Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3|10|2003 | FÓLKÐ | 19
Fróðlegt verður að sjá McGregor og Zellweger í dæmigerðum Cary Grant-
Katharine Hepburn/Rock Hudson-Doris Day/Meg Ryan-Tom Hanks-
hlutverkum. Renee Zellweger hefur þegar sannað getu sína í gamanleik,
ekki síst með Bridget Jones, en McGregor hefur yfirleitt farnast betur í
dramatískum jaðarhlutverkum. Þaðan kemur hann, þótt laglegt andlit
hans sé hæfilega sviplítið eða eigum við frekar að segja hlutlaust til að-
lögunar að nánast hverju sem er.
Þessi rúmlega þrítugi Skoti hefur á aðeins tíu árum komist í fremstu
röð sinnar leikkynslóðar, beggja vegna Atlantshafsins. Það voru foreldrar
hans, bæði kennarar, sem hvöttu hann að lokinni grunnskólagöngu til að
leggja leiklistina fyrir sig svo hann yrði ekki óhamingjusamur og eirð-
arlaus og frændi hans, leikarinn Denis Lawson, varð honum einnig
hvatning. Hann gerðist fyrst sviðsmaður í leikhúsi í bænum Perth en síð-
an lá leiðin í Guildhall tónlistar- og leiklistarskólann í London.
Allt frá því ferill hans hófst í leikhúsi, sjónvarpi og bíómyndum í byrjun
10. áratugarins hefur Ewan McGregor mest leikið í óháðum lágverðs-
myndum, ekki síst breskum (sjá t.d. Young Adam sem sýnd verður á
Kvikmyndahátíð Eddunnar), enda hefur hann sagt: „Ég ætla ekki að
selja mig Hollywood…Ég vil leika í góðum kvikmyndum.“ En þegar hann
var minntur á þessi orð, nýráðinn í hlutverk Obi-Wan Kenobi í þremur nýj-
ustu Stjörnustríðsmyndunum, svaraði hann: „Ég veit hvað ég sagði, en,
hei, þetta er nú einu sinni Stjörnustríð!“ |ath@mbl.is
FR
UM
SÝ
NT Ástin kemur
óboðin
Í New York á fyrri hluta 7. áratugarins verða kvensamur blaða-
maður og glaumgosi og gallharður feminískur dálkahöfundur
ástfangin og hefja dæmigert haltu-mér-slepptu-mér samband.
Klassískt efni fyrir rómantíska gamanmynd og sú nýja heitir
Down With Love. Ewan McGregor og Renee Zellweger leika
þessa tregu og andstæðu elskendur.
„Er ekki Halle Berry fallegasta kona sem
þið hafið séð? Ég er með bíómynd á prjón-
unum sem mig myndi langa til að vera í
henni með. Ég meina vera með henni í.“
EWAN McGREGOR: ÞÆR BESTU
Shallow Grave (1994). Fyrsta myndin sem vakti verulega at-
hygli á McGregor. Skoskur noir-tryllir með afar svörtum
húmor. McGregor og tveir meðleigjendur hans finna þann
fjórða steindauðann og háa peningafúlgu að auki. Vand-
inn er síður hvað skal gera – heldur hvernig. Upphaf sam-
starfs McGregors við Danny Boyle leikstjóra og John
Hodge handritshöfund.
Trainspotting (1996). Næsta verkefni þremenninganna var
þessi ófrýnilega, stundum sjokkerandi, lýsing á lífi hóps
heróínneytenda í Edinborg. McGregor ber af í afburða leik-
hópi með lágstemmdum en sterkum leik og Boyle stýrir
stjórnleysislegu andrúmslofti af drjúgu hugviti. Óþægilega
skemmtileg. Þremenningunum farnaðist ekki jafn vel ári
síðar með A Life Less Ordinary, lítt skemmtilegri gam-
anmynd sem gerð var í Bandaríkjunum.
Velvet Goldmine (1998). Bandaríski leikstjórinn Todd Hayn-
es heimsækir glysrokktíma 8. áratugarins með þessu
skrautlega músíkdrama, sem stælir Citizen Kane í bygg-
ingu. McGregor fer á kostum sem fríkuð rokkstjarna.
Rogue Trader (1999). Það fór minna fyrir þessari afurð
McGregors en Stjörnustríðum sama ár, en hér er hann
jafnmikið í essinu sínu sem hinn lánlausi verðbréfahrapp-
ur Nick Leeson og hann er litlaus í hlutverki Obi-Wan.
Moulin Rouge (2001). McGregor sannar enn hversu rakinn
hann er í tónlistarmyndir sem ungt ljóðskáld hugfanginn
af gleðimeynni Nicole Kidman í magnaðri gandreið Baz
Luhrmann um tilbúinn úrkynjunarheim Parísar rétt fyrir
aldamótin 1900.
FLEYG ORÐ: