Morgunblaðið - 27.10.2003, Page 1
mánudagur 27. október 2003 mbl.is
Stjórnstöðvar
fyrir hitakerfi
w
w
w
.f
rj
a
ls
i.
is
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur
komið við í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent
tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan
hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem
veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00%
5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200
15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700
30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
Fasteignablaðið
// Vatnið fossar
Sigurður Grétar Guðmundsson fjallar hér um
nauðsyn þess að vita hvar á að loka fyrir
heitt og kalt vatn í húsum t.d. ef óhapp ber
að höndum. 12
// Húnaþing vestra
Smábýli við jaðar Hvammstanga er nýr bú-
setukostur í Húnaþingi vestra. Þar líta menn
bjartsýnum augum til framtíðar og telja
sóknarfæri nokkuð góð. 26
// Einbýli við Steinás
Meðal glæsilegra eigna sem eru til sölu á
höfuðborgarsvæðinu er nýlegt einbýli við
Steinás sem mjög hefur verið vandað til á
allan hátt. 28
// Austurlensk teppi
Fjallað er um austurlensk teppi í viðtali
Perlu Torfadóttur við Kristjönu, „Sjönu“,
Sigurðardóttur hönnuð, sem sjálf hefur
hannað teppi. 46
UNDANFARIÐ hafa farið fram
íbúaþing á nokkrum stöðum á land-
inu og nú 1. nóvember nk. er fyr-
irhugað eitt slíkt í Stykkishólmi
undir yfirskriftinni: Hólmarar, tök-
um höndum saman. Sigurborg Kr.
Hannesdóttir hjá ráðgjafarfyrirtæk-
inu Alta skipuleggur það þing.
„Við höfum verið að stýra tvenns-
konar þingum, annars vegar er til-
gangurinn að móta stefnu í skipu-
lagsmálum viðkomandi sveitarfélags
og hins vegar að móta stefnu ýmist
almennt eða í einstökum málaflokk-
um,“ segir Sigurborg.
„Íbúaþinginu í Stykkishólmi er
ætlað hið síðarnefnda. Fram á að
fara stefnumótun í forgangsröðun
verkefna en í því sveitarfélagi er
mikil áhersla lögð á atvinnumál og
að heyra frá íbúum hvar þeir sjái
sóknarfæri fyrir Stykkishólm.
Þetta er fimmtánda þingið sem
við stýrum. Nýlega lauk fjórum
íbúaþingum í sveitarfélaginu Ár-
borg. Þar var verið að kalla eftir
sjónarmiðum og hugmyndum íbúa
vegna gerðar aðalskipulags.“
Hver er árangurinn af þessum
þingum?
„Mín reynsla er sú að íbúaþingin
sem tengd eru skipulagsmálum, sér-
staklega þar sem íbúar fá að setja
sínar hugmyndir niður á kort, skili
mestum árangri. Hins vegar bjóða
íbúaþingin upp á það að greina
ákveðin umbótaverkefni sem hefur
stundum verið gert. Þá ræðst ár-
angurinn fyrst og fremst af því
hvernig sveitarfélaginu sjálfu tekst
að fylgja stefnumótuninni eftir.
Aðferðirnar sem við notum á
íbúaþingunum er það sem greinir
þau frá hefðbundnum borgarfund-
um. Við sóttum þær til Bretlands,
áhersla er lögð á að allir þátttak-
endur hafi jafna möguleika á að tjá
sig þannig að ekki er hætta á að
örfáir einoki umræðuna.“
Hvers vænta íbúar helst?
„Í skipulagsmálunum sjáum við
að fólk vill gjarnan lifandi miðbæj-
arkjarna og einnig er mikil áhersla
á aðstöðu til útivistar, einkum
göngu- hjóla- og reiðstíga. Við fáum
þau skilaboð að fólk fagnar því að fá
tækifæri til að hafa áhrif á málefni
síns samfélags. Það er vaxandi
krafa íbúa að fá að taka þátt í um-
ræðunni um skipulagsmál enda sýn-
ir reynslan að með því að hafa sam-
ráð á fyrstu stigum skipulags þá
fást betri lausnir og meiri sátt um
stefnu.
Við reynum að ná til sem flestra
hópa, þannig að félagasamtök og
fyrirtæki eru hvött til að senda full-
trúa. T.d. í Stykkishólmi hefur þeim
sem eiga frístundahús, sem er vax-
andi hópur, verið sent bréf um þing-
ið. Frístundahúsaeigendur eru mik-
ilvægur hópur í sveitarfélögum og
það skiptir máli að fá að heyra
þeirra sjónarmið líka.“
Ljósmynd/Sigurður Mar Halldórsson
Frá íbúaþingi í Vík í Mýrdal.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Frá Stykkishólmi.
Tökum höndum saman
!
!
!
"#
"
!!# $
!
%&
#%
#!
#
!!
!
!
!
!
'( %
)$"""*
! " #
+
+
#+
+
$
%,
&
',
&%,
&
,( #) *)
-.
(
$ $
/ 0 12$
345/ 6$
70 $0
$6$
8$12$
9 :$556$
'; $ <
+, 6$.$
'; $ <
+, "
&
=
#
&#
=
%#
'
%
8 $(6
>
$
'
%
'
.
!+$% $
+$% $
!
=!