Morgunblaðið - 21.10.2003, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
Mikið hefur verið rætt um það á Akureyri
að undanförnu að Kaupfélag Eyfirðinga
hafi dregið sig út úr verslunarrekstri eftir
áratuga afskipti. Ýmsir hafa af því áhyggj-
ur að verslunarrekstur KEA, sem í seinni
tíð tengdist eignarhaldi í Kaldbaki, sé nú
nánast allur á hendi „þeirra fyrir sunnan.“
En skiptir það svo miklu máli hver á þess-
ar verslanir, svo framarlega sem vöruverð
og þjónusta er það sama og fyrir sunnan?
Þannig hefur það nú verið og það eru ein-
mitt „þeir fyrir sunnan“ sem hafa bæði
boðið lægsta vöruverðið í bænum og sólar-
hringsþjónustu í matvöruverlsun í bænum.
Einnig hefur mikið verið rætt um sam-
einingu fyrirtækja og það er í sjálfu sér hið
besta mál ef menn geta hagrætt í rekstr-
inum, t.d. með sameiningu. Sameining eða
frekara samstarf íþróttafélaga hefur líka
borið á góma og sýnist sitt hverjum. Hins
vegar er það áhyggjuefni hversu mikil
ósamstaða er á milli sveitarfélaga í Eyja-
firði, eða kannski ætti frekar að tala um
ósamstöðu á milli sveitarstjórnarmanna.
Reglulega er rætt um sameiningu sveitar-
félaga en ansi lítið gerist. Það er helst á
þingum eða fundum sem menn álykta um
sameiningarmál en svo gerist ekkert.
Gott dæmi um mál, sem hefur lengi verið í
umræðunni en lítið komið út úr, er sorp-
urðun. Lengi hefur verið leitað eftir nýjun
urðunarstað í firðinum, því stutt er í að
sorpurðun verði hætt á Glerárdal. Það vill
hins vegar enginn taka við sorpinu og eng-
in niðurstaða því fengist í málinu.
Stöðugt er leitað nýrra atvinnutækifæra
og lengi hefur verið horft til stóriðju í
Eyjafirði en lítið gerst í þeim málum. Enda
ekki von, Eyfirðingum hefur ekki enn tek-
ist að ákveða, eða réttara sagt, samþykkja
stað fyrir stóriðju í firðinum, sem hægt
væri að bjóða upp á, ef svo ólíklega vildi til
að einhverjir erlendir aðilar sýndu því
áhuga að byggja upp atvinnustarfsemi hér.
Akureyringar eru frekar íhaldssamir og
eiga margir þeirra erfitt með að vera háðir
öðrum, sérstaklega „þeim fyrir sunnan“.
Gott er dæmið af fundi athafnamanna sem
funduðu um möguleika á því að fjölga
ferðafólki í bænum. Einn hafði mestar
áhyggjur af því að boðið var upp á bjór „að
sunnan“ á fundinum. Hann sá ástæðu til að
geta þess sérstaklega, þar sem hér fyrir
norðan væri bjórverksmiðja. Akureyr-
ingar eru tilbúnir í landvinninga á öðrum
svæðum landsins en finnst verra ef aðrir
verða of fyrirferðarmiklir í þeirra heima-
byggð.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMANN
Akureyri | Nátt-
úruverndarnefnd Ak-
ureyrar hefur óskað eftir
því við stjórnsýslunefnd
að fram fari athugun á
því hvort opna beri að
einhverju leyti fundi hjá
nefndum bæjarins og að
niðurstaða athugunar-
innar verði notuð við
gerð nýrra erindisbréfa
fyrir nefndir og ráð bæj-
arins.
Bent er á að í fram-
kvæmdaáætlun Stað-
ardagskrár 21 fyrir Ak-
ureyri sé gert ráð fyrir
að athugað verði með
opna fundi hjá nefndum
bæjarins í því skyni að
auka möguleika fólks á
að fylgjast með málum,
þ.e. að auka íbúalýðræði.
Opnir nefnd-
arfundir?
Fljótsdalshéraði | Þær léku sér þessar þrjár í Orm-
arsstaðarétt í Fellum á dögunum. Allar ungar að árum
virtust þær ánægðar með félagsskapinn. F.v. Katrín Rós
Arnarsdóttir, Kola frá Staffelli og Ásta Evlalía Hrafn-
kelsdóttir. Haustblíðan hefur verið með eindæmum aust-
ur á Héraði síðustu dagana, ríflega vikulangur hlýinda-
kafli með tólf og fjórtán stiga hita frá morgni til kvölds
gerði fólki glatt í geði og gróðrinum nokkurt langlífi.
Við tók bjart og stillt haustveður við frostmark, sem er
ekki síður elskulegt haustviðri og gott til útivistar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gagnkvæm aðdáun
ÍSunnlenska frétta-blaðinu var í byrjunoktóber greint frá
starfi Veðurklúbbsins Ír-
isar á Hvolsvelli og fyrsta
fundi klúbbsins á þessum
vetri. Í upphafi fundar var
gluggað í veðurdagbók
sem Geir frá Hlíð hefur
haldið vandlega frá stofn-
un klúbbsins árið 2000,
eins og segir í Sunnlenska.
Í lok pistilsins segir: Mús-
arholur sem fundist hafa
snúa allar opum sínum í
suður, því að sjálfsögðu
mun hann oft blása norð-
ankulda síðar í vetur. Það
verður oft ullarsokka-
veður en Sunnlendingar
munu ekki fara í bakinu á
snjómokstri.
Ílok veðurpistilsins birt-
ist spádómsvísa sem gekk
eftir og ort var í lok kulda-
kaflans í byrjun júlí:
Eftir þennan kuldakafla
kemur hlý og indæl tíð.
Grösin bráðum ná að nafla
næstum því á Geir í Hlíð.
Gott veður
Hlíðunum | Það var gaman hjá
krökkunum á Sólbakka að taka
fyrstu skóflustungurnar að nýja
leikskólanum sínum. Um 35
hressir krakkar af leikskólanum
Sólbakka tóku fyrstu skóflu-
stunguna að nýjum leikskóla við
Stakkahlíð 19 síðasta föstudag.
Leikskólinn er nú við Vatns-
mýrarveg, á fyrirhuguðu veg-
stæði nýrrar Hringbrautar, og
þarf því óhjákvæmilega að flytja
hann fljótlega.
„Þetta gekk mjög vel fyrir sig
og krökkunum fannst þetta
rosalega gaman,“ segir Bryndís
Mattíasdóttir, leiðbeinandi á
Sólbakka. „Þau elstu fengu að
prófa litla gröfu, þau sátu hjá
gröfumanninum og prófuðu að
moka.“ Þau sem yngri voru voru
líka hæstánægð með að grafa
fyrir nýjum leikskóla með hefð-
bundnari verkfærum leikskóla-
barna, skóflum og fötum, sem
hafa dugað þeim hingað til.
Nýi leikskólinn verður
tveggja deilda með rými fyrir 50
börn og ráðgert er að flytja í
nýtt hús í byrjun næsta árs.
Morgunblaðið/Ásdís
Grafið fyrir nýjum leikskóla
Framkvæmdir
FULLTRÚAR frá japönsku fyrir-
tækjunum Japan Capacitor Industrial og
Nippon Light Metal voru staddir hér á landi
á dögunum til að skoða staði fyrir álþynnu-
verksmiðju sem fyrirtækin áforma að reisa í
sameiningu. Þeir skoðuðu Straumsvík,
Helguvík og Rangárvelli við Akureyri og
ræddu við fulltrúa viðkomandi sveitarfé-
laga, Reykjanesbæjar, Hafnarfjarðar og
Akureyrar. Einnig ræddu þeir við forsvars-
menn íslenskra verktaka- og orkufyrir-
tækja en verksmiðja af þessu tagi er frekar
orkufrek. Talið er að hún geti skapað 50-60
manns atvinnu, aðallega tæknimenntuðu
fólki.
Japanirnir voru á ferð með fulltrúum
Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og
Landsvirkjunar (MIL) en sendiráð Íslands í
Tókýó hefur einnig haft milligöngu í málinu
með sendiherrann, Ingimund Sigfússon,
fremstan í flokki. Afskipti hans hófust eftir
að annað japanskt fyrirtæki í sömu iðngrein
kom til Íslands í ársbyrjun 2002 á vegum
MIL að skoða aðstæður en ekkert hefur
orðið úr áformum þess fyrirtækis hér á
landi.
Vinnufundir gengu vel
Stofnkostnaður við að reisa verksmiðju af
þessu tagi er talinn fjórir til fimm milljarðar
króna. Orkuþörfin er um 45 MW og undir
starfsemina þyrfti um 60 þúsund fermetra
lóð, að sögn Páls Magnússonar, aðstoðar-
manns iðnaðarráðherra. Eins og nafnið gef-
ur til kynna eru álþynnur framleiddar úr áli.
Eru þær m.a. settar í sýruböð, vafðar upp í
vafninga og renna í gegnum verksmiðjuna
líkt og í stórri prentsmiðju.
Þynnurnar eru síðan notaðar í svonefnda
rafeindaþétta, sem eru í öllum rafmagns-
vörum. Þær eru svipaðar viðkomu og ál-
pappír en eilítið þykkari og stífari. Verði af
áformum um svona verksmiðju hér yrðu
þynnurnar fluttar úr landi til Kína eða Jap-
an til frekari úrvinnslu.
Páll segir að vinnufundir í þessari ferð
japönsku fyrirtækjanna hafi gengið vel.
Ákvörðunar um staðarval sé að vænta á
fyrri hluta næsta árs. Verði Ísland fyrir val-
inu komi fyrrnefndir þrír staðir til greina.
„Markaðsskrifstofan mun í framhaldi
þessarar heimsóknar svara fjölmörgum
spurningum sem upp komu í ferðinni. Við-
ræður munu því halda áfram næstu mánuði,
meðal annars með milligöngu sendiráðs Ís-
lands í Japan,“ segir Páll Magnússon.
Álþynnu-
verksmiðja
gæti skapað
50–60 störf
Japanir skoðuðu
Straumsvík, Helguvík og
Rangárvelli í Eyjafirði
EITT AF tómstundatilboðum í
Borgarbyggð er Mótorsmiðjan þar
sem unglingar grúska í bílum og
bílaviðgerðum. Í haust var farið af
staðið með sex vikna námskeið þrjú
kvöld í viku og er það Pétur Hann-
esson sem leiðbeinir. Engin stelpa
hefur tekið þátt í Mótorsmiðjunni
ennþá en þar eru að jafnaði allt að
10–12 strákar. Eru þeir að eigin
sögn mjög duglegir og áhugasamir
og staðfestir Pétur það. Sumir
þeirra eiga eigin bíla sem þeir eru
að gera upp eða vinna í. Þetta er
annað árið sem Borgarbyggð starf-
rækir Mótorsmiðjuna sem er til
húsa í gamla hafnarhúsinu í Brák-
arey.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Strákarnir hafa gaman af því grúska í bílum: Davíð Örn Gunnarsson, Ingi
Björn Róbertsson, Guðmundur Þór Ólafsson, Björn Viggó Björnsson og
Símon Grétar Rúnarsson ásamt leiðbeinandanum Pétri Hannessyni.
Mótorsmiðja í Borgarbyggð