Morgunblaðið - 03.10.2003, Qupperneq 10
10 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 3|10|2003 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
Raftónlist í
Reykjavík
FÉLAGARNIR EXOS OG TÓM-
AS T.H.X. STANDA FYRIR
RAFTÓNLISTARDAGSKRÁ Á
VÍDALÍN Í OKTÓBER.
Raftónlist verður í fyrirrúmi í október á Vídalín en þeir sem
standa fyrir dagskránni eru Arnviður Snorrason, Exos, og Tóm-
as Höskuldsson, Tómas T.H.X. Þeir eru báðir tónlistarmenn og
plötusnúðar og hafa verið mikilvirkir í því að standa fyrir ýmiss
konar tónlistaruppákomum, m.a. undir nafninu 360 gráður. Það
sem einkennir dagskrána á Vídalín í október er fjölbreytni en
margar raftónlistarstefnur fá þar inni auk hipp hopps. Svo kem-
ur tónlistarhátíðin Iceland Airwaves þarna inní þannig að það
er margt í gangi í mánuðinum. Það sem ber einna hæst er end-
urkoma hinnar fornfrægu sveitar Ajax en af nógu er að taka.
„Við höfðum samband við eigandann og hann var opinn fyrir
þessu og til í þetta,“ segir Exos um upphafið.
Ein af uppákomunum er kvöld á vegum væntanlegrar út-
varpsstöðvar, Yoko.is, þar sem fram koma m.a. Móri og For-
gotten Lores. Exos segir að útvarpsstöðin taki til starfa í nóv-
ember og eigi eftir að leggja áherslu á raftónlist og hipp hopp.
Hann segir að dagskráin gefi góða mynd af því sem er að ger-
ast í raftónlist í Reykjavík. „Þetta er það sem er að gerast hjá
helstu plötusnúðum og raftónlistarmönnum,“ segir hann en
m.a. má heyra á Vídalín í október „drum & bass“, „oldschool“,
tæknó, hipp hopp, „progressive“ og „electroclash“. Exos
bendir á að Kapital sinni hústónlistinni vel og Pravda sé með
poppaðri tónlist þannig að dagskráin á Vídalín leiti á önnur mið.
Hver er staðan í raftónlist á Íslandi? „Það eru alltaf fleiri og
fleiri tónlistarmenn að koma upp og ekki lengur bara nokkrir
stórir toppar.“
Á Vídalín í kvöld spila Exos og Tómas T.H.X. ásamt fleirum og
á laugardag verður hipp hopp-kvöld á staðnum. Á laugardags-
kvöldið halda Exos og Tómas á Grand Rokk og standa þar fyrir
tæknókvöldi með bæði plötusnúðum og lifandi tónlist. Allt um
þessa dagskrá og meira til má síðan lesa í dagatalinu hérna fyr-
ir neðan. |ingarun@mbl.is
NASA
DJ Sóley sér
um dans-
stemmninguna.
KK OG MAGGI
KK og Magnús Eiríksson
spila og syngja í Bíóinu á
Akranesi í kvöld en þeir
verða í Austurbæ í Reykjavík
á laugardagskvöld. Allir tón-
leikarnir hefjast kl. 21.00.
Um aðra tónleika þeirra má lesa í Stað
og stund á Mbl.is.
Kapital
Margeir ásamt vel völdum
gestum. Kapital er nýr
skemmtistaður þar sem
hústónlistin ræður ríkjum.
Fræbbblarnir
Fræbblarnir með
tónleika á
Champions Café
og spila ný
lög og líka þessi
gömlu góðu.
Í svörtum fötum
Hljómsveitin Í svörtum föt-
um með ball á Players í
Kópavogi.
ÚTÞRÁ
Ungu fólki á aldrinum 15–25
ára stendur til boða að kynna
sér þau fjölbreyttu tækifæri
sem standa til boða varðandi
nám, leik og starf erlendis.
Kynningin fer fram í Hinu hús-
inu, Pósthússtræti 3–5, og
stendur frá kl. 15 til 18.
V
I
K
A
N
3
.
-
9
.
o
k
t
.
LaugardagurFöstudagur
GRAND ROKK
Rokkararnir í Singapore Sling
með tónleika. Kl. 23.30
NORÐURKJALLARINN
Nortón hita upp fyrir Maus í
Norðurkjallara Mennta-
skólans við Hamrahlíð.
Metz
Margeir snýr skífum eftir kl. 23.
Nýr matseðill er kominn í gang.
Vinsælustu réttir frá eldri seðli
halda áfram og fjölmargir nýir
bætast við.
Trommuleikur
Íslandsmeistarakeppni í trommu-
leik fer fram á Grand rokk. Kl. 20
Brimkló á balli
Hljómsveitin Brimkló spilar
á NASA við Austurvöll.
Brimkló heldur síðan á Sel-
foss á laugardag og spilar á
Hvíta húsinu.
Þorir þú í Kung Fú?
Strákarnir í Kung Fú ætla að halda uppi stemmningunni á Gauki á Stöng
langt fram eftir morgni. Frítt inn alla nóttina.
KAPITAL
Alfons X, sem er líka þekkt-
ur sem Árni Einar, spilar.
Neðanþindar ljóðagerð
Hagyrðingarnir Hjálmar Frey-
steinsson, Björn Ingólfsson,
Einar Kolbeinsson, Ósk Þor-
kelsdóttir og Friðrik Stein-
grímsson skemmta í Íþrótta-
húsinu í Hrafnagili. Pétur
Pétursson stjórnar og gefur
tóninn:
Fræg þau eru af gráum glettum
og greindin talin lítils verð,
en nokkuð góðum ná þau sprettum
við neðanþindar ljóðagerð. Kl. 21.30
V Í D A L Í N
Thunder records v.s.
Electro Clash # 1. Fram
koma DJ Grétar, DJ Taktik,
DJ Sveinbjörn, DJ Bjargey,
Chico rockstar, Exos og
Tómas THX.
METZ
Sverrir Sub spilar eftir kl. 23.
Geisladiskurinn Soul Food eftir DJ
Andrés er til sölu á Metz og er gefins
fyrir matargesti.
TÆKNÓ
Electric Techno með
tæknódagskrá á Grand
Rokki milli 23 og 4. Fram
koma Exos, Octal, Tómas
THX og Oculus Dormans.
Hipp
Hopp
Hipp hopp-kvöld með DJ B Ruff, DJ Magic
DJ Fingerprint og DJ Sóley á Vídalín.
Þotuliði
réttarba
Stóðréttir í Víð
dalstungurétt o
stóðréttarball í
Víðihlíð, þar se
hljómsveitin
Þotuliðið spilar
Gaukurinn
Tónleikar með Hundred Rea-
sons, Mínus og Dáðadrengj-
um frá kl. 20.30 til
01.00. Svo sér Á móti sól
um að hrista upp í mann-
skapnum fram eftir öllu.
Lokahóf KSÍ
Frakkinn Michel Platini og
eiginkona hans, Christele,
verða heiðursgestir á loka-
hófi KSÍ sem haldið er á laug-
ardagskvöld á Broadway.
Í minningu JOHNNY CASH
Tónleikar til minningar um Jo-
hnny Cash í Þjóðleikhúskjall-
aranum. Megas, Rúnar Júl.,
Mínus, Trabant o.fl.
DISKÓ-
HLJÓM-
SVEITIN
The Hefn-
ers frá
Húsavík
spilar á
Þjóðleik-
húskjall-
aranum og
ætlar að skapa
stemmningu í lík-
ingu við þá sem ríkti á
diskóárunum.