Morgunblaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.2003, Blaðsíða 1
Laugardagur 18. október 2003 Læknirinn: Tókstu púlsinn hjá sjúklingnum? Læknaneminn: Nei, er hann týndur? Prentsmiðja Árvakurs hf. Hvar og hvernig varð Latibær til? Það eru orðin átta ár síðan íslenskir krakkar fengu fyrst að kynnast Íþróttaálfinum og íbúunum í Latabæ en fyrsta bók Magnúsar Scheving um fólkið í Latabæ kom út árið 1995. Leikritið „Áfram Latibær“ sem var byggt á bókinni var frum- sýnt ári síðar og framhaldsleikritið „Glanni glæpur í Latabæ“ nokkrum árum eftir það. Magnús Scheving, sem sjálfur leikur Íþróttaálfinn, hefur sagt frá því að hann hafi skrifað fyrstu bókina um Latabæ eftir að hann ferðaðist um landið og hélt fyrirlestra um heilbrigt líferni í skólum. Hann segir að margir krakkar hafi þá spurt hann að því hvernig þeir gætu hætt að borða sælgæti og byrjað að hreyfa sig og að hann hafi verið að reyna að svara því þegar hann skrifaði fyrstu bókina um Latabæ. Magnús og félagar hans hafa síðan reynt að svara þessum spurningum með ýmsum hætti m.a. með hreyfispilinu Latador og Orkubókinni. Svo stefna þeir líka að því að kynna Latabæ fyrir bandarískum börnum en í desember hefjast tökur á sjónvarpsþáttum um Latabæ sem verða sýndir í sjónvarpi í Bandaríkjunum. Þessa dagana eru margir fjögurra, fimm og sex ára krakkar uppteknir af því að fylgjast með því hvað þeir borða og hreyfa sig mikið. Ástæðan er sú að krakkarnir eru að fylla út Orkubók Latabæjar þar sem þeir fá stig fyrir að hreyfa sig og borða hollan og góðan mat en mínusa fyrir að borða óhollan mat. Barnablaðið hitti fjóra krakka á leikskól- anum Stakkaborg og spurði hvernig þeim gengi og hvers þau óski sér að launum fyr- ir dugnaðinn. Ætlar í Bláa lónið Erling Róbert Eydal, sem er nýorðinn fimm ára, segir að það hafi bara gengið vel að nota Orkubókina. „Það er skemmtilegt en líka erfitt, það er alveg ljóst,“ segir hann. „Ég er samt bú- inn að fá fullt af stigum og bara einn mínus af því að einu sinni borðaði ég tyggjó.“ Erling Róbert segist hafa samið um það við foreldra sína að fá að fara í Bláa lónið þegar hann verður búinn að fylla Orkubók- ina af límmiðum. Langar í sápukúlur og bíó Fanney Sif Torfadóttir er fimm ára. Hún segir að það sé gaman að nota Orkubókina. „Það er samt svolítið erfitt að festa lím- miðana í bókina,“ segir hún. Fanney Sif segist hafa fengið þrjá mín- usa en að hún sé samt eiginlega alveg hætt að borða nammi. Þá segist hún hafa óskað sér að fá sápukúlur og að fá að fara í bíó. Vill helst fá sundgleraugu og prumpublöðru Þorsteinn Davíð Stefánsson er alveg að verða fimm ára. Honum gengur vel að nota Orkubókina og hann segir að það sé ekkert svo erfitt. „Ég borða bara nammi í afmæl- um og þegar við erum að hafa það kósý,“ segir hann. Svo segist hann vera duglegur að gera leikfimisæfingar. Þorsteinn Davíð óskar sér að fá sund- gleraugu og prumpublöðru þegar orku- átakið verður búið. Langar mest í bíó Guðrún Herdís Arnarsdóttir er líka alveg að verða fimm ára. Hún segir að sér hafi gengið vel að nota Orkubókina en að það hafi samt verið svolítið erfitt. „Það er skemmtilegt að líma en erfitt að borða ekki nammi,“ segir hún. Guðrún Herdís er ekki ennþá búin að óska sér en hún segist ætla að óska þess að fá að fara í bíó. Erling Róbert Fanney Sif Þorsteinn DavíðGuðrún Herdís Orkukrakkar á Stakkaborg Það er stundum sagt að líkaminn sé hús sálarinnar en með því er átt við það að sálin búi eða dvelji í líkamanum. Aðrir eru enn hátíð- legri og segja að lík- aminn sé musteri sálarinnar. Musteri er hús, þar sem fólk tilbiður þann guð eða þá guði sem það trúir á, og því vísar þetta orðalag til þess að líkaminn sé ekkert venjulegt hús sem menn geti umgengist að vild heldur merkilegt hús sem þeim beri að sýna virðingu. Eins og þið kannski vitið þá þarf fólk í mörgum löndum að fara úr skónum áður en það fer inn í moskur og hof. Þetta ber vott um virðingu fólks- ins fyrir þessum húsum og hún skilar greinilega árangri því mörg þessara húsa eru næstum eins og ný þótt þau séu mörg hundruð eða jafnvel þúsund ára gömul. Það er eins með líkama okkar og þessi æva- gömlu musteri. Við verðum að ganga vel um hann til að halda honum í góðu formi. Og það gerum við m.a. með því að hreyfa okkur og borða hollan mat og með því að forðast það sem við vitum að er óhollt. Flókin og ómissandi meistaraverk Það eru til mörg dýr sem hlaupa hraðar og stökkva hærra en maðurinn en greind og fjöl- hæfni mannslíkamans hafa þó gert manninn að inn, eru svo flókin að jafnvel lærðustu vísinda- menn skilja ekki nema brot af starfemi þeirra. Svo eru nokkur líffæri, til dæmis heilinn og hjartað, líka svo ómissandi að þau fá ekki að hvíla sig eina einustu stund frá því áður en við fæðumst og þangað til við deyjum. Það er því eins gott að hugsa vel um þetta meistaraverk, sem okkur hefur verið gefið, þannig að líffærin okkar geti sem lengst haldið áfram að sinna sínum flóknu og ómissandi störfum. herra jarðarinnar. Mannslíkaminn er líka svo ótrúlega flókinn og fullkominn að hann er stundum kallaður meistaraverk sköpunarinn- ar. Vissuð þið til dæmis að mannslíkaminn er gerður úr 50 milljörðum frumna sem flokkast í um 200 mismunandi frumutegundir? Hver frumugerð gegnir síðan ákveðnu hlut- verki í líkamsstarfseminni en til þess að sinna hlutverkum sínum tengjast frumurnar saman í frumuvefi sem síðan mynda líffæri. Sum þessara líffæra, eins og til dæmis heil- Förum vel með musteri sálarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.