Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 C 5
Tækniþjónustan Keflavíkurflugvelli óskar eftir að ráða starfsmenn í
eftirtalin störf í verkfræðideild félagsins:
Burðarvirkisverkfræðingur
Starfssvið:
Verksvið er eftirlit með viðhaldi
burðarvirkis og hjólastellum flugvéla.
Starfið felur m.a. í sér:
• Afgreiðslu lofthæfifyrirmæla og breytinga.
• Verkfræðiaðstoð vegna viðhalds flugvéla.
• Mat á skemmdum, hönnun viðgerða og
samningu viðgerðalýsinga.
• Samskipti við framleiðendur flugvéla og
íhluta.
• Þátttöku í samningaviðræðum vegna
íhluta og þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Krafist er menntunar í flugvélaverkfræði,
almennri verkfræði eða tæknifræði. Mjög
æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu af
viðhaldi flugvéla. Starfsmaður þarf að geta
unnið sjálfstætt, haft frumkvæði og geta
beitt öguðum og vönduðum vinnu-
brögðum. Starfsmaður þarf að sýna hæfni í
mannlegum samskiptum og hafa góða
þekkingu á algengasta skrifstofuhugbúnaði.
Starfsmaður
við viðhaldskerfi flugvéla
Starfssvið:
Starfið felur m.a. í sér:
• Skráningu og eftirlit með lofthæfi-
fyrirmælum (AD Notes).
• Viðhald og uppsetningu viðhaldskerfa
(Maintenance Programs).
• Umsjón með viðhaldi aflvéla (Auxilary
Power Units).
Menntunar- og hæfniskröfur:
Krafist er tæknimenntunar og þekking á
viðhaldskerfum er æskileg. Starfsmaður þarf
að geta unnið sjálfstætt og viðhafa öguð og
vönduð vinnubrögð. Starfsmaður þarf að
sýna hæfni í mannlegum samskiptum og
hafa góða þekkingu á algengasta skrifstofu-
hugbúnaði.
Tækniþjónustan er
dótturfélag Flugleiða og
annast viðhald flugvéla
Icelandair sem og annarra
flugfélaga. Félagið hefur
aðsetur á Keflavíkurflugvelli.
Tækniþjónustan veitir
alhliða tækniþjónustu
í flugrekstri og hefur hags-
muni viðskiptavina að
leiðarljósi með góðri og
áreiðanlegri þjónustu.
Hjá félaginu starfa um
170 starfsmenn og eru þeir
lykillinn að velgengni þess.
Lögð er áhersla á að starfs-
menn séu þjónustulundaðir
og tilbúnir að takast á við
krefjandi og spennandi
verkefni á Íslandi og erlendis.
Tækniþjónustan leggur
áherslu á þjálfun starfs-
manna, hvetur þá til
heilsuræktar og styður við
félagsstarf starfsmanna.
Tækniþjónustan er
reyklaus vinnustaður.
Skriflegar umsóknir, sem tilgreini menntun og reynslu, óskast sendar starfsmannadeild
Icelandair, aðalskrifstofu, Reykjavíkurflugvelli, eigi síðar en 10. nóvember.
netfang: stina@icelandair.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
22
62
8
10
/2
00
3
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra á Austurlandi
Starf á Egilsstöðum
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austur-
landi auglýsir lausa til umsóknar 80% stöðu
ráðgjafa frá 1. janúar 2004 eða eftir nánara
samkomulagi. Starf ráðgjafa felur m.a. í sér
atvinnuleit, stuðning og ráðgjöf við einstakl-
inga með fötlun sem starfa á almennum vinnu-
markaði, ásamt skipulagningu, ráðgjöf og um-
sjón ýmissa verkefna. Gerð er krafa um mennt-
un á sviði félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða
sambærilega menntun.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
ríkissjóð við Starfsmannafélag ríkisstofnana
eða Þroskaþjálfafélag Íslands. Skriflegar um-
sóknir sendist til Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra, Austurlandi, pósthólf 124, 700 Egils-
stöðum, fyrir 1. desember nk.
Öllum umsóknum verður svarað og getur um-
sóknin gilt í allt að sex mánuði. Nánari upplýs-
ingar veitir forstöðumaður ráðgjafarþjónustu
eða framkvæmdastjóri í síma 471 1833.
Störf í tölvudeild
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur óskar eftir að ráða
tvo starfsmenn í tölvudeild. Deildin rekur ljós-
leiðaranet og þjónustar í gegnum það grunn-
skóla í borginni. Deildin hefur umsjón með
kaupum á tölvubúnaði fyrir skólana, rekstri
Novell miðlara með um 17.000 notendum, af-
ritunartöku, rekstri vefþjóns og pósthúss ásamt
uppsetningu kennslu- og notendahugbúnaðar.
Einnig er veitt þjónusta við tölvuumsjónar-
menn skólanna með skipulagningu námskeiða
og fræðslufunda.
Starfsmaður í tölvudeild:
Starfssvið:
Ráðgjöf og þjónusta við tölvuumsjónarmenn
grunnskóla Reykjavíkur.
Aðstoð við uppsetningar og viðhald tölvu-
búnaðar.
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
tölvudeildar.
Hæfniskröfur:
Rafeindavirkjun eða sambærileg menntun.
Þekking og reynsla af rekstri Windows
miðlara.
Þekking og reynsla af rekstri netkerfa.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Staða kerfisfræðings/tölvunarfræðings
Starfssvið:
Umsjón með uppsetningu hugbúnaðar hjá
grunnskólum Reykjavíkur.
Umsjón með uppsetningu og rekstri gagna-
grunna.
Hugbúnaðarráðgjöf við tölvuumsjónarmenn
í grunnskólum borgarinnar.
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
tölvudeildar.
Hæfniskröfur:
Háskólapróf í kerfis- eða tölvunarfræði.
Þekking og reynsla af rekstri gagnagrunna.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Upplýsingar gefur Guðbjörg Andrea Jónsdótt-
ir, forstöðumaður þróunarsviðs Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur, netfang: gaj@rvk.is,
sími 535 5000.
Umsóknarfrestur er til 8. nóvember nk.
Umsóknir sendist til Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík.
Laun eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
www.grunnskolar.is.