Morgunblaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2003 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 2.30, 4.20, 6.15 og 8Sýnd kl. 2.30, 6 og 9.
Sýnd kl. 4.
Tvímælalaust ein albesta mynd
ársins sem slegið hefur rækilega í
gegn í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
FRUMSÝNING Frumsýning
Ný vídd í
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 6 og 10.20. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 2.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 3, 6 og 9. Sýnd kl. 2, 4 og 6
Sýnd kl. 2 og 4. Með ísl. tali - Tilboð 400 kr.
Um það leyti sem þú heyrir í honum eða sérð hann.
Er það um seinan.Svakaleg hrollvekja sem fór beint
á toppinn í Bandaríkjunum
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku, hvað
myndir þú gera?
BRUCE
Tvímælalaust ein albesta mynd ársins sem
slegið hefur rækilega í gegn
í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
FRUMSÝNING Frumsýning
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára
Ný vídd í skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Settu upp
3víddar gleraugun og taktu þátt í ævintýrinu!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
ATH! FYRSTA
SÝNISHORNIÐ ÚR
LORD OF THE
RINGS:THE
RETURN OF THE
KING VERÐUR
SÝNT Á UNDAN
MYNDINNI.
Sýnd kl. 2 og 10. Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10.
HOME ROOM
ÓVÆNTUSTU tíðindin af tilnefningum til
Edduverðlauna eru tvímælalaust þau að stutt-
myndin Karamellumyndin fékk 5 tilnefningar.
Myndin er tilnefnd sem stuttmynd ársins,
Gunnar B. Guðmundsson sem leikstjóri ársins
og fyrir handrit, auk þess sem Bjarki Rafn
Guðmundsson og Stígur Steinþórsson eru báð-
ir tilnefndir fyrir útlit myndarinnar.
Karamellusprengjur í sjoppum
„Þetta kom svakalega á óvart,“ sagði Gunn-
ar B. í samtali við Morgunblaðið. „ Að baki
myndinni lá afar mikill metnaður og löng
vinna, bæði við gerð handritsins og mynd-
arinnar sjálfar.“
Karamellumyndin fjallar að sögn Gunnars
B. um eltingaleik rannsóknarlögreglumanns
við brjálaðan vísindamann sem plantar kara-
mellusprengjum í sjoppum um allan bæ í því
skyni að ná sér niðri á sælgætisfíklum.
„Það má segja að þetta sé leikin teiknimynd
og ég skrifaði handritið að henni með það í
huga.“ Gunnar B. segir fyrsta uppkastið að
handritinu hafa orðið til fyrir tólf árum og
hann hafi unnið mjög mikið
í því síðan þá. „Myndin ger-
ist öll í nokkurs konar
teiknimyndaheimi þar sem
allt er ýkt og skrumskælt
og hún er án allra samtala.“
Íslenski Derrick
Það er Jón Gnarr sem
leikur hlutverk rannsókn-
arlögreglumannsins í
myndinni, „íslenska Derr-
ick“ eins og Gunnar B. segir. Meðal annarra
leikara í myndinni eru Gísli Örn Garðarsson,
Elma Lísa Gunnarsdóttir, Maríkó Margrét og
Þórhallur Sverrisson. Myndin var skotin á súp-
er 16 mm filmu síðastliðið sumar og framleidd
af kvikmyndafélaginu Þeim tveimur, sem
Gunnar B. á og rekur ásamt þeim Óskari Þór
Axelssyni og Davíð Má Bjarnasyni.
Gunnar B., sem er sjálflærður í kvikmynda-
gerð, segir myndina alltaf hafa átt að verða
stuttmynd og segist sérlega glaður yfir því að
stuttmynd skuli hljóta eins mikla athygli og
Karamellumyndin mun fá á Edduverðlaunahá-
tíðinni sem fram fer næstkomandi
föstudag. „Ég er ötull talsmaður
stuttmynda og lít ekki á þær eins
og svo alltof margir sem ein-
hverja æfingu fyrir mynd í fullri
lengd. Þetta var sko engin æfing
hjá okkur, heldur alvöru mynd.
Æfingar á ekki að sýna opin-
berlega.“
Gunnar B. segist viss um að til-
nefningarnar til Edduverðlauna
muni hjálpa myndinni að ná til
fleiri áhorfenda. Næsta skref sé
að reyna að selja hana til sjón-
varpsstöðva hérlendis og koma
henni síðan á stóra alþjóðlega
kvikmyndahátíð. Fyrst af öllu
verður myndin þó sýnd íslenskum almenningi.
Aðeins er um eina sýningu að ræða og það sér-
staka hátíðarsýningu í dag kl. 17.30 í stóra
salnum í Háskólabíói. Aðgangur er ókeypis og
hvetur Gunnar B. alla til að koma.
Stuttmyndin Karamellumyndin er tilnefnd til fimm Edduverðlauna
Leikin teiknimynd
Morgunblaðið/Árni Torfason
Maríkó Margrét og Jón Gnarr í hlutverkum sínum í myndinni.
Gunnar Björn
Guðmundsson
skarpi@mbl.is
GÖMLU brýnin í hjómsveitinni Dur-
an Duran eru að undirbúa hljóm-
leikaferð um Bandaríkin þar sem
liðsmenn fagna 25 ára afmæli sveit-
arinnar. Allir upphaflegir liðsmenn
Duran Duran, þeir Simon Le Bon,
Andy Taylor, Roger Taylor, Nick
Rhodes og John Taylor, taka þátt í
tónleikaförinni, sem hefst í Banda-
ríkjunum 7. nóvember. Hljómsveitin
ætlar að halda tónleika í klúbbum og
tónleikasölum vítt og breitt um
Bandaríkin á einum mánuði. Þá er
framundan ný breiðskífa með sveit-
inni, að því er segir á billboard.com.
Þá eru fyrirhugaðir þrennir tón-
leikar í samvinnu við Robbie Will-
iams í Ástralíu í desember.
Endurkoma Duran Duran
AP
Duran Duran fékk sérstök verðlaun á Q-verðlaunahátíðinni á föstudag fyr-
ir framlag sitt til tónlistarinnar.
Úlfhungraðir