Morgunblaðið - 31.10.2003, Page 14
14 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 31|10|2003 MORGUNBLAÐIÐ
VICTORIA OG DAVID BECKHAM
Síðan hefur Hugrún komið víða við og m.a. tekið
myndir af knattspyrnumönnum, nú síðast David
Beckham á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. „Ég vann
fyrir Global Artists, sem eru með skrifstofu í Tók-
ýó, að myndatöku með Holly Valance. Sama skrif-
stofa sá um gerð tveggja auglýsinga með David
Beckham og Victoriu, sem kostuðu um hálfan
milljarð hvor. Það var hringt í mig af skrifstofunni
og ég spurð hvort ég væri til í að taka mynd af
Beckham og Victoriu í flughöfninni með forseta All
Nippon Airlines, flugfreyju og fleirum, en mynda-
takan var fyrir flugfélagið.“
Hugrún féllst á það. Umboðsskrifstofa Beckham
hét henni tveim tímum til að koma upp ljósum og
öðrum búnaði. „En þau voru komin á staðinn þegar
við mættum á flugvöllinn, þannig að við urðum að
stilla öllu upp á örskotsstundu. Þau voru mjög við-
kunnanleg. Ég byrjaði á því að taka svarthvítar
polaroid-myndir til að sýna þeim hvernig lýsingin
væri. Victoria greip myndirnar og skoðaði þær
fyrst. Fyrst hún var ánægð, þá fékk David að
skoða þær. Ég var með hringljós á myndavélinni,
sem er mjög sterkt, þannig að fyrst sagðist hann
bara sjá hvíta hringi.“
FJÓRUM TÍMUM SÍÐAR MEÐ MADRID
Eftir myndatökuna fékk Hugrún Beckham til að
árita polaroid-mynd fyrir föður sinn, sem hefur ver-
ið stuðningsmaður Manchester United í yfir fimm-
tíu ár. Hún sagði honum það, að hún sjálf hefði
stutt United í tuttugu ár og hrósaði honum síðan.
„Þá táraðist hann. Ég skildi ekkert í því, enda hlyti
hann að heyra hrós frá aðdáendum á hverjum degi.
Ég flýtti mér að segja að hann væri í miklum met-
um á Íslandi vegna þess að í honum væri víkings-
eðli. Bæði út af ljósa hárinu og því að hann væri sí-
vinnandi um allan völl og gæfist aldrei upp. Þá tók
hann gleði sína á ný. Þegar við kvöddumst heilsaði hann öllum sem aðstoðuðu mig við mynda-
tökuna með handabandi; þau voru alveg himinlifandi.“
Beckham-hjónin gengu síðan afsíðis og umboðsmaður Beckhams sagði Hugrúnu að samn-
ingur Beckhams við Real Madrid hefði verið að ganga í gegn. Þau væru að ræða það. Þar var
komin skýringin á viðkvæmni Beckhams. „Það var undarleg tilfinning að ganga út frá þeim
með þessa vitneskju. Það var ekki fyrr en fjórum tímum síðar sem Manchester United gaf út
þá yfirlýsingu að Beckham væri orðinn liðsmaður Madrid. Myndirnar voru þær síðustu sem
teknar voru af honum meðan hann var liðsmaður United og sem hann áritaði með númerinu 7,
sem hann bar á United-treyjunni.“
RIO TAUGAÓSTYRKUR EN VOÐA LJÚFUR
Hugrún hefur myndað fleiri knattspyrnumenn, þar á meðal Rio Ferdinand og Paul Robinson,
en þá var Ferdinand enn leikmaður Leeds. Þetta var fyrir rúmum tveimur árum, áður en HM í
knattspyrnu hófst. „Rio vildi lyfta ímynd sinni og umboðsmaður hans skipulagði myndatökuna.
Rio mætti snemma og var voða ljúfur, en dálítið taugaóstyrkur enda voru þarna þrjár fyrirsætur
sem sátu fyrir á myndunum með honum. Hann kiknaði í hnjánum þegar brasilíska fyrirsætan
Tatjana ögraði honum í myndatökunni. Ég lét hann líka sitja fyrir með myndavél, því þetta var
eftir að upp hafði komist að hann og Kieron Dyer hefðu sofið hjá stúlku á Ibiza og tekið það upp
á myndband. Hann var nú ekkert of hrifinn af því í fyrstu, en samþykkti það þegar ég hafði út-
skýrt fyrir honum að um þetta yrði rætt í viðtalinu og hann yrði að geta sýnt að hann hefði húm-
or fyrir sjálfum sér.“
HEILBRIGÐAR FYRIRSÆTUR
Hugrún er ekki hætt afskiptum af fótbolta. Á næstu vikum stendur til að hún myndi Adrian
Mutu og Hernan Crespo í Chelsea fyrir karlatímarit og einnig er í bígerð heimildarmynd um
Bolton. „Það er gott að mynda knattspyrnumenn. Þeir eru elskulegir, mæta á réttum tíma, eru
heilsuhraustir og ekki timbraðir, nema kannski Gazza, og ekki fautar, nema kannski Vinnie
Jones.“
Og það er gaman að hlusta á Hugrúnu tala um …fótbolta! Hún hoppar á gólfinu og sýnir með
látbragði hvernig Gianfranco Zola skoraði með hælspyrnu fyrir Chelsea og segir blaðamanni
frá því að hann hafi tileinkað markið litlum dreng, sem dó úr krabbameini. „Ég veit miklu meira
um fótbolta en þú,“ segir hún stríðnislega. „Líður þér eins og karlmennsku þinni sé ógnað?“
SJÁLFLÆRÐUR LJÓSMYNDARI
Hugrún býr með dóttur sinni í nágrenni Lundúna, en miðja heimsins er samt á Íslandi, þar
sem foreldrar hennar, María Eygló Normann og Jón Helgason, búa og rætur hennar liggja. Einn-
ig bróðir hennar, Hilmar Ragnarsson listmálari, sem kenndi henni ljósmyndun, inn á hraða
filmu og myndavélar og á ljósopið. „Hann gerir það með pensli, sem ég geri með myndavél.“
Hún hóf ferilinn sem fyrirsæta, lagði síðan fyrir sig ljósmyndun og er sjálflærð. Helsta hjálp-
arhella hennar hefur verið Birgir Birgisson sem hefur unnið sem aðstoðarmaður hennar og er
einn af hennar nánustu vinum. „Hann veit jafnmikið um mig og mamma,“ segir hún og hlær.
ÞARF AÐ HAFA HRAÐAR HENDUR
Hugrún segist helst mynda fyrir tímarit, enda gefi það henni mest listrænt frelsi. Þá geti hún
tileinkað sér skapandi vinnubrögð, tekið áhættu og það hafi gefist vel. Það sem skipti helst
máli í slíkum myndatökum sé að þær taki stuttan tíma, en gefi samt góða raun.
„Það er svo mikið álag á þessu fólki. Þegar ég myndaði Holly Valance á hádegi var það
þriðja myndataka hennar yfir daginn. Þá gildir að hafa hraðar hendur. Þá uppsker maður
þakklæti og líkurnar aukast á að fleiri verkefni bjóðist.“
Framundan segir hún að séu m.a. myndatökur af Mariah Carey og nærfatalínu Deben-
hams. „Það góða við að mynda fótbolta er hins vegar að ég fæ að fara á leikina,“ segir
hún og augun ljóma eins og bláir fótboltar. |pebl@mbl.is
Fótboltakappar sitja fyrir
Hugrún Ragnarsdóttir eða Huggy, eins og hún er kölluð,
er einn af fáum íslenskum ljósmyndurum sem tekið
hafa forsíðumynd tímarits sem dreift er um allan heim.
Það gerðist fyrst þegar hún myndaði Karen Muldar fyrir
forsíðu Marie Claire árið 1990. „Þetta var í fyrsta
skipti sem tímaritið seldist það vel að það var prentað í
þremur upplögum.“
Morgunblaðið/Þorkell
RIO FERDINAND BREGÐUR Á LEIK.
MYND HUGRÚNAR AF HOLLY VALANCE Í TÍMARITINU VIVID.
HUGRÚN MEÐ MYND SEM HÚN TÓK AF BECKHAM.
KÆRT ER MEÐ ÞEIM BIRGI, HUGRÚNU OG HILMARI.