Morgunblaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR
18. OKTÓBER 2003
FÖRÐUN fyrir augu ogvarir er jafn marg-breytileg og hátískan ásýningarpöllum. Tískan
hefur til allrar hamingju sveiflast í
það margar áttir undanfarin ár að
flestir finna eitthvað við sitt hæfi. Í
andlitsmálningu ræður litadýrðin
ríkjum um þessar mundir en eng-
inn vandi er að finna eitthvað ann-
að ef svo ber undir.
Tískustraumar eru reyndar ekki
meira en túlkun hönnuðar sem fær
innblástur úr mörgum áttum, ekki
síst frá fólki á götum úti. Kannski
þér?
Spáð er að tvenns konar förð-
unarvenjur nái mestri fótfestu í
vetur. Annars vegar eru blæbrigði
rósarinnar, hins vegar dökkt og
dularfullt útlit.
„Sakleysi“, „sætt“, „heima-
tilbúið“ eru lýsingarorð förð-
unarmeistara. Líka: „kynleysi“,
„karlmannlegt“, „ögn af kvala-
losta“.
Dýrgripir í dós
Þegar haldið er á önnur mið
koma skærir litir og glitrandi
augnskuggar fyrir sjónir og engu
líkara en að snyrtivöruframleið-
endur hafi komist í litakassa smá-
fólksins. Sterkfjólublátt, fúksíulit-
ur og grænn eru þrjú dæmi.
Októberhefti breska Elle greinir
til að mynda frá „ríkulegu“ yf-
irbragði haust- og vetrartísk-
usýninga (og á ekki bara við gest-
ina). Gimsteinalitir og málmkennd
áferð hafi lýst upp sýningarpallana
og augu og varir glitrað (líkt og
skartgripaskrín J.Lo.)
Rúbínrauðar varir vörðuðu til að
mynda leiðina á sýningu Narcisco
Rodriguez og smaragðsgræn,
blákvars- og safírlit augu gneist-
uðu hjá YSL.
„Töfraljóminn er kominn aftur,“
hefur Elle eftir förðunarmeist-
aranum Lindu Cantello.
„Málmáferð og gimsteinaglampi
virðist líka virkilega „spilltur“ á
mjólkurhvítri vetrarhúð,“ bætir
Cantello við.
Tekið er fram að sterk förðun sé
nauðsynlegt mótvægi við litagleði
hátískunnar.
„Hækkið því glansstuðulinn og
prófið hvernig er að glitra af
frægðarljóma!“ er hvatningin til
lesenda.
Hvað varirnar varðar eru há-
glansandi varalitir og gloss enn við
lýði og ein aðferð að bera gljáann
bara á miðju varanna til þess að
búa til stút. Marglitir munnar eru
lykilorð vetrarins og mæla sér-
fræðingar með því að varirnar séu
burstaðar með barnatannbursta
(setjið varasalva á hárin fyrst) til
þess að fjarlægja þurra og flagn-
andi húð.
Varnaðarorð til þeirra sem
plokka. Breiðar augnbrúnir virð-
ast vera að vinna á, byrjum að
safna!
Ljómandi litadýrð frá MAC.Julien MacDonald.
Förðun fyrir Yves Saint Laurent.
Litadýrð
glitagnir
og gloss
Ofurgloss frá Chanel.
Bláu augun þín...Af sýningu Tom Ford hjá YSL.
Gloss á miðju varanna býr til stút.
Rafmagnað frá Shiseido.Tom Ford var líka með græn augu.
helga@mbl.is
TÍSKA
Tískustefna Viktoríanskur
þokki. Blúndur, lífstykki.
Ásýnd Rósbleikar kinnar.
Aðferð Berið ljósbleikan lit
fremst á kinnarnar og örlítið af
sama lit á augun. Málið varir
mattar og með náttúrulegum
lit. Notið stóran bursta svo út-
línur litarins verði mýkri og
andlitið ekki of dúkkulegt.
Tískustefna Svart leður.
Ásýnd Svört og máð augnmálning.
Aðferð Veljið litlausa förðun á and-
litið til þess að draga athyglina ekki
frá augunum. Berið svartan augn-
skugga neðst á augnlokið, ekki upp
á augabrún. Dreifið örlítið úr litn-
um yst á augnlokinu. Kámið svarta
litnum örlítið eftir línunni við neðri
augnhárin með eyrnapinna. Ljúkið
verkinu með dágóðum skammti af
maskara.
(Þeir sem vilja ganga enn lengra og
brjóta í bága við ráðleggingar setja
eldrauðan lit á varirnar.)