Morgunblaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 9
PAS - gallabuxurnar komnar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Fallegar peysur í úrvali
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
ÞAKRENNUR
Frábært verð!
B Y G G I N G AV Ö R U R
www.merkur.is
594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.
Í 12 ár
Hausttilboð
Sérmerkt
Handklæði & flíshúfur
Flíspeysur, flísteppi,
o.fl.
Fáið sendan myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
LAGERÚTSALA
Á ELDRI VÖRUM - ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR - SÍÐASTI DAGUR Á MIÐVIKUDAG
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
22
47
9
10
/2
00
3
20
. -
24
. o
kt.
Eig
end
avi
ka
Toy
ota
20
03
ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR ERU BESTI MÆLIKVARÐINN á
þjónustu fyrirtækis. Nýleg þjónustukönnun á meðal bílaumboða á Íslandi leiddi í ljós
að ánægja er mest á meðal við skiptavina Toyota. Við erum staðráðin í að halda
áfram á sömu braut. Við efnum til sérstakrar Eigendaviku og bjóðum ókeypis
öryggisskoðun fyrir veturinn á Toyota bílum 20. - 24. okt. Opið verður alla dagana
til kl. 19.00. Ilmandi heitt gæðakaffi á kaffibarnum á meðan við gerum bílinn þinn
kláran fyrir veturinn. Komdu á Nýbýlaveginn, nánari upplýsingar í síma 570 5000
eða á www.toyota.is
GJÖRIÐ SVO VEL: OKKAR ER ÁNÆGJAN
400 fyrstu fá óvænta gjöf frá Toyota.
Ókeypis öryggisskoðun:
- mælt frostþol í kælikerfi
- smurðar læsingar og
hurðir
- ljósbúnaður athugaður
- bætt á rúðuvökva
- athuguð þurrkublöð
- rafgeymir athugaður
Gerum tilboð í alla réttinga-
og málningarvinnu.
15% afsláttur af
varahlutum.
15% afsláttur af vinnu.
Óvæntar uppákomur á
Nýbýlaveginum alla vikuna.
STJÓRN Heimdallar, Félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur
ákveðið að senda bréf til þeirra 1.152
einstaklinga sem óskuðu eftir því að
ganga í félagið tveimur dögum fyrir
aðalfund þess 1. október sl. Í bréfinu
er óskað eftir að fólk staðfesti umsókn
sína um að ganga í félagið.
Stjórn Heimdallar taldi að á þeim
tíma hefði verið uppi rökstuddur
grunur um að hluti þessara skráning-
arbeiðna væri sendur frá þriðja aðila
og án vitundar þess sem skráður var
og tók því þá ákvörðun að fresta af-
greiðslu þeirra svo ný stjórn gæti
kannað réttmæti þeirra.
„Nýkjörin stjórn Heimdallar hefur
tekið þá ákvörðun að kanna réttmæti
skráninganna með þeim hætti að
senda ofangreindum einstaklingum
bréf þar sem þeir eru hvattir til að
staðfesta skráningarbeiðnina.
Stjórnin telur mikilvægt að um-
ræddum einstaklingum sé gert eins
auðvelt fyrir og mögulegt er að stað-
festa skráninguna enda er það ein-
lægur vilji stjórnarinnar að bjóða vel-
komna alla þá sem áhuga hafa á að
starfa innan félagsins,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Heimdalli.
Harmar deilur
Umsækjendur geta staðfest um-
sókn með tölvupósti frá eigin net-
fangi, með því að útfylla staðfesting-
areyðublað bréfleiðis til félagsins eða
með því að koma við á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins og skilað inn útfylltu
staðfestingareyðublaði.
„Stjórn Heimdallar vill einnig taka
fram að hún harmar þær deilur sem
átt hafa sér stað um réttmæti skrán-
ingarbeiðnanna. Í kjölfar þessarar
ákvörðunar verður nú loks hægt að
skrá og fá nánari upplýsingar um þá
einstaklinga sem vilja leggja ungum
sjálfstæðismönnum í Reykjavík lið í
því mikilvæga starfi sem framundan
er. Ekki síður er mikilvægt að með
þessari leið verður tryggt að virtur
verði réttur þeirra einstaklinga sem
kunna að hafa verið skráðir án þess að
vilja vera félagar í stjórnmálaflokki,“
segir í tilkynningu frá Heimdalli.
Umsækjendur staðfesti
umsókn um félagsaðild
Stjórn Heimdallar hefur fjallað um umsókn
1.152 einstaklinga um aðild að félaginu
SJÁLFSTÆÐISMENN sem stóðu
að framboði til stjórnar Heimdallar
hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna
ákvarðana nýrrar stjórnar Heim-
dallar. Þar segir að stjórnin sé að
búa til ný inntökuskilyrði.
„Í september gengu um 1.000
manns til liðs við Sjálfstæðisflokkinn
í því skyni að taka þátt í kosningum
um stjórn Heimdallar. Þeir fóru að
öllum settum reglum og hefðum
Sjálfstæðisflokksins. Þrátt fyrir það
var þeim meinuð þátttaka í kosning-
unum með þeirri ákvörðun formanns
Heimdallar, Magnúsar Þórs Gylfa-
sonar og þáverandi stjórnar, að
fresta inntöku þeirra framyfir aðal-
fundinn. Ríflega átta hundruð
manns mótmæltu þessum vinnu-
brögðum. Nú hefur Atli Rafn
Björnsson, núverandi formaður og
stjórn hans, bætt gráu ofan á svart
með því að setja eftir á ný inntöku-
skilyrði fyrir þetta sama fólk: Það
verði að sækja aftur um inngöngu
með því að senda inn staðfestingu frá
eigin tölvupósti um að það vilji ganga
í Sjálfstæðisflokkinn eða fylla út sér-
stök staðfestingareyðublöð og koma
bréflega á skrifstofu flokksins. Þetta
kallar stjórn Heimdallar „að bjóða
nýja félagsmenn velkomna“.
Vilji núverandi stjórn vera sjálfri
sér samkvæm ætti hún að senda öll-
um, um 4.000 félagsmönnum Heim-
dallar, samskonar bréf og óska eftir
því að þeir staðfesti að þeir vilji
raunverulega vera í flokknum, enda
hafa þeir nær allir skráð sig með
sama hætti og þeir 1.152 sem svo
gerðu fyrir aðalfundinn.“
Undir yfirlýsinguna skrifa Bolli
Thoroddsen, Steinunn Vala Sigfús-
dóttir, Brynjar Harðarson, Brynjólf-
ur Stefánsson, Gísli Kristjánsson,
Hreiðar Hermannsson, Margrét
Einarsdóttir, María Sigrún Hilmars-
dóttir, Sigurður Örn Hilmarsson,
Stefanía Sigurðardóttir, Tómas Haf-
liðason og Ýmir Örn Finnbogason.
Stjórn Heimdallar býr
til ný inntökuskilyrði
LANDSVIRKJUN hefur samið við
VA TECH Escher Wyss GmbH í
Þýskalandi um framleiðslu og upp-
setningu véla- og rafbúnaðar fyrir
Kárahnjúkavirkjun. Á heimasíðu
virkjunarinnar er greint frá því að
Friðrik Sophusson forstjóri hafi á
fimmtudag undirritað samninginn
fyrir hönd Landsvirkjunar, en Jean
Claude Riesterer fyrir hönd VA
TECH. Samningsupphæðin er um
7,5 milljarðar króna. Samið er um
sex 115 MW vélasamstæður (hverfla
og rafala) ásamt öllum tilheyrandi
búnaði. Hverflarnir verða framleidd-
ir í Þýskalandi, en rafalar og annar
búnaður í Austurríki. Uppsetning
búnaðarins hefst í Fljótsdal í árs-
byrjun 2005 og fyrsta vélin verður
tekin í notkun í apríl árið 2007.
7,5 milljarða samn-
ingur við VA TECH
Fréttir á SMS