Morgunblaðið - 13.10.2003, Page 27
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. OKTÓBER 2003 27
bílar
Auglýstu hann í Bílablaði Morgunblaðsins og kláraðu dæmið.
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum.
Pantaðu núna í síma 569 1111 eða sendu tölvupóst á augl@mbl.is
alltaf á miðvikudögum
Áskrifendum
Morgunblaðsin
s býðst
smáauglýsing
fyrir aðeins
995 kr.
Ertu að hugsa um að selja bílinn þinn?
LEIRVOGSÁ er besta laxveiðiáin
sumarið 2003 sé mið tekið af meðal-
veiði á hverja dagstöng. Alls veiddust
558 laxar í Leirvogsá á tvær stangir
og er engin á nálægt
ánni í meðalveiði.
Leirvogsá hefur
löngum vermt ann-
að sætið, á eftir
Laxá á Ásum, en
þar var aflabrestur í
sumar, áin gaf að-
eins á fjórða hundr-
að laxa á sama tíma
og Leirvogsá hélt sínum hlut og vel
það, gaf 17 löxum meira en í fyrra.
Upp og ofan í Dölunum
Þurrkarnir í sumar komu hvað
harðast niður á laxveiðiánum í Döl-
unum, en þær tóku misjafnlega vel
við sér þegar loks rigndi undir haust-
ið. Besta kippinn tók Laxá í Dölum,
en í henni var alger mokveiði síðustu
vikurnar. Lokatalan þar er 1.394 lax-
ar, en til samanburðar veiddust í ánni
880 laxar í fyrra. Haukadalsá endaði
með 640 laxa sem er þokkaleg tala
þar á bæ, en hins vegar var allur
gangur á öðrum ám í héraðinu. Miðá
gaf t.d. um 150 laxa, helmingi meira
en í fyrra, en Fáskrúð var ekki eins
spræk, gaf aðeins 182 laxa, sem er
þó 12 löxum meira en í fyrra.
Krossá gaf aðeins 95 laxa á móti
134 í fyrra svo dæmi séu tekin.
Snaraður Maríulax
Skemmtileg saga barst
frá Tannastaðatangan-
um í Hvítá, þar sem
Sogið rennur í
móðurána, er
veiðimað-
ur
einn hugðist í haust næla sér í sinn
fyrsta lax á ferlinum. Það var snar-
brjálað veður, rok og rigning, þannig
að göfug ætlan að ná hinum merka
fiski á flugu var
sett á ís. Maðki
með nokkrum
sökkum var þess
í stað kastað upp
í rokið og skyndi-
lega var rifið í
með látum. Und-
arleg viðureign
tók síðan við þar
sem laxinn ýmist nánast hreinsaði lín-
una út af hjólinu, eða lá sem steinn.
Eftir svo sem tíu mínútur sprakk
hann svo gersamlega, sneri kviðnum
upp og var dröslað upp í fjöru þar sem
hann nánast fauk upp í móa. Þetta var
7 punda hængur og snaraður yfir
stirtluna. Var það svo kirfilega gert
að öngullinn var fastur
undir línunni og
hélt eins og
skrúfstykki!
Ragnhildur Guðmundsdóttir, sem er 8 ára, veiddi þennan fallega lax í
veiðistaðnum Lambatanga í Búðardalsá í haust.
Leirvogsá
besta áin
Tímasnaran: Sjónarhóll foreldra
og stjórnenda í fyrirtækjum á
samhæfingu atvinnu og fjöl-
skyldu. Miðvikudaginn 15. október
kl. 12.10–13.10 flytur Guðrún Hann-
esdóttir fyrirlestur í málstofu upp-
eldis- og menntunarfræðiskorar.
Fyrirlesturinn er í stofu 201 í Odda,
Háskóla Íslands og er öllum opinn.
Fyrirlesturinn er byggður á MA-
ritgerð Guðrúnar. Tímasnaran
fjallar um það hvernig foreldrum á
vinnumarkaði tekst að samhæfa at-
vinnu og einkalíf og hvernig samspil
þessara þátta birtist stjórnendum
starfsmannamála.
Alþjóðlega þýskuprófið TestDaF
verður haldið í Tungumálamiðstöð
Háskóla Íslands 12. nóvember nk.
Prófið er ætlað þeim sem ætla að
fara í nám í Þýskalandi. Prófgjaldið
er 9.000. Nánari upplýsingar er að
finna á eftirfarandi heimasíðu:
www.testdaf.de Umsjón með prófum
hefur Carsten Thomas, lektor í
þýsku við HÍ, og skráning fer fram í
Tungumálamiðstöð HÍ, Nýja Garði:
525 4593, ems@hi.is. Athugið að um-
sóknir eiga að berast ekki síðar enn
21.10. 03.
Sjögrenshópur Gigtarfélags Ís-
lands boðar til fræðslufundar með
félagsmönnum og öðrum sem hafa
áhuga á málefninu miðvikudaginn
15. október, klukkan 19.30 í húsnæði
Gigtarfélags Íslands, annarri hæð.
Reynir Jónsson, tryggingayfirtann-
læknir hjá Tryggingastofnun rík-
isins (TR), og Peter Holbrook, pró-
fessor við tannlæknadeild HÍ, verða
með erindi. Reynir Jónsson mun
fjalla um nýja reglugerð TR og
vinnureglur í sambandi við tann-
lækningakostnað við heilkenni Sjö-
grens og Peter Holbrook verður
með erindi um rannsóknir á
munnþurrki við Sjögrens, með-
ferðarúrræði og forvarnir.
Boðið verður upp á veit-
ingar gegn vægu
gjaldi.
Á NÆSTUNNI
Útflutningsráð Samtaka versl-
unarinnar boðar til hádegisverð-
arfundar mánudaginn 13. október kl.
12 í Skálanum, Hótel Sögu. Fram-
sögumaður á fundinum verður Einar
K. Guðfinnsson, alþingismaður og
formaður Ferðamálaráðs Íslands.
Að loknu framsöguerindi
verða fyrirspurnir
og umræður.
Þátttökugjald
með hádeg-
isverði er
kr. 2.500.
Tilkynna skal þátttöku á netfang:
lindabara@fis.is.
Heimssýn stendur fyrir málþingi
undir yfirskriftinni evran fyrir krón-
una í Norræna húsinu í dag og hefst
það kl. 16.15. Lars Wohlin, hagfræð-
ingur og fyrrverandi bankastjóri
Seðlabanka Svíþjóðar, flytur erindi
um hvers vegna Svíar höfnuðu evr-
unni. Að því loknu svarar hann
spurningum og síðan verða pall-
borðsumræður með þátttöku Geirs
H. Haarde fjármálaráðherra, Árna
Magnússonar félagsmálaráðherra,
Margrétar Sverrisdóttur fram-
kvæmdastjóra og alþingismannanna
Steingríms J. Sigfússonar og Helga
Hjörvar.
Í DAG
Fyrirlestur hjá Sagnfræðinga-
félagi Íslands verður á morgun,
þriðjudaginn 14. október, kl. 12.05 í
Norræna húsinu. Gísli Gunnarsson,
prófessor í sagnfræði við Háskóla
Íslands, heldur erindi í fyr-
irlestraröð félagsins, Hvað er (um)
heimur? Erindið nefnist Valdaskipti
á Indlandshafi á 15. og 16. öld. Upp-
haf Evrópskra heimsyfirráða. Að-
gangur er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Á MORGUN
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
RÁÐUNEYTISSTJÓRI utanríkis-
ráðuneytisins kallaði John Culver,
sendiherra Bretlands, á sinn fund
fyrir helgina og afhenti honum svar
íslenskra stjórnvalda við orðsend-
ingu Breta þar sem komið var á
framfæri athugasemdum tuttugu og
þriggja ríkja við hvalveiðirannsókn-
ir Íslendinga.
Að auki var varpað fram tveimur
spurningum sem ríkin voru beðin
að svara hvert fyrir sig.
Í fyrsta lagi hvers vegna viðkom-
andi ríki hafi séð sig knúið til að
lýsa andstöðu við rannsóknaráætl-
un sem er í samræmi við alþjóða-
lög, fylgir reglum Alþjóðahvalveiði-
ráðsins og ógnar ekki viðkomandi
dýrategund. Í öðru lagi hvers vegna
viðkomandi ríki sé andsnúið rann-
sóknum sem fela í sér aflífun sjáv-
arspendýra á sama tíma og það
andmælir ekki slíkum rannsóknum
á spendýrum á landi.
Vegið að starfsheiðri
íslenskra vísindamanna
Í svari Íslands er ítrekað að með
vísindaveiðum sínum séu Íslending-
ar ekki að brjóta nein lög eða regl-
ur Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC)
og með þeim sé engan veginn verið
að stofna hrefnustofninum í Norð-
ur-Atlantshafi í hættu. Þá er órök-
studdum fullyrðingum sumra full-
trúa í vísindaráði IWC um að
vísindaveiðar Íslendingar standist
ekki vísindakröfur alþjóðlegra
rannsóknarstofnana algerlega hafn-
að og það harmað að verið sé að
reyna að vega að heiðri íslenskra
vísindamanna með slíkum dylgjum.
Þá er á það bent að rannsóknir á
því hver fæða hrefnu á Íslands-
miðum er séu aðeins einn liður
rannsóknanna; framlag Íslands á
sviði fjölstofnarannsókna sé viður-
kennt á alþjóðavísu og því séu um-
fangsmiklar rannsóknir nauðsyn-
legar til þess að auka skilning og
uppfæra fjölstofnalíkön sem unnið
sé með.
Niðurstöður sem fást með vís-
indaveiðum á hrefnu auki þekkingu
manna á þessu sviði, segir í
svarinu.
Athugasemdum
vegna hvalveiði-
rannsókna svarað