Morgunblaðið - 12.10.2003, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2003 C 9
ÚTBOÐ
Tækni- og umhverfissvið Akureyrarbæjar, fyrir hönd
Akureyrarbæjar, óskar eftir tilboðum í gerð
stoðveggjar vestan við Ketilhúsið í Listagilinu á
Akureyri.
Tilboðið nær til byggingar um 15 m langs stoð-
veggjar, útgreftri og fyllingu.
Skiladagur verksins er 12. desember 2003.
Útboðsgögn verða afhent í þjónustuanddyri Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri, frá og með mánu-
deginum 13. október nk. kl 10.00.
Verð útboðsgagna er kr. 3.000. Tilboðum skal skila á
sama stað eigi síðar en miðvikudaginn 22. október
kl. 10:00 og verða þau þá opnuð í fundarsal á fyrstu
hæð að viðstöddum þeim bjóðendum, eða fulltrúum
þeirra, sem þess óska.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Útboð
Akureyri — Endurnýjun Sverrisbryggju
Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum
í rif Olíubryggju og endurnýjun Sverris-
bryggju.
Helstu verkþættir:
Rif Olíubryggju og Sverrisbryggju.
Nýir stálbitar og plötur 3500 kg.
Samsetning 4 staura.
Reka niður 16 þilplötur og staura.
Stálsmíði yfirbygging 116 m².
Grjótvörn 110 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. mars 2004.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hafna-
samlags Norðurlands, Fiskitanga, Akureyri,
og á skrifstofu Siglingastofnunar, Vesturvör
2, Kópavogi, frá mánudeginum 13. október
gegn 5.000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtu-
daginn 30. október 2003 kl. 11:00.
Hafnasamlag Norðurlands.
Verkefni nr. 13397
Upplýsingatækni
ráðgjafar/ráðgjöf
Ríkiskaup óska eftir upplýsingum um ráðgjafa
í upplýsingatækni (UT), einstaklinga og fyrirtæki
sem hafa hug á að falbjóða ríkinu, stofnunum
þess og fyrirtækjum þjónustu sína.
Markmið verkefnisins er að greiða ríkisstofnun-
um og -fyrirtækjum aðgang að upplýsingum um
ráðgjafa og ráðgjöf á sviði UT. Fyrirhugað er að
safna saman, birta og uppfæra reglulega upplýs-
ingar um UT-ráðgjafa vef Ríkiskaupa.
Verkefnislýsingu er að finna á vef Ríkiskaupa.
Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn
þriðjudaginn 14. október klukkan 15.00 í Borgar-
túni 6 (Rúgbrauðsgerðinni). Áhugasamir sendi
inn nafn og fjölda þátttakenda á kynningarfund-
inn á netfangið utbod@rikiskaup.is merkt
„Ráðgjafar — kynningarfundur“.
Umsóknum um þátttöku í verkefninu skal skilað
í tölvupósti á netfangið utbod@rikiskaup.is eigi
síðar en þriðjudaginn 28. október 2003 fyrir klukk-
an 16.00.
Kárahnjúkavirkjun
Útboð KAR-13
Desjarárstífla — Gerð stíflu
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í gerð Desjar-
árstíflu í samræmi við útboðsgögn KAR-13.
Desjarárstífla verður um 60 m há hefðbundin
jarðstífla með jökulruðningskjarna, síum, stoð-
fyllingu og grjótvörn.
Verkið er í megindráttum fólgið í eftirtöldu:
Aðstöðusköpun.
Annast nauðsynlegar vatnsvarnir.
Hreinsa stíflugrunn og þétta með ídælingu.
Hlaða stífluna úr mismunandi jarðefnum.
Steypa vegg milli meginstíflu og flóðvars.
Frágangi í verklok.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 160.000 m³
Kjarni 550.000 m³
Síur 200.000 m³
Stoðfyllingar 1.550.000 m³
Grjótfyllingar 250.000 m³
Bjóðendum sem þess óska gefst kostur á að
fara í kynnisferð að stíflustæðinu með fulltrú-
um Landsvirkjunar og hönnuða miðvikudaginn
22. október, sem farin verður frá Egilsstöðum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá
og með miðvikudeginum 15. október nk. gegn
óafturkræfu gjaldi kr. 6.000 fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
innkaupadeild, Háaleitisbraut 68, 103 Reykja-
vík, fyrir kl. 12:00 föstudaginn 19. desember
nk. Klukkan 14:00 sama dag verða þau opnuð
í stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg
og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Útboð
Hönnun hf. fyrir hönd Austur-Héraðs og Fella-
hrepps, auglýsir eftir eftir tilboðum í verkið:
Menntaskólinn á Egilsstöðum
2. áfangi kennsluhúss
Verkið felst í að byggja um 1.100 m², 4.775 m3
kennslu- og skrifstofuálmu Menntaskólans.
Helstu verkþættir eru: Uppsteypa, þakvirki úr
límtré, gluggar (ál/tré), gólfefni, innveggir, inn-
réttingar, málun, raflagnir, vatns-, hita- og loft-
ræsikerfi. Húsinu skal skilað fullbúnu.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 1300 m³
Bergskeringar 1350 m³
Steypumót 2070 m²
Steypa 350 m³
Límtré 34 m³
Þak 875 m²
Gluggar og gler 150 m²
Ofnakerfi 32 kW
Gólfhitarör 1800 m
Loftræsikerfi 14000 m³/klst
Verktaki getur hafið framkvæmdir að lokinni
undirritun verksamnings. Verkinu skal að fullu
lokið eigi síðar en 8. ágúst 2004 eða 12. desem-
ber 2004, en verkkaupi mun meta þá valkosti
og velja skiladag að undangengnu mati til-
boða.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hönnun-
ar hf., (s. 470 4050), Miðvangi 2-4, Egilsstöð-
um og á Arkitektastofunni ehf., Borgartúni
17, frá og með þriðjudeginum 14. október 2003
gegn 5000 kr. skilagjaldi.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Austur-
Héraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstöðum, eigi
síðar en miðvikudaginn 29. október 2003 fyrir
kl 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda sem þess óska.
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík - Sími 591 0100
Fax 591 0101 - mottaka@si.is - www.si.is
Munið samræmdar kröfur
verkkaupa um gæðastjórnun
við verklegar framkvæmdir
Verktakar, hönnuðir og verkkaupar athugið:
SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ ER HAFIN!
Hægt er að skrá sig í síma 591 0100,
á vefnum www.gsi.is og með tölvupósti
á netfangið gsi@si.is
Ofangreindir verkkaupar og Samtök iðnaðarins
efna til námskeiða um samræmdar kröfur um
gæðastjórnun meðal verktaka, hönnuða og
verkkaupa við verklegar framkvæmdir á komandi
misserum.
Námskeiðin eru ætlað verktökum, hönnuðum,
fulltrúum verkkaupa og öðrum þeim sem koma að
skipulagi, eftirliti og stjórnun verklegra framkvæmda
í mannvirkjagerð og byggingariðnaði.
Fyrsta námskeiðið verður haldið fimmtudaginn
23. október nk. og önnur í samræmi við aðsókn
á komandi vikum.
Lengd hvers námskeiðs .....................
Hámarksfjöldi á námskeiði ................
Námskeiðagjald ..................................
Innifalið í gjaldi ....................................
1 dagur (8 klst)
16 manns
Almennt verð 19.900 kr.
Afsláttarverð* 14.900 kr.
Námsgögn, kaffi og
léttur hádegisverður.
* Afsláttarverð gildir fyrir félagsmenn SI.