Morgunblaðið - 24.10.2003, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24|10|2003 | FÓLKÐ | 13
„Við byggjum þetta á grunnhugmyndinni, en 70% textans eru frum-
samin,“ segir Þorleifur Örn Arnarsson, leikstjóri og annar höfunda
1984 – ástarsögu, sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói annað kvöld og
byggð er á skáldsögu George Orwells frá árinu 1949.
„Mesta áskorunin felst í því að nokkuð er liðið síðan skáldsagan var
skrifuð og þá var hún fyrst og fremst hugsuð sem heimspekirit og nán-
ast varnaðarorð til mannkynsins. Orwell treður tveimur sögupersónum
inn sem ástarsögu, en hún er afskaplega veik. Til að snerta fólk þurft-
um við því að finna nýja nálgun á verkið. Við fórum þá leið að styrkja
ástarsöguna um þessar tvær manneskjur sem elskast, en er gert það
ókleift vegna utanaðkomandi aðstæðna.“
Þorleifur Örn semur leikritið með Arndísi Þórarinsdóttur, nema í bók-
menntafræði við Háskóla Íslands, sem einnig er aðstoðarleikstjóri.
Tuttugu og tveir leikarar eru í sýningunni, sem er þrír tímar, og hlut-
verkin miklu fleiri. Hvernig gengur að halda utan um þetta allt saman?
„Það er ótrúlegt að fylgjast með leikurunum í Stúdentaleikhúsinu,“
segir Þorleifur Örn. „Annan eins leiklistaráhuga hef ég aldrei séð. Fólk
vakir allar nætur. Það er aldrei kvartað. Ég dáist að þessum krökkum.
Við vinnum eins og hestar. – Djöfull ertu fljótur að pikka!“ hváir hann
skyndilega og heyrir greinilega til blaðamanns berja á tölvunni.
– Þakka þér fyrir, segir blaðamaður auðmjúkur. En hvernig er það, á
þetta leikrit erindi við nútímann?
„Nútímann? Heldur betur,“ segir hann og og hlær. „Í leikritinu er mik-
ið lagt upp úr því að það sé sameiginlegur óvinur. Það var einmitt það
sem Hermann Göring sagði að þyrfti til að fylkja fólki á bakvið sig, –
sameiginlegur óvinur. Er ekki alltaf verið að sýna mynd af Osama bin
Laden, sem enginn hefur séð mjög lengi? Hugsanalögreglan er heldur
ekki langt frá okkur. Þegar Stasi-skjölin voru opnuð, þá var mamma mín
þar á skrá. Hér á Íslandi er verið að keyra sameiginlegan gagnagrunn
yfir nánast allar upplýsingar, sem t.d. fíkniefnalögreglan hefur aðgang
að. Það getur verið allt í lagi í lýðræðislegu stjórnarfari, en hvað tók það
mörg ár fyrir Nasistaflokkinn að yfirtaka Þýskaland? Þá eru upplýsing-
arnar sem til eru um mig og þig orðnar ansi hættulegar.“
Það er greinilegt á öllu að Erni er mikið niðri fyrir. „Orwell er að vekja
okkur af draumi – gegn hugarstjórnun. Þetta er kyndillinn sem við í
Stúdentaleikhúsinu viljum bera áfram. Við ætlum ekki að mata fólk, en
vonandi vekjum við það til umhugsunar. Við viljum opna gáttir inn í nýja
heima, sem það getur sjálft farið og rannsakað.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Er verið að fylgjast með okkur?
25. október
1984 – ástarsaga
frumsýnt í Tjarnarbíói
ORWELL ER AÐ VEKJA OKKUR AF DRAUMI
– GEGN HUGARSTJÓRNUN
Haustútsalan er hafin
40% afsláttur
af völdum haustvörum
!