Morgunblaðið - 04.10.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 268. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Nói í
fremstu röð
Nói albínói fékk ellefu Eddu-
tilnefningar | Fólkið 67
Hvatt til
dáða
Haraldur Ingólfsson er sannur
atvinnumaður | Íþróttir 61
Bílarnir og
frelsið
Einar Már á bólakafi í
umferðinni | Lesbók 10
FORRÁÐAMENN Haraldar Böðv-
arssonar hf. á Akranesi hafa óskað
eftir við Landsbanka Íslands að
kaupa fyrirtækið af Brimi, dóttur-
félagi Eimskipafélags Íslands. Einn-
ig hefur KEA á Akureyri lýst áhuga
á að kaupa Útgerðarfélag Akureyr-
inga (ÚA) af Brimi.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
samþykkti sl. miðvikudag eftirfar-
andi tillögu: „Framkvæmdastjóra
KEA verði falið að ræða við fulltrúa
Landsbankans eða nýrrar stjórnar
Eimskipafélagsins um fyrirhugaða
sölu á ÚA. KEA hyggst í framhald-
inu kanna möguleika á að mynda hóp
til að kaupa ÚA og tryggja þá miklu
atvinnuhagsmuni sem eru af að fé-
lagið starfi áfram á Norðurlandi.“
Andri Teitsson, framkvæmda-
stjóri KEA, sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær hafa haft sam-
band við Landsbankann og óskað
eftir fundi en ekki væri víst hvenær
sá fundur yrði. Hann sagði erfitt að
meta hvaða verð væri rétt að bjóða í
ÚA þar sem síðasta opinbera upp-
gjör félagsins væri frá mars 2002.
„Eftir að Brim eignaðist ÚA,
Skagstrending og Harald Böðvars-
son hafa ýmsar eignir og stórar verið
færðar á milli félaganna. Því er ekki
ljóst hver á hvað í dag, hver eigin-
fjárstaðan er og svo framvegis. Til
dæmis var eignarhlutinn í Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna seldur frá
ÚA til Burðaráss.“ Andri sagði að
ekki væri búið að leggja drög að
þeim hópi sem mundi kaupa ÚA.
Forráðamenn Haraldar Böðvars-
sonar (HB) á Akranesi hafa einnig
beðið um viðræður við Landsbank-
ann um kaup á HB út úr Brimi. Har-
aldur Sturlaugsson, framkvæmda-
stjóri HB, sagði við Morgunblaðið að
forráðamenn HB hefði sett sig í sam-
band við Landsbankann „strax og
þetta umrót varð“.
„Við fylgdum því eftir með form-
legum hætti, bréfi dagsettu 23. sept-
ember. Formlegar viðræður hafa
ekki átt sér stað en við höfum verið í
góðu sambandi við þá síðan. Á með-
an get ég ekki tjáð mig frekar um
þetta mál en vilji okkar er skýr í
þessum efnum, eins og kemur fram í
bréfi til eigenda í Landsbankanum,
sem er ráðandi aðili í Eimskip, því
hagsmunir Akurnesinga eru í húfi.“
Landsbankinn vildi ekki tjá sig um
málið í gær og vísaði til þess að ný
stjórn tæki við í Eimskipafélaginu 9.
október. Þá yrði það hennar að fjalla
um málið.
Eftir því sem Morgunblaðið kemst
næst hafa Skagstrendingar ekki sóst
eftir sínu félagi, Skagstrendingi,
með formlegum hætti.
Heimamenn vilja kaupa
hluti Brims í ÚA og HB
STOFNUN Árna Magnússonar hefur keypt ís-
lenskt handrit frá 18. öld af fornbókasala í Ísrael,
og er þetta í fyrsta skipti svo vitað sé að íslenskt
handrit komi hingað frá þessum heimshluta.
„Þetta er mjög óvenjulegur staður, þetta er í
fyrsta skipti sem ég veit til þess að íslenskt handrit
hafi verið komið til Asíu,“ segir Vésteinn Ólason,
forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar.
Forsvarsmönnum stofnunarinnar barst tölvu-
póstur frá ísraelskum fornbókasala þar sem þeim
var boðið handritið, og fengu þeir send ljósrit af
nokkrum síðum þess. „Það stóð þar að handritið
væri skrifað af sr. Árna Böðvarssyni á Ökrum í
Mýrasýslu, en hann var þekkt skáld á 18. öld.
Þetta reyndist vera texti mestmegnis úr Snorra-
Eddu, en auk þess ýmislegt fleira sem oft fylgdi
handritum á þessum tíma.“
Handritið kom til landsins í vikunni og er nú ver-
ið að rannsaka það á Stofnun Árna Magnússonar.
„Það þarf nú fyrst og fremst að skrá efnið í hand-
ritinu og síðan að setja það í samhengi við aðrar
rannsóknir sem gerðar hafa verið á Snorra-Eddum
gerðum á þessum tíma,“ segir Vésteinn.
Öruggt að handritið er ófalsað
Þó að handritið hafi ekki beina þýðingu fyrir
fornbókmenntirnar hefur það menningarsögulegt
gildi, segir Vésteinn. „Það er gaman að eiga hand-
rit eftir þennan mann þó að líklega sé til annað
Edduhandrit eftir hann. Hann var mikilsvirt skáld
og skrifari.“ Vésteinn segir öruggt að handritið sé
ósvikið: „Við þekkjum rithönd mannsins [Árna
Böðvarssonar] og sjáum það á pappír að þetta er
íslenskt handrit og ekta handrit frá þessum tíma.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bókin sem kom í leitirnar í Ísrael.
Fengu 18. aldar
Snorra-Eddu
frá Ísrael
LÖGREGLAN í Kaíró í Egypta-
landi hefur handtekið mann fyrir
að reyna að selja 2.500 ára gamla
múmíu. Ætlaði hann að nota and-
virðið til að borga upp lán, sem
hann tók vegna dráttarvélarkaupa.
Múmíuna hafði maðurinn keypt
af öðrum manni, sem hafði fundið
hana í eyðimörkinni í vesturhluta
landsins fyrir þremur mánuðum.
Gerði kaupandinn sér vonir um að
geta fengið hátt í 200 milljónir
króna fyrir múmíuna og kom henni
því fyrir á pallbílnum sínum og ók
með hana um hverfi efnafólksins í
Kaíró. Þar gekk hann fyrir hvers
manns dyr og bauð múmíuna til
sölu en við heldur litlar und-
irtektir.
Maðurinn brá þá á það ráð að
lækka og lækka verðið og loksins
kvaðst hann gera sig ánægðan með
að fá fyrir dráttarvélarláninu, sem
komið var í vanskil. Þegar hér var
komið var lögreglan búin að frétta
af söluherferðinni og nú eru múmí-
an og maðurinn komin á bak við
lás og slá.
Múmía upp
í vanskilin
Kairó. AFP.
KONA í Brussel virðir fyrir sér Karl Bretaprins
á harða spretti að því er virðist en raunar er það
höfuðið eitt, sem er konunglegt. Var því bætt við
stæltan skrokk einhvers íþróttamanns. Með
þessum hætti auglýsir Eurostar tíðari lest-
arferðir um Ermarsundsgöngin.
Reuters
Konunglegur sprettur
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, sagði í gær, að
þótt margra mánaða leit að ger-
eyðingarvopnum í Írak hefði eng-
an árangur borið réttlætti skýrsl-
an um leitina innrásina í landið.
Hún sýndi, að Saddam Hussein,
fyrrverandi Íraksforseti, hefði
verið „hættulegur umheiminum“.
Í skýrslu Davids Kays, sem
stjórnaði vopnaleitinni, segir, að
engin gereyðingarvopn hafi kom-
ið í leitirnar en hins vegar hafi
fundist rannsóknastofur, lifandi
bótúlíngerlar og áætlanir um
smíði langdrægari eldflauga en
Írökum var heimilt.
Bush sagði, að skýrslan sýndi,
að Saddam hefði „blekkt alþjóða-
samfélagið og verið hættulegur
umheiminum“, en svaraði því
ekki hvort hann teldi, að
gereyðingarvopn ættu eftir að
finnast. Jack Straw, utanríkis-
ráðherra Bretlands, sagði, að
þótt vopnin væru ófundin, þá
þýddi það ekki, að þau væru ekki
til.
Vopnaleitin hefur hingað til
kostað um 22,8 milljarða króna
en Kay vill leita áfram í allt að
níu mánuði enn og ætlar Bush af
þeim sökum að biðja þingið um
rúma 45 milljarða kr. í viðbót.
Frakkar og Rússar vísuðu í
gær á bug nýrri Írakstillögu
Bandaríkjastjórnar en í henni
segir, að Írökum verði afhent
völdin „smám saman“ eftir að
stjórnarskrá hafi verið samin.
Það getur tekið marga mánuði.
Þá hafa talsmenn stórra fylkinga
í Írak lýst yfir óánægju með
hana.
Bush segir stríðið rétt-
mætt vegna Saddams
Frakkar og Rússar hafna Íraks-
tillögu Bandaríkjamanna
Washington. AP, AFP.