Morgunblaðið - 04.10.2003, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.10.2003, Blaðsíða 5
una hjá Diane og kynna mér tón- listina sem þeir spiluðu. Síðan ekki söguna meir, því við Jón frændi héldum til Kaupmannahafnar, þar sem við dvöldum í nokkra daga. Við fórum m.a. á Las Vegas sem þá var vinsæll næturklúbbur og skemmtum okkur vel fram undir morgun. Því næst fórum við til Osló og dvöld- um þar í fáeina daga okkur til sárra leiðinda. Þetta var steindauð borg, sem hafði ekki margt að bjóða ferðamönn- um annað en þurrt brauð af öllum teg- undum og álegg. Við snerum aftur yfir til Kaupmannahafnar með ferju og flugum svo heim til Íslands. Nafngiftin Þegar heim kom var þráðurinn tek- inn upp með nýju hljómsveitina og við fórum að æfa reglubundið nokkra daga í viku til þess að byggja upp góð- an lagalista fyrir komandi vetur. Við fengum leyfi hjá Óla hreppstjóra strákana að við yrðum að taka nokkur lög af plötunni og bæta þeim við safnið hjá okkur því ég hafði heyrt í þessum piltum áður og líkað vel. Samþykkt var að taka minnst sex lög af plötunni og við spiluðum þau síðan alltaf í syrpu. Við litum á þessa tónlist eins og hvert annað rokk, sem passaði vel í safnið hjá okkur, og höfðum ekki hug- mynd um hvaða afleiðingar það myndi hafa að flytja einmitt þessi lög á dans- leikjum í framtíðinni. Okkur fannst þau einungis viðbót við það sem við vorum að byggja upp sem lagaforða fyrir komandi vetur. Þegar líða tók á sumarið fór ég að huga að verkefnum fyrir hljómsveitina og fór á fund hjá Óla hreppstjóra í Njarðvíkum, en hann sá um rekstur á Krossinum fyrir kven- félag Njarðvíkur sem átti þetta fyrrverandi sjúkrahús hersins frá stríðsárunum. Óli tók mér vel og ég spurði hvort hann vantaði ekki hljómsveit fyrir vet- urinn til þess að sjá um tónlistina veturinn 1963– 64. Hann spurði hvort við myndum ráða við það og skila því sómasamlega og ég sagði að við værum búnir að æfa vel mikið og gott laga- safn og stæðum klárir á verkefninu. Hann samþykkti að ráða okkur þennan vetur fyrir kr. 1.000 á mann á laugardagskvöldum. Við höfðum því fjögur þúsund krónur í laun á mánuði fyrir spilamennsku, en laun af- greiðslumanns í verslun voru þá 4.500 til 5000 krónur á mán- uði. Ég vann einmitt sem af- greiðslu-maður í Stapafelli þetta árið og hafði þessi mán- aðarlaun. Ólafur stefndi á að byrja dansleikjahald 5. október og það varð okkar fyrsta ball í Krossinum þann veturinn. Við höfum því ávallt litið á 5. október sem upphafið á ferli Hljóma og þennan dag sem afmælisdag hljómsveitar- innar. Við fengum að vísu eitt verkefni áður, að spila fyrir skátafélagið Víkverja í Njarðvíkum, og litum á það sem æf- ingadansleik, þótt þá hefðum við í raun í fyrsta sinn spilað fyrir almenning. Dansleikurinn var haldinn í litla saln- um í Stapa, sem þá var í byggingu. Skátarnir höfðu þarna aðstöðu og vildu bjóða ungmennum á ball í september 1963. Sá sem réð okkur til verksins var Sigurjón Vilhjálmsson í stjórn skátafé- lagsins í Njarðvíkum, en sem starfs- menn hjá Esso á Keflavíkurflugvelli þekktumst við Sigurjón ágætlega. Frítt var inn á ballið og alveg glæný hljómsveit sem spilaði: Hljómar frá Keflavík. þessi hljómsveit væri einmitt að spila í Bournemouth þessa dagana. Hún spurði hvort ég vildi ekki koma og hlusta á þá? Ég skellti mér með henni á „Piers“, skemmtistað við ströndina, þar sem sjálfir Bítlarnir voru að spila. Þetta var geysilega kraftmikið band, sem hafði ótrúlega sterk áhrif á alla viðstadda. Ég hreifst af hversu kröftug og taktföst tónlistin þeirra var, en ekki var auðvelt að hlusta á þá vegna mikils hávaða í ungmennunum í salnum. Bítl- arnir spiluðu þarna í einar tvær vikur, en þetta var einmitt sumarið sem þeir slógu í gegn með fyrstu plötunni sem komst á topp vinsældalista popptón- listar í Bretlandi í september 1963 með laginu „She Loves You“. En þarna um vorið voru þeir bara venjuleg hljóm- sveit að skemmta ungmennum í Bournemouth og líka bara venjuleg rokkhljómsveit í mínum augum. Eftir þessa skemmtilegu og áhrifa- miklu reynslu fór ég að hlusta á plöt- í Njarðvíkum til þess að æfa í Kross- inum. Lagavalið var fyrst og fremst rokklög frá Bandaríkjunum og Eng- landi og okkur gekk vel með spila- mennskuna. Farið var að ræða um að við þyrftum nafn á hljómsveitina og ég stakk upp á þremur nöfnum: Strengj- um, Tónum og Hljómum, og miðaði nöfnin út frá gítarnum. Við ræddum þetta lítillega í anddyri Krossins og menn voru ekki sáttir við nafngiftina Strengir eða Tónar. Rúnar Júl. var ekki sáttur við nafnið Hljómar en ég var frekar hrifinn af því, enda lipurt í muni og tengdist hljómlistarflutningi vel. Ég stakk því upp á atkvæðagreiðslu um nafnið Hljómar og bað þá sem voru samþykkir að rétta upp hönd. Erlingur samþykkti strax, Gunni síðan og svo ég. Nafnið var því samþykkt með þremur atkvæðum samkvæmt lýðræðisreglunni. Þá var það mál afgreitt og hljóm- sveitin komin með nafn sem lengi átti eftir að hljóma um landsbyggðina, en á þeirri stundu höfðum við ekki hug- mynd um neitt slíkt. Við æfðum um sumarið og eitt sinn þegar við komum saman heima hjá Rúnna Júl. rak ég augun í albúm sem ég kannaðist strax við, en það var þá Bítlaplatan Love Me Do sem Rúnar var nýbúinn að kaupa sér. Ég sagði við Starfið hefst í Krossinum Dansleikur er auglýstur í Krossin- um hinn 5. október og hljómsveitin Hljómar ásamt Einari Júlíussyni spil- ar fyrir dansi. Það var húsfyllir þetta kvöld, eða fjögur hundruð manns. Menn voru forvitnir að heyra í þessu nýja bandi og vita hvort strákarnir stæðu sig nú þokkalega. Það sem vakti athygli gesta þetta kvöld var samræmdur og stílhreinn klæðaburður strákanna, en þeir komu fram í glæsilegum hljómsveitarfatnaði sem samanstóð af svörtum leðurvest- um með silfruðum hnöppum og rauðu baki, leðurþverslaufum, gráteinóttum Melka-skyrtum og svörtum buxum. Þegar ég var í Englandi um vorið var ég að hugleiða þennan búning fyrir hljómsveitina og keypti því fimm Melka-skyrtur í London ásamt þver- slaufunum, því þetta fékkst ekki á Ís- landi í þá daga. Ég vildi hafa bandið í samræmdum klæðnaði sem stíll væri yfir. Þegar ég lagði til að við létum sauma á okkur leðurvesti sagði Rúnar að mamma sín gæti gert þetta fyrir okkur, sem hún og gerði listavel. Þann- ig var tilkomið þetta dress sem Hljóm- ar byrjuðu í og störfuðu í fyrsta starfs- ár sitt. Fatnaðurinn var á vissan hátt tákn þess tíðaranda sem gekk í garð og gaf hljómsveitinni sterkan svip; ákveð- inn, stílhreinan og glæsilegan. Hin ensku áhrif Þegar líða tók á fyrsta dansleik Hljóma spiluðum við lagasyrpuna með Bítlunum og fengum strax meiri við- brögð í salnum en þegar við spiluðum venjulegt rokk. Fólk kom upp að svið- inu og bað okkur að endurtaka lögin, sem voru öll ný af nálinni. Við þurftum því að endurtaka Bítlasyrpuna einum sex sinnum þetta fyrsta kvöld og það varð til þess að við æfðum upp öll lögin á þessari nýju Bítlaplötu á næstu æf- ingu hljómsveitarinnar. Bítlalögin voru mikið rödduð svo við þurftum allir að taka þátt í söngnum, en Einar Júlíusson sá að öðru leyti um rokklögin ásamt bítlalögunum. Þannig hófst bítlabylgjan, sem á eft- ir gekk, eins og frægt er orðið. Við spil- uðum þessi bítlalög, sem við spiluðum í Krossinum 5. október 1963, um hverja helgi eftir það lengi vel. Þegar Bítl- arnir slógu í gegn í september með sínu fyrsta topplagi, „She Loves Me“, urðu Hljómar einfaldlega fyrstu fulltrúar bítlamenningar á Íslandi, enda farnir að flytja lögin af plötunni, sem sló svo eftirminnilega í gegn, án þess endilega að hafa haft það í huga fyrirfram. Atburðarás tíðarandans tók yfir og við í hljómsveitinni Hljómum urðum samnefnarar Bítlanna og hóf- umst hratt á loft sem vinsælasta popp- tónlistarhljómsveit allra tíma á Ís- landi. Á morgun, sunnudag, birtist annar hluti upprifj- unar Eggerts V. Kristinssonar á upphafi og arf- leifð Hljóma ásamt viðtali við Gunnar Þórðarson í tilefni 40 ára afmælis hljómsveitarinnar. eru Rúnar Júlíusson og Karl Hermannsson, fyrir aftan eru Gunnar Þórðarson gert V. Kristinsson. 1962 Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar. F.v. Egg- ert V. Kristinsson, Erlingur Jónsson, Guðmundur Ingólfsson og Gunnar Þórðarson. 1964 Hljómar í Cavernklúbbnum í Liverpool. F.v. Erlingur, Gunnar, Rúnar og Eggert. DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2003 B 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.