Íslandsverkefnisins.
Frami Reitan hjá Alcoa hefur verið
skjótur en hann réðst þar til starfa fyrir
þremur árum. Áður hafði hann unnið hjá
Elkem í Noregi í tuttugu ár og er því vel að
sér um íslenska stóriðju þar sem norska
fyrirtækið hefur verið meðal aðaleigenda
Járnblendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga. Á dögunum undirritaði Reitan bygg-
ingarsamninginn við Bechtel, fyrir hönd
Fjarðaáls.
V I Ð S K I P T I
Reitan verður
aðstoðarfor-
stjóri Alcoa
Bernt Reitan
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Nýsköpun
Nýsköpunarsjóður fjárvana 2
Flugrekstur á tímamótum
Sameiginlegt eignarhald Air France og KLM 4
ER ALLT BEST Í HÓFI?
SAMSON eignarhaldsfélag ehf. hefur
keypt 187,5 milljónir hluta í Landsbanka
Íslands á genginu 5,25. Kaupverð hlutarins
er því 984,4 milljónir króna.
Eignarhlutur Samsons fyrir viðskiptin
nam 41,8% af heildarhlutafé Landsbankans
en eftir viðskiptin nemur eignarhluturinn
44,43% af heildarhlutafé Landsbankans.
Þar sem Samson átti yfir 40% hlut þegar
lögum um yfirtökuskyldu var breytt þann
1. júlí úr 50% í 40% er félagið ekki yfirtöku-
skylt þrátt fyrir að hafa aukið hlut sinn. Er
um það ákvæði í nýju lögum að þeir sem
eiga á bilinu 40-50% hlutafjár í félagi þegar
lögin tóku gildi þann 1. júlí sl. verði ekki yf-
irtökuskyldugir fyrr en þeir fari yfir næsta
5% bil. Því er Samson ekki yfirtökuskylt
fyrr en eignarhlutur þess nær 45%.
Samson með
44,43% í Lands-
bankanum