Morgunblaðið - 25.10.2003, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2003 29
PÍANÓKONSERTINN nr. 21
eftir Mozart er nánast heimilisvinur
allra er unna klassískri tónlist og eitt
af þeim verkum meist-
arans, þar sem allt
gengur upp í formskip-
an, samfléttan ritháttar
fyrir hljómsveitina og
píanóið og syngjandi
lagferlið, á svo sjálf-
sagðan hátt, að hvergi
vantar á eða má við
bæta. Fyrsti kaflinn er
viðamestur, annar kafl-
inn undurfagur og
lokakaflinn fjörugur,
sem sagt undursam-
lega fullkomin tónlist.
Það er auðvitað erfitt
að leika slíkt verk og þó
margt væri fallega gert
bæði af hljómsveit og
einleikara, vantaði skarpleika í
fyrsta kaflann, sönginn í hæga kafl-
ann en einna bestur var lokakaflinn.
Það er ekki allra að stjórna og leika
en ef stjórnanda og einleikara kemur
vel saman, er hugsanlegt að hvor
fyrir sig geti einbeitt sér að sínu
meir en þegar einn þarf að huga að
stjórninni, samtímis því að vera ein-
leikari. Þrátt fyrir þetta var margt
fallega gert og samleikur hljómsveit-
ar og einleikara víða góður, enda
verkið sótt í gullastokk Mozarts og
því er ræðan og snilldin fyrst og
fremt hans.
Annað verkið á efnisskránni var
sinsónía nr 5 eftir Prokofíev, verk
sem hann samdi 1944, á meðan
stríðsæði síðari heimsstyrjaldarinn-
ar var að snúast Rússum í hag. Verk-
ið var fyrst flutt undir stjórn höf-
undar í upphafi árs
1945 og í nóvember
sama ár stjórnaði
Koussevitskí því tví-
vegis vestur í Banda-
ríkjunum og gat þess,
að það væri meistara-
verk og eitt af þeim
bestu sem samin hefðu
verið á okkar tímum.
Verkið var mjög vel
flutt af Sinfóníu-
hljómsveit Íslands und-
ir stjórn Philippe
Entremont, er valdi
verkinu snurðulausa
framvindu, oft glæsi-
lega og náði einnig oft
að laða fram töluverða
leikglettni, eins og t.d. í miðþættin-
um, sem er smellin tónsmíð, ekta
Prokofíev. Hljómsveitarrithátturinn
er víða einstaklega glæsilegur og þar
sem mest tók í, fór sinfóníuhljóm-
sveitin oft á kostum.
TÓNLIST
Háskólabíó
Viðfangsefni tónleikanna voru píanó-
konsert nr. 21, K. 467 eftir Mozart og
sinfónía nr. 5 eftir Prokofiev.
Stjórnandi og einleikari: Philippe Entre-
mont. Fimmtudagurinn 23. október,
2003.
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Snurðulaus
framvinda
Jón Ásgeirsson
Philippe Entremont
HLJÓMSVEIT Tónlistarskólans í
Reykjavík heldur tónleika í Nes-
kirkju kl. 17 í dag. Þar verða flutt
Pulcinella –
svíta eftir Igor
Stravinsky
byggð á stefjum
eftir Giovanni
Battista Perg-
olesi, Konsert
fyrir tvær fiðl-
ur í d-moll eftir
J. S. Bach og
Sinfónía nr. 4 í
A-dúr op. 90
eftir Felix
Mendelssohn. Einleikarar eru
fiðluleikararnir Greta Salóme
Stefánsdóttir og Magdalena Olga
Dubik.
Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafs-
son.
Nemenda-
tónleikar í
Neskirkju
Gunnsteinn
Ólafsson
Í SÝNINGARSAL Norræna
hússins verður opnuð í dag
samsýning listamannanna sem
reka Meistara Jakob gallerí á
Skólavörðustíg 5. Sýningin er í
tilefni þess að fimm ár eru lið-
in frá stofnun gallerísins.
Listamennirnir eru Aðal-
heiður Skarphéðinsdóttir, Að-
alheiður Valgeirsdóttir, Auður
Vésteinsdóttir, Elísabet Har-
aldsdóttir, Guðný Hafsteins-
dóttir, Guðný Magnúsdóttir,
Kristín Sigfríður Garðarsdótt-
ir, Kristín Geirsdóttir, Sari
Maarit Cedergren, Þorbjörg
Þórðardóttir og Þórður Hall.
Tveir nýir meðlimir hafa ný-
verið bæst í hópinn og verða
með á sýningunni, þau eru
Valgarður Gunnarsson og
Magdalena Margrét Kjartans-
dóttir.
Sýningin eru í boði Nor-
ræna hússins. Hún er opin alla
daga, nema þriðjudaga, kl. 12–
17. Hún stendur til 16. nóv-
ember.
Afmælis-
sýning
Meistara
Jakobs
Hlégarður kl. 18.30 Hagyrðinga-
mót Karlakórsins Stefnis. Þátttak-
endur eru, auk Stefnis, hagyrðingar
frá Fóstbræðrum, Langholts-
kórnum, Reykjalundarkórnum og
Vox Feminae.
Veitingahúsið Þorpið, Patreks-
firði kl. 16 Sigurbjörn Sævar Grét-
arsson áhugaljósmyndari sýnir ljós-
myndir á sýningunni „Þorpið mitt“.
Myndirnar eru teknar á Patreks-
firði, en sýningin er að hluta til
svarthvítar myndir af gömlum hús-
um á staðnum.
Sigurbjörn fer með gestum um sýn-
inguna.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
MÖGULEIKHÚSIÐ við Hlemm
sýnir Völuspá eftir Þórarin Eld-
járn í þetta eina sinn á sunnudag
kl. 16. Sýningin hlaut Grímuna – ís-
lensku leiklistarverðlaunin sem
barnasýning ársins 2003. Sýningin
hefur verið sýnd víða um heim und-
anfarin misseri, m.a. í Rússlandi,
Svíþjóð, Kanada, Færeyjum, Finn-
landi og Bandaríkjunum auk þess
sem henni hefur nú verið boðið til
Þýskalands og London.
Verkið byggist á hinni fornu
Völuspá og veitir áhorfendum sýn
inn í hugmyndaheim heiðinnar
goðafræði. Þar segir m.a. frá fróð-
leiksfýsn Óðins, græðgi í skálda-
mjöðinn og forvitni hans um nútíð
og framtíð.
Leikstjóri er Peter Holst, Guðni
Franzson stýrði tónlistinni og leik-
mynd og búninga hannaði Anette
Werenskiold. Pétur Eggerz leikur
öll hlutverkin og Stefán Örn Arn-
arson leikur á selló.
Aukasýning
á Völuspá