Morgunblaðið - 04.10.2003, Síða 1
HJÖRDÍS Ágústsdóttir heitiríslenskur fatahönnuður, al-inn upp í Svíþjóð, sem nú
stundar framhaldsnám í tísku- og
efnatextíl í Stokkhólmi. Hjördís er
að ljúka hönnun kjóla fyrir sögusýn-
ingu, sem haldin verður í Palazzo
Ruspoli í Róm í lok mánaðarins. Sýn-
ingin varpar
ljósi á Kristínu
Svíadrottningu
og menning-
artengsl Sví-
þjóðar við Evr-
ópu og Ítalíu á
17. og 18. öld.
Samhliða
henni, í öðru
galleríi á sama
stað, verður
túlkun á níu
hugtökum og fyrirbærum sem varpa
ljósi á Svíþjóð nútímans. Þar er
spunnið út frá náttúru, vatni, sum-
arnótt, vetrarmyrkri, samhug, jafn-
rétti, tækni og hlutverki og lýsir
Hjördís fyrrgreindum hugtökum
með kjólum.
Kveðst hún búin með alla nema
„hlutverk“ og „vatn“.
Perlur og skíðaföt
„Vatn verður meðal annars
túlkað með perlum og hafa vin-
konur mínar staðið í ströngu við
að þræða þær upp á band. Hlut-
verka-kjóllinn er hugsaður út
frá skíðafötum og notagildi þess
sem auðvelt er að þvo,“ segir
hún aðspurð um útfærslu kjól-
anna.
Hjördís er 29 ára og hefur
búið í Svíþjóð frá tveggja
ára aldri. Hún túlkar landið
Svíþjóð í fatahönnun fyrir
sýninguna á Ítalíu. Hvað
Svía sjálfa varðar lýsir
hún þeim sem „dá-
lítið þröngsýnum,
alvarlegum og
hrikalega prakt-
ískum“, í það minnsta
samanborið við Dani.
Áhuginn á fötum hefur alltaf ver-
ið til staðar, en hefur breyst í þörf
fyrir tjáningu með tímanum.
„Föt eru mikið valin eftir
hugarástandi. Þegar maður er
heima kýs maður þægilegan
klæðnað, en eitthvað stórbrotn-
ara og flottara fyrir partí, svo
dæmi sé tekið. Tískan hefur sitt
tungumál og nú hugsa ég meira
um að segja eitthvað með fötum.“
Hjördís útskrifaðist frá Beck-
mans-hönnunarskólanum í
fyrravor og fjallaði lokasýn-
ingin um dauðann. „Dauðinn
er eitthvað sem við tölum aldr-
ei um og einn kjóll hefur fullt
af rými og efni þar sem hægt
er að útfæra tiltekinn þanka-
gang. Mikil vinna fer í að
finna efni við hæfi og oft bý
ég það til sjálf, þrykki á það
og lita svo það sé alveg
eins og ég vil. Ég vil fá
fólk til þess að hugsa
lengra, tískan er ekki
bara flott pjatla,“
segir hún.
Kjólar um
dauðann
Hjördís hefur
haft nóg fyrir stafni
eftir að náminu í Beckmans lauk.
Hún tók meðal annars þátt í
þriggja daga útstillingu í Madríd á
Spáni í nóvember í fyrra og í
keppni í Peking í Kína í mars síð-
astliðnum. Í maí á þessu ári hélt
hún sýningu á vinnustofu sinni
ásamt fleirum þar sem þemað var
„Í lífi og dauða“ og útfærði fjóra
kjóla um dauðann, í hvítu, rauðu,
brúnu og svörtu. Einnig fékk hún
styrk frá Formmuseets vänner ný-
verið, sem er í fyrsta skipti sem
hann er veittur fatahönnuði,
að hennar sögn.
Hinn 24. október sýnir
Hjördís kjólana úr sýning-
unni „Í lífi og dauða“ á tísku-
Hjördís Ágústsdóttir
fatahönnuður.
sýningu norrænna hönnuða í Stokk-
hólmi og þegar sýningarhaldi lýkur
bíður textílhönnun fyrir stóra hús-
gagnasýningu í Stokkhólmi í febr-
úar á næsta ári. Þar að auki segist
Hjördís ætla að einbeita sér að skól-
anum í vetur, Konstfack, listaháskól-
anum í Stokkhólmi, þar sem hún
stundar meistaranám.
„Ég hef ekki haft mikið fyrir því
að fá verkefni eftir að ég útskrif-
aðist og verið rosalega heppin. Þetta
er alger draumavinna,“ segir Hjör-
dís Ágústsdóttir.
Svíþjóð
nútím-
ans lýst
með
kjólum.
„Tækni“, t.v. og
„Náttúra“.
HÖNNUN
„Norðurljós“.
Sköpunarverk Hjördísar hafa verið til umfjöllunar
víða, til dæmis í Elle og Svenska Dagbladet.
LAUGARDAGUR
4. OKTÓBER 2003
Tíska er tjáning