Morgunblaðið - 06.10.2003, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2003 C 55Fasteignir
Reykjavík — Hjá fasteignasölunni
Kjöreign er til sölu 640 fm atvinnu-
húsnæði við Laugaveg 105. Um er að
ræða 377,9 fm jarðhæð auk 262,3 fm
kjallara.
Húsnæðið var nýtt fyrir útibú Ís-
landsbanka. Þetta er hornrými með
stórum gluggum og í sérlega góðu
ástandi að utan en húsið var yfirfarið
fyrir nokkrum árum.
Jarðhæðin skiptist í afgreiðslusal
með flísum og teppum, teppalagt
rúmgott skrifstofuherbergi, kaffi-
stofu, snyrtingar, ræstikompu, pen-
ingahvelfingu o.fl. Tveir inngangar
eru inn í húsnæðið og loftræsing er í
hluta þess. Plötur eru í loftum en
burðarvirki er í súlum.
Innangengt er niður í kjallarann,
en kjallarinn er gluggalaus og með lít-
illi lofthæð. Hann skiptist í tvær stór-
ar geymslur. Súlur eru í kjallaranum.
Ásett verð er 59 millj. kr. og af-
hending gæti farið fram strax.
Þetta er 377,9 ferm. jarðhæð auk 262,3 ferm. kjallara við Laugaveg 105. Ásett verð er 59 millj. kr. en húsnæðið er til sölu hjá Kjöreign.
Laugavegur 105
GRÍMA úr leir eftir Margréti Jóns-
dóttur listakonu á Akureyri.
Morgunblaðið/Guðrún
Úr leir
EIN matskeið af kaffi sem sett er í
kertaskálina gefur frá sér lokkandi
kaffiilm löngu áður en kaffið kemur
á borðið.
Ómuldar kaffibaunir eru enn fal-
legri í kertaskálinni, en ilmurinn er
ekki eins ljúfur.
Prófaðu. Kaffið rennur enn ljúf-
legar niður þegar það er borið fal-
lega fram.
Kaffiilmur