Morgunblaðið - 03.10.2003, Page 14
14 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 3|10|2003 MORGUNBLAÐIÐ
með kúlu á endanum. Þeir losna
ekki út penslinum og þola upp undir
300 gráða hita sem þýðir að óhætt
er að nota þá við grillið svo fram-
arlega sem menn eru ekki að
pensla kolin. Handfangið er úr
burstuðu ryðfríu stáli.
Kostar 1.750 kr. í Kokku.
Kostir: Þægilegur í notkun, þolir há-
an hita og auðvelt að þrífa.
Gallar: Engir sérstakir, hugsan-
lega finnst einhverjum hann
þungur þegar pensluð er 300.
bollan.
Penslar eru þarfaþing í eldhúsinu
en hafa ýmsa meinlega galla. Helsta
vandamál við pensla er að þeir fara
úr hárum, þ.e. burstahárin losna á
endanum og það er ekki kræsilegt
að fá slíkt upp í sig. Annað sem tak-
markar notagildi pensla er að burst-
ahárin eru alla jafna ekki eldþolin,
nokkuð sem sumir átta sig skyndilega
á þar sem verið er að pensla grill-
steikina. Þessi óvanalegi pensill frá
danska fyrirtækinu Steel-Function er
bráðsniðug lausn því burstahárin
eru ekki hár, heldur sílíkonþræðir
Hárlaus háhitapensill
Sagan segir að fyrir rúmum áratug
hafi húsmóðir í Ottawa gripið nýja
gerð af raspi sem maðurinn hennar
hafði komið með heim með sér, og
rifið appelsínu á honum. Raspurinn
virkaði svo vel að úr varð ný gerð
af rifjárni fyrir eldhúsið.
Rifjárn almennt eru þannig gerð
að kýld eru göt á stálþynnu og skarp-
ar brúnir gatanna eru síðan notuð til
að rífa með. Þetta dugir þokkalega
við flest það sem þarf að rífa en ým-
islegt er erfitt eða ógerningur að rífa
með slíku járni. Það virðist aftur á
móti hægt að rífa hvað sem er með rif-
járninu nýja sem heitir Micro-
plane en yfirborð rifjárnsins sé al-
þakið hundruðum örsmárra
rakblaða.
Microplane rifjárnin er hægt að
fá í ýmsum stærðum og grófleika
eftir því hvað á að gera.
Kostar 2.250 kr. í Kokku.
Kostir: Rifjárn sem rokkar, rífur allt á
mettíma, hart (parmesan) og mjúkt.
Ryðfrítt stál og plast, beint í upp-
þvottavélina.
Gallar: Eftir að hafa prófað járnið var
ég hálf hræddur við það, það er svo
ótrúlega beitt.
Kæri
blogger.com…
http://kaninka.net/stefan
„Luton og Tranmere mætast í beinni útsend-
ingu á Sky á mánudagskvöld eins og fram hefur
komið á þessari síðu.
Af þessu tilefni hefur stuðningsmannaklúbbur
Luton í Noregi ákveðið að safnast saman á bar
í Osló. Þangað mæta á fjórða tug Luton-manna,
sem sumir hverjir koma alla leið frá Tromsö –
það er þriggja tíma flug…
Eru einhverjir Luton-menn á Akureyri sem
nenna að skjótast suður til að horfa á leikinn
með mér?“ 1. október 14.11
http://vera.hobbiti.is/
„Að sjálfsögðu þegar ég sest niður og ætla að
vera hrikalega dugleg að klára stóra samkeppn-
isréttarverkefnið mitt, þá bókstaflega GET ég
ekki hugsað um neitt annað en lag sem ég
heyrði fyrir óralöngu síðan... og ég bara ÞARF
að fá þetta lag – fullnægja hlustiþörfinni – og
SVO get ég kannski byrjað að skrifa.
Þetta er hrikalegt ástand… urrr… kannski ég
fari fram og nái mér í kaffibolla nr. 3 á meðan
ég stari stjörfum augum á kazaað!“ 1. október
11.34
http://www.mikkivefur.is/gunni/
„Jæja, þá er dómur fallinn í bili: Ég er enn B-
dómari.
Ég verð að viðurkenna að ég er svekktur yfir
því, en nú er bara málið að nota þetta sem
hvatningu og bíða rólegur eftir að glufa mynd-
ist, sem mér verði boðið að fylla upp í. Ég þyk-
ist vita hvað vantar upp á hjá mér, og hlýt því
að leggja hart að mér við að lagfæra það á
næstu dögum, vikum og mánuðum.“ 1. október
10.39
http://brynja.klaki.net/dagbok/
„OMG! Ég hef loksins smá tíma aflögu til að
reyna að klára þessa helv.andsk.drasl-ritgerð,
og þá allt í einu virkar ekki vefpóstur
HÍ!?!?!?!?! Og þá get ég ekki nálgast breyttu
ritgerðina sem yfirmaðurinn minn sendi mér!?!!
Og þá er ég í djúpum skít af því ég hef aldrei á
ævi minni haft jafn mikið að gera og ég hef í
hreinskilni sagt ekki hugmynd um hvernig ég á
að komast yfir allt og halda samt geðheilsu
minni?!!?!!?!?
AAARRRRRG.“ 28. september 12.37
http://solrunosk.blogspot.com/
„Fékk furðulegt símtal í fyrradag. Vona að það
hafi verið símaat. Símtal frá einhverjum kalli
sem sagði að ég hefði verið að hringja í hann
og varð alveg brjálaður þegar ég sagði að þetta
hlyti að vera einhver misskilningur (og baðst af-
sökunar, svona ef þetta skyldi vera rétt). Hann
varð alltaf æstari og æstari og þá fór ég bara
að hlæja, hann fór þá að tala spænsku inn á
milli, kallaði með senjorítu og var með hótanir.
Sagðist vera læknir (I’m a doctor so don’t
mess with me???) og ætla að hringja í lögfræð-
inginn sinn. Ég skellti á á endanum en mikið
svakalega vona ég að þetta hafi verið einhver
sem ég þekki að fíflast.“ 1. október 9.12
http://www.simnet.is/campdavid/bla/
„Oh man! Heldurrað hels dévaffdéspilarinn hafi
bara ekki dáið akkúrat þegar ek er með Boss’
Daughter, Head of State, Dreamcatcher, Matrix
Reloaded, Ædentity, Wrong Turn, Ammmríkan
Pæ 3, Legally Blonde 2, Kallaengla 2 ok Túm-
reidertvö að láni… fokkfokkfokk… þarf barasta
að kaupa nýjan spilara á morgun, nema að það
sé einhver góðhjörtuð sál haddna úti sem á lif-
andi spilara og vill ættleiða mig næstu vikuna
eða svo.“ 30. september 21.56
Heimasíða listamannsins Bjadddna Hell, this.is/
herrahelviti, er vissulega meðal þeirra frumlegri.
Bjadddni fæst við flest listform; ljósmyndun, list-
málun, gerð sjónvarpsmynda, tónlistarmyndbanda,
geisladiskahulstra, listaverka á boli, veggspjalda,
og afbökun vörumerkja, svo eitthvað sé nefnt.
Bjadddni hefur gert myndbönd fyrir ýmsar hljóm-
sveitir, eins og Botnleðju og Maus. Sjón er sögu rík-
ari: this.is/herrahelviti.
Beint úr helvíti
VEFS
ÍÐAN
200.000 NAGLBÍTAR – HJARTAGULL
Akureyrska sveitin 200.000 naglbítar sendir á
mánudag frá sér sína þriðju breiðskífu sem ber
heitið Hjartagull. Kjarni hljómsveitarinnar er
bræðurnir Vilhelm Anton og Kári Jónssynir sem
hafa spilað saman í tíu ár, fyrst í þungarokk-
hljómsveitinni Askur Yggdrasils, þá í 200.000
naglbítum. Askur Yggdrasils gaf út eina snældu
1994 og Naglbítarnir tóku upp tíu laga plötu á ensku 1995, áttu
lag á Spírum 1997, gáfu úr Neondýrin 1998, Vögguvísur fyrir
skuggaprins 2000 og svo kemur Hjartagullið eftir helgi.
BUBBI MORTHENS –
1 .000 KOSSA NÓTT
Á 1.000 kossa nótt er Bubbi á álíka slóðum og
á Sól að morgni sem kom út á síðasta ári, syngur
um fjölskylduna, hamingjuna og lífið. Líkt og á
síðustu plötu eru víða á plötunni vísanir í eldri
verk hans og ekki síður í verk þeirra tónlistar-
manna sem höfðu áhrif á hann þegar hann var að
feta sig af stað á tónlistarbrautinni.
THE ITALIAN JOB (PS2/XBOX) – E IDOS
Með frægustu glæpamyndum Breta er The
Italian Job sem varð gríðarlega vinsæl á sjöunda
áratugnum. Hún var endurgerð fyrir stuttu, tals-
vert breytt, en þykir ekki síður vel heppnuð. Líkt
og alsiða er um spennumyndir sem eru líklegar
til vinsælda gerði Eidos tölvuleik byggðan á
myndinni sem heitir einmitt The Italian Job.
Hægt er að spila leikinn ýmist eftir söguþræði myndarinnar, glíma
við þrautir í honum og svo fara í hreinræktaðan kappakstur.
NICK COHEN – PRETTY STRAIGHT GUYS
Tony Blair stóð í ströngu í vikunni á landsfundi
Verkamannaflokksins breska. Hann ber öðrum
fremur ábyrgð á að eyðimerkurgöngu flokksins
lauk fyrir sex árum en þá hafði hann endurnýjað
stefnuskrá flokksins og sótt fram undir nafninu
New Labour. Nick Cohen er einn þeirra sem sáu í
hillingum hvernig Verkamannaflokkurinn myndi skapa nýtt þjóð-
félag og því einn þeirra sem finnst hann svikinn vegna þess að nýja
þjóðfélagið er eins og það gamla. Einskonar samtímasaga um
brostnar vonir og pólitíska tækifærismennsku.
J. RANDY TARABORRELLI – MICHAEL JACKSON:
THE MAGIC AND THE MADNESS
Um Michael Jackson má segja að ekkert sé of
sérkennilegt til að vera satt. Legíó bóka hefur
komið út þar sem sögð er saga Michaels Jack-
sons frá ótal hliðum, en þessi bók Taraborrelli
byggist á marga ára rannsóknum. Fyrsta útgáfa
hennar kom út fyrir rúmum áratug en skammt er
síðan Taraborrelli, sem er meðal annars frægur
fyrir ævisögur Madonnu, Diana Ross og Grace Kelly, endurskrifaði
stóran hluta bókarinnar. Meðal annars kemur fram í bókinni að
samfarir þeirra Lisu Marie Presley og Jacksons hafi verið góðar og
að hann hafi verið mikill foli í rúminu, en aldrei mátti víst kveikja
ljósið.
OUTKAST – SPEAKERBOXXX/THE LOVE BELOW
Rappsveitin Outkast hefur náð langt fyrir það
hve ólíkir þeir eru tónlistarmenn Andre 3000 og
Big Boi. Á nýrri skífu sinni, sem kom út í vikunni,
eiga þeir hvor sinni diskinn, Andre 3000 á The
Love Below og Big Boi Speakerboxxx. Kemur ekki
á óvart að The Love Below er mjög fjölbreytt plata
full af fönki og sálartónlist sem kryddað er með djassi, en Big Boi
er aftur á móti jarðbundnari og betri þegar upp er staðið, hann er
ekki að reyna að vera öðruvísi en hann er. Norah Jones kemur við
sögu í einu lagi á The Love Below, en á Speakerboxxx er fullt af
gestum.
DAVID HOLMES – FREE ASSOCIATION
Let’s Get Killed er jafnan talin með helstu
danstónlistarplötum síðasta áratugar, en hún
kom út 1997. Síðan hefur David Holmes verið ið-
inn við ýmiskonar útgáfustarf, meðal annars gef-
ið út aðra tónlistarmenn. Á Free Association kem-
ur hann fram með hljómsveit sinni og tónlistin er
fyrir vikið ekki eins ævintýraleg og oft áður. |arnim@mbl.is
ÚTGÁFAN
AMPLITUDE (PS2) –
SONY COMPUTER ENTERTAINMENT
Meðal forvitnilegustu leikja síðasta árs
var leikurinn Frequency sem sameinaði
tónlist og spennuleik. Leikandi stýrði fari
eftir áttstrendum göngum þar sem hann
átti að tína til sín hljóma sem urðu á vegi
hans og setja þannig saman lög. Stiga-
gjöf fór eftir því hve flókið lagið var og hve
langan tíma tók að setja það rétt saman.
Einnig var hægt að endurhljóðblanda lög.
Í vikunni kemur þessi leikur í nýrri og mik-
ið endurbættri útgáfu, kallast nú Ampli-
tude, þar sem meðal annars er að finna
lag eftir Quarashi.
Í Amplitude eru 25 lög í ýmsum stíl-
brigðum sem hægt er að setja saman í
leiknum, lög með POD, Garbage, Quar-
ashi, Run-DMC, Weezer, Pink, Papa
Roach, Slipknot, blink-182 og Akroba-
tik, svo dæmi séu tekin, en Quarashi-
lagið, Baseline, er þriðja lagið sem leik-
andi rekst á í fyrsta borði og það erf-
iðasta í því borði. Leikurinn er flókinn og
tíma tekur að komast inn í hann en eftir
það kemst ekkert annað að. Færni í hon-
um byggist á viðbragðsflýti og takt-
tilfinningu, þeir sem ekki geta dansað
ættu kannski að spá í eitthvað annað.
Hægt er að spila leikinn yfir Netið ef
menn eru með Nettengda PS2-tölvu, en
einnig geta margir spilað samtímis.
Quarashi í
tölvuleik
Piparkvörn er ekki bara piparkvörn,
í það minnsta ekki ef maður er með
Peugeot-kvörn í höndunum.
Peugeot-kvarnirnar eru með lífstíð-
arábyrgð sem nær yfir allt nema ryð,
slit meðtalið.
Kvarnarhúsið er hægt að fá í ýms-
um útfærslum, sú sem prófuð var úr
burstuðu stáli, mjög eiguleg og
traust, þung í hendi, en hægt er fá
kvarnir með hús úr ýmsum viðarteg-
undum og glæru plasti. Sjálf kvörnin
er úr hertu stáli. Tennur á kvarnarhlut-
unum, þ.e. innri og ytri hluta
kvarnarinnar, nuggast aldrei
saman og halda fyrir vikið
skerpu sinni, enda eru þær ekki
að naga hver aðra og sáldra stál-
salla í matinn.
Kostar 8.400 kr. í Kokku.
Kostir: Piparkvörn sem aldrei
missir bitið, ekki er hægt að fara
fram á meira. Fer líka vel á borði.
Gallar: Koma væntanlega ekki í
ljós fyrr en eftir lífstíðarnotkun.
Læt vita.
Peugeot piparkvörn
Rifjárnið ógurlega
GRÆJURNAR