Morgunblaðið - 20.10.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.10.2003, Qupperneq 8
ÍÞRÓTTIR 8 B MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍTALSKA liðið Inter frá Mílanó lét þjálfara sinn, Argentínumanninn Hector Cuper, taka pokann sinn nokkrum klukkustundum eftir að lið- ið gerði 2:2 jafntefli við Brescia í ítölsku 1. deildinni. Inter er í sjötta sæti deildarinnar þegar sex umferð- um er lokið, stjö stigum á eftir Ítal- íumeisturum Juventus. Eftir 3:1 ósig- ur gegn erkifjendunum í AC Milan fyrir hálfum mánuði hófust umræður hjá stjórnendum Inter að sparka Cuper og þeir létu verða af því eftir leikinn við Brescia sem er eitt af botnliðum deildarinnar. Cuper var á sínu þriðja tímabili hjá Inter sem er með því lengsta sem þjálfari hefur starfað hjá félaginu undir stjórn Massimo Moratti, for- seta Inter. Cuper, sem kom til Inter frá spænska liðinu Valencia, tókst ekki að landa titli hjá Inter en liðið varð í öðru sæti í deildinni fyrsta árið sem hann var við stjórn hjá því og í þriðja sæti í fyrra. Þá komst liðið undir hans stjórn í undanúrslit Meistaradeildarinnar og sömuleiðis í UEFA-keppninni. Forráðamenn Inter voru ekki lengi að finna eftirmann Cupers en félagið tilkynnti síðdegis í gær að Alberto Zaccheroni, fyrrum þjálfari AC Milan og Lazio, tæki við þjálfun liðsins. Inter rak Hector Cuper ERNIE Els frá Suður-Afríku tryggði sér 4:3-sigur gegn hinum danska Thomas Björn í úrslitaleik heimsmótsins í holukeppni en mótið fór fram á Wentworth-vellinum í Englandi. Els jafnaði þar með met sem þeir Sevie Ballest- eros og Gary Player áttu saman, en þeir hafa allir unnið mótið fimm sinnum. Hinn 34 ára gamli Els vann mótið fyrir ári og einig 1994, 1995 og 1996. Els var með yfirhöndina frá upphafi og náði mest að vera með sex vinninga gegn engum á þeim 36 holum sem leiknar voru á sunnudag. Björn átti eftirminnilegasta högg úrslitaleiksins en hann fór holu í höggi á 14. braut vallarins eða 32. holu leiks- ins, en það dugði ekki til. Alls fékk Ernie Els rúmlega 128 millj. kr. í verð- launafé en Thomas Björn fékk rúmlega 51 millj. kr. í sinn hlut og bifreið fyrir „draumahöggið“. Ernie Els í hóp Ballesteros og Players Á fyrstu mínútunni skoruðuNjarðvíkingar auðveldar körf- ur en það virtist þeim ekki fyrir bestu því eftir það gekk allt á afturfót- unum og ef ekki hefði verið fyrir góða baráttu í fyr- irliðanum Friðriki Stefánssyni hefðu gestirnir úr KR náð öllum tökum á leiknum. Forysta KR varð mest 11 stig en þar sem Njarðvík- ingar neituðu algerlega að gefast upp tókst þeim að saxa á forskotið og loks ná forystu í miðjum öðrum leikhluta. Mest náðu þeir 9 stiga forskoti en strax í upphafi þriðja leikhluta náði KR að komast yfir á ný. Eftir það skiptust liðin á um að vera yfir en þremur mínútum fyrir leikslok komust Njarðvíkingar í 78:72 forskot með yfirveguðum sóknarleik og góðri vörn. Í þeirri stöðu áttu flestir von á að þeir myndu spila langar sóknir og vanda til verka. Það gerðu þeir ekki og KR-ingurinn Chris Woods tók til sinna ráða þegar hann safn- aði vítaskotum því Njarðvíkingar áttu engin önnur ráð til að stöðva hann. Hinsvegar fór hann illa með þessi skot, þrjú hittu ekki í körf- una. Sem fyrr voru Njarðvíkingum mislagðar hendur í sókninni og Ingvaldur M. Hafsteinsson minnk- aði forskot Njarðvíkinga í eitt stig, 787:77, þegar 18 sekúndur voru eftir. Chris Woods reif boltann af Brandon Woudstra og fékk inn- kastið, samkvæmt nýju reglunum en dæmd voru skref á Baldur Ólafsson sex sekúndum fyrir leiks- lok. Friðrik fyrirliði fékk vítaköst, skoraði úr öðru, náði síðan bolt- anum og tíminn rann út. „Ég andaði léttar þegar boltinn fór ofan í körfuna í lokin því þetta var svakalegur körfuboltaleikur, sem bauð uppá allt en óþarflega mikla spennu fyirr mig,“ sagði Friðrik Ragnarsson þjálfari Njarð- víkinga eftir leikinn. „Við vorum að spila á móti mjög góðu liði svo það má ekkert útaf bera. Við hikstuð- um aðeins í byrjun þegar menn kunnu ekki alveg sín hlutverk en þegar leikur okkar fór að ganga kom þetta, sérstaklega þegar við fórum úr svæðisvörn í maður á mann vörn. Við börðumst vel en eigum töluvert í land með að spila góðan körfubolta. Okkur vantaði Ólaf Ingvason leikstjórnanda okk- ar og ég varð að nota Brenton Birmingham, sem er ekki alveg tilbúin í slaginn eftir meiðsli en í heild var liðið að spila góðan körfu- bolta.“ Friðrik tók 14 fráköst og varði 5 skot og Brandon Woudstra varði þrjú og átti 9 stoðsendingar en þeir tveir voru atkvæðamestir hjá Njarðvík. „Við náðum ekki að fylgja eftir góðum fyrsta leikhluta og vorum afar slakir í öðrum og gerðum síð- an of mikið af afdrífaríkum mistök- um á ögurstund,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari KR eftir leik- inn. „Ég er samt sáttur með að þegar við vorum sex stigum undir við náðum að vinna það upp. Það voru of miklar sveiflur í leik okkar og það þurfum við að laga, við verðum að ná betri stöðugleika. Ef við náum því verðum við erfiðir í vetur, annars ekki, en þessi ósigur mun gera okkur sterkari.“ Hjá KR var Chris Woods góður, stigahæst- ur með 10 fráköst og 8 stoðsend- ingar en Skarphéðinn Ingason tók 6 fráköst. Barátta á Ásvöllum Leikur Hauka og Hamars á Ás-völlum í gærkvöldi var ekki mikið fyrir augað, mikil barátta var í liðunum á kostnað gæðanna. Leikmenn voru mis- tækir og komst leikurinn aldrei á almennilegt flug. Heimamenn unnu sigur, 78:73, en þegar fimm mín- útur voru til leiksloka var staðan 65:64. Haukar hafa því unnið báða leiki sína í deildinni en Hamars- menn eru enn án sigurs. Leikurinn var mjög jafn en vegna þess hversu hægur hann var vantaði upp á spennuþáttinn. Það kom reyndar smá neisti í leikmenn undir lokin - þegar rétt rúmlega ein mínúta var til leiksloka var staðan 74:73 og Hamar með bolt- ann. Tvær sóknir í röð fengu þeir hins vegar dæmt á sig sóknarbrot og misstu þar tækifærið á sigri. Heimamenn juku muninn þess í stað í sex stig og lokastaðan því 78:73. Mike Mancier stóð uppúr jöfnu liði Hauka, skoraði 26 stig og Mar- el Baldvinsson var með 17. Hjá gestunum var Marvin Valdimars- son með 14 stig en verra var fyrir Hamarsmenn að Chris Dade lenti snemma í villuvandræðum og gat lítið beitt sér í þriðja leikhluta - hann skoraði þó 13 stig. „Þetta var kannski ekki fallegur körfubolti en leikmenn lögðu sig alla fram. Menn spiluðu fast og þetta var erfiður leikur, ekki mikill hraði en ég er afskaplega ánægður með þennan vinnusigur. Hamar er með gott lið og leikaðferðin hentar okkar leik afar illa,“ sagði Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka. „Það tekur okkur smá tíma að stilla liðið saman, við spilum öðruvísi bolta en í fyrra og það eru fleiri leikmenn að skora núna. Við vonum að fyrir vikið verðum við erfiðari viðureign- ar.“ Pétur Ingvarsson, leikmaður og þjálfari Hamars hafði litla ástæðu til að fagna enda lið hans enn án stiga. „Það er erfitt að koma í Hafnarfjörð og við vorum kannski ekki alveg tilbúnir. Við vildum hafa leikinn hægan og eiga möguleika á sigrinum í lokin - það lenti bara ekki okkar megin núna. Menn voru að gefa sig alla í þennan leik og ég er bjartsýnn fyrir veturinn. Við höldum áfram að gera okkar besta,“ sagði Pétur. Hraði í Stykkishólmi Grindavík gerði góða ferð tilStykkishólms þar sem liðið sigraði Snæfell 65:62. Það var hraður og skemmti- legur leikur sem liðin sýndu í fyrri hálfleik. Gott flæði var í leiknum og hittni leikmanna með ágætum, þrátt fyrir að bæði lið lékju góða vörn. Gestirnir voru þó full dugleg- ir að brjóta af sér og voru Guð- mundur Bragason og Dan Tramm- el komnir með þrjár villur hvor, snemma í öðrum fjórðungi. Þetta gerði það að verkum að þjálfarinn hvíldi þá meira en ella. Staðan í leikhléi var 41 stig Snæfells gegn 40 stigum Grindavíkur. Í síðari hálfleik var allt annar leikur uppi á borðinu, mun meiri harka í varn- arleiknum og hittni leikmanna ekki eins góð. Sóknarleikur beggja liða var ekki eins markviss og hann hafði verið í fyrri hálfleik. Heima- menn höfðu frumkvæðið í leiknum frá upphafi og alveg framundir miðjan fjórða leikhluta, þá skoraði Páll Axel Vilbergsson tvær þriggja stiga körfur í röð og breytti stöð- unni úr 54:53 í 54:59. Þarna varð ákveðinn vendipunktur í leiknum og þessu náðu Hólmararnir aldrei að svara. Í lokin var mikil spenna en gestirnir höfðu lánið með sér í lokin og fóru með sigur af hólmi. Í liði Snæfells lék Hlynur Bær- ingsson manna best, þótt stigin væru ekki nema 10, þá urðu frá- köstin alls 14 og baráttan hjá hon- um var til fyrirmyndar. Corey Dickerson lék ágætlega, sérstak- lega var ánægulegt að sjá hann leggja sig fram í vörninni. Sig- urður Á. Þorvaldsson lék vel bæði í vörn og sókn. Dondrell Whitmore átti fína spretti í sókninni en á að geta mun betur með því að leggja sig betur fram. Hafþór I. Gunn- arsson átti mjög góðar innkomur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hjá Grindavík var Darrel K. Lewis mjög góður, öflugur bæði í sókn og vörn og byggist leikur liðs- ins mikið upp í kringum hann. Guðmundur Bragason er enn að draga vagninn hjá Grindavík, er liðinu afar mikilvægur leiðtogi. Páll Axel Vilbergsson gerði gæfu- muninn í lokaleikhlutanum. Dan Trammel fór mjög vel af stað í leiknum tók t.a.m. mikið af sókn- arfráköstum, en lenti fljót í villu- vandræðum og sat mikið á tréverk- inu. Þriggja stiga skotkeppni Þór frá Þorlákshöfn gerði góðaferð í Kópavoginn í gærkvöldi þegar þeir litu í heimsókn til Breiðabliks í Smár- ann. Eftir heldur brattan fyrri hálf- leik komu gestirnir gríðarlega ákveðnir inní þriðja leikhluta, breyttu stöð- unni úr 55:40 í 70:71 og tryggðu sér síðan sigur í fjórða og síðasta leikhluta, 85:91. Blikarnir, sem sýndu beint frá leiknum á veraldarvefnum, komu mjög ákveðnir til leiksins. Mirko Virijevic fór mikinn í fyrri hálf- leiknum og Kyrem Massey, sam- herji hans í Breiðabliki, fylgdi góðu fordæmi hans þegar leið á leikinn. Fyrir utan fyrstu tvö stigin sem Þór skoraði þá hafði Breiða- blik forystuna fyrstu tvo leikhlut- ana og lengst af þeim þriðja. Mirko skoraði 12 stig í fyrsta leikhluta þar sem Breiðablik hafði betur 27:19. Í öðrum leikhluta komu þeir Kyrem Massey og Jónas P. Ólason sterkir inn og skoruðu 7 stig hvor. En Reymond Robins í liði Þórs var að vakna eftir ferðalagið frá Þor- lákshöfn, hann skoraði 8 af 20 stig- um sínum í leiknum í öðrum leik- hluta og reyndist varnarmönnum Breiðabliks oft erfiður. Í þriðja leikhluta var ekki annað að sjá en að Breiðablik myndi sigra í þessum leik. Þeir skoruðu fyrstu 9 stigin og höfðu þægilega 15 stiga forystu, 55:40. Sex af þess- um níu stigum voru skoruð með þriggja stiga skotum og var líkt og gestirnir tækju þessari áskorun og upphófst mikil skotkeppni á milli liða. Í síðustu af 10 þriggja stiga körfum leikhlutans komust gest- irnir yfir 70:71, í fyrsta sinn frá því í upphafi leiks. Þessi forysta var sem olía á eld Sunnlendinga og var sigurvilji þeirra gríðarlegur á síð- ustu mínútunum. Svo mikill að Blikar urðu að játa sig sigraða, 85:91. Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari Breiðabliks, var ekki sáttur við niðurstöðu leiksins. „Svona er körfuboltinn. Við náðum ágætis kafla í þriðja leikhluta en í þeim fjórða höfðu þeir yfirhöndina, sér- staklega inni í teig og náðu að brjóta það sem við vorum að gera. Við vorum að tapa þessum leik inni í teig, þeir voru að fá of góðar stöður nálægt körfunni og of mikið af sóknarfráköstum. Síðan þegar við förum að einbeita okkur að því að loka á þetta þá opnast færi fyrir utan sem þeir ná að nýta sér,“ sagði Jón Ingvar. Mirko Virijevic og Kyrem Mass- ey voru bestu leikmenn Breiða- bliks í þessum leik. Leon Brisport átti frábæran leik í liði Þórs, hann skoraði 31 stig, hirti 8 fráköst og átti 4 stoðsendingar. Njarðvíkingar neit- uðu að gefast upp BOÐIÐ var uppá flest sem prýðir góðan körfuboltaleik í Njarðvík í gærkvöldi - góða baráttu, tilþrifamiklar troðslur, 14 varin skot, vænan skammt af mistökum og spennuþrungnar lokamínútur þeg- ar heimamenn sluppu með 79:77 sigur. Sigurinn var þó ekki ósann- gjarn því þó Njarðvíkingar gerðu meira af mistökum var baráttan þeirra megin. Stefán Stefánsson skrifar Andri Karl skrifar Ríkharður Hrafnkelsson skrifar Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.