Morgunblaðið - 14.10.2003, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.10.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 278. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Slapp undan Bin Laden John Simpson liðsmaður BBC svarar spurningum Morgunblaðsins Erlent 16 Daglegt líf kynnti sér klæðnað Eddugesta 24 Tilraun í dansi Dansverk við tónlist Sigur Rósar og Radiohead frumsýnt Fólk 51 Sígilt og sparilegt STJÓRNVÖLD í Sádi-Arabíu ákváðu í gær að boða til sveitarstjórn- arkosninga í landinu innan árs og verða þær fyrstu al- mennu kosningarn- ar í sögu sádiarab- íska konung- dæmisins. Opinbera frétta- stofan SPA skýrði frá þessu og sagði að kosningarnar ættu aðeins að ná til helmings sætanna í sveitarstjórnunum. Í Sádi-Arabíu er konungurinn alráður og þar er aðeins ráðgjafarþing sem ekki er þjóðkjörið. Bandaríkjastjórn hefur lagt fast að konungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu að opna stjórnkerfið og um 305 Sádi- Arabar sendu krónprinsi landsins, Abdullah bin Abdul Aziz, áskorun í síðasta mánuði um að koma á lýðræð- isumbótum. Talsmaður þeirra fagn- aði ákvörðun stjórnarinnar í gær og kvaðst vona að hún leiddi til þing- kosninga. Sádar fá að kjósa í fyrsta sinn Stjórnin lofar sveitarstjórnar- kosningum Abdullah krónprins Riyadh. AFP. LÆKNAR í Dallas í Bandaríkjunum sögðu í gær að ástand egypsku tví- buranna, sem voru aðskildir um helgina, væri gott en vöruðu við því að drengirnir væru enn í hættu. Tvíburarnir eru tveggja ára og fæddust samvaxnir á höfði. Þeir voru aðskildir í aðgerð sem tók einn og hálfan sólarhring og hafði verið und- irbúin í rúmt ár. Þeim er nú haldið í dái með lyfjum til að minnka hættuna á því að þeir verði fyrir heilaskaða, að því er fram kom á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. „Ástand tvíburanna hefur verið ótrúlegt eftir að þeir komu úr skurð- stofunni,“ sagði talsmaður læknanna, Jim Thomas. „Ekkert óvænt hefur komið upp.“ Thomas sagði að drengjunum staf- aði nú mest hætta af hugsanlegum sýkingum. Næst á að endurmóta höf- uðkúpur tvíburanna og græða sárin skinni. Talið er að það taki nokkur ár. Reuters „Ástand tvíburanna ótrúlegt“ INNHEIMTAR sektir vegna almennra um- ferðarlagabrota hækkuðu um rúm 46% í fyrra frá árinu 2001 og hafa innheimtar um- ferðarlagasektir þá rúmlega tvöfaldast á undanförnum fjórum árum, á milli áranna 1999 og 2002. Þetta kemur fram þegar tekjur ríkis- sjóðs af innheimtum sektarboðum eru skoðaðar á undan- förnum fjórum árum. Tekjurnar námu tæp- um 387 milljónum króna á síðasta ári, en voru 264 milljónir króna á árinu 2001, sem er rúmlega 46% hækkun milli ára. Á árinu 2000 voru tekjur af sektum vegna um- ferðarlagabrota hins vegar 205 milljónir króna og á árinu 1999 litlu lægri eða tæpar 193 milljónir kr. Sektargerðir, sem eru sektir vegna alvar- legra umferðarlagabrota eins og ölvunar- aksturs og ýmissa annarra brota, hafa hins vegar nánast staðið í stað á undanförnum ár- um. Hækkuðu um tugi prósenta Ástæðuna fyrir auknum sektartekjum rík- issjóðs af umferðarlagabrotum má rekja til þess að sektarfjárhæðir voru hækkaðar um tugi prósenta 1. ágúst 2001. Þá fjölgaði einn- ig umferðarlagasektum talsvert á milli ár- anna 2001 og 2002 eða um 9,5%. Fjöldi sekta á árinu 2002 var 42.194 á landinu öllu en 38.182 árið áður. Aukningin er hins vegar mjög mismunandi á milli lögregluumdæma. Þannig fjölgaði sektum um 35% hjá lögregl- unni í Reykjavík, úr 12.374 í 16.702 á síðasta ári. Það sem af er þessu ári hefur sektum í Reykjavík hins vegar fækkað aftur, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Á sama tíma, þ.e. á milli áranna 2001 og 2002, fækkaði hins vegar sektum í Hafnar- firði um nálega þriðjung, úr 2.930 árið 2001 í 1.913 í fyrra. Lítils háttar fækkun varð einnig í Kópavogi en þar fækkaði umferðarlaga- sektum úr 3.462 árið 2001 í 3.321 árið 2002. Umtalsverð fækkun umferðarlagasekta varð einnig í Keflavík og á Seyðisfirði þar sem þeim fækkaði um helming. Umtalsverð fjölg- un umferðarlagasekta varð hins vegar á Sel- fossi, rúm 29%, milli 2001 og 2002, á Húsavík 47% og á Hólmavík þrefaldaðist fjöldi um- ferðarlagasekta á milli ára. Sektir hafa hækkað um 46% Almennar umferðar- lagasektir hafa tvö- faldast á fjórum árum                              TEKJUMUNUR eftir kynferði hefur aukist verulega í Noregi milli 2001 og 2002 og þéna karlar nú að jafnaði nær 100.000 norskum krónum, um 1.100 þúsund ísl. kr., meira á ári í skattskyldar tekjur en konur, að sögn frétta- vefjar Aftenposten. Munurinn hefur aukist úr 85 þúsund norskum krónum í 97 þúsund krónur á ári. Blaðið vitnar í nýja skýrslu sem innheimtu- fyrirtækið Lindorff hefur gert. Þar kemur fram að karlar með lágar tekjur lenda oft í því að greiða ekki skuldir á réttum tíma en jafnframt segir að furðu margir með milljón í árstekjur, um 11 milljónir ísl. kr., eigi í slíkum málaferl- um. Mjög fáar konur eru hins vegar í þeim hópi. Sagt er í fréttinni að niðurstöður könnunar- innar komi mörgum á óvart. „Ég held að skýr- ingin á þessum tölum sé að karlar og konur vinna ólík störf,“ segir Tore Andresen, yf- irmaður þeirrar deildar Lindorff sem annast mat á greiðslugetu Norðmanna. „Auk þess hækka karlar oft hraðar í tign en konur.“ Fram kemur í skýrslunni að tekjur Norð- manna jukust að jafnaði um 10% árið 2002, mest í Ósló, þar varð aukningin 17%. Karlar eiga að jafnaði mun meiri eignir, um 320.000 krónur en konur 175.000 krónur. Á því sviði hefur munurinn þó minnkað nokkuð milli ára. Eignaaukning varð langmest meðal kvenna undir 18 ára aldri. Tekjumunur kynja eykst í Noregi AÐ minnsta kosti tveir menn biðu bana í gær í La Paz, höfuðborg Bólivíu, í átökum milli lögreglu og þúsunda mótmælenda sem kröfðust þess að forseti landsins, Gonzalo Sanchez de Lozada, segði af sér. Einn mótmælendanna stekkur hér yfir vegartálma í La Paz. Forsetinn kvaðst í gær ekki ætla að láta af embætti þrátt fyrir óeirðirnar sem hafa kostað yfir 40 manns lífið síðustu þrjár vikur. /15 Mannskæðar óeirðir í Bólivíu Reuters BANDARÍKJAMENN, Bretar og Spánverjar lögðu ný drög að álykt- un um Írak fyrir öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna í gærkvöldi. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir því að íraska fram- kvæmdaráðið í Bagdad ákveði fyrir 15. desember hvenær efna skuli til þingkosninga í Írak og ljúki þá einnig við að semja nýja stjórnar- skrá. Er þetta í fyrsta sinn sem Bandaríkjamenn setja ákveðinn frest til að efna til kosninga í Írak. Eins og í fyrri drögum Banda- ríkjamanna er kveðið á um að stofnaður verði fjölþjóðlegur frið- argæsluher í Írak en bætt er við ákvæði um að öryggisráðið fjalli um friðargæsluna ekki síðar en ári eftir að ályktunin verður sam- þykkt. Í nýju drögunum segir einn- ig að auka eigi hlutverk Sameinuðu þjóðanna í endurreisnarstarfinu í Írak og að írösk ríkisstjórn eigi að taka við völdunum af hernámslið- inu „eins fljótt og auðið er“. Óljóst var í gær hvort tilslakanir Bandaríkjamanna dygðu til að and- stæðingar Íraksstríðsins í öryggis- ráðinu samþykktu drögin. Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýska- lands, sagði að nýju drögin væru skref í rétta átt. Dominique de Vil- lepin, utanríkisráðherra Frakk- lands, tók í sama streng en bætti við að Frakkar hefðu ekki enn tekið afstöðu til draganna. Bandaríkjamenn vilja að gengið verði til atkvæða um nýju drögin í vikunni. Saddam í Tikrit? Bandarískur majór í Írak, Troy Smith, sagði í gær að Saddam Hussein, fyrrverandi forseti lands- ins, væri líklega í felum í heima- borg sinni, Tikrit. „Við höfum fengið skýra vís- bendingu um að hann hafi verið hér nýlega,“ sagði Smith í Tikrit. „Hann kann að vera hérna núna. Að minnsta kosti hefur hann haldið miklum áhrifum á svæðinu.“ Smith sagði að talið væri að Saddam stæði á bak við árásir sem gerðar hafa verið á hernámsliðið í Tikrit og nágrenni. Bandaríkin með ný ályktunardrög í öryggisráðinu Fá tvo mánuði til að ákveða kosningar Sameinuðu þjóðunum, Tikrit. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.