Morgunblaðið - 12.10.2003, Síða 1
Starfsmaður á lyftara
Stór heildsala á matvörumarkaði óskar eftir
að ráða vanan lyftaramann til starfa.
Áhugasamir sendi inn umsókn og ferilskrá á
auglýsingadeild Morgunblaðsins merkta:
„L — 14349“ fyrir hádegi 15. október.
Yfirlæknir HSSA
á Hornafirði
Frá næstu áramótum er laus er til um-
sóknar staða yfirlæknis við Heilbrigðis-
stofnun Suðausturlands Hornafirði.
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands er
rekin af Sveitarfélaginu Hornafjörður
samkvæmt þjónustusamningi við heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið
eftir að hafa verið með heilbrigðis- og
öldrunarmál sem reynsluverkefni sl. sex
ár. Stofnunin hefur heimild fyrir tveimur
stöðum lækna auk yfirlæknis. Allir lækn-
ar ganga gæsluvaktir og er því alltaf
einn í fríi frá gæsluvöktum, þegar allar
stöður eru fullmannaðar.
Yfirlæknir hefur umsjón með læknis-
fræðilegum þáttum starfsemi stofnunar-
innar, sem hefur eftirtaldar undirdeildir:
heilsugæslustöð og heilsugæslusel,
sjúkradeild, hjúkrunarheimili og dvalar-
heimili. Læknishéraðið er öll Austur-
Skaftafellssýsla. Hann situr í fram-
kvæmdaráði ásamt framkvæmdastjóra
og hjúkrunarforstjóra.
Umsækjandi hafi sérfræðimenntun í
heimilislækningum eða öðrum sérgrein-
um. Umsóknir ásamt upplýsingum um
tilskylda menntun og störf sendist til
Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands,
Víkurbraut 31, 780 Hornafirði.
Nánari upplýsingar um stöðuna veita
Baldur P. Thorstensson yfirlæknir og Jó-
hann Ólafsson framkvæmdastjóri í síma
478 1400.
Hornafjörður
Í sveitarfélaginu búa tæplega tvö þúsund og fjögur hundruð
manns, flestir á Höfn. Grunnskólinn er deildaskiptur og
reknir eru þrír leikskólar. Aðalatvinnan er sjávarútvegur og
fiskvinnsla en yfir sumartímann er jafnframt rekin mjög
öflug ferðaþjónusta. Erlendir ferðamenn sem koma til
héraðsins yfir sumartímann eru á annað hundrað þúsund.
Náttúrufegurð í héraðinu er rómuð, göngur og útivist eru
óvíða fjölbreyttari. Samgöngur til og frá Höfn eru afar
góðar. Áætlunarflug er milli Hafnar og Reykjavíkur, sumar
og vetur. Vegasamband við höfuðborgarsvæðið er gott, eini
fjallvegurinn á leiðinni er Hellisheiði og vetrarsamgöngur
eru því mjög greiðar.
Markaðs-
og sölumaður
Framsækin heildverslun óskar eftir starfsmanni
í markaðs- og sölustörf. Viðkomandi þarf að
hafa reynslu, vera stundvís, skipulagður,
fylginn sér og koma vel fram.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnaðar-
mál.
Áhugasamir skili umsóknum inn til auglýsinga-
deildar Mbl., merktum: „S — 2203.“
Bókasafns- og
upplýsingafræðingur
við Bókasafn Vestmannaeyja
Laus er til umsóknar 50% staða bókasafns- og
upplýsingafræðings við Bókasafn Vestmann-
aeyja frá 1. nóvember 2003. Til greina kemur
að ráða starfsmann með sambærilega mennt-
un á háskólastigi.
Starfsmaður þarf að vera með mikla þjónustu-
lund, góða tölvukunnáttu, skipulagður og sjálf-
stæður í vinnubrögðum.
Upplýsingar veitir Nanna Þóra Áskelsdóttir
forstöðumaður Safnahúss Vestmannaeyja í
s. 481 1184, 863 6194 og
bsafn@vestmannaeyjar.is
Umsóknum, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skilað fyrir 20. október nk., til:
Bókasafns Vestmannaeyja,
bt. forstöðumanns, Pósthólf 20,
902 Vestmannaeyjar.
Byggingaverk-
fræðingur
— tæknifræðingur
Byggingaverkfræðingur eða byggingatækni-
fræðingur óskast til starfa á Verkfræðistofu
Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf., Selfossi.
Verkefni á sviði hönnunar burðarvirkja, eftirliti
með mannvirkjagerð auk almennrar verkfræði-
ráðgjafar.
Upplýsingar í síma 482 2805 eða á netfangi:
gudjon@vgs.is.
Geislafræðingur
Röntgen Orkuhúsið óskar eftir að ráða geisla-
fræðing. Röntgendeildin er nýlega flutt í glæsi-
legt húsnæði á Suðurlandsbraut 34.
Hér eru gerðar hefðbundnar röntgenrannsókn-
ir, ómskoðanir, segulómun á útlimum auk þess
er deildin búin nýju fjölsneiða tölvusneið-
myndatæki.
Við erum að leita að duglegum geislafræðingi,
sem er tilbúinn til þess að vinna 80 eða 100%
vinnu fjóra daga vikunnar. Reynsla af ofan-
greindum rannsóknaraðferðum er æskileg en
ekki skilyrði. Þarf að vera búin góðum sam-
starfshæfileikum, glaðlyndi og þjónustulund.
Upplýsingar veitir Einfríður Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri, sími 860 8856.
Skrifstofu— og sölustörf
Innflutningsfyrirtæki vantar öflugan starfs-
kraft í hlutastarf sem fyrst, til skrifstofu-
og afgreiðslustarfa. Jákvæðni, reglusemi
og góð tölvukunnátta nauðsynleg.
Vantar einnig sölufólk um land allt í spenn-
andi verkefni. Frjáls vinnutími.
Umsóknir merktar: „Tækifæri“ sendist aug-
lýsingadeild MBL fyrir 16. október nk.
Sunnudagur
12. október 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 9.331 Innlit 18.172 Flettingar 76.058 Heimild: Samræmd vefmæling