Morgunblaðið - 17.10.2003, Blaðsíða 18
http://arti.nord.is/
„Ég hef alltaf vitað mitt sanna nafn,
þó svo að foreldrar mínir viti það ekki
enn. En ég gerði mér aldrei fyllilega
grein fyrir þýðingu þess fyrr enn nú.
Jarðneskar tungur geta ekki borið það
fram né getur heili þinn meðtekið
merkingu þess. en það mun koma sá
tími þar sem nöfn allra í fjölskyldu
minni, allir mínir bræður og allar systra
minna sem búa hér á jörðinni eða í ná-
grenni hennar, munu heyrast yfir allt
sólkerfið í kór og mynda Orðið sem á
eftir skapa nýtt jafnvægi í heiminum.“
6. október 14.14
http://www.katrin.is/
„ég fékk afmælisgjöfina frá mömmu og
pabba í dag ég fékk 2 boli, ekkva lykt-
ardót rosa sætt og 20gíga ipod.. hann
er svooooo fallegur! ég elska mömmu
mína og pabba svo mikið þau eru best!
nú á mér sko ekki eftir að leiðast
meira í lestunum (verst ég á bara 2gíg
af mp3:P)“ 15. október 0.44
http://www.gummijoh.net/
„Á föstudaginn eftir Idol fór ég á
Kleppsveginn þar sem Arnar og Toggi
mættu hressir í nokkra bjóra og Xbox
spilerí. Toggi reyndar drakk ekki þar
sem blessaður drengurinn hefur alveg
staðið við áfengisbindindi sitt til
nokkra mánaða. Gott hjá honum þar
sem engin átti von á þessu.“ 13. októ-
ber 17.25
Kæri
blogger.com…
William Shatner, sem lék Kirk kaftein í
Star Trek-þáttunum „fyrr á árum“, er
mergjaður persónuleiki. Það vita þeir,
sem fylgst hafa með ferli þessa
heillandi manns og hlýtt á hljómplötuna
Transformed Man frá 1968. Þar fer
hann á kostum í tilfinningaþrungnum
flutningi á lögum á borð við „Mr.
Tambourine Man“ og „Lucy In The Sky
With Diamonds“. Því miður er platan
uppseld á amazon.com eins og er.
Shatner fer líka á kostum á heima-
síðu sinni, http://www.william-
shatner.com. Hann skrifar ógleym-
anlega pistla fyrir aðdáendur sína, sem
hafa að sjálfsögðu myndað klúbb. Dótt-
ir hans, hin fagra Lisabeth, ritar einnig
pistla um hitt og þetta. Þá er sérstök
„Shatner-búð“ á síðunni, en þar er
hægt að panta ýmsan varning tengdan
goðinu.
VEFS
ÍÐAN
Shatnerinn
klikkar ekki
PIERLUIGI COLLINA –
THE RULES OF THE GAME
Ítalski fjármálaráð-
gjafinn Pierluigi Collina
er án efa frægasti fót-
boltadómari í heimi og
um leið almennt talinn
sá besti. Til hans er
jafnan leitað ef dæma
þarf leiki þegar mikið
liggur við, sjá til að
mynda nýafstaðinn leik
Tyrkja og Englendinga
þar sem hann hélt
mönnum á mottunni inni á vellinum þó til
áfloga hafi komið utan vallar.
Í bókinni The Rules of the Game segir Coll-
ina frá dómaralífinu, samskiptum við leikmenn
og þjálfara og umdeildum ákvörðunum, auk-
inheldur sem hann segir frá minnisstæðum
leikjum.
THE TIMES COMPREHENSIVE
ATLAS OF THE WORLD
Besta landabréfa-
bók heims segja marg-
ir þegar Times-atlasinn
er annars vegar, en
hann kemur nú út í
nýrri útgáfu. Fyrsti Tim-
es-atlasinn kom út
1967 og að sögn hafa
útgáfur hans selst í ríf-
lega milljón eintökum.
Nýja útgáfan er 11.
útgáfa atlasins og mjög aukin. Í ljósi umbrota
síðustu áratuga eru sérstakar skýringarmyndir
sem greina frá því hvernig heimurinn hefur
breyst en alls eru í bókinni 250 kortasíður og
224 síðna uppflettihluti með yfir 200.000
staðanöfnum og landfræðilegum sérkennum.
SVO FÖGUR BEIN - ALICE SEBOLD
Fáar bækur hafa
verið eins umtal-
aðar síðustu ár og
metsölubókin The
Lovely Bones eftir
bandarísku skáld-
konuna Alice Se-
bold. Bókin, sem
heitir Svo fögur
bein í íslenskri þýð-
ingu Helgu Þór-
arinsdóttur, hefst
þar sem sögumað-
ur hennar, Susie Salmon, fjórtán ára stúlka, er
myrt. Susie fylgist síðan með ættingjum sínum
að handan og sér hvernig voðaatburðurinn
reynir svo á fjölskylduböndin að þau nánast
slitna en styrkjast síðan aftur.
The Lovely Bones / Svo fögur bein þykir af-
skaplega vel skrifuð og þess sérstaklega getið
að Sebold skuli ekki missa svo viðkvæmt efni
niður í væmni, heldur sé frásögnin hlýlega kím-
in. Þetta er önnur bók Sebold en fyrsta bók
hennar var frásögn af því er henni var nauðgað
hrottalega og því er hún bar kennsl á árás-
armann sinn á götu nokkru síðar sem varð til
þess að hann fékk langan fangelsisdóm.
BANG GANG – SOMETHING WRONG
Nokkuð er um
liðið síðan heyrðist
frá Bang Gang,
fimm ár síðan plat-
an You kom út.
Hljómsveitin, sem
er bara einn mað-
ur, Barði Jóhanns-
son, hefur þó verið
starfandi af kappi
allan þann tíma, aðallega í Frakklandi, og Barði
hefur nýtt tímann til að ganga frá útgáfu- og
höfundarréttarsamningum.
Barði tók reyndar upp Bang Gang-plötu fyrir
tveimur árum en henti henni og notaði svo
sumarið til að vinna við þrjár skífur, plötu söng-
konunnar Keren Ann, plötu sem þau gerðu
saman undir nafninu Lady & Bird, og svo þessa
nýju plötu, Something Wrong. Það ber meðal
annars við á plötunni að Barði syngur mörg lag-
anna sjálfur, en hefur annars jafnan treyst á
ýmsar söngkonur.
DURAN DURAN – GREATEST
Fáar hljómsveitir
hafa komið af stað
öðru eins æði og Dur-
an Duran á öndverðum
níunda áratug síðustu
aldar. Vitanlega réð
tónlistin miklu um vin-
sældir sveitarinnar en
útlitið hafði líka sitt að
segja og það hve sveit-
in var fljót að átta sig á
möguleikum tónlistar-
myndbanda, ekki síst í
MTV-tónlistarsjónvarpsstöðinni sem var þá að
hefja göngu sína. Mikið var lagt í myndbönd
sveitarinnar, þau voru ekki bara drengirnir að
engjast í stúdíói heldur voru búningar, leik-
munir og sviðsmynd nýtt til hins ýtrasta.
Á Duran Duran – Greatest er að finna öll
myndbönd sem sveitin gerði á árunum 1981–
1994, en 1994 sneri sveitin einmitt óvænt í
sviðsljósið aftur með lagið Ordinary World.
Mörg myndbandanna þóttu svo djörf, helst
Girls On Film og Come Undone, að ekki þótti
stætt á því að sýna þau í sjónvarpi. Þau eru aft-
ur á móti óritskoðuð í safninu.
SINEAD O’CONNOR – SHE WHO DWELLS IN THE
SECRET PLACE OF THE MOST HIGH SHALL
ABIDE UNDER THE SHADOW OF THE ALMIGHTY
Þegar Sinead
O’Connor sendi frá
sér plötuna Sean-
Nós Nua á síðasta
ári lýsti hún því yfir
að hún væri hætt að
syngja, ætti bara
eftir að gefa út plötu
með uppsópi, tón-
leikaupptökum og lögum sem hún hafði unnið
með hinum og þessum tónlistarmönnum. Plat-
an með langa nafninu er einmitt sú plata, tvö-
föld kveðjuplata, sem hefur fengið framúrskar-
andi dóma. Á fyrri disknum eru nítján
hljóðverslög sem hún hefur unnið með tónlist-
armönnum eins og Massive Attack, Adrian
Sherwood, Asian Dub Foundation og Roger
Eno og einnig írsk þjóðlög og lög eftir aðra sem
hún hefur tekið upp á ferlinum eins og Do Right
Woman, Love Hurts og Emma’s Song. Á seinni
disknum er svo upptaka af tónleikum þar sem
hún lítur um öxl og syngur öll sín helstu lög
með góðum árangri.
JAK II: RENEGADE
Fyrsta gerð af Jak
var almennt talin með
bestu leikjum sinnar
tegundar, borðaleikur
þar sem leikandi fær-
ist frá vinstri til hægri,
með smá útúrdúrum.
Enn eru Jak og
Daxter í aðalhlutverki,
en ólíkt fyrri leiknum,
sem var bjartur og
skemmtilegur, er
meiri spenna í þeim
nýja og meiri harka. Það er líka meira hægt að
gera í leiknum, hægt að nota öll farartæki, auk
þess sem Jak er sífellt með svifbretti með sér,
sem hægt er að nota til að fara hraðar. Sögu-
þráðurinn gengur út á það að illi baróninn Prax-
is rænir Jak og gerir á honum tilraunir í tvö ár.
Eftir það er Jak orðin lausari höndin, auk þess
sem hann getur nú breytt sér í vöðvatröllið Jak
sem þykir fátt skemmtilegar en að skjóta og
skemma.
ÚTGÁFAN - BÆKUR - GEISLAPLÖTUR - TÖLVULEIKIR
Símaframleiðendur hafa lengi glímt við að gera
farsíma að fjölnotatækjum, ekki bara síma,
heldur líka dagskinnu, vafra, póstvél og svo
framvegis. Þónokkrir hafa bætt MP3-spilara við
í síma sína og aðrir steypt saman lófatölvu og
síma. Enginn hefur þó gengið eins langt og
Nokia sem kynnti í vikunni N-Gage – leikjatölvu
með síma eða síma með leikjatölvu.
Nokia N-Gage er eins og leikjatölva við fyrstu
sýn, hönnuð fyrir tvær hendur með skjáinn í
miðjunni, um þrettán sentimetrar á breidd, sjö
á hæð og tveir á þykkt. Skjárinn er fyrirtak, skýr
og bjartur litaskjár, og stjórnborðið er líka
ágætt, takkarnir liggja vel við fyrir fingurna.
Leikir í tölvuna eru annars á MMC-minn-
iskortum og eitt slíkt kort, 32 MB, fylgir einmitt
með vélinni. Það er ákveðinn galli að þurfa að
taka rafhlöðu tölvunnar úr til að skipta um leik
og eflaust eiga menn eftir að breyta því í næstu
gerðum N-Gage.
N-Gage er þó ekki bara leikjatölva, heldur
líka sími og það fyrirtaks sími, nýtt stýrikerfi og
mikið af nýjum möguleikjum sem gefa vænt-
anlega nasasjón af því hvernig viðmótið verður
í næstu gerðum af Nokia-símum. Hægt er að
sækja og senda tölvupóst í símanum, vafra um
netið og svo má telja. Mjög góður sími en óneit-
anlega eru umbúðirnar sérstakar ef nota á
N-Gage sem síma því maður talar í hliðina á
vélinni ef svo má segja; vissulega svolítið sér-
kennilegt að vera á gangi í Kringlunni að tala í
leikjatölvu. Það er einnig óþægilegt að tala
lengi í símann, þannig að segja má að síminn
sé aukageta, leikjatölvan aðalmálið.
Innbyggður í vélina er líka MP3-spilari sem
virkar býsna vel sem slíkur, kostur að geta sett
í hann minniskort og með 128 MB-kort í spil-
aranum er maður vel staddur. Sú ákvörðun
Nokia að nota MMC-kort í símann frekar en SD
er umdeild en eins og síminn er hannaður er
það væntanlega vegna þess að síðarnefndu
kortin eru þykkari.
Í símann er innbyggt FM-útvarp en til þess að
nota það þarf að vera með heyrnartólin á eyr-
unum. Hægt er að hlusta á músík í MP3-
spilaranum í hátalara símans og það er líka
hægt að nota hann þegar rætt er við fólk, þ.e.
að hafa símann á borðinu fyrir framan sig og
síma út um borg og bý. Auk þessa er í honum
allt það sem almennilegir símar státa af í dag:
Blátönn, MMS, þriggja banda GSM (900/
1800/1900), GPRS, stuðningur við Java og
tengi við tölvu, að þessu sinni USB. Rafhlaðan
er sögð endast í 150–200 tíma bið, en spæn-
ast upp í tölvuleikjum, fara þá niður í þrjá til
fjóra tíma. Hún dugir að sögn í allt að átta tíma
við MP3-spilun og allt að tuttugu tíma við út-
varpsspilun.
Miðað við markaðsetningu N-Gage er hún
helst ætluð notendum sem eru rétt skriðnir á
þrítugsaldurinn
eða eiga skammt
í hann, en til þess þarf
að bæta leikjaúrvalið, setja
inn leiki sem reyna á hugann ekki síður
en viðbragðsflýti. Nokkuð úrval er þegar til af
leikjum, nefni sem dæmi Pandemonium, gam-
all og góður stökkleikur sem er víst hægt að
spila á tveim vélum samtímis um blátann-
artengi, SonicN, sérútgáfa af sígildum snilld-
arleik, MotoGP kappakstursleikur á mót-
orhjólum, Red Faction, sem er skotleikur og
Tomb Raider sem varla þarf að kynna.
Góður og ítarlegur leiðarvísir á íslensku fylgir
og mikill kostur að stýrikerfið er líka á íslensku.
Verð á N-Gage er nokkuð misjafnt, en yfirleitt
um 35.000 kr.
Kostir: Sími í leikjatölvu!
Gallar: Leikjatölva í síma!
|arnim@mbl.is
Leikjasími frá Nokia
GRÆJURNAR
18 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 17|10|2003 MORGUNBLAÐIÐ