Morgunblaðið - 05.10.2003, Qupperneq 9
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar.
(Afgr. gjöld á flugvöllum).
Aðrir litlir og stórir bílar 6-7 manna,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið - Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Sérblað um heilsu, útivist og
næringu að hausti kemur út
sunnudaginn 12. október nk.
Auglýsendur!
Í blaðinu verður fjallað um skotveiði og hestamennsku, haustlitaferðir,
fjallgöngur og aðra útiveru, skoðað hvernig best sé að verja sig fyrir vatni
og vindum og í kjölfarið ágangi kvefs, hálsbólgu og leiðum
umgangspestum. Ennfremur verður fjallað um dæmigert hráefni í
haustmatargerð, til dæmis villibráð, nýslátrað lambakjöt og fleira.
Efnistök verða af öllu landinu.
Þeir sem hafa áhuga á því að auglýsa og koma á framfæri efni í blaðið eru
vinsamlegast beðnir að hafa samband við auglýsingadeild
Morgunblaðsins.
Pöntunar- og skilafrestur auglýsinga er til kl. 16
þriðjudaginn 7. október.
Hafið samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins
í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is
Það er ýmislegt sem stendur börn-
um til boða í London. Nánar á:
www.kidslovelondon.com
SÚKKULAÐIUNNENDUR myndu líklega hoppa
hæð sína ef þeir kæmust á alþjóðlegu súkku-
laðihátíðina í portúgalska miðaldabænum
Óbidos dagana 4.-9. nóvember næstkomandi.
Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin í
Óbidos og allskyns uppákomur sem eru tengdar
súkkulaði verða á boðstólum. Til dæmis verður
haldin samkeppni um bestu súkkulaðiuppskrift-
ina og valinn verður besti súkkulaðiskúlptúrinn
og síðan fá bakarar sérstaklega að spreyta sig
við sætindagerð. Þá verða ótal fyrirtæki frá
ýmsum löndum með kynningar á súkkulaði og
vel verður tekið á móti börnum í sérstöku
súkkulaðihúsi þar sem þeim verður kennt að
búa til súkkulaði og þau fá að taka þátt í ýms-
um uppákomum. Þá stendur gestum til boða að
fara á námskeið í gerð rétta þar sem súkkulaði
er í aðalhlutverki.
Súkkulaðihátíðin verður haldin í Óbidos í Portúgal.
Súkkulaðihátíð
í Portúgal
Upplýsingar um Óbidos er hægt að fá á
slóðinni www.cm-obidos.pt og frekari upp-
lýsingar um súkkulaðihátíðina er að finna á
www.festivalchocolate.com
FLUGLEIÐIR eru eitt tólf
flugfélaga sem hlotið hafa
tilnefningu til verðlaun-
anna British Travel Award
2003 eða bresku ferða-
verðlaunanna árið 2003.
Flugleiðir hljóta tilnefn-
ingu í flokki þar sem keppt
er um besta áætlunar-
flugfélag á stuttum flug-
leiðum. Tilkynnt verður
um verðlaunahafa þann
16. október næstkomandi.
Guðjón Arngrímsson hjá upplýsingadeild Flugleiða segir að þessi viðurkenning
sýni þá sterku stöðu sem flugfélagið hafi á breska ferðamarkaðnum.
Önnur flugfélög sem hlutu tilnefningu eru m.a. British Airways, KLM, Cyprus
Airways, EasyJet og Lufthansa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugleiðir tilnefndar til
breskra ferðaverðlauna
UNDANFARNAR vikur hafa draugar
víðsvegar af landinu verið að koma sér
fyrir í gamla frystihúsinu Hólmaröst á
Stokkseyri. Þar fer fremstur í flokki
Kampholts-Móri en auk hans eru hinir
ýmsu draugar á sveimi. Draugasetrið
verður formlega opnað á næstu vikum.
Benedikt G. Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri segir að húsnæðið sem
er um þúsund fermetrar sé að taka á
sig endanlega mynd og ef fari sem horfi
muni gestir fara hæfilega skjálfandi á
beinunum út eftir heimsókn þangað.
„Þetta verður sögusafn og gestir fá
afhenta geislaspilara sem þeir hafa með
sér þegar þeir ganga um safnið og
kynna sér draugasögur og reimleika.“
Benedikt segir að Kampholts-Móri
sé í aðalhlutverki en síðan taka við hin-
ir ýmsu draugar af öllu landinu og gest-
ir fá að kynnast þeim bæði í máli og
myndum.
Þór Vigfússon er sögumaður en
Bjarni Harðarson hefur séð um mynd-
efni og texta. Verið er að prufukeyra
safnið fyrir hópa þessa dagana. Að
sögn Benedikts er beðið eftir vínveit-
ingaleyfi fyrir safnið en meiningin er að
gestir geti fengið sér hrollvekjandi
hressingu.
Ferðir á draugaslóðir
Í tengslum við Draugasetrið
býður fyrirtæki Guðmundar
Tyrfingssonar ehf. upp á drauga-
ferðir um Suðurland. „Við erum
með þrenns konar draugaferðir.
Ein ferðin er tileinkuð Kamp-
holts-Móra, síðan er nokkurs kon-
ar framhaldsferð sem stendur til
boða og svo erum við með álfa- og
tröllaferðir, dauðadóma, aftökur og
sitthvað fleira.“
Reimleikar í frystihúsinu
Draugasetur opnað á
Stokkseyri á næstu vikum
Frekari upplýsingar um
Draugasetrið og draugaferðirnar
fást hjá skrifstofu Guðmundar
Tyrfingssonar ehf. Fossnesi C
Selfossi
Sími: 482-1210
Netfang: gt@gtyrfingsson.is
Vefslóð: www.tyrfingsson.is
GERÐAR hafa verið endurbæt-
ur á heimasíðu skandinavíska
lággjaldaflugfélagsins Snow-
flake sem þýðir að nú geta við-
skiptavinir bókað og borgað far-
seðil með flugfélaginu á Netinu.
Viðskiptavinir fá engan far-
seðil en koma í staðinn með bók-
unarnúmer sem þeir fá á Netinu
þegar þeir innrita sig á flugvell-
inum.
Snowflake-flugfélagið
Hægt að
kaupa farseðil
á Netinu
Vefslóð flugfélagsins
Snowflake er www.fly-
snowflake.com
HÆGT er að lesa sér til um og
finna á korti á Netinu þá tegund
veitingahúsa sem Bandaríkja-
menn kalla „diners“ en slóðin
www.dinercity.com er tileinkuð
þeim.
Þessi tegund veitingastaða var
undanfari skyndibitakeðjanna
sem nú eru allsráðandi. Uppruni
orðsins diner vísar til veitinga-
vagna járnbrautarlestanna og
myndi á íslensku útleggjast braut-
aráning. Þessir staðir voru nær
alltaf í fjölskyldueigu og buðu upp
á ódýran mat eldaðan á staðnum.
Annað sem einkenndi brautar-
áninguna var lögun staðarins.
Húsnæðið var ílangt og með bar-
borði (sem margir þekkja úr ótal
bíómyndum) þar sem tekið var á
móti pöntuninni. Hægt var að
sitja við barborðið og snæða
hrærðu eggin og drekka kaffið
eða setjast við borð sem boltuð
voru í gólfið. Dæmigerður braut-
aráningarstaður þjónaði svipuðu
hlutverki og hverfisbarinn gerir í
Bretlandi.
Með tilkomu skyndibitakeðj-
anna fækkaði brautaráningar-
stöðum verulega.
Brautarán-
ing í Banda-
ríkjunum