Morgunblaðið - 13.10.2003, Qupperneq 11
MINNSTAÐUR | VESTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 11
Sölu- og
samningatækni
sem þeir
fremstu nota
Crestcom, eitt virtasta fyrirtæki heims í söluþjálfun,
kynnir nýtt námskeið sem hefst miðvikudaginn 22. október.
Þátttakendur öðlast m.a. þjálfun í:
• Að greina merki um kaupáhuga og gera stöðuathuganir
• Að snúa hörðum mótbárum í jákvæð viðskipti
• Að eiga við erfiða viðskiptavini
• Að semja á árangursríkan hátt
• Að ljúka sölu af öryggi
Nýtt nám
skeið
í sölu- og sam
ningatæ
kni
hefst 22. október
Crestcom er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem er starfandi í yfir
50 löndum. AT&T, Coca Cola, Kodak, Microsoft, Oracle, Shell, Sony
og Toyota eru á meðal margra heimsþekktra fyrirtækja sem hafa
notað Crestcom til að þjálfa starfsmenn sína.Skráning og upplýsingar: crestcom@crestcom.is og í símum 561 5800 og 896 6960.
Leiðbeinandi:
Þorsteinn Garðarsson
viðskiptafræðingurÍ
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
FL
A
2
24
54
0
10
/2
00
3
Borgarfirði | Landsmót Ungmenna-
hreyfingar Rauða Kross Íslands RKÍ var
haldið á Varmalandi nýlega. Landsmótið
sem bar yfirskriftina ,,Börn í stríði“ var
fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Um
110 þátttakendur, þar með taldir leiðbein-
endur, sóttu mótið. Dagskráin var þétt
skipuð og byrjaði með fræðslu um Rauða
krossinn. Síðan var unnið með þema
mótsins og voru haldnir fyrirlestrar,
horft á myndbönd og unnin verkefni.
Aðalfyrirlesari var Eva Laufey Stef-
ánsdóttir sendifulltrúi sem hefur starfað í
Kenýa og Írak á vegum Rauða krossins.
Hún flutti áhugaverðan fyrirlestur þar
sem hún sagði frá starfi sínu þar og sýndi
myndir.
Eftir fræðslu og fyrirlestur um börn í
stríði var þátttakendum skipt í hópa þar
sem umræður fóru fram um efnið og að
lokum málaði hver hópur stóra mynd,
annars vegar af heimi barna í stríði og
hinsvegar af sínum eigin heimi. Eftir
þemavinnuna var farið í sund í Borg-
arnesi og borðað í Hyrnunni. Um kvöldið
var kvöldvaka og diskó, en haldið heim
næsta dag.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Árni Þór Björnsson frá Stykkishólmi sýn-
ir afrakstur verkefnavinnu.
Landsmót
UKRI
Borgarnesi | Um 15 sérkennarar tóku
þátt í fyrrihluta námskeiðs um fyrirlögn
og túlkun á Aston Index prófi. Nám-
skeiðið var haldið í Grunnskólanum sl.
helgi og var Guðjón Ólafsson leiðbeindi
en hann er einn þeirra sem standa að ís-
lensku útgáfunni. Aston Index er ætlað
til athugunar og mats á lestrar-, skrift-
ar- og málörðugleikum barna á aldrinum
6 til 14 ára. Prófið var sérstaklega samið
til þess að greina börn með dyslexíu og
bera kennsl á styrk og veikleika þeirra.
Prófið var samið af Margaret J. Newton
og Michael E. Thomson sem kenna við
Aston háskólann á Englandi og byggist á
rannsóknum þeirra. Sérkennararnir á
námskeiðinu eiga að æfa fyrirlögn á
prófinu áður en þeir koma á seinni hluta
námskeiðsins sem verður í nóvember.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Einbeittir sérkennarar á námskeiði.
Sérkennarar
á námskeiði
Borgarnesi | Góð þátttaka var á
tveimur sjókajaknámskeiðum
sem haldin voru á vegum Sí-
menntunarmiðstöðvar Vest-
urlands nýlega.
Sigurjón Þórðarson leiðbeindi
þátttakendum og byrjaði á að
kynna þeim sjókajakferðabún-
aðinn. Hann kenndi undirstöðu
róðrartækni og lagði áherslu á
að þátttakendur lærðu að und-
irbúa og fara öruggar ferðir á
eigin vegum. Samkvæmt Sig-
urjóni er það ekki spurningin
um hvort fólk fari á hvolf í kaj-
ak heldur hvenær og því mik-
ilvægt að geta bjargað sjálfum
sér og ferðafélögum sínum við
einfaldar aðstæður. Þess vegna
var öllum gert að velta á hvolf
og vera bjargað auk þess að
bjarga öðrum. Sigurjón sagði að
allir hafi lært að að sjórinn er
ískaldur en kannski ekki eins
kaldur og menn bjuggust við.
Eftir námskeiðið eiga þátttak-
endur að geta róið við góðar að-
stæður, en bendir á að best sé
að æfa í félagsskap og eiga
róðrarfélaga. Sigurjón hefur
haldið sérhæfð námskeið á veg-
um Ultima Thule-ferðaskrifstof-
unnar í rúm fimm ár. Að sögn
hans er öll fjölskyldan með
óstöðvandi kajakdellu og notar
hvert tækifæri til sjóferða.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Góð þátttaka: Margir voru með á kajaknámskeiðinu. Hér býr mannskapurinn sig undir það að fara í sjóinn.
Sjórinn er ískaldur
MEIRIHLUTI hreppsnefndar
Skeiða- og Gnúpverjahrepps átti
nýverið fund með bæjarráði og
bæjarstjóra Akraness um þá
ákvörðun meirihlutans að leggjast
gegn áformum Landsvirkjunar um
Norðlingaölduveitu. Vildu Skaga-
menn kynna sér sjónarmið heima-
manna nánar, en þau urðu til þess
að Landsvirkjun frestaði veitunni
og stækkun Norðuráls á Grund-
artanga fór í uppnám. Sem kunn-
ugt er hafa Orkuveita Reykjavíkur
og Hitaveita Suðurnesja verið að
kanna möguleika á orkuöflun til
Norðuráls í stað Landsvirkjunar.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi, segir að fundurinn hafi
verið bæði gagnlegur og fróðlegur.
Menn hafi skipst á upplýsingum og
skoðunum og skilið sáttir í fund-
arlok. Sveitarfélögin séu í þeirri
stöðu að annað þeirra sé við upp-
tök orkunnar sem um hafi verið
rætt en hitt sem þiggjandi hennar.
Matthildur Elísa Vilhjálmsdótt-
ir, varaoddviti hreppsnefndar
Skeiða- og Gnúpverjahrepps, tek-
ur undir með Gísla um að fund-
urinn hafi verið mjög góður. Ekk-
ert nýtt hafi í raun komið fram,
annað en að sjónarmið beggja aðila
hafi betur komið í ljós. Hún segir
umræður milli manna ávallt af
hinu góða. Hið sama megi segja
um nýlegan fund meirihlutans með
Landsvirkjun. Þar hafi gagnlegur
viðræður farið fram og ákveðið
hafi verið að halda þeim áfram.
Matthildur segir þetta mál nú vera
í höndum samvinnunefndar um
skipulag miðhálendisins og líklegt
að það komi aftur til kasta hrepps-
nefndarinnar.
Skagamenn hittu meirihluta hreppsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Ýmis sjónarmið
sem þarf að sætta
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Við upphaf fundar í Árnesi. Skagamenn eru vinstra megin, þeir Gunnar
Sigurðsson, Sveinn Kristinsson, Gísli Gíslason og Guðmundur Páll Jóns-
son. Síðan koma Ingunn Guðmundsdóttir sveitarstjóri og meiri-
hlutamennirnir Hrafnhildur Ágústsdóttir, Matthildur E. Vilhjálms-
dóttir, Aðalsteinn Guðmundsson og Tryggvi Steinarsson.
Hellissandi | Haldið var upp á eitt hundrað
ára vígsluafmæli kirkjunnar á Ingjaldshóli
undir Jökli síðastliðinn laugardag, 4. október.
Kirkjugestir voru margir og hvert sæti skip-
að í kirkju og safnaðarheimili
Tónleikar hófust í kirkjunni kl. 13.30 með
söng kirkju- og barnakórs, Martin Markvoll
lék á trompet, Guðríður Þorkelsdóttir og
Lilja Dögg Gunnarsdóttir léku á þverflautu.
Hátíðarguðsþjónusta hófst að loknum tón-
leikunum. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörns-
son, prédikaði en sóknarpresturinn, sr.
Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, ásamt pró-
fasti Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmis
þjónaði fyrir altari. Innst í kirkjunni voru
fimm hempuklæddir prestar prófastsdæm-
isins. Auk þeirra voru við guðsþjónustuna og
fögnuðu með söfnuðinum fjórir fyrrverandi
sóknarprestar á Ingjaldshóli. Við lok guðs-
þjónustunnar færði Hildigunnur Smáradóttir
textílhönnuður formanni sóknarnefndar,
Þorbjörgu Alexandersdóttur, gjöf til kirkj-
unnar, fagran hökul. Hökullinn er hluti af
verkefni hennar við lokapróf frá Listaháskóla
Íslands. Hildigunnur var fermd og hún gifti
sig í Ingjaldshólskirkju. Að lokinni athöfn-
inni í kirkjunni var boðið til samsætis í fé-
lagsheimilinu Röst á Hellissandi. Kvenfélag
Hellissands stóð þar fyrir glæsilegri veislu.
Þeir Skúli Alexandersson og Smári Lúðvíks-
son fluttu ágrip af byggingarsögu og sögu
kirkjunnar en hún er talin vera elsta stein-
steypta kirkja í heimi. Fróðlegri myndasýn-
ingu var varpað á vegg sem sýndi viðburði í
starfi safnaðarins.
Margar góðar gjafir voru færðar kirkjunni.
Hundrað ára vígsluafmæli
Ingjaldshólskirkju haldið hátíðlegt
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Hundrað ára vígsluafmæli: Frá guðsþjónust-
unni í Ingjaldshólskirkju um síðustu helgi.
Ingiberg J. Hannesson prófastur, Ragnheið-
ur Karítas Pétursdóttir sóknarprestur og
Karl Sigurbjörnsson biskup.
♦ ♦ ♦