Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Þerney RE, Chiyo
Maru og Taiwa Maru
og út fer Mánafoss.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag eru væntanleg
Mango og Ludvik And-
erson.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16,30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
vefnaður og spilað í sal.
Kl. 13.30 félagsvist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
kl. 9–16.30 púttvöll-
urinn opinn þegar veð-
ur leyfir.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
ofl., kl. 9.30 gönguhóp-
ur, kl. 14 spilað. Kl. 14
verður opnuð mál-
verkasýning Jórunnar
Axelsdóttur. Haukur
Þórðarson frá Keflavík
syngur við opnunina.
Spilamennskan fellur
niður í dag.
Félagsstarfið Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
Moggi, rabb og kaffi.
Leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11.30. Tréútskurður
og brids kl. 13.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Útvarp Saga
94,3 í dag kl. 12.20.
Þáttur um málefni eldri
borgara.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, sími
575 7720. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a.
bókband kl. 13. Kl. 10
„Gleðin léttir limina“.
Létt ganga o.fl. Frá há-
degi spilasalur opinn.
Kl. 13.30 kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga. Kl. 14–15 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla.
Bingó kl. 14.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–12 postulínsmálning,
kl. 14.30 spænska,
framh. Kl. 14.30 Föstu-
dagskaffi. Hársnyrting.
Fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 10–11
kántrý dans. Kl. 13.30
sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs.
Kl. 14.30 dansað við
lagaval Halldóru, gott
með kaffinu.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12.30 leir, kl. 13.30
bingó.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105, Nýir félagar
velkomnir. Heitt á
könnunni. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Framsóknarfélag Mos-
fellsbæjar. Félagsvist í
kvöld kl. 20.30 í Fram-
sóknarsalnum, Háholti
14, 2. hæð. Veglegir
vinningar. Allir vel-
komnir.
Sunnuhlíð. Hinn árlegi
haust- og jólabasar
Dagdvalar í Sunnuhlíð
verður laugardaginn 1.
nóv. kl. 14. Einnig
kaffisala í matsal þjón-
ustukjarna til styrktar
Dagdvölinni. Margt fal-
legra muna, kökur og
lukkupakkar.
Í dag er föstudagur 31. október,
304. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Þeir lofuðu Guð
og höfðu vinsældir af öllum.
En Drottinn bætti daglega
við í hópinn þeim, er
frelsast létu.
(Post. 2, 47.)
Þorbjörg Helga Vigfús-dóttir skrifar á
Frelsi.is um ríkisrekstur
fjölmiðla og Velunnara
Ríkisútvarpsins.
„Markmið samtakanna
er að verja Ríkisútvarpið
með því að gagnrýna alla
þá umræðu sem upp kem-
ur um hlutafélaga- eða
einkavæðingu ríkisfyr-
irtækisins Ríkisútvarpið.
Segja má að samtökin
séu sérstök að því leyti að
þau eru hollvinasamtök
ríkisafskipta. Með að-
gerðum sínum og um-
ræðu hvetja samtökin
beinlínis ríkið áfram til
afskipta af sjónvarps- og
útvarpsrekstri og dag-
skrárgerðar sem er í
beinni og harðri sam-
keppni við aðra ljós-
vakamiðla. Þau hvetja
ríkið til að taka þátt í
samkeppni um íþrótta-
viðburði, um framhalds-
þætti í sjónvarpinu og um
auglýsingamarkaðinn.
Stjórn hollvinasamtak-
anna leggur því áherslu á
að snúa vörn í sókn í um-
ræðu um hlutafélagavæð-
ingu og halda ríkis-
útvarpi í almannaeign
áfram.“
Þorbjörg hefur eftirMargréti Sverr-
isdóttur, formanni Vel-
unnara Ríkisútvarpsins,
að samtökin telji starf-
semi RÚV vera í þágu lýð-
ræðisins, enda sé því skylt
að gæta óhlutdrægni og
halda uppi fjölbreyttum
skoðunum. „Rökin fyrir
áframhaldandi afskiptum
ríkisins af fjölmiðla-
rekstri eru veik. Rík-
isrekið sjónvarp og út-
varp getur ekki
mögulega haldið í heiðri
fyllstu óhlutdrægni frek-
ar en aðrir fjölmiðlar í
einkarekstri. Ein-
staklingar taka afstöðu
um fréttir, dagskrárgerð,
kaup á þáttum og samn-
ingum um sýningarrétt
og einstaklingar eru aldr-
ei fullkomlega óhlut-
drægir. Ákvarðanir RÚV
um sýningar á Bráða-
vaktinni, barnaefni,
Spaugsstofunni og enska
fótboltanum koma óhlut-
drægni og lýðræði ekkert
við – einungis markaðs-
öflunum. Íslenskri dag-
skrárgerð er minna sinnt
á RÚV en á öðrum sjón-
varpsstöðvum og rík-
issjónvarpið er í harðri
samkeppni á auglýs-
ingamarkaði þrátt fyrir
afnotagjöld sem allir eig-
endur sjónvarpstækja
greiða til þeirra. Þegar
vel er að gáð kemur í ljós
að RÚV er rekið eins og
hvert annað fyrirtæki –
nema að því undanskildu
að skattgreiðendur borga
brúsann.
Heilbrigð lýðræð-
isþróun er ekki tryggð í
höndum ríkisrekins fjöl-
miðils. Lýðræðisþróun á
sér stað þegar frelsi til
tjáninga og athafna er
tryggt. Ef við treystum
einstaklingunum ekki til
þess að gagnrýna upplýs-
ingar sem koma frá ljós-
vakamiðlum í einka-
rekstri gætum við sagt
það sama um vörur frá
öðrum aðilum. Sam-
félagið yrði fullt af holl-
vinasamtökum – fólki
sem hefur vit fyrir öðru
fólki.“
STAKSTEINAR
Hollvinasamtök
ríkisafskipta
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur tekið eftir því aðsumir hafa ekki áttað sig á því
hvernig fjölmiðlun nútímans virkar.
Frétt, sem sögð er í einu landi, berst
um heiminn á örskotsstundu, ekki
sízt eftir að Netið kom til sögunnar.
Það þýðir að t.d. niðurstöður al-
þjóðlegra kannana, sem kynna á
samdægurs víða um heim, geta birzt
í fréttum hér á landi án þess að búið
sé að segja frá þeim „opinberlega“ á
Íslandi. Það þarf ekki annað en að
blaðamannafundur sé haldinn
nokkrum klukkustundum áður í ein-
hverju öðru landi, t.d. Rússlandi, þá
getur fréttin birzt á Netinu ör-
skömmu síðar og verið komin í ís-
lenzkum fjölmiðlum áður en fulltrú-
ar viðkomandi samtaka eða
stofnunar á Íslandi hafa svo mikið
sem opnað munninn á blaðamanna-
fundi.
x x x
ÞETTA þykir þeim stundum súrt,sem ætluðu að njóta sinna mín-
útna í sviðsljósinu með því að boða
til blaðamannafundar á Íslandi. Það
dregur óneitanlega úr áhuga fjöl-
miðla á blaðamannafundinum, ef bú-
ið er að segja fréttina, sem er tilefni
hans. Við þessu er hins vegar ekkert
að gera – nema þá að samstilla enn
betur hvenær upplýsingar eru gerð-
ar opinberar, frá landi til lands.
Sama á við ef erlendir fjölmiðlar
hafa opinberað upplýsingar, sem
þeir áttu ekki að hafa aðgang að; það
er ekki hægt að fara fram á það við
íslenzka miðla að þeir segi ekki frá
þeim fréttum. Og ef upplýsingar
hafa á annað borð verið settar á Net-
ið, t.d. skýrsla verið sett inn á vef
stofnunar eða samtaka í útlöndum,
þá eru íslenzkir fjölmiðlar fljótir að
þefa upplýsingarnar uppi með leit-
arvélum og vefvökturum, sem leita
kerfisbundið að upplýsingum um Ís-
land og Íslendinga á erlendum vefj-
um.
x x x
VÍKVERJI tekur eftir því að fólksýnir hinni væntanlegu krón-
prinsessu Danmerkur, Mary Don-
aldson, talsverða athygli. Í dönsku
blöðunum hafa t.d. birzt ham-
ingjuóskir til Friðriks krónprins og
Mary frá Íslendingum. Auðvitað
finnst Íslendingum þeir eiga svolítið
í danska kóngafólkinu – þetta er nú
einu sinni okkar gamla konungs-
fjölskylda. Afi Friðriks krónprins,
Friðrik níundi, var á sínum tíma síð-
asti krónprins Konungsríkisins Ís-
lands, sem leið undir lok 1944 með
lýðveldisstofnuninni.
Víkverji hefur gaman af að velta
fyrir sér hvað hefði gerzt ef mál
hefðu þróazt öðruvísi, Íslendingar
hefðu sleppt því að stofna lýðveldi og
væru áfram sjálfstætt konungsríki
með danskan kóng. Ætli það hefði
t.d. ekki verið gerð skýlaus krafa, í
takt við nýja tíma, til Friðriks krón-
prins um að hann talaði lýtalausa ís-
lenzku, og Mary svitnaði nú yfir ís-
lenzkunámi sínu, sem ruglaði hana
auðvitað stöðugt í dönskunni?
Reuters
Íslenzkunámið er að fara með mig,
Friðrik. Geturðu ekki fengið þá til
að stofna lýðveldi?
ÉG rak augun í forsíðufrétt
Dagblaðsins um daginn og
þar stóð „Fylliríið er hafið,
góðærið byrjað“. Nú þegar
góðærið er farið að herja á
okkur aftur hef ég verið að
velta fyrir mér, hvað það er
sem fær landann til að
hlaupa til og kaupa nýja
bíla, stærri hús, stærri
tjaldvagna, stærri sjónvörp
og stærri ísskápa um leið
og við heyrum á góðærið
minnst?
Hvað er þetta góðæri
eiginlega? Er þetta ein-
hvers konar smitsjúkdóm-
ur eða farsótt?
Ef svo er hvernig smitast
maður? Berst þetta í and-
rúmsloftinu? Smitast menn
kannski á gangi í Kringl-
unni og verða að hlaupa í
næstu verslun og kaupa
eins og eitt stykki gasgrill
ásamt öllum aukahlutum?
Af því sem má lesa úr fjöl-
miðlum er greinilega eitt-
hvað stórhættulegt hér á
ferð. Bílainnflutningur
margfaldast, skuldir heim-
ilanna stóraukast, gjald-
þrotabeiðnum fjölgar og ef
eitthvað er að marka aug-
lýsingarnar sem hellast yfir
okkur er enginn maður
með mönnum ef hann kaup-
ir ekki einhvern óþarfa á
léttgreiðslum, raðgreiðsl-
um, kaupleigu eða yfir-
drætti. Þessi faraldur herj-
ar jafnt á unga sem aldna
eins og kom fram í kvöld-
fréttum á einhverri stöð-
inni um helgina. Þar ræddi
fréttamaður við nokkur
ungmenni sem sáu sér ekki
annarra kosta völ en að
hætta námi til að greiða
kreditkortaskuldir sínar.
Nú kann svo að vera að
maður spyrji sig hvað sé til
ráða? Hvernig skal lækna
fólk af góðæri?
Tel ég að sumir séu svo
smitaðir að þeim verði eng-
in björg veitt. Til að lækna
þjóðina af góðærinu er best
að byrja á yngstu kynslóð-
inni. Með því að taka upp
fjármálakennslu í öllum
grunn- og framhaldsskól-
um landsins er enn von að
við náum til hennar áður en
lífsgæðakappaksturinn (ég
kalla þetta kappakstur því
allir eru löngu hættir að
hlaupa) tekur við. Með því
að kenna komandi kynslóð-
um hvernig skal haga fjár-
málum sínum af kostgæfni,
og sýna þeim fram á að
stundum þarf einfaldlega
að spara fyrir hlutunum,
gæti það virkað sem ein-
hvers konar móteitur áður
en við vöknum af fylliríinu
og við tekur samviskubitið
og þynnkan.
Davíð Klemenzson,
nemi í Viðskipta-
háskólanum á Bifröst.
Hvar er
Jóhannes?
ÞAÐ undrar mig að hafa
ekkert heyrt lengi af Jó-
hannesi Ó. Jóhannessyni
básúnuleikara, eða eins og
frændfólkið kallaði hann
„Jóhannes frá Básúnu“.
Minnistætt var er hann
spilaði Satisfaction með
Rolling Stones í brúðkaupi
æskuvinar míns Jakobs
(Kobba) Klírens hér um ár-
ið. Nú nálgast stórafmæli í
ættinni og vil ég fá Jóhann-
es til að spila.
Jóhannes. Gefðu þig
fram!
Kveðja,
Arnar Jón Agnarsson,
píanóleikari.
Yndisleg
kvöldstund
FÖSTUDAGINN 17. okt.
naut ég, ásamt fleirum,
yndislegrar kvöldstundar á
Veitingastaðnum A. Han-
sen í Hafnarfirði. Einstak-
lega huggulegur staður í
gömlu húsi við höfnina.
Þjónustan var þægileg í
alla staði, fetaði þann
gullna meðalveg sem svo
oft er vandfundin og var
laus við alla ýtni. Maturinn
var meiriháttar, við mælum
eindregið með humrinum
og plankasteikinni.
Kvöldið var okkur
ógleymanlegt, takk fyrir
okkur.
Mikaela.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Fylliríið er hafið
Morgunblaðið/Sverrir
Leikið á Ingólfstorgi.
LÁRÉTT
1 tilkynnir, 8 bætir, 9
blíðuhót, 10 lélegur, 11
búi til, 13 ræktuð lönd, 15
karp, 18 sæti, 21 skyn-
semi, 22 furða, 23 stéttar,
24 yfirgangsmenn.
LÓÐRÉTT
2 sundfærum, 3 nálægur,
4 ráfa, 5 reiður, 6 lítil
flaska, 7 ókeypis, 12 hest-
ur, 14 smábýli, 15 fór
hratt, 16 gamli, 17 rell,
18 þrep, 19 mynnin, 20
halarófa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 bakki, 4 högni, 7 tomma, 8 kúgun, 9 not, 11
rask, 13 fann, 14 orrar, 15 karl, 17 ílar, 20 þró, 22 potar,
23 gusum, 24 nenna, 25 tinna.
Lóðrétt: 1 bitur, 2 kumls, 3 iðan, 4 hökt, 5 gegna, 6 inn-
an, 10 okrar, 12 kol, 13 frí, 15 kápan, 16 rætin, 18 lasin,
19 rimma, 20 þróa, 21 ógát.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16