Morgunblaðið - 31.10.2003, Side 12
12 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 31|10|2003 MORGUNBLAÐIÐ
„Maður sekkur alveg ofan í all-
ar bækurnar,“ segir Salvör
Gullbrá Þórarinsdóttir, 10 ára,
sem bíður spennt eftir að ís-
lenska þýðingin á Harry Potter
komi út en þá ætlar hún að
rjúka út í bókabúð og fá sér
hana. Aðrar ævintýrabækur
sem hún segir einnig skemmti-
legar eru Þríleikurinn eftir Phil-
ip Pullman og Narníubækurnar
eftir C.S. Lewis.
Hvaða persónu í Harry
Potter líkist þú mest?
„Ég held ég væri blanda af
Hermione og Ron, hann er
svona hrakfallabálkur eins og
ég er svolítið.“
Hvaða persóna finnst þér flott-
ust?
„Hagrid eða Dumbledore,
þeir eru svo góðir og gáfaðir.“
Hvað myndirðu gera ef þú gæt-
ir galdrað?
„Ég veit það ekki. Ég myndi
alla vega ekki vilja vera jafn
mikill klaufi við það og Ron.“
„Rowling hefur engar hömlur á
hugmyndaflæðinu og leyfir sér að
blanda því saman við húmor, sem
er sérstakt,“ segir Anna Heiða
Pálsdóttir, bókmenntafræðingur
og þýðandi, en hún heldur úti helj-
arinnar heimasíðu um Harry Pott-
er. „Svo er hún ekki barnaleg,
heldur talar við lesendur eins og
þeir séu fullorðnir, og sleppir öllum
predikandi tón.“
Hún segir gaman að sjá hvað
Potter hefur þróast í bókunum,
hann sé orðinn miklu þroskaðri nú
en í fyrstu bókunum, til dæmis
spyrji hann nú spurninga í stað
þess að taka allt sem gefinn hlut
eins og hann gerði í fyrstu bók-
unum. Að láta persónu þróast á
þennan hátt segir hún vera mikla
áskorun fyrir rithöfund en Rowling
hafi tekist það mjög vel.
„Fólk gagnrýndi í fyrstu bókinni
hvað Potter var passífur og lét allt
yfir sig ganga þegar hann bjó hjá
vonda frændfólkinu sínu, en auð-
vitað er þetta bara raunsæi, svona
eru örlög margra barna og þetta
sýnir okkur í raun hvað krakkar
mega sín lítils.“
Er þetta bara æði eða verða
bækurnar klassík?
„Þær verða klassík. Bækurnar
eru tímalausar og gætu átt sér
stað á hvaða tíma sem er. Krakk-
arnir í bókunum eru að glíma við
sömu vandamál í skólanum og
börn gera á öllum tímum.“
Hvaða persóna í bókunum
myndir þú vilja vera?
„Dumbledore, skólastjóri Hog-
warts. Hann hefur svo mikið vald
og svo er ég alltaf hrifin af gamla,
fróða læriföðurnum, hvort sem
hann er karl eða kona.“
Sigursteinn Gunn-
arsson, 14 ára,
hefur lesið allar
bækurnar. Þegar
hann var 11 ára
nennti hann ekki
að bíða eftir að ís-
lenska þýðingin á
þriðju bókinni
kæmi út svo hann
fékk sér hana á
ensku og stautaði
sig fram úr henni
þótt hann kynni
ekki allt of mikið í málinu. Hann segist núna lesa
bækurnar á ensku.
Hvaða persóna myndir þú vilja vera í Harry Potter?
„Líklega Síríus, guðfaðir Potters, því hann er fynd-
inn og getur breytt sér í dýr.“
Ef þú gætir galdrað hvað myndirðu gera?
„Fljúga, ég væri alveg til í að geta það.“
Loksins er biðin á enda. Fimmta bókin
um galdrastrákinn Harry Potter kemur út
á íslensku á morgun. Reyndar olli röð
dularfullra atvika í síðustu viku því að um
tíma var útlit fyrir að útgáfunni myndi
seinka um nokkra daga, en allt fór vel að
lokum. Búist er við bókinni í verslanir á
morgun og verður efnt til galdraveislu í
Eymundsson Austurstræti, kl. 13.11.
Margir hafa þegar lesið bókina á ensku,
til dæmis eru flestir viðmælendur Fólks-
ins búnir að því, enda harðir aðdáendur
þar á ferð. Hjá þeim er hinn hvíthærði og
síðskeggjaði Dumbledore dáðasta per-
sóna bókanna, valdið og viskan virðast
heilla … |bryndis@mbl.is
GALDRARNIR ERU KRYDD
Anna Heiða
Pálsdóttir
Salvör
Gullbrá
Þórarinsdóttir
Ragnheiður
Eiríksdóttir
Ragnheiður Eiríksdóttir tónlist-
armaður, sem oftast er kölluð
Heiða, hefur lesið fjórar fyrstu bæk-
urnar um Harry Potter tvisvar, og er
hálfnuð með nýjustu bókina í annað
sinn. „Mér finnst þetta svo
skemmtilegt því ég hef verið spennt
fyrir ævintýrum og yfirnáttúrulegum
hlutum frá því ég var lítil. Ég lá til
dæmis í bókunum eftir Enid Blyton,
Ævintýrabókunum, Fimmbókunum
og Dularfullubókunum. Svo kom Ís-
fólkstímabilið þegar maður varð að-
eins eldri en þar er einmitt mikið
fjallað um galdra.“
Heiða bendir á að bækurnar um
Ísfólkið hafi mest verið lesnar af
stelpum en Harry Potter höfði aftur
á móti til beggja kynja. Henni finnst
reyndar dálítill mínus að Harry skuli
vera orðinn 15 ára. „Þá þarf að láta
hann pæla í hinu kyninu, bara svo
hann sé ekki eitthvað afbrigðilegur.
Maður er svolítið hræddur við hvern-
ig það mun þróast.“
Hvað myndirðu gera ef
þú gætir galdrað?
„Ég er svo sjálfhverf að mér dett-
ur fyrst í hug að galdra fram fólk
sem gæti borgað reikningana mína.
Ég sé samt strax að ég ætti að nota
hæfileikana í að reyna að gera eitt-
hvað gott í heiminum.“
Hvaða persóna í Harry Potter mynd-
irðu vilja vera?
„Flottasti maðurinn er Dumble-
dore, skólastjóri Hogwartskóla. Það
streymir frá honum yfirnáttúrulegur
kraftur og viska svo ég myndi nátt-
úrulega vilja vera hann. Ég held nú
samt að ég sé ekki hann …“
Sigursteinn
Gunnarsson
„Bækurnar um
Harry Potter eru
svo kunnuglegar;
þótt þarna séu
galdrar og drekar
þá er ekkert í
bókunum sem við
höfum ekki séð
áður,“ segir Ótt-
arr Proppé sem
lesið hefur allar
bækurnar. „Við
höfum öll lesið um góða munaðarlausa strákinn
sem á skemmtilegu vinina, vondu óvinina og
þarf að vera í kringum gott og slæmt fullorðið
fólk. Við eigum auðvelt með að yfirfæra persón-
urnar á fólk sem við þekkjum, við eigum öll Her-
mione-vinkonu og þekkjum vondu kallana líka.“
Hvaða persóna myndir þú vera?
„Við hljótum öll að vera Harry Potter, annars
er ég það mikill sérvitringur að ég myndi líklega
geta verið Hagrid.“
Munu bækurnar eldast vel?
„Það fer eftir því hvernig serían þróast. Ef
Rowling heldur dampinum og klárar hana með
stæl þá verður þetta klassík, en ef hún mis-
stígur sig gæti galdurinn eyðilagst.“
Hefurðu áhuga á göldrum?
„Nei, ekki sérstaklega, enda lít ég á þann
hluta bókanna sem krydd fremur en aðalatriði.
Þeir gera sögusviðið skemmtilegra og ýktara.“
Ef þú gætir galdrað, hvað myndirðu galdra?
„Sjöttu bókina strax.“
Óttarr Proppé