Morgunblaðið - 06.10.2003, Qupperneq 1
2003 MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
STOKE VILL FÁ FYRIRLIÐA GRINDVÍKINGA / B2
Bíllinn bilaði og
Taffarel hætti
FYRRVERANDI landsliðsmarkvörður Brasilíu,
Claudio Andre Taffarel, hefur ákveðið að hætta
sem atvinnuknattspyrnumaður en þá ákvörðun
tók hann eftir að bifreið hans bilaði er hann var á
leið til Empoli í þeim tilgangi að skrifa undir
samning við samnefnt lið.
Taffarel segir í útvarpsviðtali við ítalska út-
varpsstöð að vissulega hafi hann valdið stuðn-
ingsmönnum Empoli vonbrigðum en hann hafi
fengið það á tilfinninguna að æðri máttarvöld
hefðu tekið í taumana.
„Mér fannst eins og ég væri á leiðinni að gera
eitthvað sem væri mér ekki fyrir bestu. Ég taldi
að ég væri að fá skilboð þess efnis að núna væri
ferli mínum lokið,“ segir hinn 37 ára gamli
markvörður sem lék yfir 100 landsleiki og varð
m.a. heimsmeistari árið 1994.
Kristinn Jakobsson var útnefnd-ur dómari ársins og þau Hjalti
Jóhannesson, ÍBV, og Íris Sæ-
mundsdóttir fengu háttvísisverðlaun
KSÍ, en þess má geta að Hjalti, sem
er varnarmaður, hefur ekki fengið að
líta gula spjaldið síðustu sjö ár.
Fjölmiðlar völdu lið ársins og í
Landsbankadeild karla voru þessir
valdir:
Markvörður: Kristján Finnboga-
son, KR.
Varnarmenn: Kristján Örn Sig-
urðsson, KR, Ólafur Örn Bjarnason,
Grindavík, Tommy Nielsen, FH og
Gunnlaugur Jónsson, ÍA. Miðju-
menn: Jón Þ. Stefánsson, FH, Ólafur
Ingi Skúlason, Fylkir, Heimir Guð-
jónsson, FH og Dean Martin KA.
Sóknarmenn: Allan Borgvardt,
FH og Veigar Páll Gunnarsson, KR.
Úrvalslið kvenna
Lið kvenna er þannig skipað:
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir,
KR.
Varnarmenn: Málfríður Sigurðar-
dóttir Val, Íris Andrésdóttir, Val,
Embla Grétarsdóttir, KR og Íris
Sæmundsdóttir, ÍBV.
Miðjumenn: Karen Burke, ÍBV,
Ásthildur Helgadóttir, KR, Margrét
Ólafsdóttir, Breiðabliki og Margrét
Viðarsdóttir, ÍBV.
Sóknarmenn: Hrefna H. Jóhann-
esdóttir, KR og Olga Færseth, ÍBV.
Borgvardt og
Ásthildur leik-
menn ársins
ALLAN Borgvardt, FH, og Ásthildur Helgadóttir, KR, voru valdir leik-
menn ársins á lokahófi KSÍ sem haldið var á Broadway á laug-
ardagskvöldið. Ólafur Ingi Skúlason, Fylki, og Margrét Lára Viðars-
dóttir, ÍBV, voru útnefnd efnilegustu leikmennirnir og Ólafur
Jóhannesson, FH, og Vanda Sigurgeirsdóttir, FH, urðu fyrir valinu
sem þjálfarar ársins.
■ Myndir/B4
ANJA Andersen þjálfari danska
kvennaliðsins Slagelse í hand-
knattleik er söm við sig en nú
hefur danska handknattleiks-
sambandið úrskurðað hana í
þriggja leikja bann eftir að hún
sýndi dómaranum Henrik La
Cour Brunn „fingurinn“ og að
auki sagði hún að dómarinn
væri „sjúkur í höfðinu“ en
Slagelse tapaði gegn Ikast í
leiknum.
Brunn segir við Ekstra Bladed
að hann hafi á sínum langa ferli
sem alþjóðlegur dómari aldrei
áður heyrt svívirðingar á borð
við þær sem hann fékk frá And-
ersen. „Hún ógnaði mér er hún
hljóp inná völlinn eftir að ég gaf
henni rautt spjald. Hún ýtti við
mér og hana langaði að slást við
mig að ég held. Það er mitt mat
að aðeins fagmaður geti úr-
skurðað hvort ég sé „sjúkur í
höfðinu“, slíka dóma vil ég ekki
fá frá handknattleiksþjálfara.“
Anja enn í vandræðum
SJÖ mörk Gylfa Gylfasonar, lands-
liðsmanns í handknattleik, fyrir lið
Wilhelmshavener dugðu skammt í
viðureigninni við Wetzlar í þýsku
1. deildinni um helgina. Gylfi og
félagar töpuðu á heimavelli, 32:27.
Gylfi var markahæstur í liði Wil-
helmshavener en Gunnar Berg
Viktorsson og Róbert Sighvatsson
skoruðu 4 mörk hver fyrir Wetzl-
ar.
Guðjón Valur Sigurðsson skor-
aði 5 mörk fyrir Essen sem vann
góðan útisigur á Nordhorn, 31:23,
á laugardaginn.
Alfreð Gíslason og lærisveinar
hans í Magdeburg töpuðu sínum
fyrsta leik á leiktíðinni. Magde-
burg sótti Eisenach heim og varð
að sætta sig við tap, 21:19.
Guðmundur Hrafnkelsson og fé-
lagar hans í Kronau/Östringen
töpuðu enn einum leiknum – nú
fyrir Flensburg á útvelli, 34:20,
eftir að staðan í hálfleik var, 20:10.
Einar Örn Jónsson skoraði eitt
mark fyrir Wallau Massenheim
sem gerði jafntefli við Pfullingen,
28:28.
Í stórleik helgarinnar tókst
meisturum Lemgo að stöðva sig-
urgögn Kiel. Lemgo sigraði með
fjögurra marka mun, 33:29.
Jaliesky Garcia komst ekki á
blað fyrir Göppingen sem tapaði
fyrir Minden, 26:23.
ENSKA dagblaðið Sunday Mirror
greindi frá því í gær að Kevin
Keegan, knattspyrnustjóri Man-
chester City, væri ólmur í að fá
Eið Smára Guðjohnsen frá Chelsea
til liðs við sig þegar leikmanna-
markaðurinn á Englandi verður
opnaður í janúar. Blaðið greindi
frá því að City væri þegar búið að
setja sig í samband við Chelsea en
Keegan er sagður orðinn lang-
eygur eftir því að Robbie Fowler
komist í gang og vill Keegan fá
Eið Smára í staðinn.
Eiður Smári var í sviðsljósinu í
gær í Middlesbrough, þar sem
hann skoraði fyrra mark Chelsea í
sigurleik Lundúnaliðsins, 2:1. Sjá
nánar um ensku knattspyrnuna á
B8.
Reuters
Frank Lampard og Wayne Bridge fagna Eiði Smára eftir að hann skoraði mark fyrir Chelsea gegn
Middlesbrough á Riverside Stadium í gær, þar sem Chelsea vann 2:1.
Keegan vill Eið
Smára í stað Fowlers
Sjö mörk Gylfa dugðu skammt