Morgunblaðið - 25.10.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 289. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
15-70% AFSLÁTTUR
Í eldlínu á
Evrópumóti
Undirbúningur fyrir EM í hand-
bolta er að hefjast | Íþróttir 52
Nauðsynleg
hugarleikfimi
Geta ekki verið án krossgátunnar
í sunnudagsblaðinu | Daglegt líf
Dansað
í úrslit
Við erum alltaf að segja eitt-
hvað með líkamanum | Fólk 60
FJÖGUR systkini úr
Garðabænum eru öll mennt-
uð einsöngvarar. Þetta eru
Hildigunnur Rúnarsdóttir,
tónskáld og systkini hennar
sem öll hafa oft komið fram
sem einsöngvarar, með kór-
um, á einsöngstónleikum og
í óperuflutningi, Ólafur,
Þorbjörn og Hallveig. For-
eldrar þeirra eru Guðfinna
Dóra Ólafsdóttir, tónlistar-
kennari og Rúnar Einarsson, raf-
virki, sem bæði stunduðu söngnám á
sínum tíma og hafa bæði um
árabil iðkað söng; með
Pólýfónkórnum og síðar
Hljómeyki.
Systir Guðfinnu Dóru,
Áslaug Ólafsdóttir, tónlist-
arkennari, er gift Halldóri
Vilhelmssyni, söngvara, þau
eru bæði söngmenntuð, og
sungu líka bæði í Pólýfón-
kórnum og Hljómeyki.
Börn Áslaugar og Halldórs
eru Hildigunnur, fiðluleikari; Sig-
urður, sellóleikari og Marta Guðrún,
söngkona. Hildigunnur Halldórs-
dóttir leikur með Sinfóníuhljómsveit
Íslands en lauk líka söngprófi í
fyrra; Sigurður syngur með Voces
Thules og Marta Guðrún hefur
starfað sem einsöngvari um árabil,
auk þess að vera menntuð í píanó-
leik. Næsti frændgarður Hildigunn-
ar Rúnarsdóttur er því líka allur í
tónlist, og öll hafa þau meira og
minna sungið með Hljómeyki eins og
foreldrarnir, en einnig fleiri kórum.
Söngelsk fjölskylda
Ég verð að semja/Lesbók 8
Hildigunnur
Rúnarsdóttir
NEMENDAHÓPUR í Verslunarskóla Ís-
lands (VÍ) afhenti í gær skólastjóra sínum
bréf með áskorun um að lækka skólagjöld
stelpna í samræmi við þann launamismun
sem þær gætu átt von á í framtíðinni.
Að sögn Stefaníu Benónísdóttur, einnar
hvatakvenna verksins og nemanda við VÍ,
vaknaði hugmyndin í tengslum við bar-
áttudag kvenna, 24. október. „Við vorum
að spá í þennan launamun kynjanna, sér-
staklega hjá menntuðu fólki. Fórum að spá
í hversu fáránlegt það væri að menntun
okkar væri minna virði en strákanna og
ákváðum að benda á það á þennan hátt.
Okkur fannst það skemmtileg leið.“
Að sögn Stefaníu skifuðu á milli 250 og
300 nemendur undir áskorunina en hug-
myndin kviknaði í fyrradag svo tíminn til
að safna undirskriftum var naumur.
Stefanía segir að nemendur af báðum
kynjum hafi alla jafna verið jákvæðir þó að
sumir hafi ekki alveg skilið kaldhæðnina
sem bjó í aðgerðinni. „Skólastjórnendur
tóku mjög vel í þetta og fannst þetta frá-
bært framtak. Að sjálfsögðu búumst við
ekki við að fá þetta í gegn enda er ekki til-
gangurinn að leiðrétta rangt með röngu,“
segir Stefanía.
Morgunblaðið/Sverrir
Skólagjöld
lækki sem
nemur
launamuni
TUTTUGU og sjö ára sögu farþegaflugs með
hljóðfráum Concorde-þotum lauk á Heath-
row-flugvelli við Lundúnir í gær, er þrjár síð-
ustu slíku vélarnar, sem British Airways hafa
haft í rekstri öll þessi ár, lentu þar eftir að
brezka fánanum út um glugga flugstjórnar-
klefans eftir lendinguna síðdegis í gær, en
þúsundir manna voru saman komnar á flug-
vellinum til að verða vitni að endalokum
merkilegs kafla í flugsögunni.
hafa skotizt á tvöföldum hraða hljóðsins fram
og aftur yfir Atlantshafið, með marga far-
þega úr röðum ríka og fræga fólksins innan-
borðs.
Hér sjást flugmenn einnar þotunnar veifa
Tímamót í flugsögunni
Reuters
Tuttugu og sjö ára sögu farþegaflugs með Concorde-þotum lýkur
ALÞJÓÐLEGRI fjáröflunarráð-
stefnu til stuðnings uppbyggingar-
starfi í Írak lauk í Madríd í gær
með því að þrettán milljarðar
Bandaríkjadala, andvirði um 1.000
milljarða króna, bættust við þá 20
milljarða dala sem Bandaríkja-
stjórn hafði áður heitið. Stærstur
hluti viðbótarfjárframlaganna er
þó í formi lána, en á herðum Íraka
hvílir langur skuldahali fyrir.
Þessi framlög, „meira en 33
milljarðar dala í formi styrkja og
lána, [verða greidd út] frá þessari
stundu fram til ársloka 2007,“
sögðu skipuleggjendur ráðstefn-
unnar í lokayfirlýsingu hennar.
Fulltrúar yfir 70 landa sátu hana,
þar á meðal Íslands. Meðal skipu-
leggjenda voru Bandaríkjastjórn,
urstaða „sýndi að alþjóðasam-
félagið er að ná saman“ um að
hjálpa til við endurreisn Íraks.
Ana Palacio, utanríkisráðherra
gestgjafalandsins Spánar, sagði
ráðstefnuna hafa skilað „miklum
árangri“. Upphæðin sem safnaðist
er þó langt frá því sem fram-
kvæmdaráð Íraks, bráðabirgða-
stjórnin sem starfar í skjóli her-
námsyfirvalda, hefur áætlað að
þurfi að berast inn í landið til að
fjármagna brýnustu endurreisnar-
verkefnin fram til 2007. Það segir
56 milljarða dala vera lágmark.
Powell viðurkenndi að það væri
ekki óskastaðan hve hátt hlutfall
framlaganna væri í formi lána,
með tilliti til þess að skuldir Íraka
eru a.m.k. 120 milljarðar dala.
Evrópusambandið, Alþjóðabank-
inn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að þessi nið-
Alþjóðlegri fjáröflunarráðstefnu í þágu Íraks lýkur
Ný framlög upp
á 13 milljarða dala
Madríd. AFP, AP.
AP
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og japönsk
starfssystir hans Yoriko Kawag-
uchi kveðjast í Madríd í gær.
DAGFINN Høyebraten, heil-
brigðismálaráðherra Noregs,
kynnti í gær nýtt og umfangs-
mikið átak sem norsk heil-
brigðisyfirvöld hyggjast efna
til, með það að markmiði að
minnka reykingar meðal ung-
menna um helming á næstu
fimm árum.
Noregur er fyrsta landið í
heiminum til að innleiða al-
gert bann við reykingum á öll-
um opinberum stöðum, þar á
meðal veitingastöðum og öld-
urhúsum, en það tekur gildi 1.
júní á næsta ári.
„Sígarettan er á útleið. Eft-
ir 50 ár munum við líta á tób-
aksnotkun sem mjög sér-
kennilegan kafla í sögu
mannkyns,“ sagði Høyebraten
í Ósló.
„Sígar-
ettan
á útleið“
Ósló. AFP.