Morgunblaðið - 27.10.2003, Side 1
Litskrúðug
hlustarstykki
Af hverju ætti ekki að vera flott að
nota heyrnartæki? Daglegt líf 13
STOFNAÐ 1913 291. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hátíð að
Hellnum
Menningarmiðstöð vígð og áform
um uppbyggingu Vesturland 11
Kylfingar
í keppni
Áttfaldir Íslandsmeistarar í högg-
leik spreyta sig á Spáni Íþróttir
MÚSLÍMIR í Indónesíu komu saman til bæna í Istiqlal-moskunni í
Jakarta í gær, en í dag hefst þar ramadan, eða föstumánuður
múslíma, er þeir neita sér um m.a. mat og drykk frá sólarupprás
til sólarlags. Á kvöldin koma þeir saman til bæna og íhugunar.
Indónesía er fjölmennasta múslímaríki í heimi, en um 80% af íbú-
unum, sem eru um 212 milljónir, játa íslam.
Reuters
Föstumánuður múslíma hafinn í Indónesíu
FÆREYINGAR vilja að ósk þeirra
um fullgilda aðild að Norðurlanda-
ráði verði tekin til umfjöllunar á
þingi Norðurlandaráðs sem hefst í
Ósló, Noregi, í dag þrátt fyrir að
Danir séu mótfallnir því að Fær-
eyingar fái slíka aðild. Þetta sagði
Høgni Hoydal, varalögmaður Fær-
eyja, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Það verður þó erfitt að fá fulla
aðild okkar samþykkta ef Danir eru á móti því.“ Hann
segir Dani halda því fram að full aðild Færeyja brjóti
gegn ákvæðum dönsku stjórnarskrárinnar. „Þeir telja
að við eigum ekki að hafa fullgilda aðild að alþjóðlegu
samstarfi.“ Hoydal minnir á að þetta sé í annað sinn
sem Færeyjar sæki um fulla aðild að Norðurlandaráði.
Í fyrra skiptið sóttu þeir um aðild í byrjun níunda ára-
tugarins. „Þá fengum við það sem kalla má hálfa aðild
að ráðinu.“
Þá segir Hoydal að með fullri aðild Færeyinga að
ráðinu myndi hið vestnorræna samstarf innan ráðsins
styrkjast. „Ísland er eina landið af hinum vestnorrænu
löndum sem hefur fulla aðild að ráðinu,“ segir hann.
Auk þess segir hann Færeyinga vilja standa jafnfætis
hinum norrænu ríkjunum fimm í ráðinu og bera af
þeim sökum sína ábyrgð, t.d. fjárhagslega ábyrgð með
því að greiða sinn hluta til samstarfsins.
Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og einn af
fulltrúum Íslendinga í Norðurlandaráði, hefur ákveðið
að vekja sérstaka athygli á þessari ósk Færeyinga í
umræðum á þingi Norðurlandaráðs. Hann telur ósk-
ina eðlilegan hluta af þróun Færeyja til aukins og
„vonandi endanlegs sjálfstæðis“. Norðurlandaráð eigi
að fjalla um ósk Færeyinga óháð skoðun Dana.
Danir mót-
fallnir fullri
aðild Færeyja
Høgni Hoydal
Þing Norðurlandaráðs
verður sett í Ósló í dag
IAIN Duncan Smith, umdeildur
leiðtogi Íhaldsflokksins í Bret-
landi, sagði í gær að hann hefði
alls ekki í huga að segja af sér og
myndi leiða flokkinn aftur til
valda. Tveir þingmenn flokksins
hafa krafist þess að greidd verði
atkvæði um vantraust á leiðtogann
því að hann sé ekki starfi sínu vax-
inn. Greindi breska ríkisútvarpið,
BBC, frá þessu í gær.
Annar þingmannanna, Derek
Conway, sagðist ætla að bera til-
lögu sína upp í dag og telja að
nægilega margir myndu fylgja for-
dæmi sínu til að atkvæðagreiðslan
færi fram. Samkvæmt reglum
flokksins skal efna til atkvæða-
greiðslu um vantraust á formann-
inn ef að minnsta kosti 25 þing-
menn krefjast þess. „Ég tel að
formennsku Iains Duncans Smiths
verði lokið innan tveggja sólar-
hringa,“ hefur BBC eftir Conway.
Þeir sem gagnrýnt hafa Duncan
Smith segja hann skorta persónu-
töfra og ekki eiga nokkra mögu-
leika á að leiða flokkinn til sigurs á
Verkamannaflokki Tonys Blairs
forsætisráðherra í næstu kosning-
um, sem væntanlega fara fram um
mitt ár 2006.
Duncan Smith sagði að það væri
„alveg fráleitt“ að etja flokknum
út í leiðtogakjör. Hann tók við
leiðtogasætinu 2001 eftir sigur í
leiðtogakjöri í kjölfar afsagnar
Williams Hagues, en fyrr á því ári
hafði flokkurinn beðið mikið af-
hroð í kosningum. „Ég ávann mér
rétt til að leiða flokkinn í næstu
kosningum,“ sagði Duncan Smith
við BBC í gær. Við þá sem aldrei
hefðu sætt sig við hann sem for-
mann kvaðst hann vilja segja:
„Látið okkur í friði svo að við get-
um haldið áfram og unnið næstu
kosningar.“
The Sunday Times hafði eftir
heimildamanni innan flokksins að
breytingar yrðu að eiga sér stað.
„Við getum ekki haldið svona
áfram. Þetta er martröð. Iain hef-
ur glatað stuðningi meirihluta
þingmanna og meira að segja
stuðningsmenn hans eru farnir að
nota orðin „óhjákvæmilegt“ og
„óviðunandi“.“
Formennsku Duncans
Smiths „brátt lokið“
London. AFP.
Reuters
Umdeildur leiðtogi
ÞRÁTT fyrir að í skoðanakönn-
unum undanfarið hafi Duncan
Smith saxað á forskot Tonys Blairs
og Verkamannaflokksins virðist
honum ekki hafa tekist að tryggja
sér stuðning innan eigin flokks.
FJÖLDA eld-
flauga var skotið á
Al-Rashid-hótelið
í Bagdad í gær-
morgun og féll
einn bandarískur
hermaður og
sautján manns
slösuðust. Meðal
gesta á hótelinu
var Paul Wolfo-
witz, aðstoðarvarnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, en hann sakaði ekki.
Tvær sprengingar til viðbótar urðu í
búðum hersetuliðs bandamanna í
borginni í gærkvöldi, samkvæmt upp-
lýsingum bandaríska hersins, sem
ekki gaf nánari upplýsingar.
Wolfowitz sagði að Bandaríkja-
menn myndu hvergi draga af sér í
leitinni að „glæpamönnunum“ sem
gert hefðu árásina. Þetta myndi ekki
koma í veg fyrir að Bandaríkjamenn
myndu „ljúka ætlunarverki“ sínu í
Írak.
Háttsettur heimildamaður í banda-
ríska hernum sagði að 29 eldflaugum
hefði verið skotið að hótelinu frá
heimasmíðuðum skotpalli sem falinn
hafi verið í flutningavagni og dulbúinn
sem rafstöð. Útlit væri fyrir að skjóta
hefði átt ellefu til viðbótar en þær
hefðu ekki komist á loft. Sex eða átta
flaugar hefðu hæft hótelið. Álíka
mörg göt komu á vesturhlið þess og
gluggar brotnuðu í a.m.k. tuttugu
herbergjum. Á hótelinu hafa búið
borgaralegir starfsmenn bandaríska
hersetuliðsins, auk hermanna.
Þá sagði heimildamaðurinn að
flutningavagninn hefði verið í um 400
metra fjarlægð frá hótelinu. Þrír
menn hefðu dregið hann þangað á bíl,
kveikt á tímastilli og ekið á brott. Fá-
einum mínútum síðar hefðu eldflaug-
arnar skotist á loft.
Martin Dempsey, liðsforingi í
bandaríska hernum, sagði að ekki
væri talið að árásinni hefði verið beint
að Wolfowitz sem var í þriggja daga
ferð til Bagdad í því skyni að meta
möguleikana á að brjóta á bak aftur
þá hörðu mótspyrnu sem her Banda-
ríkjamanna í Írak hefur mætt. „Það
hefur tekið nokkra mánuði að smíða
þennan skotpall,“ sagði Dempsey.
Eldflaugaárás á
hótel í Bagdad
Wolfowitz var meðal gesta en sakaði ekki
Bagdad. AFP.
Paul Wolfowitz