Morgunblaðið - 13.10.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðir blóðbankabílsins:
Þriðjudagur 14. október við EJS Grenásvegi 10 kl. 9.00-15.00
Miðvikudagur 15. október við Fjölbrautarskólann í Garðabæ kl. 9.00-15.00
www.blodbankinn.is
KONUR og ungar stúlkur eru oftar en ekki
helstu fórnarlömb stríðsátaka að mati Elisabeth
Rehn, fyrrverandi varnarmála- og jafnréttisráð-
herra Finnlands, sem heimsótti Ísland um
helgina. Skýrist þetta af því að í æ ríkari mæli
eru hermenn stríðandi fylkinga farnir að beina
sjónum sínum sérstaklega að konum, skipulögð-
um nauðgunum á konum er víða beitt vísvitandi
sem vopni gegn samfélagi óvinarins.
Rehn flutti erindi á ráðstefnunni um konur,
stríð og öryggi sem haldin var í Reykjavík á
laugardag á vegum Rannsóknastofu í kvenna-
og kynjafræðum við Háskóla Íslnds, í samstarfi
við UNIFEM á Íslandi og Mannréttindaskrif-
stofu Íslands. Á síðasta ári kom út skýrsla sem
Rehn og Ellen Sirleaf Johnson skrifuðu fyrir
UNIFEM um stöðu kvenna í stríðshrjáðum
löndum og fjallaði Rehn um efni hennar.
Rehn benti á það í erindi sínu að skipulagðar
nauðganir á konum hefðu iðulega langvinn áhrif
á fórnarlömbin, sem oft mega sæta útskúfun úr
eigin samfélagi. Segja mætti því að nauðgun
sem verknaður í stríði væri árás á fjölskyldu-
stoðir samfélagsins sem um ræddi, félagsleg
upplausn væri oft afleiðingin. Sagði Rehn að
hún hefði heyrt móður lýsa því í einu Afríkuríkj-
anna, sem hún heimsótti í tengslum við gerð
skýrslunnar, að níu mánaða dóttur hennar hefði
verið nauðgað af óvinahermönnum. „Og ég tók
að velta því fyrir mér hvernig menn, sem hugs-
anlega höfðu verið góðir fjölskyldufeður áður en
stríðið hófst, geta breyst í svona skrímsli,“ sagði
hún m.a.
Þá væri algengt að stríðsaðilar rændu konum
úr röðum óvinarins og gerðu að eins konar
„stríðsherrabrúðum“. Þeim væri haldið föngn-
um jafnvel í mörg ár og neyddar til að þjóna
kvalaranum. Eftir stríð neyddust þær oft út í
vændi. Eftir stríð magnaðist einnig heimilisof-
beldi í stríðshrjáðum löndum; karlinn kæmi
heim úr stríði og hefði engan lengur til að berja
á. Skeytti því skapi sínu á konu sinni.
Allir geta lagt sitt af mörkum
Í samtali við Morgunblaðið sagði Rehn að ef
hún væri ekki sannfærð um að hún gæti látið
gott af sér leiða þá stæði hún ekki í því að vinna
að málefnum friðar.
„Allir geta lagt eitthvað af mörkum,“ sagði
hún. „Framlag hvers og eins skiptir kannski
ekki sköpum en í sameiningu getum við haft góð
áhrif. Jafnvel bara með því að mæta á ráðstefnu
sem þessa og reyna að greina fólki frá því illa
sem viðgengst í þessum heimi okkar getur haft
áhrif.“
Rehn leggur hins vegar áherslu á að hjálpa
þurfi fólki að hjálpa sér sjálft, fremur en að
fulltrúar alþjóðasamfélagsins segi því fyrir
verkum. „Við höfum ekki alltaf fylgt þessu eft-
ir,“ segir hún. „Í Bosníu-Herzegóvínu gerðum
við mistök, svo dæmi sé tekið. Þegar fyrsti út-
sendari framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, Carl Bildt, kom þangað til starfa eftir
Dayton-friðarsamkomulagið 1995 hafði hann
takmörkuð völd. Smátt og smátt hafa völd full-
trúa framkvæmdastjórans í Bosníu hins vegar
verið aukin þannig að í dag hefur Paddy Ash-
down, sem nú gegnir embættinu, mikil völd.
Hann getur beitt neitunarvaldi gegn öllu því
sem frá kjörnu þingi heimamanna kemur. Þetta
er alveg öfugt við það sem hefði átt að gera.
Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna hefði átt að hafa
mjög mikil völd í upphafi en síðan hefði átt að
draga úr þeim þannig að heimamenn tækju við
stjórn mála.“
Ætti að vera „prjónandi sokka“
Rehn á þrettán barnabörn og segir að auðvit-
að ætti hún að vera sest í helgan stein fyrir
löngu, „prjónandi sokka fyrir barnabörnin“.
Vinnan gæfi henni hins vegar mikið, sögur
kvennanna sem hún hitti í starfi sínu gerðu það
að verkum að hún héldi ótrauð áfram. „Konur
sem neyðst hafa út í vændi dreymir um mennt-
un, líf sem uppfyllir þrár þeirra, frið og ró, jafn-
vel að finna sér maka. Oft líta þær hins vegar
svo á að þær séu dæmdar til að hljóta ömurleg
örlög, aðstæður séu þannig. Ég hugsaði með
mér að ég yrði að leggja mitt af mörkum til að
þær – en fyrst og fremst dætur þeirra, enda
kannski ekki hægt að bjarga mæðrunum úr
þessu – geti uppfyllt drauma sína.“
Elisabeth Rehn flutti erindi um fórnarlömb stríðsátaka á ráðstefnunni um konur, stríð og öryggi
Skipulögðum
nauðgunum oft
beitt sem vopni
Morgunblaðið/Sverrir
RÁÐSTEFNAN um konur, stríð og öryggi
sem haldin var í hátíðarsal Háskóla Íslands á
laugardag var mjög vel sótt. Elisabeth Rehn
(t.h.) var sérlegur gestur ráðstefnunnar en
við hlið hennar á myndinni situr Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra. Páll Skúlason há-
skólarektor, (t.v.) setti ráðstefnuna. Aðrir
sem fluttu erindi á ráðstefnunni voru Ard-
iana Gijna, læknir frá Kosovo, Gréta Gunn-
arsdóttir, varafastafulltrúi í fastanefnd Ís-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum, Magnús
Bernharðsson sagnfræðingur, Valur Ingi-
mundarson sagnfræðingur og Þórdís Inga-
dóttir lögfræðingur.
Fjölmenn ráðstefna
um konur og stríð
BARNSHAFANDI konur og konur
með barn á brjósti ættu að tak-
marka neyslu ákveðinna tegunda
sjávarfangs þar sem fóstrum og ný-
burum getur stafað hætta af kvika-
silfri. Þó er konum í þessari stöðu,
eins og öðrum landsmönnum, ein-
dregið ráðlagt að borða fisk sem
oftast eða að minnsta kosti tvisvar í
viku. Þetta kemur fram í grein-
argerð embætta yfirdýralæknis,
landlæknis, Lýðheilsustöðvar/
Manneldisráðs, Rannsóknastofnun-
ar fiskiðnaðarins og Umhverfis-
stofnunar.
Bent er á að í reglugerð um að-
skotaefni í matvælum eru sett fram
tvö hámarksgildi fyrir kvikasilfur.
Annars vegar lægra hámarksgildi
fyrir sjávarfang sem oft er neytt og
hins vegar hærra hámarksgildi fyrir
sjávarfang sem er sjaldan neytt.
Samkvæmt norskum rannsóknum
er magn kvikasilfurs í hrefnukjöti
langoftast undir lægra hámarks-
gildinu en þar kemur einnig fram
að önnur þrávirk lífræn efni séu
undir þeim mörkum sem hafa verið
sett. Engin ástæða þykir til að ætla
að hrefna sem veidd er við Íslands-
strendur sé frábrugðin henni.
Ýsa og þorskur í lagi
Aftur á móti getur verið rétt fyrir
barnshafandi konur og konur með
barn á brjósti að sneiða hjá stöku
tegundum sjávarfangs eða tak-
marka neyslu þeirra. Túnfisks í dós,
hrefnukjöts og svartfuglseggja ætti
aðeins að neyta tvisvar í viku eða
sjaldnar. Það eina sem ofangreindar
konur ættu aldrei að neyta er há-
karl, fýll, fýlsegg, sverðfiskur og
stórflyðra en það sama gildir fyrir
börn sem eru yngri en sjö ára. Aft-
ur á móti er það sjávarfang sem oft-
ast er á borðum landsmanna, t.d.
ýsa, rækja, þroskur, grálúða og lax,
langt undir lægra hámarksgildinu
fyrir kvikasilfur.
Rétt að takmarka
neyslu sumra
fisktegunda
RÍFLEGA helmingur
starfsfólks á geðsviði
Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss hefur sótt
námskeið í viðbrögðum
og varnaraðgerðum gegn
ofbeldi, og sjálfs-
varnarleiðum. Nám-
skeiðin hafa verið haldin
á vegum geðsviðs síðan
árið 2001 og eru enn í
þróun og endurskoðun.
Það var að frumkvæði
Þórunnar Pálsdóttur,
fyrrverandi hjúkr-
unarforstjóra á Klepps-
spítala, að þrír hjúkr-
unarfræðingar á geðsviði
fóru í formlegt nám á
Englandi fyrir þremur
árum til að afla sér kenn-
araréttinda í að kenna og
skipuleggja svona námskeið.
Jón Snorrason, hjúkrunarfræð-
ingur og verkefnisstjóri öryggis-
mála á geðsviði, hefur umsjón með
námskeiðunum.
Þátttakendum eru kennd sam-
skipti sem stuðla að því að róa sjúk-
linga, með og/eða án orða. Nám-
skeiðin byggjast á siðferðilegum
atriðum sem snúa að sjúklingi og
starfsfólki, tæknilegum atriðum ef
þörf er á að halda sjúklingi og flytja
hann á milli svæða. Þá eru kenndar
varúðarráðstafanir til að fyr-
irbyggja að sjúklingurinn og starfs-
fólk hljóti skaða af þegar þörf er að
halda sjúklingi. Ekki síst er lögð
áhersla á umhyggju og stuðning við
starfsfólk, sjúkling og aðra að lok-
inni meðferð við að róa sjúkling.
Ofbeldisbeiting óviðunandi
„Það atferli sjúklings að beita
starfsfólk ofbeldi, er óviðunandi í
vinnuumhverfi okkar og það reyn-
um við að segja honum til þess að
hjálpa honum að nota aðrar aðferð-
ir við að tjá sig,“ segir Jón. „Starfs-
fólkið á einnig rétt á að kunna fag-
lega viðurkenndar og öruggar
aðferðir við óvæntum atvikum sem
upp kunna að koma.“ Að sögn Jóns
er mikil áhersla lögð á að starfsfólk
reyni ekki að yfirbuga sjúkling á
eigin spýtur, heldur fái aðstoð
þriggja manna teymis, sem er
ávallt reiðubúið að bregðast við
beiðnum ef starfsfólk lendir í vanda
með sjúkling. Þriggja manna teym-
ið hefur það að markmiði að róa
sjúkling án þess að nokkur meiðist.
Að sögn Eydísar Sveinbjarn-
ardóttur, sviðsstjóra geðsviðs LSH,
er starfsfólkið mjög ánægt með
opna og skýra stefnu geðsviðsins í
þessum mál um. „Þeir sem hafa far-
ið á námskeiðin eru öruggari með
sig og líður betur í starfi,“ segir
hún. „Við erum mjög stolt af því að
hafa menntað hjúkrunarfræðinga
til að halda þessi námskeið reglu-
lega auk upprifjunarnámskeiða og
þetta skiptir miklu máli í ábyrgri
starfsmanna- og gæðastefnu á
geðsviði.“ Lögð er áhersla á að
sjúklingur sem grípur til ofbeldis
tapi ekki virðingu sinni þótt hann
sé yfirbugaður. Markmiðið er að
hann líti á viðbrögð starfsfólk sem
ákveðinn hluta af meðferðinni. Í
þessu samhengi er enda mikilvægt
að starfsfólkið viti nákvæmlega
hvað það er að gera, segir Eydís.
Sjúklingur er gjarnan fyrirfram
upplýstur um þau viðbrögð sem
e.t.v. þarf að grípa til ef talið er að
til árekstra muni koma í sam-
skiptum hans við starfsfólkið.
Reynt að fyrir-
byggja skaða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Þeir sem hafa farið á námskeiðin eru örugg-
ari með sig og líður betur í starfi,“ segir Eydís
Sveinbjarnardóttir sviðsstjóri sem hér er
ásamt Jóni Snorrasyni hjúkrunarfræðingi.
Viðbrögð við ofbeldi á geðdeildum
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evr-
ópusambandsins og EFTA-ríkjanna
munu í dag eða í fyrramálið undirrita
samkomulag um aðlögun samnings-
ins um Evrópskt efnahagssvæði að
stækkun Evrópusambandsins, sem
náðist síðastliðið vor.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir ánægjulegt og mikilvægt
að búið sé að ganga frá samningun-
um, en þeir fela í sér að tíu ný ríki
bætast jafnframt við Evrópska efna-
hagssvæðið. „Nú munum við leggja
alla áherzlu á að þetta verði staðfest í
þjóðþingum landanna samhliða
stækkuninni. Á það lögðum við mikla
áherzlu á fundi okkar með for-
mennskuríkinu,“ segir Halldór sem
ræddi í síðustu viku við Franco Fratt-
ini, utanríkisráðherra Ítalíu, sem fer
með forsæti í ráðherraráði ESB.
Náist ekki að staðfesta stækkun
EES áður en stækkun ESB gengur í
gildi á næsta ári gæti komið upp
vandi, m.a. vegna þess að fríverzlun-
arsamningar EFTA-ríkjanna við
nýju ríkin verða þá fallnir úr gildi.
Samningar
um stækkun
EES und-
irritaðir