Morgunblaðið - 16.10.2003, Síða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Bankaútibú í þínu fyrirtæki
Fyrirtækjabanki Landsbankans
Þú stundar öll bankaviðskipti fyrirtækisins á einfaldan og þægilegan
hátt á Netinu – hvenær sem þér hentar.
Í Fyrirtækjabanka Landsbankans býðst þér m.a. að:
• Framkvæma allar almennar bankaaðgerðir (millifæra, sækja yfirlit, greiða reikninga o.s.frv.).
• Safna greiðslum saman í greiðslubunka sem hægt er að greiða strax eða geyma til úrvinnslu síðar.
• Framkvæma greiðslur með því að senda inn greiðsluskrár úr t.d. bókhaldsforritum.
• Stofna og fella niður innheimtukröfur.
• Greiða erlenda reikninga (SWIFT).
Nánari upplýsingar um Fyrirtækjabankann getur þú fengið í næsta útibúi Landsbankans,
í Þjónustuveri bankans í síma 560 6000 eða á vefsetri bankans, www.landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
20
51
08
/2
00
3
ÍSLANDSBANKI var með
mesta hlutabréfaveltu á þriðja
ársfjórðungi, þ.e. frá júlíbyrjun til
septemberloka en stór hluti velt-
unnar á íslenskum hlutabréfa-
markaði á fjórðungnum skýrist af
miklum breytingum á eignarhaldi
einstakra félaga í septembermán-
uði og afskráningum annarra.
Alls var verslað með hlutabréf í
Íslandsbanka fyrir 21,5 milljarða
króna í rúmlega 1.900 viðskiptum.
Næstmestu viðskiptin voru með
hlutabréf í Fjárfestingarfélaginu
Straumi, Sjóvá-Almennum trygg-
ingum og Eimskipafélagi Íslands.
Í öllum tilvikum var veltan um og
yfir 16 milljarðar króna, en tals-
verðar breytingar áttu sér stað
hjá hverju og einu þessara félaga
á ársfjórðungnum.
Af félögum í Úrvalsvísitölu
Kauphallar Íslands, sem sýnd eru
í meðfylgjandi töflu, voru minnst
viðskipti með hlutabréf í Sam-
herja á tímabilinu eða fyrir 860
milljónir króna í 211 viðskiptum.
Næstminnstu viðskiptin voru með
hlutabréf í Og fjarskiptum og
Granda.
Þess má geta að Úrvalsvísitalan
hækkaði um 21% á ársfjórðungn-
um og hækkuðu öll félög vísitöl-
unnar á tímabilinu. Pharmaco,
Sjóvá-Almennar tryggingar og
bankarnir þrír báru um 80%
hækkunar vísitölunnar.
Í Markaðsyfirliti greiningar-
deildar Íslandsbanka sem gefið
var út í síðustu viku kemur fram
að velta með hlutabréf hafi á
fyrstu níu mánuðum ársins verið
55% meiri en á sama tíma í fyrra.
„Þó veltan hafi aukist mikið er
hæpið að draga þá ályktun að
markaðurinn sé orðinn virkari eða
að hlutabréf hafi almennt orðið
seljanlegri. Hafa verður í huga að
stór hluti veltunnar skýrist af af-
skráningum félaga og þeim miklu
breytingum á eignarhaldi sem
urðu í september,“ segir í Mark-
aðsyfirlitinu. Þá er bent á að velta
í almennum viðskiptum innan
Kauphallar Íslands hafi aukist um
12% milli ára sé litið til fyrstu níu
mánaða ársins. Veltan innan
Kauphallarinnar sé þó einungis
um 15,5% af heildarveltunni á
fyrstu níu mánuðum ársins.
Veltuhraði hlutabréfa, sem
mælir hluti í fyrirtæki sem skipta
um hendur í hlutfalli við heildar-
upphæð hlutafjár, var mikill hjá
mörgum fyrirtækjanna á seinni
hluta fjórðungsins enda mikið um
stór viðskipti. Til dæmis nam
velta hlutabréfa í Straumi og
Sjóvá-Almennum á þessum eina
fjórðungi nærri því markaðsvirði
félaganna.
Veltuhraði og verðbil
Annað sem skiptir máli þegar
rætt er um seljanleika hlutabréfa
er það sem kallað er verðbil. Verð-
bilið er bil á kaup- og sölutilboðum
og því minna sem það er, þeim
mun betra fyrir fjárfesta því þá er
kostnaður minni við viðskipti með
bréfin. Lítið verðbil og mikill
veltuhraði fara yfirleitt saman, en
þó er það ekki algilt. Minnsta
verðbilið er hjá bönkunum þrem-
ur, um eða innan við 1% og
Pharmaco, Össur, Bakkavör og
Eimskipafélagið eru á svipuðu
róli.
Hjá öðrum félögum má nefna
að verðbilið hefur verið um og yfir
2% hjá SH, Samherja, Granda, Og
fjarskiptum, Opnum kerfum og
Marel. Verðbil Tryggingamið-
stöðvarinnar og Flugleiða hefur
verið um 3%. Verðbilið var mun
meira hjá mörgum öðrum fé-
lögum.
2,5 milljarða króna velta
Í gær námu viðskipti í Kauphöll
Íslands 4.954 milljónum króna.
Þar af var mest velta með hluta-
bréf fyrir um 2.542 milljónir
króna, en næstmest viðskipti voru
með ríkisvíxla fyrir 983 milljónir
króna.
Mesta velta með bréf einstakra
félaga var með bréf Kaupþings
Búnaðarbanka, 683 milljónir
króna, og hækkaði gengi bréfa fé-
lagsins um 1,3%. Innan dagsins
fór verð bréfa félagsins í fyrsta
skipti yfir 200 krónur á hlut, en
endaði hins vegar í 198,5 krónur á
hlut í lok dagsins.
Þá voru 655 milljóna króna við-
skipti með bréf Pharmaco og
hækkaði gengi bréfa félagsins um
2,1% í þeim viðskiptum.
Úrvalsvísitalan hækkaði í gær
um 0,81% og endaði í 1.870,01
stigi.
Mikil velta á þriðja
fjórðungi ársins
Velta með hlutabréf í fjórum fyrirtækjum í Úrvalsvísitölunni nam um og yfir 16 milljörðum króna
!!
"#$
% &
'
(
'
#
& )
* " + &
, - .$
(
(/0
(
1
23
2453
2362
6!!6
24!6
2434
72
786
548
2! 2
76!
23!4
24
88
9 :
83;
;
;
;
27;
;
!;
!;
42;
84;
68;
2!;
4;
47;
<
)
47
586
888
22
25
228
2653
88
26!8
22
4 4
5
347
'
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
ÞÝSKALAND er aftur orðið stærsti út-
flytjandi í heimi, eftir ellefu ára forystu
Bandaríkjanna. Þetta er niðurstaða rann-
sóknar Financial Times Deutschland, FTD,
og byggist á tölum frá Efnahags- og fram-
farastofnuninni, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
og hagstofum viðkomandi ríkja.
Samkvæmt FTD náði Þýskaland foryst-
unni í apríl í ár, og í ágúst síðastliðnum var
útflutningur þess 62 milljarðar Bandaríkja-
dala, um 4.700 milljarðar króna, eða rúm-
lega 7% meiri en útflutningur Bandaríkj-
anna. Japan er í þriðja sæti, en stendur
hinum ríkjunum tveimur langt að baki.
Vestur-Þýskaland hafði forystu í útflutn-
ingi á níunda áratugnum, en að sögn FTD
missti Þýskaland forystuna eftir samein-
ingu þýsku ríkjanna tveggja. Sérfræðingar
telji að ástæða þess að Þýskaland sé aftur
komið í forystu sé hagstæð kostnaðarþróun
frá því um miðjan síðasta áratug. Haldið
hafi verið aftur af launahækkunum og gengi
evrunnar sé nú veikara en gengi þýska
marksins hafi verið. Samkeppnisstaðan sé
þess vegna ekki vandamál lengur.
Mesti vöxtur útflutnings Þýskalands er
til ríkja Mið- og Austur-Evrópu, en þau ríki
kaupa nú meira af þýskum vörum en
Bandaríkin.
Ú T F L U T N I N G U R
Þýskaland aft-
ur stærsti út-
flytjandi heims
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Reikningsskilastaðlar
Breytingar í byrjun næsta árs 4
Nóbelsverðlaunin
Tímaraðagreining varð ofan á 8 SÉRSTAÐA Í HÚSNÆÐISMÁLUM AUKIN
SALA geisladiska í heiminum er talin
munu dragast saman um 7–8% á þessu ári
miðað við síðasta ár. Þetta hefur Reuters
fréttastofan eftir formanni verslunarráðs
tónlistariðnaðarins, Jay Berman.
Hann telur að á seinni helmingi þessa árs
muni salan eitthvað rétta úr kútnum, en
hún dróst saman um 11,7% á fyrstu sex
mánuðum ársins.
„Á seinni árshelmingi seljast að jafnaði
60% af því magni sem selst árlega. Fram
undan er sterk útgáfa, þannig að ég býst
við að geisladiskasala verði í heildina litið
7–8% minni í ár en í fyrra,“ sagði Berman í
samtali við Reuters.
Geisladiska-
sala 7–8% minni
◆