Morgunblaðið - 06.10.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 270. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Heillaðar
af göldrum
Ungar stúlkur með áhuga á yfirnátt-
úrulegum hlutum | Daglegt líf 15
Sér í honum
stríðsmann
Bubbi Morthens telur Skúla Stein
efni í atvinnumann | Fólkið 36
Sköruðu
fram úr
Ásthildur og Borgvardt eru
leikmenn ársins | Íþróttir B1
REKTOR Kennaraháskóla Íslands
segir alvarlegt hversu lágt hlutfall af
nemendum skólans er karlar og segir
að nú sé til umræðu innan skólans að
setja svokallaðan kynjakvóta á fyrir
næsta haust til að auka hlutfall karla í
skólanum.
„Við erum að ræða núna hvort við
ættum að setja kynjakvóta, sem mundi
þýða að karlmenn ættu forgang upp að
vissu hlutfalli,“ segir Ólafur Proppé,
rektor KHÍ, og telur ekki ólíklegt að
þessi leið verði farin fyrir næsta haust.
Ákvörðunar um þetta er að vænta í
kringum áramót, en skólinn auglýsir
eftir nemendum fyrir næsta skólaár í
mars ár hvert.
„Við höfum miklar áhyggjur af
kynjahlutfallinu í skólanum, hlutfallið
er um 85% konur og 15% karlar í dag,
mismunandi eftir brautum,“ segir Ólaf-
ur. „En það er alvarleg ákvörðun að
taka inn karl og hafna á móti konu sem
er kannski með betri árangur, það má
líka deila á það.“
Einnig kvóti á aldur og búsetu?
„Það er fleira en bara karlar sem við
erum að skoða. Við erum að ræða hvort
við ættum að setja kvóta á aldur. Nem-
endur okkar eru fremur gamlir, og ver-
ið er að ræða hvort t.d. ætti að gefa ný-
stúdentum möguleika á einhverjum
kvóta,“ segir Ólafur. Einnig bendir
hann á að fólk með búsetu utan höf-
uðborgarsvæðisins sé fátt í skólanum
og hugsanlega megi setja kvóta á það.
Til umræðu
að taka upp
kynjakvóta
innan KHÍ
Aðeins 15% nem-
enda skólans karlar
VERÐ á svínakjöti hefur
lækkað um 31,2% á einu ári.
Allar kjöttegundir eru á
lægra verði í dag en þær
voru fyrir 12 mánuðum.
Vísitala neysluverðs hefur á
sama tíma hækkað um 2,2%.
Mikið er um tilboð á kjöti
hjá verslunum. Engin merki
eru enn komin fram um að
það sé að draga úr verðstríði á kjötmarkaði.
Mikil framleiðsluaukning hefur verið á
svínakjöti sl. tvö ár. Ef marka má tölur Hag-
stofunnar leiddi þessi aukning til verulegrar
verðlækkunar á svínakjöti í lok síðasta árs.
Verðið hélt áfram að lækka
fram á vor en hækkaði síðan
aðeins í sumar. Verðið hefur
síðan lækkað aftur í haust
og virðist enn vera að
lækka.
Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna, segir
að kjöt sé almennt selt und-
ir kostnaðarverði og þetta
geti ekki gengið til langframa. Hann segir að
samkvæmt lögmálinu um framboð og eftir-
spurn ætti verðið að leita jafnvægis. Það myndi
gerast með þeim hætti að einhverjir framleið-
endur færu á hausinn og í framhaldinu hækk-
aði verðið. Tjónið sem fylgdi þessu stríði sé
hins vegar mikið.
Fyrir ári voru verslanir með tilboð á svína-
lærum. Dæmi voru um tilboð á 389 kr./kg.
Fram kom á þeim tíma að eðlilegt verð á svína-
læri væri 599 kr. Nú eru verslanir að bjóða
svínalæri á tilboði á 299 kr. Algengt er að versl-
anir séu núna með lambalæri af nýslátruðu á
tilboði á tæplega 900 kr./kg. Dæmi er hins veg-
ar um verslun sem býður lambalæri af nýslátr-
uðu á 649 kr./kg. Í byrjun september í fyrra
voru verslanir að bjóða árs gamalt lambalæri á
tilboði á 898 kr. Í september í fyrra voru versl-
anir með tilboð á frosnum kjúklingum á 369
kr./kg. Í dag er algengt tilboðsverð 289 kr.
Yfir 30% verðlækkun
á svínakjöti á einu ári
SIGURÐUR G. Markússon, rekstrarstjóri Nóa-
túnsverslananna, segist ekki hafa trú á því að
verðið á kjöti haldist svona lágt til lengdar og
kallar hann ástandið eins og það er í dag
„gósentíð fyrir neytendur“.
Sigurður segir erfitt að áætla hversu langt
sé í að það fari hækkandi en telur ólíklegt að
verðið fari aftur upp í það sem það var fyrir
einhverjum árum, og segist reikna með að
lendingin verði einhver millivegur.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Bónuss, segir að hann hafi ekki trú á því
að verðið á svína- og kjúklingakjöti muni
nokkurn tímann verða jafn hátt og það var fyr-
ir ári, en segir verð á kjúklingum sennilega
komið eins neðarlega og það komist. „Ég held
það sjái það allir að það er engin innstæða fyr-
ir þessu allra lægsta verði sem við erum að sjá
í þessum kjötgreinum í dag.“ Hann segir
markaðinn í dag einkennast af offramboði á
kjöti og samdrætti í neyslu lambakjöts.
„Gósentíð fyrir
neytendur“
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna efndi til skyndifundar í gær-
kvöldi að beiðni Sýrlendinga og Líb-
ana sem mótmæltu loftárásum
Ísraela á búðir Palestínumanna í
Sýrlandi í gærmorgun. Leiðtogar
arabaríkja fordæmdu loftárásirnar
í gærkvöldi, sögðu að þær gætu leitt
til „holskeflu ofbeldis“ í Mið-Aust-
urlöndum og skoruðu á öryggisráð-
ið að gera þegar í stað ráðstafanir til
að halda Ísraelsstjórn í skefjum.
Palestínska hreyfingin Hamas
kvaðst ætla að hefna loftárásanna
með sprengjutilræðum í Ísrael.
Utanríkisráðherra Sýrlands
sagði í bréfi til Kofis Annans, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, að loftárásirnar væru „sví-
virðilegt brot á alþjóðlegum
sáttmálum af hálfu Ísraela“ sem
hefðu stóraukið spennuna í Mið-
Austurlöndum. Líbanar kvörtuðu
yfir því að átta ísraelskar herþotur
hefðu rofið lofthelgi landsins til að
ráðast á skotmörkin í Sýrlandi.
Loftárásirnar voru gerðar á búð-
ir í Sýrlandi sem Ísraelar segja að
herskáar palestínskar hreyfingar,
Hamas og Jíhad, hafi notað til að
þjálfa hryðjuverkamenn. Daginn
áður sprengdi einn af liðsmönnum
Jíhad sig í loft upp og varð nítján
öðrum að bana, m.a. fjórum börn-
um, í veitingahúsi í ísraelsku borg-
inni Haifa.
Loftárásirnar í gær kyntu undir
áhyggjum af því að grannríki Ísr-
aels kynnu að dragast inn í átök Ísr-
aela og Palestínumanna. Ísraels-
stjórn áskildi sér rétt til árása á
hryðjuverkamenn hvar sem þeir
væru í Mið-Austurlöndum.
Arafat lýsir yfir
neyðarástandi
Bandaríkjastjórn hvatti Ísraela
og Sýrlendinga til að grípa ekki til
aðgerða sem myndu auka spennuna
og leiða til frekari átaka. Sendi-
herra Bandaríkjanna las harðorða
yfirlýsingu á fundi öryggisráðsins í
gærkvöldi og gagnrýndi Sýrlend-
inga fyrir að halda verndarhendi yf-
ir palestínskum hryðjuverkamönn-
um.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sem Ísraelar hafa hótað að
reka í útlegð, lýsti yfir neyðar-
ástandi á palestínsku svæðunum í
gærkvöldi. Hann skipaði einnig átta
menn í bráðabirgðastjórn sem hann
sagði að ætti að starfa í mánuð und-
ir forystu Ahmeds Qoreis og óska
síðan eftir stuðningi palestínska
þingsins.
Reuters
Ættingjar tveggja arabískra Ísraela, sem biðu bana í sprengjutilræði á laugardag, halda á líkkistum þeirra
við útför í borginni Haifa í Norður-Ísrael í gær. Auk tilræðismannsins biðu nítján manns bana í árásinni.
Arabaríki vara við
„holskeflu ofbeldis“
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
Loftárásir/12
NOREGUR er það land í Evr-
ópu þar sem hlutfallslega
flestir karlmenn eru of þungir.
Kemur þetta fram í skýrslu
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar, WHO.
Annar hver fullorðinn,
norskur karlmaður er of þung-
ur, samkvæmt skýrslu WHO,
„Food and Health in Europe“,
en hún nær til þrjátíu landa.
Meðal kvenna í Noregi er
hlutfall þeirra sem eru of
þungar mun lægra, eða um
það bil ein af hverjum þrem.
Ástandið meðal breskra
kvenna er mun verra, en um
40% þeirra eru of þung en
næstar koma grískar kynsyst-
ur þeirra.
Könnunin tók ekki til Ís-
lands.
Norskir
karlar
feitastir