Morgunblaðið - 04.10.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍDEILUNNI um hvernigtaka eigi á dularfulla lekan-um í Washington hljóma yf-irlýsingar repúblikana og
demókrata kunnuglega en ljóst er
þó að þeir hafa skipst á hlut-
verkum.
Í þetta sinn, ólíkt því sem þeir
sögðu í forsetatíð Bills Clintons,
krefjast demókratar óháðrar rann-
sóknar á því hvort einn eða fleiri
embættismenn í Hvíta húsinu hafi
brotið lög með því að nafngreina
einn af starfsmönnum bandarísku
leyniþjónustunnar CIA. Repúblik-
anar segja hins vegar að dóms-
málaráðuneytið sé fullfært um að
upplýsa málið.
„Óháðir rannsóknarmenn eru
skipaðir ef talið er að stjórnin reyni
að hylma yfir eitthvað, hindri fram-
gang réttvísinnar eða hafi ekki
áhuga á málinu,“ sagði Tom
DeLay, leiðtogi repúblikana í full-
trúadeild þingsins. „Ég tel það
liggja í augum uppi að embætt-
ismenn Hvíta hússins og stjórn-
arinnar eru mjög reiðir og taka
þetta mál alvarlega,“ sagði DeLay
sem beitti sér eitt sinn fyrir því að
óháður saksóknari yrði skipaður til
að rannsaka meint brot Bills Clint-
ons á lögum um fjáröflun frambjóð-
enda.
„Þetta er glæpur“
„Þetta er ekki aðeins leki. Þetta
er glæpur, svo einfalt er það,“ sagði
demókratinn og öldungadeildar-
þingmaðurinn Charles Schumer.
„Málið hefur sáð fræjum efasemda
um hvort rannsókn dómsmálaráðu-
neytisins sé sanngjörn og heiðar-
leg.“
Schumer bætti við að krafan um
óháða rannsókn stangaðist ekki á
við þá afstöðu hans fyrir nokkrum
árum að láta ætti gömul lög, sem
heimiluðu að sérstakir saksóknarar
yrðu skipaðir vegna slíkra mála,
falla úr gildi.
Þetta er fyrsta harkalega deilan,
sem snýst um pólitískt siðferði,
milli stjórnarinnar og demókrata
frá því að George W. Bush tók við
forsetaembættinu fyrir tæpum
þremur árum. Hann hét því í kosn-
ingabaráttunni að innleiða „ströng-
ustu siðareglur í æðsta embætti
landsins“ en embættismenn hans
eru nú sakaðir um lögbrot sem
þykir jafnvel jaðra við föðurlands-
svik.
Bill Clinton sætti umfangs-
miklum og kostnaðarsömum rann-
sóknum sem urðu til þess að höfðað
var mál til embættismissis á hend-
ur forsetanum. Öldungadeildin
sýknaði hann en titringurinn vegna
málshöfðunarinnar fékk svo á þing-
ið að það lét lögin um óháða sak-
sóknara falla úr gildi.
„Ekki skipulagður leki“
Dómsmálaráðuneytið hefur nú
hafið glæparannsókn á því hvort
embættismenn, hugsanlega í Hvíta
húsinu, hafi lekið nafni eins af
starfsmönnum CIA í fjölmiðla.
Hægrisinnaður dálkahöfundur,
Robert Novak, skýrði frá því í júlí
að Valerie Plame, eiginkona Jo-
sephs C. Wilsons, fyrrverandi
sendiherra, væri á meðal starfs-
manna leyniþjónustunnar.
Áður hafði eiginmaður hennar
upplýst að fullyrðing Bush í stefnu-
ræðu hans í janúar um að Írakar
hefðu reynt að kaupa úran í kjarna-
vopn byggðist á fölsuðum skjölum.
Þetta kom Bush í vandræðalega
stöðu og hann viðurkenndi að hann
gæti ekki sannað fullyrðinguna.
Novak gerði lítið úr þætti að-
stoðarmanna Bush í málinu í grein
sem The Washington Post birti á
miðvikudag. „Farið hefur verið
rangt með þátt minn og þátt emb-
ættismanna Bush í Hvíta húsinu í
þessu máli,“ skrifaði hann. „Í
fyrsta lagi var ekki um neinn
skipulagðan leka að ræða. Í öðru
lagi varaði CIA mig aldrei við því
að uppljóstrun um að eiginkona
Wilsons starfaði fyrir leyniþjón-
ustuna myndi stofna henni eða ein-
hverjum öðrum í hættu. Í þriðja
lagi var þetta ekki mikið leyndar-
mál.“
Demókratar ganga á lagið
Stuðningurinn við Bush meðal
bandarískra kjósenda hefur minnk-
að að undanförnu og demókratar
voru fljótir að notfæra sér leka-
málið til að þjarma að forsetanum.
Repúblikanar hafa varið forsetann
en viðbrögð þeirra hafa verið var-
færnisleg, enda eru staðreyndir
málsins óljósar. Deilan er þó farin
að minna á pólitísku baráttuna sem
átti sér stað í forsetatíð Clintons.
Leiðtogar demókrata á þinginu,
Nancy Pelosi í fulltrúadeildinni og
Tom Daschle í öldungadeildinni,
hafa krafist þess að óháður sak-
sóknari verði skipaður til að rann-
saka málið. Í málflutningi sínum
hafa þingmenn demókrata m.a.
skírskotað til Watergate-hneykslis-
ins sem varð Richard Nixon að
falli.
Bush reyndi að fullvissa Banda-
ríkjamenn um að dómsmálaráðu-
neytið gæti upplýst málið. Ed Gill-
espie, formaður Repúblikana-
flokksins, kom fram í CNN-sjón-
varpinu og sagði að Wilson væri
pólitískur andstæðingur Bush.
Nú er komið annað
hljóð í strokkinn
„Þetta er fólkið sem vildi að lögin
um óháða saksóknara yrðu felld úr
gildi,“ sagði öldungadeildarþing-
maðurinn Lindsey Graham sem tók
þátt í málshöfðunarbaráttu repú-
blikana gegn Clinton. „Gefum
dómsmálaráðuneytinu tækifæri til
að gera skyldu sína. Allt annað er
pólitískt karp.“
Demókratar voru fljótir að
minna á ummæli Grahams í sjón-
varpi 1999 þegar Clinton var for-
seti. „Um leið og dómsmálaráð-
herrann er beðinn að rannsaka mál
sem tengjast yfirmanni hans verð-
ur hagsmunaárekstur,“ sagði þing-
maðurinn þá. „Þannig að við þurf-
um trúverðugt úrræði til að rann-
saka mál háttsettra embættis-
manna.“
Hlutverkavíxl í Washington
AP
Joseph Wilson, fyrrverandi sendiherra, flytur ávarp á fundi sem samtök
bandarískra andstæðinga hernaðaríhlutunarinnar í Írak héldu í janúar.
’ Bush hét því aðinnleiða „ströngustu
siðareglur í æðsta
embætti landsins“
en menn hans eru
nú sakaðir um lög-
brot sem þykir jafn-
vel jaðra við föð-
urlandssvik. ‘
Washington. AP.
STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu
sögðust í gær hafa leyst „öll tækni-
vandamálin“ sem tengdust því að
framleiða kjarnavopn úr plútoni
sem þeir segjast hafa unnið úr not-
uðum eldsneytisstöngum.
Daginn áður tilkynntu Norður-
Kóreumenn að þeir hefðu lokið end-
urvinnslu 8.000 eldsneytisstanga og
fengið þannig plúton í um það bil
sex kjarnorkusprengjur.
Enginn getur staðfest þessar yf-
irlýsingar Norður-Kóreumanna þar
sem þeir hafa vísað eftirlitsmönnum
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar (IAEA) úr landi.
Talsmaður japönsku stjórnarinn-
ar dró yfirlýsingar Norður-Kóreu-
manna í efa í gær og sagði að þær
kynnu að vera liður í því að styrkja
stöðu kommúnistastjórnarinnar í
Pyongyang í fyrirhuguðum samn-
ingaviðræðum hennar við nokkur
grannríki N-Kóreu og Bandaríkin.
Búist er við að stjórnin krefjist þá
efnahagsaðstoðar.
Japanska dagblaðið Asahi Shimb-
un skýrði frá því í gær að Norður-
Kóreumenn hefðu skotið átta litlum
eldflaugum í tilraunaskyni frá
Pyongyang 10. september, daginn
eftir að haldið var upp á 55 ára af-
mæli kommúnistaríkisins. Eldflaug-
arnar hæfðu skotmörkin sem voru
um fimm km frá höfuðborginni.
N-Kóreumenn eru nú að þróa
eldflaug sem hægt væri að skjóta á
Alaska.
!
"
!# $%& '
!
!"
# !"
$
Segjast geta fram-
leitt kjarnavopn
Norður-Kóreu-
stjórn fullyrðir að
öll tæknivanda-
mál séu leyst
Seoul. AP, AFP.
GÖRAN Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, skipaði í gær Lailu Frei-
valds í embætti utanríkisráðherra, í
stað Önnu Lindh sem var stungin til
bana fyrir tæpum mánuði.
Freivalds, sem er 61 árs og lögræð-
ingur að mennt, er fyrrverandi dóms-
málaráðherra, en því embætti gegndi
hún í alls níu ár, fyrst 1988–1991, svo
1994–2000. Á árinu 2000 þurfti hún að
segja af sér í kjölfar þess að í hámæli
komst að hún hafði keypt á hagstæðu
verði íbúðina sem hún hafði leigt lengi
af Stokkhólmsborg; þótt hún hefði
ekki brotið nein lög þótti hún hafa far-
ið á svig við siðareglur sem Jafnaðar-
mannaflokkurinn hafði sett sér.
Val Perssons á arftaka Lindh kom
flestum á óvart. Fréttaskýrandi Dag-
ens Nyheter segir það benda til að
Persson ætli sér að hafa meiri bein
áhrif á utanríkismálin en hingað til.
Helzta verkefni Freivalds næsta
misserið verður að halda fram sjón-
armiðum Svía á ríkjaráðstefnu Evr-
ópusambandsins um nýjan stjórnar-
skrársáttmála þess. Fagþekking og
reynsla Freivalds þykir vel að þessu
verkefni fallin.
Tveir aðrir nýir kvenráðherrar
Auk Freivalds koma tvær aðrar
konur nýjar í stjórnina. Barbro
Holmberg tekur við flóttamannamál-
um og Carin Jämtin við þróunarhjálp-
armálum, en þessir málaflokkar vor
fram til þessa á hendi Jans O. Karls-
son, sem gegndi utanríkisráðherra-
embættinu til bráðabirgða eftir morð-
ið á Lindh. Karlsson, sem tengzt
hefur nokkrum hneykslismálum á
kjörtímabilinu, yfirgefur stjórnina.
Hann tekur sennilega við stöðu hjá
Sameinuðu þjóðunum.
Margareta Winberg, ráðherra
jafnréttismála, missir einnig ráð-
herraembætti sitt. Hún verður skipuð
sendiherra í Brasilíu.
AP
Laila Freivalds á skrifstofu utanríkisráðherra í Stokkhólmi í gær, eftir að
Göran Persson forsætisráðherra tilkynnti um útnefningu hennar.
Freivalds óvænt
skipuð í stað Lindh
Stokkhólmi. AFP.