Morgunblaðið - 23.10.2003, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2003 B 5
NREKSTUR KOSTNAÐUR við vörustjórnun
dagvöru á Íslandi nemur 12,1 millj-
arði króna á ári eða um 14% af
vöruverði, að því er fram kemur í
úttekt sem IMG og Byggðarann-
sóknarstofnun Íslands unnu fyrir
Samtök verslunar og þjónustu
(SVÞ), Samtök verslunarinnar
(FÍS) og Samtök iðnaðarins og
kynnt var í síðustu viku.
Ef marka má niðurstöður úttekt-
arinnar nemur kostnaður við vöru-
stjórnun að meðaltali um 8% af
veltu fyrirtækja á dagvörumarkaði,
sem er svipað hlutfall og í öðrum
Evrópulöndum. Kostnaður við
birgðahald er stærstur hluti vöru-
stjórnunarkostnaðar eða 4,4% af
veltu fyrirtækjanna.
Í úrtakinu sem notað var í úttekt
SVÞ voru 28 fyrirtæki; smásalar,
heildsalar og framleiðslufyrirtæki
á dagvörumarkaði, en einungis tólf
fyrirtæki samþykktu þátttöku. Í
niðurlagi úttektarinnar segir að illa
hafi gengið að fá fyrirtæki, sér-
staklega heildsala, til að veita upp-
lýsingar um vörustjórnunarkostn-
að sinn. „Í samtölum við
forsvarsmenn fyrirtækjanna sem
leitað var til kom fram að verulegr-
ar tortryggni gætir á milli aðila á
dagvörumarkaði. Sérstaklega
mátti finna fyrir þessu á meðal
heildsala, en þar mátti finna fyrir
ótta við að niðurstöður yrðu hugs-
anlega nýttar til að þrýsta á um
lægra vöruverð. Til að draga úr
birgðahaldi og stytta afgreiðslu-
tíma verður að auka samvinnu milli
aðila aðfangakeðjunnar, en grund-
völlur fyrir slíkt er vart fyrir hendi
miðað við viðbrögð við óskum um
þátttöku,“ segir í lokaorðum út-
tektarinnar.
Tortryggni heildsala
slæm fyrir neytendur
Að sögn Gunnars Jóhannessonar,
ráðgjafa hjá IMG Deloitte, er þessi
tortryggni áhyggjuefni fyrir neyt-
endur. Hann segir tilganginn með
úttektinni á þessum hluta kostn-
aðar fyrirtækja vera tvíþættan.
„Tilgangurinn er að bæta afkomu
fyrirtækjanna og lækka vöruverð.
Niðurstaðan bendir til þess að við
stöndum okkur ekki verr en geng-
ur og gerist í Evrópu. Samt sem
áður sjáum við að birgðahalds-
kostnaður er hár. Menn hafa rétt-
lætt það með legu landsins, smæð
markaðarins og fleiru. Við megum
hins vegar ekki týna okkur í slíkum
hugsunarhætti. Norðmönnum hef-
ur tekist að lækka þetta og við höf-
um tækifæri til að gera það líka.“
Auk Gunnars vann Hjördís Sigur-
steinsdóttir sérfræðingur hjá
Rannsóknarstofnun Háskólans á
Akureyri að gerð úttektarinnar.
Á fundinum kom fram að hér-
lendis er algengt sé að pantanir
séu of litlar í hvert sinn. Bent var á
að með því að gera færri og stærri
pantanir sé hægt að lækka kostn-
að. Þá kom fram að vörustjórn-
unarkostnaður er lægri hjá þeim
fyrirtækjum sem nýta sér vöruhús
þriðja aðila en hjá þeim sem annast
allt sitt birgðahald og dreifingu
sjálf.
Jan-Terje Mentzoni, fram-
kvæmdastjóri Transportbrukernes
Fellesorganisasjon í Noregi fjallaði
um leiðir sem Norðmenn hafa farið
á undanförnum árum til að lækka
vörustjórnunarkostnað í kjölfar
fjögurra sambærilegra úttekta og
IMG Deloitte framkvæmdu hér. „Í
máli hans kom m.a. fram að tekist
hefði að lækka vörustjórnunar-
kostnað í Noregi um 4,4% á þrem-
ur árum með ýmsum aðgerðum á
borð við það sem lagt er til í ís-
lensku skýrslunni,“ segir í frétta-
bréfi SVÞ.
Ágúst Einarsson prófessor flutti
í lok fundarins erindi um mögu-
leika íslenskra fyrirtækja til að
bæta sig á sviði vörustjórnunar og
lagði áherslu á þátttöku allra í
vörukeðjunni varðandi upplýsingar
og samskipti. Í fréttabréf SVÞ
kemur fram að Ágúst lýsti áhuga
og getu háskóla og rannsóknarað-
ila til að vinna sérfræðiálit um
þessi efni. Hann sagði að úttekt
eins og þá sem kynnt var á fund-
inum væri nauðsynlegt að endur-
taka eigi síðar en eftir 2-3 ár til að
meta þróun vörustjórnunarkostn-
aðar.
Vörustjórnun kostar
12 milljarða á ári
Vörustjórnunarkostnaður … felur
í sér flutning á vörum til og frá fyr-
irtæki, rekstur lagers (þ.m.t.
starfsmannahald og rekstur hús-
næðis), birgðahald, pökkun, mót-
töku pantana, umsýslu og skipu-
lagningu og aðra meðhöndlun vöru.
Vörustjórnunar-
kostnaður
Einu gildir hversu flung sending flín er, DHL mun koma henni hratt á áfangasta›. fia› sem kom okkur á toppinn í alfljó›legum hra›flutningum skilar
bæ›i skjölum flínum og tollskyldum vörusendingum hratt á lei›arenda.Alfljó›legt dreifikerfi okkar gerir okkur kleift a› bjó›a flér heilsteypta fljónustu um
allan heim. Í lofti og á jör›u ni›ri.Veldu flví DHL fyrir fyrsta flokks flutningsfljónustu. Kíktu á www.dhl.is e›a hringdu í síma 535 1100.
Meiri flutningsgeta fyrir sendingar flínar.
Handbókin vinsæla frá ISO í íslenskri þýðingu
ISO 9001 FYRIR LÍTIL FYRIRTÆKI - LEIÐSÖGN
Pantaðu á www.stadlar.is