Morgunblaðið - 26.10.2003, Side 12
12 C SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Umsóknir um lán eða
styrki úr Stofnverndarsjóði
íslenska hestakynsins
Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15. gr.
búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal
annarra verkefna, með stjórn Stofnvernd-
arsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæð-
um í sömu lögum og reglugerð nr. 470/1999
um sama efni.
Verkefni sjóðsins eru:
Að veita fé til þróunarverkefna í hrossarækt,
sem nýtast til styrktar íslenska hrossastofninum.
Að veita lán og styrki til kaupa á sérstökum
úrvalskynbótagripum, ef sannað þykir að þeir
verði fluttir úr landi að öðrum kosti. Hér væri
um að ræða gripi, sem gætu haft úrslitaáhrif
á erfðabreytileika í stofninum, s.s. litafjöl-
breytni eða byggju yfir einstæðu kynbótagildi
í þeim eiginleikum sem prýða íslenskan hest.
Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í
desember 2003. Nánari upplýsingar og um-
sóknareyðublöð fást hjá Bændasamtökunum.
Frestur til að skila inn umsóknum er til
1. desember 2003 og skal umsóknum skilað
til Fagráðs í hrossarækt, Bændahöllinni
v/Hagatorg, 107 Reykjavík.
Reykjavík, 20. október 2003.
Fagráð í hrossarækt.
TIL LEIGU
Spennandi
tækifæri
Til leigu húsnæði
fyrir margvíslega þjónustu
Í Egilshöllinni er lögð áhersla
á íþróttaiðkun, afþreyingu og fjölbreytta þjónustu.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband
í síma 898 0995 eða pall@egilshollin.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
O
L
21
95
9
10
/2
00
3
Opin fundur
í Hvalfjarðarhreppi
Vinna við aðalskipulag hefur staðið yfir síðast-
liðið ár. Því vill sveitarfélagið af því tilefni boða
til opins fundar með íbúum og hagsmunaaðil-
um til að kynna hugmyndir um landnotkun
innan sveitarfélagsins.
Við viljum því hvetja fólk til að mæta og nú
er kjörið tækifæri til að koma hugmyndum á
framfæri.
Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu
Hlöðum fimmtudaginn 30. október 2003
kl. 20.00.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
KENNSLA
TILKYNNINGAR
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
framkvæmdir á skíðasvæðinu í Bláfjöllum
skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverf-
isáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 24. nóv-
ember 2003.
Skipulagsstofnun.
LISTASJÓÐUR
PENNANS
Myndlistarmenn
Listasjóður Pennans auglýsir eftir
umsóknum um styrki.
Penninn hefur styrkt unga myndlistar-
menn síðan 1992.
Í ár verða veittir 2 styrkir:
annar að upphæð 500.000 kr.
hinn að upphæð 300.000 kr.
auk þess sem verk verða keypt af
styrkþegum.
Umsóknum skulu fylgja myndir af verkum
umsækjanda ásamt ferilsskrá.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í
verslunum Pennans um land allt.
Einnig er hægt að nálgast þau á vefsíðu
Pennans www.penninn.is, þar sem er að
finna nánari upplýsingar um sjóðinn.
Umsóknarfrestur er til 1. des. nk.
SÉRVERSLUN Í 70 ÁR
Kynnisferð
til Kanada á vegum RÓTARÝ
Auglýst er eftir umsóknum um þátttöku í kynnis-
ferð starfandi fólks á aldrinum 25-40 ára. Ferðir
og uppihald eru þátttakendum að kostnaðar-
lausu.
Um er að ræða fjögurra vikna ferð til Ontaríó-
fylkis á tímabilinu 8. maí til 6. júní 2004. Þátttak-
endur verða fjórir, karlar og/eða konur, sem
unnið hafa í viðurkenndum starfsgreinum í
það minnsta tvö ár. Þeir mega ekki vera Rótarý-
félagar, makar, afkomendur eða makar afkom-
enda lifandi Rótarýfélaga. Með hópnum fer
fararstjóri sem er reyndur Rótarýfélagi.
Nánari upplýsingar fást hjá formanni starfs-
hópaskiptanefndar Rótarý, Snorra Þorsteins-
syni, í síma 437-1536 og á skrifstofu Rótarýum-
dæmisins í síma 568-2233 fyrir hádegi. Einnig
á vefslóðinni: www.rotary.org/foundation/
programs - Group Study Exchange.
Umsóknareyðublöð fást hjá forseta Rótarý-
klúbbs/klúbba á því svæði sem umsækjandi
býr og á umdæmisskrifstofu. Einnig er hægt
að sækja þau á umrædda vefslóð.
Umsóknum skal skila til viðkomandi Rótarý-
klúbbs fyrir 18. nóvember 2003.
Rótarýumdæmið á Íslandi.
Úthlutun á byggingarrétti
Kópavogsbær auglýsir byggingarétt til úthlut-
unar í Vatnsendalandi:
Atvinnuhúsnæði
Um er að ræða tvær lóðir fyrir atvinnuhúsnæði
við Urðarhvarf 2 og 4. Á lóðunum, sem eru
um 4.000 m² að flatarmáli, má reisa 4ra hæða
byggingar um 900 m² að grunnfleti eða um
3.000 m² að samanlögðum gólffleti, auk bíla-
geymsla undir húsum. Ofangreindar lóðir eru
hluti af nýju athafnasvæði, svæði fyrir verslan-
ir, skrifstofur og iðnað í norðanverðu Vatns-
endahvarfi með aðkomu frá Breiðholtsbraut
um Vatnsendahvarf og frá fyrirhuguðum Arn-
arnesvegi um Vatnsendaveg.
Áætlað er að lóðirnar verði byggingarhæfar
um miðjan júlí 2004.
Íbúðarhúsnæði
Um er að ræða eina lóð Fagraþing 2 í sk.
Hvammsreit. Á lóðinni, sem er um 1.000 m²,
má byggja 2ja hæða einbýlishús um 200 m²
að grunnfleti og um 350 m².
Áætlað er að lóðin verði byggingarhæf
í febrúar 2004.
Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingar-
skilmálar, ásamt umsóknareyðublöðum og
úthlutunarreglum, fást afhent á Bæjarskipulagi
Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð, frá kl. 9-16
mánudaga til fimmtudaga og 8-14 á föstudög-
um. Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir
kl. 15:00 mánudaginn 10. nóvember 2003.
Vakin er sérstök athygli á því, að umsókn-
um einstaklinga um byggingarrétt fyrir
Fagraþing 2 þarf að fylgja staðfesting
banka eða lánastofnunar á greiðsluhæfi
sem nemur 15 milljónum kr. Ef um fyrir-
tæki er að ræða, þá ber þeim að skila árs-
reikningi sínum fyrir árið 2002 árituðum
af löggiltum endurskoðendum og/eða
milliuppgjöri fyrir árið 2003 árituðum af
löggiltum endurskoðendum.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Innritun
Getum bætt við nokkrum nemendum á víólu
og selló. Einungis börn búsett í Reykjavík koma
til greina.
Innritun fer fram í síma 551 5777, á milli kl. 9
og 13 virka daga.
Aðalfundur
Foreldrafélags Menntaskólans í Reykjavík
verður haldinn þriðjudaginn 28. október
kl. 20:00-21:30 í kjallara Casa Nova.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Sr. Þórhallur Heimisson og Auður B. Kristjáns-
dóttir, kennsluráðgjafi, stýra umræðum um
samskipti foreldra og unglinga.
Stjórn FMR.