Morgunblaðið - 06.10.2003, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 35
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 10.
Tvímælalaust ein albesta mynd
ársins sem slegið hefur rækilega í
gegn í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
Ný vídd í
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Settu upp
3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 8.
stuttmyndin
Síðasta
Kynslóðin
sýnd á undan
myndinni
Elephant
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 8 og 10.15.
BRUCE
Tvímælalaust ein albesta mynd ársins
sem slegið hefur rækilega í gegn
í Bandaríkjunum
Stórmynd sem engin má missa af.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára
Ný vídd í
skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Settu upp 3víddar
gleraugun og
taktu þátt í
ævintýrinu!
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
l
l j j
i
Sýnd kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 6.
Með ísl. tali - Tilboð 400 kr.
Sýnd kl. 6
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
TÓMAS R. Einarsson er af-kastamikill djasstónlist-armaður og ófeiminn við að
gera tilraunir, að teygja á tónlist-
arformum, steypa þeim saman og
slíta í sundur. Í haust brá Tómas
sér til Havana á Kúbu að taka upp
plötu sem kom út í vikunni og kall-
ast Havana, en á plötunni flytur
hann eigin lög með einvalaliði kúb-
anskra tónlistarmanna.
Tómas hefur lengi verið áhuga-
maður um kúbanska tónlist, segist
hafa verið að spá í hana með æ
meiri þunga síðasta áratuginn eða
svo. Áhuginn varð svo til þess að
hann tók að semja lög með kúb-
önskum blæ og á síðasta ári kallaði
hann saman nokkra íslenska tón-
listarmenn og tók upp plötuna
Kúbanska. „Eftir það var lítið ann-
að eftir en að skjótast til Havana og
spila með kúbönskum músík-
öntum,“ segir hann.
Á þessu ári fór Tómas síðan tvær
ferðir til Kúbu, fyrst til að und-
irbúa upptökurnar og svo í ágúst
sl. fyrir sjálfa upptökulotuna. Í
fyrri ferðinni fann hann sér hljóð-
ver og leitaði uppi þá tónlist-
armenn sem honum leist best á en í
seinni ferðinni fóru svo upptök-
urnar sjálfar fram. „Ég var búinn
að undirbúa þetta vel, fara vel yfir
allar nótur með kunningjum mín-
um, fékk Samúel Samúelsson til að
kíkja á blásaraútsetningarnar og
svo framvegis. Þegar ég kom svo
út gekk þetta vel fyrir sig, það
kviknaði strax neisti hjá okkur þó
að þeir tónlistarmenn sem ég valdi
hefðu ekki allir spilað saman áð-
ur,“ segir Tómas. Hann segir að
upptökur hafi gengið mjög vel og
þannig séu sum laganna ekki nema
ein taka og önnur tvær eða þrjár.
Svolítið ögrandi
Tómas segir að þeir spilafélagar
hans hafi komið með hugmyndir,
hann sé alltaf tilbúinn til að hlusta
á slíkt, og það hafi orðið áherslu-
breytingar á einhverjum stöðum ef
honum leist vel á það sem menn
voru að stinga upp á, en annars
hafi lögin breyst lítið, útkoman sé
nokkurn veginn það sem hann ætl-
aði áður en hann hélt utan. „Ég er
náttúrlega ekki heimamaður í
svona músík, þetta er svolítið ögr-
andi fyrir mig, en þó ég sé alltaf
opinn fyrir hugmyndum annarra
tónlistarmanna lét ég ekki neitt
vald í þeirra hendur, ég vissi hvað
ég vildi.“
Tómas segir að Havana sé ákveð-
inn hápunktur á áhuga hans á kúb-
anskri tónlist, en hann vill engu spá
um framhaldið. „Nú þekki ég
hvernig á að gera þetta og er síst
hættur að spila kúbanska músík,
hvað sem síðar verður.“ Aðspurður
hvað sé svo heillandi við kúbanska
tónlist nefnir hann slagverkið,
kongatrommurnar, bongótromm-
ur, marakkas, güiroið, timbales,
sem hann hafi reynt að draga fram
á plötunni, og svo er það tres-
gítarinn, helmingur af tólf strengja
gítar, eins og hann orðar það, lítill
gítar með þrjú strengjapör. Tres-
gítarinn er almennt ekki notaður
sem sólóhljóðfæri og tres-sóló
heyrast sárasjaldan í kúbanskri
tónlist að því Tómas segir, en hann
fékk tres-leikarann Cesar Hechev-
arría til að vera leiðandi sólisti á
diskinum og segist aldrei hafa
heyrt það gert á kúbönskum diski.
Á mörkum tveggja
tónlistarheima
Á diskinum má segja að Tómas
sé á mörkum tveggja tónlistar-
heima, tónlistin á honum er ekki
hreinn djass og ekki hrein kúbönsk
tónlist. „Þetta er óhrein músík,“
segir hann, „og mér finnst það gott
því þá er maður að búa til eitthvað
sem var ekki til áður, eins konar
brú milli þessara kúbönsku tónlist-
armanna og minnar hugsunar,“
segir Tómas og bætir svo við eftir
smáþögn: „Ég held þetta sé rauð-
þrútinn og blóðugur frumburður.“
Tómas hyggst fara stutta tón-
leikaferð um landið undir lok mán-
aðarins og fær þá tvo kúbönsku
tónlistarmannanna hingað, tres-
leikarann Cesar Hechevarría og
trompetleikarann Daniel „El
Gordo“ Ramos, en aðrir í hljóm-
sveitinni verða íslenskir, Matthías
Hemstock á trommur og slagverk,
Pétur Grétarsson á kongatromm-
ur, Davíð Þór Jónsson og Agnar
Már Magnússon á píanó til skiptis,
Samúel Samúelsson á básúnu og
Helgi Svavar Helgason leikur á
kongatrommur á einum tónleikum,
en til stendur að leika á Ísafirði,
Akureyri, Húsavík og í Reykjavík.
Á tónleikunum hyggst Tómas
kynna plötuna en einnig verða leik-
in lög af Kúbönsku til að ná fullri
tónleikadagskrá.
Óhrein músík
Morgunblaðið/Einar Falur
Tómas R. Einarsson segir Havana, nýútkomna plötu sína, vera rauðþrútinn og blóðugan frumburð.
UMBÚÐIR hljómdisksins sem
hér er til umfjöllunar eru með þeim
glæsilegri sem ég hef séð. Ef ekki
þær glæsilegustu. Smekklegt nostur
og afar listrænt. Plötuhulstrið – eða
geisladiskahulstrið
er venjulegt bréfa-
umslag (nú kann ég
ekki mæliein-
inguna, um hálft
A4). Það er silfur-
litað og á það hefur
verið þrykkt svarthvítri mynd,
skuggalegri nokkuð og virðist hún
vera af gervihnattadiskum. Inni í um-
slaginu er samanbrotið blað, tölvuút-
prentað. Þar er að finna líkar ljós-
myndir og á umslaginu; kaldrana-
legar og mætti jafnvel kalla þær
ný-gotneskar. Á diskinn sjálfan hefur
svo vandlega verið þrykkt límmiða
sem þekur allt yfirborðið, og er sama
stílhreina hönnunin þar. Samantekið
er þetta hreinasta listaverk. Minnir
þó óneitanlega á ímyndarvinnu kan-
adísku síðrokksveitarinnar Godpeed
you black emperor! Og titill plötunn-
ar er sérstaklega í þeim stíl. Talandi
um gervihnattadiska sem bera við
himin, plata Godspeed frá 2000 heitir
Lift Your Skinny Fists Like Antenn-
as to Heaven! Tilviljun? Ábyggilega,
en samt gaman að velta þessu upp.
Þess má geta að höfundurinn, Reyk-
dælingurinn Trausti, rekur skemmti-
lega síðu á www.myrkur.is sem er vel
þess virði að heimsækja.
Umslagshönnunin er nokkuð í takt
við tónlistina á disknum, sem er
drungaleg raftónlist. En fráleitt er
hún jafn vel heppnuð og umbúðirnar
og má í raun segja að hún sé miður
vel heppnuð.
Um er að ræða ósungna, tilrauna-
kennda raftónlist. Nokkuð súr og
leitast er við að skapa ákveðinn
hljóðaheim, myrkan og þungbúinn.
Það tekst reyndar ágætlega en hann
er miður spennandi sem slíkur. Fyrir
það fyrsta eru hljóðin og hljómarnir
fremur gamaldags. Það er skringi-
legur níunda áratugar bragur yfir og
er hann síst til tekna. Margt hér
minnir einhverra hluta vegna á tón-
list Vangelis við Sporfara (Blade
Runner).
Í „Huxanaverksmiðjan“ örlar þó á
skemmtilegri melódíupælingu sem
er svo fljótlega kæfð með enn
skemmtilegra óhljóði. Hæglega það
besta hér er svo „Högg eftir högg“,
hægstreymt lag sem hefst á gítar-
glamri og söngli. Þegar á líður bregð-
ur svo fyrir trompetblæstri. Sér-
kennilega heillandi smíð.
Yfir allt er helst að best takist upp í
stöku óhljóðapælingum, sem stund-
um geta verið stingandi, næsta
óþægilegar. Sem hlýtur að teljast
fagurfræðilegur árangur séu menn
að stunda óhljóðalist. En restin er
óáhugaverð og nær aldrei flugi. Nið-
urstaðan er því óspennandi innihald í
sérdeilis glæsilegum umbúðum. Sem
er auðvitað árangur út af fyrir sig.
Tónlist
Nidla-
ligeps
Spegil-aldin
Klukkurnar eru löngu horfnar …
svo ekki líta til baka
Hlandgatrecords
Klukkurnar eru löngu horfnar … svo ekki
líta til baka er eigin útgáfa Spegil-aldins.
Trausti Daxon semur lög og flytur með ör-
lítilli (en góðri) hjálp, eins og segir í upp-
lýsingabæklingi. Leikur hann á gítar,
tölvu, flöskur og vatn og jafnframt syngur
hann.
Arnar Eggert Thoroddsen