Morgunblaðið - 08.10.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2003 49
Stórkostleg
gamanmynd sem
er búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA
með Jamie Lee
Curtis og
Lindsay Lohan í
aðalhlutverki.
Yfir 100 M$
í USA!
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi!
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10. . B.i. 12.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Ísl tal
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl tal
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem
færði okkur myndirnar Gladiator,
Hannibal, Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur
og frábært handrit."
HP KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30. B.I. 16.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Topphasarmyndin
í USA í dag.
Fór beint ítoppstætið
í USA
Topphasarmyndin
í USA í dag.
þrælmögnuð
yfirnáttúruleg
spennumynd sem
hefur slegið
rækilega í gegn.
SV MBL HK.DVKVIKMYNDIR.IS
SV MBL
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.40.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
NÚ lítur út fyrir að dúettinn Tears
For Fears – skipaður þeim Roland
Orzabal og Curt Smith – muni snúa
aftur í upprunalegri mynd. Síðasta
plata sveitarinnar sem tvíeykis, Sow-
ing The Seeds of Love, kom út fyrir
fjórtán árum.
Þessi ákvörðun er rakin til þess að
þeir félagar léku saman opinberlega
í fyrsta skipti í meira en áratug fyrir
stuttu í Las Vegas. Í kjölfarið gerðu
þeir samning við Arista og er vinnu-
heiti nýju plötunnar Everyone
Loves a Happy Ending.
Á meðal smella Tears for Fears
eru lögin „Shout“, „Everybody
Wants To Rule the World“ og „Head
Over Heels“. Smith hætti í bandinu
árið 1991 en Orzabal hefur gefið út
tvær plötur undir merkjum Tears
For Fears einn.
Roland og Curt, í dúettinum Tears
For Fears, árið 1989.
Vilja stjórna
heiminum á ný
Tears for Fears snúa aftur
FÁTT Í heimi rokksins hefur gert mann eins
agndofa síðustu árin og stökkið stóra sem
breska tríóið Muse frá smábænum Teignmouth í
Devon tók frá sinni fyrstu plötu Showbiz til
annarra plötunnar Origin of Symmetry. Þarna
hafði einhver ofurvenjuleg Radiohead-skotin
rokkhljómsveit, að maður hélt og dæmdi út frá
Showbiz, stökkbreyst í einhverja hugrökkustu
og stórbrotnustu rokksveit sem um getur. Og
það bara frá einni plötu til annarrar. Kom því
fáum á óvart að Origins of Symmetry hefði af
mörgum skríbentum verið valin plata ársins
2001 og jók hún mjög á hróður sveitar sem
hreint ekki svo gott orð hafði farið af áður. Þær
eru því allt aðrar væntingarnar sem gerðar eru
til þriðju plötu sveitarinnar sem kom út fyrir
rúmri viku.
Queen á Mars?
Platan heitir Absolution, eða Syndaaflausn,
og er að þessu sinni mun rökréttara framhald
frá síðustu plötu. Á það við bæði að gerð og
gæðum. Samræmið er meira á milli þessara
tveggja en hinna. Á þessari nýju fjórtán laga
plötu heldur undrabarnið Matt Bellamy áfram
tilraunum sínum til að tvinna gruggrokk tíunda
áratugar, nýbylgju hins níunda og progg- og
glansrokk hins áttunda saman við sígilda tón-
listarhefð 20. aldarinnar. Útkoman virkar því
sem sú útgáfa af Freddie Mercury og Queen
sem valin verður besta hljómsveit í heimi – á
plánetunni Mars árið 2069. Eitthvað alveg fram-
úrstefnulegt en þó kirfilega fast í arfleifð rokks-
ins og ekki hvað síst klassískrar tónlistar.
Það er auðskýranlegt hvaðan þessi náðargáfa
fyrir grípandi laglínum og Queen-tengingin
kemur. Faðir Bellamys var í smellasveitinni The
Tornadoes á 7. áratug síðustu aldar og móðir
hans var forfallinn aðdáandi óperurokkaranna í
Queen og smitaði son sinn af þeim áhuga. En
þennan djúpstæða áhuga á því að fara nýjar
leiðir í að tvinna þetta allt saman á svo metn-
aðarfullan og mikilfenglegan máta í grípandi
rokkópusum fremur en blátt áfram lögum þró-
aði Bellamy með sér sjálfur og er hann til-
tölulega nýtilkominn. Þannig bera lögin af
fyrstu plötunni fá merki þess er á eftir fylgdi, ef
undan er skilið lagið „Muscle Museum“ sem
kom sveitinni fyrst á síður dagblaða árið 1999.
Kolruglaður í hausnum
Þrátt fyrir að platan sé almennt talin hin
mesta snilld þá er Bellamy sjálfur ekkert sér-
lega ánægður með Origin of Symmetry því
hann segir hana hafa verið samda á harða
hlaupum af manni sem hafi verið kolruglaður í
hausnum, sem alls ekki hafi áttað sig á því nýja
lífi sem hann lifði, á túrnum og umvafinn at-
hygli.
Absolution segir hann hins vegar gerða af
heilum hug, þaulígrundað verk sem sé mun heil-
steyptara og markvissara. Fyrstu grunnarnir að
lögunum fjórtán á plötunni voru teknir upp í
hljóðveri sem þeir Muse-menn settu sjálfir upp í
Hackney í Austur-Lundúnum síðla árs 2002. Þar
hófust lagasmíðarnar og héldu svo áfram í Air-
hljóðverinu fræga þar sem fyrsti upptökustjóri
sveitarinnar Paul Reeve vann með þeim og helj-
arinnar sinfóníusveit. Eftir þetta mikilmennsku-
kast var ákveðið að snúa aftur á byrjunarreit,
fara nær heimahögunum í Devon og reyna að
gæða þá vel flúruð lögin ögn meiri hráleika. Til
sögunnar kom upptökustjórinn Rich Costey
(Rage Against The Machine, Fiona Apple, Mars
Volta, Audioslave) sem tók þá Muse með sér til
L.A. þar sem platan var fullkláruð og fínpússuð.
Innblásturinn að lögunum á plötunni segir
Bellamy hafa verið nægan. Allar þessar hörm-
ungar sem dunið hafa yfir heimsbyggðina und-
anfarið hafi galopnað sköpunargáttir hans.
Bellamy segir hluta laganna á plötunni, þau
sem urðu fyrst til, eins og t.d. „Stockholm Synd-
rome“ hæglega hafa getað verið á Origin of
Symmetry en önnur, „Blackout“, „Endlessly“ og
„Butterflies And Hurricanes“ búi yfir fullt af
nýjum eiginleikum sem Muse hafi aldrei fyrr
spreytt sig á.
Enn og aftur hefur Muse boðið meðalmennsk-
unni birginn og gefið þeim langt nef sem telja
það harðbannað í heimi rokksins að sækja í arf
sígildrar tónlistar í þeirri viðleitni að búa til
stærra og meira rokk.
Muse er lögð af stað í heimsreisu, vel studd af
löndum sínum í Elbow. Vonandi að sveitirnar
reki á fjörur Ísalands fyrr en síðar.
Muse hefur gefið út Syndaaflausn sína
Bjóða meðalmennskunni birginn
skarpi@mbl.is
Absolution er komin í verslanir. Fyrst um sinn
fylgir með mynddiskur með heimildarmynd um
gerð plötunnar.
ÍRSKA söngvaskáldið Damien Rice
hlaut bandarísku Mercury-verðlaun-
in fyrir fyrstu plötu sína, O, en verð-
launin voru afhent við hátíðlega at-
höfn í Wiltern-leikhúsinu í Los
Angeles á sunnudaginn. Þessi
bandaríska útgáfa af Mercury kall-
ast Shortlist Music Project og líkt og
bresku systurverðlaunin er einblínt
á unga, efnilega og oft og tíðum æv-
intýragjarna listamenn.
Aðrir sem tilnefndir voru eru
Yeah Yeah Yeahs, Interpol, Floetry,
Cody Chestnutt, Bright Eyes, Black
Keys, Damien Rice, Cat Power og
The Streets. Skilyrði fyrir tilnefn-
ingu er að plata viðkomandi hafi ekki
selst í meira en 500.000 eintökum.
Sigurvegararnir í fyrra voru
N.E.R.D., afsprengi The Neptunes.
Sigur Rós unnu sömu verðlaun
fyrir tveimur árum fyrir plötu sína
Ágætis byrjun, í fyrsta skipti sem
verðlaunin voru veitt.
Damien
Rice hlýtur
bandarísku
Mercury-
verðlaunin
Damien Rice.